Dagur - 21.12.1977, Síða 4
Útgcfandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur llafnarstræti 90, Akureyri
Simar: Ritstjórn 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðartn.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentvcrk Odds Bjömssonar hf.
Hið ráðandi afl
Þingeyingurinn Einar í Nesi keypti
Oddeyri fyrir hönd Gránufélagsins
af Þorsteini á Skipalóni fyrir einni
öld, en mjög í óþökk kaupmanna,
sem óttuðust um sinn hag, ef þau
samtök manna, sem að Gránufélag-
inu stóðu, næðu fótfestu við Pollinn.
Þá var Oddeyri 30 vallardagsláttur
að stærð, óbyggt svæði, og Einar
gerði skipulagsuppdrátt að 30 þús-
und manna byggð þar.
Félagshyggjan hafði skotið rótum
á Akureyri og upp af henni spratt
hið vel þekkta samvinnustarf, bæði
í viðiskiptum og verksmiðjurekstri
og síðan á ýmsum öðrum sviðum
framkvæmda-, atvinnu- og menning-
armála, svo fullyrða má, að félags-
hyggjan einkenni þennan norð-
lenska bæ öllu öðru fremur. Hvers-
konar samvinna og félagsrekstur,
ásamt einkaframtakinu, hefur dafn-
að hlið við hlið, og fyrir svo sem
hálfum öðrum áratug hefur bæjar-
félagið í vaxandi mæli tekið upp þá
stefnu að örva framkvæmdir og þar
með atvinnulíf og framfarir með
beinum og óbeinum stuðningi. Þá,
og þá fvrst var atvinnuleysið að fullu
þurrkað út og bærinn tók að vaxa
hröðum skrefum. Þetta er að vísu
kunnari saga en frá þurfi að segja,
en þó brestur marga skilning á því,
að félagshyggjan hefur lagt grunn-
inn að velferð fólksins, stækkun bæj-
arins, örum framkvæmdum og menn
ingarlífi og velmegun. Það er öllu
öðru fremur henni að þakka að efna-
hagur fólks er jafnari hér en í
nokkrum öðrum kaupstað landsins,
engir „utangarðsmenn", lítið um æv-
intýramenn og braskara, traustari
viðskiptahættir en almennt gerist og
enginn rígur á milli byggða og þétt-
býlis. Samvinna er mikil á milli full-
trúa hinna ýmsu stjórnmálaflokka í
stjóm bæjarmála, vegna þess að fé-
lagshyggjan og þar með ábyrgðartil-
finningin á sterkan hljómgrunn í
huga sérhvers manns. Undir merki
félagshyggjunnar hefur bærinn notið
mikils trausts og álits. Aðstreymi
fólks og fjármuna hefur orðið veru-
legt á síðari árum og hinn mikli vöxt-
ur bæjarins er talandi tákn um hag-
fellda og trausta þróun, þar sem fé-
lagshyggjan er ráðandi afl í mikilli
framfarasókn.
Þjálfaranámskeiði lokið
Nýlega lauk námskeiði fyrir
þjálfara í alpagreinum skíða-
íþróttarinnar. Námskeiðið var
haldið í Vetraríþróttamiðstöð-
inni í Hlíðarfjalli. Kennari á
námskeiðinu var norðmaður
inn Björn Edvaldsen, en hann
er kunnur Þjálfari í heima-
landi sínu. Námskeiðið sóttu
18 manns, allsstaðar að af
landinu, en flestir voru þó frá
Akureyri, 12 talsins. Námskeið
ið var haldið á vegum Skíða-
sambands íslands, og útskrif-
uðust af því þjálfarar svokall-
aðs B-stigs. Að sögn ívars Sig-
mundssonar, framkvæmda-
stióra skíðamiðstöðvarinnar,
tókst námskeiðið í alla staði
mjög vel og var Norðmaður-
inn mjög hrifinn að þeirri að-
stöðu sem er hér í Hlíðarfjalli.
