Dagur - 25.10.1977, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 25. OKT. 1977 46. TÖLUBLAIÐ
Þörf tillaga
Jón Skaftason hefur lagt
fram tillögu til þingsálykt-
unar í sameinuðu alþingi,
er hljóðar svo:
Alþingi ályktar að skora
á menntamálaráðherra að
beita sér fyrir því, að sjón-
varpið hefji svo fljótt sem
verða má, reglulega upp-
lýsinga- og fræðsluþætti
um efnahagsmál í umsjá
viðskiptadeildar Háskólans
og Þjóðhagsstofnunar.
Úr greinargerð
í greinargerð segir m. a.:
Margir eru nú uggandi
vegna þeirrar stefnu, sem
efnahagsmál landsins virð-
ast vera að taka. Yfirstand-
andi verkfall, vaxandi verð
bólga, erlend skuldasöfnun,
fallandi gjaldmiðill og yfir j
vofandi hætta á eyðilegg-
ingu náttúruauðlinda, eru
dæmi um málefni, sem
gefa tilefni til þessa uggs.
Þegar vandamálin rísa þarf I
að finna orsakir þeirra.
Hverjar eru réttar orsakir :
ofannefndra vandamála?
Fjarri fer því, að lands-
menn séu sammála um
svör í þeim efnum.
ölvunarslysum
fækkaði mjög
I ljós hefur komið og frá
verið sagt, að ölvunarslys-
um í Reykjavík síðan verk
fall hófst, eða öllu heldur,
síðan áfengisútsölunni var
lokað, hefur fækkað mjög.
Haukur Kristjánsson yfir-
læknir slysadeildar Borgar
spítalans sagði, að fyrstu
tíu verkfallsdagana hefði
verið tekið á móti 844 á
deildinni í stað 1146 næstu
tíu daga á undan. Yfirlækn
irinn sagði, að ástæðan til
þessarar fækkunar slysa
væim augljóslega þær, að
brennivínsbúðirnar hefðu
verið lokaðar.
Skoðanakönnun
um framboð
Sjö menn hafa gefið kost
á sér til þátttöku í skoðana
könnun Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
vestra, við næstu alþingis-
kosningar. Þeir eru þessir:
Bogi Sigurbjörnsson,
skattendurskoðandi á Siglu
firði, Brynjólfur Svein-
bergsson, oddviti á
Hvammstanga, Guðrún
Benediktsdóttir, kennari á
Hvammstanga, Magnús Ól-
afsson, bóndi á Sveinsstöð-
um, Ólafur Jóhannesson,
alþingismaður og dóms-
málaráðherra, Páll Péturs-
son, alþingismaður á Höllu
stöðum og Stefán Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri á Sauðárkróki.
L. A. frumsýnir Loft 4. nóv.
I eikfélaig Akureyrar frumsýnir söngleikinn Loft eftir
Odd Björnsson 4. október. Æfingar hafa staðið yfir í
tvo mánuði. Til tíðinda má teljast, að nær uppselt er á all-
ar frumsýningar LA í vetur. Miðasalan er þó opin til að
selja þá fáu miða, sem eftir eru, 26 október. Auk þess verða
þá til sölu áskriftarkort á aðrar sýningar vetrarins.
Leifur Þórarinsson tónskáld
hefur dvalið á Akureyri allan
æfingartímann og samið tónlist
við verkið. Brynja Benedikts-
dóttir, leikhússtjóri og Erlingur
Gíslason eru leikstjórar. Sigur-
jón Jóhannsson, yfirleikmynda-
teiknari Þjóðleikhússins býr til
leikmyndir. Og á frumsýning-
unni kemur á markaðinn kas-
etta með söngvum úr verkinu
og verður fáanleg í leikhúsinu.
Hún er gerð hér á Akureyri og
fór upptakan fram í studío
Pálma Stefánssonar.
Hljómlistarmenn eru: Gunn-
ar Ringsted, Sævar Benedikts-
son, Örn Magnússon og Matt-
hias Henriksen.
Auk þess leika og syngja
tvær konur, kennarar við Tón-
listarskóla Akureyrar, Barbara
Harrington og Katarina Rohneð
Jón H. Áskelsson annast stjóm
átta manna kórs, sem auk leik-
aranna syngja.
Sigurveig Jónsdóttir leikur
Móðurina, Gestur E. Jónasson
leikur Loft, Saga Jónsdóttir
leikur Dísu og djöfsa leikur Að-
Brynja Benediktsdóttir.
alsteinn Bergdal. Fréttamenn
sjónvarps og blindvarps leika
Þórir Steingrímsson og Árni V.
Viggósson og blaðamenn leika,
Björg Baldvinsdóttir, Jóhann
Sigríður E. Magnúsdóttir
syngur á 1. tónleikunum
Tónlistarfélag Akureyrar hefur
vetrarstarf sitt með tónleikum
Sigríðar E. Magnúsdóttur söng-
konu og Ólafs Vignis Alberts-
sonar píanóleikara í Borgarbíói
miðvikudaginn 26. okt. kl. 21.
Sigríður E. Magnúsdóttir tók
þátt í samkeppni fyrir unga ein-
söngvara í tengslum við tón-
listarhátíð í Aldenburgh og
Snape á Englandi um síðustu
mánaðarmót. Á þeirri keppni
komu fram 42 einsöngvarar
víða úr heiminum. í dómnefnd-
inni voru heimsfrægir tónlistar-
menn og einsöngvarar eins og
Gerald Moore, Elisabeth
Schwartzkopf, Peter Pears,
Hans Hotter.
