Dagur - 21.12.1977, Page 8
RAFGEYHAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VELJIÐ RÉTT
MERKI
Saga hestalækninga
konar kvilla og jafnvel alvar-
lega sjúkdóma. Saga slíkra til-
rauna er forsaga dýralækninga
nútímans. Brautryðjendur þess-
aara fræða voru dýralæknar,
sem höfðu mikinn áhuga, ekki
aðeins á sögu sérgreinar sinnar,
heldur einnig á þjóðtrú og
þjóðháttum. Þó að íslenskir
bændur hafi því nær eingöngu
stundað búfjárrækt um 1100
ára skeið, eru engu að síður
eyður í sögu íslenskra húsdýra.
Til að fvlla í þær eyður að ein-
hverju leyti, hefur höfundur
þessarar fróðlegu bókar rann-
sakað þær lækningaaðgerðir,
sem íslendingar beittu gegn
sjúkdómum á hrossum. — Saga
hestalækninga á jafnmikið við
menn og lækningaaðgerðir.
Til að gefa nokkra hugmynd
um viðfangsefni höfundar, er
fjallað um blóðtöku, hönkun_
beinbrot, vönun, að spretta í
nös, hrossasótt, ormaveiki,
þvagteppu, meiðsli undan reið-
tygjum, gjarð- og haftsæri,
hestalús, tannbrodda, skæl, hára
far, klums, heymæði, hófsperru
og meðferð hófa, strok, fang-
vörn, að meta gæðingsefni o. s.
frv. Má af þessu sjá, að bókar-
efnið er víðfemt og eflaust þyk-
ir hestamönnum það eftirsótt
lesefni.
Út er komin hjá Bókaforlagi
Odds Björnssonar á Akureyri
stór og vönduð bók um hesta-
lækningar hér á landi og ber
nafnið Saga hestalækninga á ís-
landi, hálft fjórða hundrað blað-
síður, og er hún eftir George J.
Hauser. Mun bók þessi eiga er-
indi við hestamenn vegna ótæm-
andi fróðleiks.
Á bókarkápu segir:
Allt frá því er menn fyrst
tömdu dýr til brúkunar, hafa
þeir reynt eftir megni að verja
þau veikindum, lækna margs
DAGUR
kemur næst út 23. des.
Loðnan er mikilvæg
í samtali við Boga Sigurbjörns-
son, skattaendurskoðanda 14.
des., sagði hann meðal annars
eftirfarandi fréttir frá Siglu-
firði:
Fyrst er að geta þess, að jarð-
borinn Glaumur, sem hér hefur
verið að störfum, í Skútudal,
hefur lokið borun og varð kostn
aður samkvæmt áætlun, eða 37
milljónir króna. Boraði hann
holu 10 og varð árangur eftir
atvikum sæmilegur. Búið er að
dæluprófa holuna og komu þá
upp 8,5—13,5 lítrar vatns á sek.,
67 stiga heitt. En þar sem hola
þessi er á sama vatnakerfi og
hola númer 7, er ekki um hreina
viðbót að ræða. Vatnsmagnið
samtals, sem við höfum n, er
rétt um 36 sekúndulítrar, því
viðbótin varð 20% aukning. Má
þá segja, að þetta heita vatn sé
nægilegt fyrir Siglufjörð, eða
fast að því.
Þá er unnið við kyndistöð og
er áætlað, að hún verði tilbúin
í janúarlok. Verður hún notuð
þegar álagið er mest. Um 70%
af íbúum bæjarins njóta nú
heita vatnsins.
Siglósíld var að ljúka starf-
rækslu þessa árs í gær. Þá var
starfsfólkinu haldin góð skemmt
un, svo sem var vel við hæfi
eftir mikil og vel unnin störf.
Búið er að framleiða 36000
kassa af gaffalbitum fyrir Sovét
markað og verðmætið er talið
um 300 milljónir króna. Svo
gerum við ráð fyrir, að starf í
verksmiðjunni hefjist á ný um
miðjan janúar, ef nýir samning
ar liggja þá fyrir, en frá þeim
er ekki búið að ganga enn sem
komið er.
Togararnir, Dagný,. Stálvík
og Sigluvík, eru gerðir ut heð-
an frá Siglufirði og hafa þeir
allir farið í söluferð, tveir til
Hollands og einn til Þýskalands
og seldu þeir allir mjög vel og
eru nú á ný komnir á veiðar.
Þá er hingað nýkominn 400
tonna, þriggja ára, franskur
togari.
Þormóður rammi er að byggja
stórt frystihús, sem verður búið
öllum nýtísku vélum og tækj-
um. En bygging þessi er að
verða fokheld og verkinu er
hraðað svo sem kostur er. Gólf-
flötur er 2100 fermetrar og hús-
ið á einni hæð.
Smábátaeigendur hafa aflað
sæmilega á þessu ári og er af-
koma þeirra sæmilega góð.
Trillubátar eru mjög margir hér
og stutt á fiskimiðin.
Atvinnan hefur verið mjög
góð á Siglufirði allt þetta ár og
afkoman því sæmileg.
Hér er nú allt fullt af loðnu.
Um loðnuaflann má það annars
segja, að á sumarvertíð bárust
hingað 110 þúsund tonn og
vetrarloðnan er 35 þúsund tonn.
Reiknað hefur verið út, að verð
mæti loðnunnar, sem hér hefur
verið unnin, sé um 2.5 milljónir
á hvern íbúa staðarins og má
það teljast nokkuð gott.
Snjór er mjög lítill en víða er
hálka, svo sem á veginum inn
í Fljót, sagði Bogi Sigurbjöms-
son að lokum og þakkar blaðið
upplýsingarnar.
GEYMIÐ EKKITIL MORGUNS
ÞAD SEM ÞÉR
GETIÐ GERTIDAG
Á morgun gæti það orðið of seint
PANTIÐ TÍMANLEGA Á NÝJÁRSFAGNAÐINN
MATSEÐILL
Rækjutoppur
Kjötseyði Albion
Fylltur Kalkún með Madeiradýfu
Logandi pönnukökur
Hver hlýtur stóra vinninginn í ár?
Hringið strax í síma 22200 og pantið borð
Samkvæmisklæðnaður
HÓTEL K.E.A.
Belgveitlingar, fingravettlingar,
lúffur og sokkar. - Stórkosflegt úrval.