Að námskeiðinu loknu sagði
ívar að ráðgert hafði verið að
landslið íslendinga í alpa-
greinum héldi æfingu í nokkra
daga, undir stjórn B5örns Ed-
valdsens, en því miður voru
mætingar landsliðsmanna
mjög tregar. í karlagreinum
mætti aðeins Haukur Jóhanns
son frá Akureyri, og eini kven
maðurinn í landsliðshópnum,
Steinunn Sæmundsdóttir,
mætti t. d. ekki. Ur unglngia-
landsliðinu mætu Akureyr-
ingarnir Guðrún Leif.sdóttir,
og Finnbogi Baldursson, og
Húsvíkingurinn Björn Olgeirs-
son. ívar hvað Norðmanninn
hafa verið mjög svektan yfir
þessu, þar sem þetta hefði ver-
ið ver skipulagt og undirbúið
og búið að kosta til þess ærnu
fé. Fréttamaður blaðsins
hringdi í Hákon Ólafsson, for-
mann skíðasambandsins og
spurði hann hverju það sætti,
að svo léleg mæting hefði ver-
ið hjá landsliðsfólki okkar,
sérstaklega þeim frá höfuð-
borgarsvæðinu og einnig frá
Vestfjörðum. Hákon k\>iað
þetta mjög bagalegt, en sagði
að beir sem hefðu ekki komist
hefðu haft löglegar fjarvistir
og verið búnir að greina frá
þvi vel í tíma. Sumir höfðu
verið erlendis, og aðrir að lesa
Hákon upplýsti einnig, að aðal
undirbúningur landsliðsins
byrjaði strax eftir áramót, en
þá færu landsliðin til æfinga
í Mið-Evrópu. Þess skal að lok
um getið, að landslið fullorð-
inna á skíðum er skipað þeim
Hauki Jóhannessvni frá Ak-
ureyri, Sigurði Jónssyni og
Hafþóri Júlíussyni frá ísafirði
og Steinunni Sæmundsdóttur
frá Reykjavík. Engir vara-
menn eru í liðinu, en þess skal
getið, að Árni Óðinsson, Tóm-
as Leifsson, Björn Víkingsson
o. fl. hafa æft mjög vel undan-
farið, og sóttu m. a. æfingar
hjá Norðmanninum Birni Ed-
valdsen.
Skíðamenn
erlendis
Nú um helgina fóru nokkrir
skíðamenn og konur til æfinga
til ítalíu. Þau sem fóru voru
systkinin Tómas, Guðrún og
Nanna Leifsbörn, Jón Rafn
Pétursson og Svana Birgis-
dóttir. Fara þau með skíða-
mönnum úr Ármanni í Reykja-
vík sem hafa skipulagt ferð-
ina. Fólkið fer þetta að mestu
leyti á eigin kostnað, en þó
hafa einhverjir styrkt þá, m.a.
KA sína menn .
ÍS vann einnig í karlafl.
Strax að loknum leik kvenn-
anna léku karlalið sömu aðPa
og einnig í 1. deild. Bæði liðin
hafa á að skipa Bandaríkia-
mönnum og bvggist leikurinn
nokkuð á einvígi milli beirra,
b. e. a. s. hvor skori fleiri stig.
Þó verður að seeja, að hvor-
ugur er eigingiarn með bolt-
ann, en Mark Christiansen hiá
Þór mætti gjarnan vera það,
því hraði hans og snerpa er
með eindæmum. Þá er hittni
hans einnig frábær. Gaman
væri að sjá hann leika í liði
með jafningjum sínum í grein-
inni, en því miður er geta leik-
annarra leikmanna Þórs ekki
í neinu samhengi við getu
Marks. Dirk Dunbar í liði
stúdenta er einnig frábær leik-
maður. Hann er miög leikinn
með boltann og með sér hefur
hann menn sem einnig eru
finkir, þannig að betri heildar-
svipur verður á leik þeirra.