Sigríður hlaut önnur verð-
laun, sem er stórglæsilegur ár-
angur, er hefur vakið athygh
Sigríður E. Magnúsdóttir.
og áhuga skipuleggjenda tón-
leika og óperuhúsa erlendis.
Sigríður og Ólafur flytja verð
launadagskrána en á henni eru
sönglög eftir Hayden, Schubert,
Strauss, Sibelius, Benjamin
Britten, Verdi, Donizetti.
Sigríður hefur stutta viðdvöl
á íslandi að þessu sinnþ og var
ekki ljóst fyrr en á síðusitu
stundu að hún kæmist heim
vegna verkfallsins, og þess-
vegna reyndist ekki unnt að
koma fréttum fyrr á framfæri.
Áætlað er að tónlistarfélagið
gangist fyrir 7—8 tónleikum á
þessum vetri og verður fljótlega
hægt að tilkynna dagskrána í
heild. Aðgöngumiðar á tónleika
félagsins eru seldir í bókabúð-
inni Huld og við innganginn.
Ögmundsson og Nanna Jóns-
dóttir. Erlingur Gíslason leikur
agentinn og Kristjana Jónsdótt-
ir aðstoðar leikstjóra. Kristján
Árnason og fleiri sömdu söng-
textana.
Frá
lögreglunni
á Akureyri
Mun minna hefur borið á ölvun
í bænum síðan verkfallið hófst,
og gistu aðeins tveir menn
fangageymslu lögreglunnar um
síðustu helgi.
Skemmdir voru unnar á bíl-
um við Sjálfstæðishúsið aðfara-
nótt síðasta laugardags, með
sparki og undanfarna daga
hefur verið ekið á fimm kyrr-
stæða bíla, án þess að þeir gæfu
sig fram, sem þar voru að verki,
síðast á mánudagskvöld við
Borgarbíó, þar var Mazda-bíll
skemmdur. Lögreglan biður þá,
sem upplýst geta þessar bíl-
skemmdir og ákeyrslur að láta
hana vita sem fyrst.
Bændaklúbbs-
fundur
í Hlíöarbæ
Fyrsti bændaklúbbsfundur
inn verður haldinn í Hlíðar
bæ fimmtudaginn 27. októ-
ber og hefst kl. 21. Frum-
mælendur verða Jón Hjálm-
arsson og Stefán Valgeirs-
son og ræða þeir um sam-
þykktir síðasta aðalfundar
Stéttarsambands bænda og
framleiðslumál landbúnaðar-
ins.
Athugið breyttan fundar-
dag og fundarstað.
Verkfalli frestað til 15. nóv.
Samningar með fyrirvara undirritaðir í gær
í gærmorgun náðist samkomulag á milli starfsmanna ríkis
og bæja og ríkisstjórnarinnar um nýjan kjarasamning. Hann
mun hafa verið undirritaður með fyrirvara klukkan sex síðd.
í gær.
Þegar samkomulagið hafði náðst í gærmorgun, efdr hálfs-
mánaðar verkfall BSRB, var gefin út yfirlýsing, að verkfalli
væri frestað þar til allsherjaratkvæðagreiðsla um samning-
inn hefði farið fram, eða tíl miðnættis 15. nóvember.
Meginatriði nýja samningsins eru þau, að laun samkvæmt
launaflokkum hækka frá rúmlega 10% upp í 21%, miðað
við júlílaun. Við það bætist 12 þús. kr. greiðsla, sem skipt-
ist jafnt á þrjá mánuði, sept., okt. og nóv.
Hinn 1. desember n. k. hækka laun í 5.—9. flokki um
1500 krónur, auk þess sem áfangahækkun verður í öllum
flokkum. Sú hækkun verður sem svarar 4% af júlíkaupi,
en þó ekki lægri en 5 þús. kr. Síðan verður ófangahækkun
1. júní 1978 3%, en þó ekki lægri en 5 þús. kr. Þá kemur
enn 3% áfangahækkun 1. september 1978, sem ekki nemur
þó lægri upphæð en 4 þús. kr. og loks verður 3% áfanga-
hækkun 1. apríl 1979.
Þá verður tilfærslu í fjórum neðstu launaflokkunum hrað-
að. Launaflokkshækkun verður eftir 15 óra starf, og í des
ember fá þeir 40 þús. kr. persónuuppbót, sem eiga að baki
9 ára starfsaldur í fullu starfi og persónuuppbót hækkar
síðan í samræmi við vaktaálag og verður aftur greidd i
desember á næsta ári, þeim sem þá hafa að baki 10 ára
starfsaldur. Starfsfólk í hlutavinnu með sama starfsaldur,
fær hlutfallslega persónuppbót.
Samkomulag varð um endurskoðunarrétt á kaupliðum á
samningstimabilinu, sem lögum samkvæmt er tvö ár, talið
frá 1. júlí í sumar. Hvor aðili um sig getur visað málinu tíl
sáttanefndar þegar mánuður er liðinn frá því endurskoð-
unarkrafan var lögð fram. Þá var samið um aukið vakta-
álag á nætur- og helgidagavinnu og auka kaffitíma og ýmis
sérákvæði starfshópa.
Sem dæmi um laun 1. nóvember í nokkrum flokkum
i efsta þrepi má nefna:
Lægstu laun með 4% verðbótum verða tæplega 102 þús. kr.
Laun i 6. flokki, efsta þrepi verða rösklega 123 þús. kr.
Laun í 10. flokki, efsta þrepi, verða tæplega 145 þús. kr.
Laun í 13. flokki verða launin 1. nóv. tæplega 162 þús. kr.
Laun i efsta flokki, efsta þrepi, verða tæpar 277 þús. krónur.