Mark skoraði fyrstu körfu
leiksins og komust Þórsarar í
fimm stig gegn einu. Þá fór
hins vegar allt að ganga upp
hjá stúdentum, en jafnframt
mjög illa hiá Þór og var hittni
þeirra vægast mjög slæm, og
skoruðu stúdentar tíu stig í
röð án þess að Þórsarar kæm-
ust á blað. Stúdentar höfðu
síðan lengst af yfir, en
skömmu eftir miðjan síðari
hálfleik tóku Þórsarar mikinn
fjörkipp og skoruðu hvert
markið á fætur öðru og var þá
staðan 28 gegn 29 fvrir ÍS. —
Þórsarar héldu hins vegar ekki
þessari pressu, og stúdentar
sigu framúr. í hálfleik var
staðan 45 gegn 34 fyrir þá. Jón
Indriðason gerði síðan þrjú
fyrstu stig s’'ðari hálfleiks. en
forskot það sem stúdentar
höfðu náð dugði þeim til sig-
urs í leiknum, en þeir skoruðu
87 stig gegn 71. Mark Christi-
ansen var stigahæstur leik-
manna en hann gerði 38 stig
eða rúman helming af stigum
Þórs, og er það eflaust eins-
dæmi í fvrstu deild. Hjörtur
Einarsson gerði 11, en hann
átti annars ágætan leik að
þessu sinni. Eiríkur gerði 10,
Jón Indriða 9 og Þröstur 3. —
Dirk Dunbar gerði 33 stig fyr-
ÍS, Jón Héðinsson 17 (lék áður
með Þór), Ingvi Stefánsson 12,
og aðrir færri. Vítahittni hjá
Þór var sú, að þeir fengu
dæmd 21 vítaskot og skoruðu
úr 15, ÍS fékk 29 skot og skor-
uðu úr 22. Dómarar voru þeir
sömu og hjá stúlkunum og
dæmdu þeir vel.
TOYOTA
TOYOTA er langmest selda saumavélin á Isla
í dag.
TOYOTA er tilvalin jólagjöf.
TOYOTA er nytsöm jólagjöf.
Hagstætt verð. - Greiðsluskilmálar.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON
í** ^ ^ ^ ^ ^» ^ ^
Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisir
Skrifstofa Borgartúni 7, sími 24280.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 8.20—16
Símaafgreiðsla til kl. 16.15.
Útborganir á fimmtudögum frá kl. 10—12 og
13—15.
Íhúðir til sölu
VIÐ STEINAHLÍÐ 1
Verða afhentar að hausti 1978, m’eð bílskúr.
Hagstætt verð ef samið er strax.
Upplýsingar gefnar eftir vinnutlma.
Davíð Jónsson, sími 22959,
Magnús Garðarsson, sími 19894,
Magnús Kristinn, sími 23996.
KVISTHAGI S.F.
AUGLÝSIÐ í DEGI
$ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉl
Iðnaðardeild - Akureyri
•• ... .. v: ií-J-XL •
IÐNAÐARDEILD S.Í.S.
óskar eftir að taka á leigu 3ja herbergja íbi
um næstu áramót.
Upplýsingar í síma 21900 (23).
t,.á£í&:Cí~
Glerárgata 28 • Pósthólf 606 • Sími (96)2
í JÓLAÖSINNI
er gott að fá sér heita
hamborgara og heitar
eða kaldar samlokur
með frönskum kartöflum,
hrásalati og sósum.
Krókeyrarslöðin
NÁTTKJÓLAR
Undirkjólar.
Mittispils, 2 síddir.
Korselett.
Buxnabelti.
Mjó sokkabandabelti.
VERSL. DYNGJA
DRENGJAFÖT
á 1—4 ára, slétt fli
Sokkabuxur á 2—6
ÁSBYRGI
HURÐARSPRENG.
(€sso) NESTIN
4 • DAGUR