Dagur - 21.06.1978, Blaðsíða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Að velja
og hafna
Sveitarstjórnarkosningarnar gáfu
stjórnmálamönnum mörg íhugun-
arefni. En á sunnudaginn ræðst
það í hinum dreifðu byggðum,
hvort Framsóknarflokkurinn fær
styrk til þess framvegis, að halda
byggðastefnunni uppi.
Áður en alþýðubandalagsmenn,
sem hatast við erlenda stóriðju og
Kröflu, ganga að kjörborðinu,
ættu þeir að minnast þess, að það
var foringi þeirra, þá í ráðherra-
stói, sem undirbjó þær fram-
kvæmdir báðar. Og núverandi for-
ingjar sama flokks, hafa manna
hæst hrópað um „kaupránsiög",
en gugnuðu þó við að greiða
starfsmönnum Reykjavíkurborgar
fullar vísitölubætur, er þeir tóku
við völdum í borgarstjórn og frægt
er.
Alþýðuflokkurinn stritast við að
setja upp nýtt andlit, sem á að
vekja traust. Hann talar manna
fjálglegast um úrræði sín í stærstu
þjóðmálunum, nefnir jafnvel land-
heigismálið. En sami flokkur
hafnaði þátttöku í vinstri stjórn
1971, m.a. vegna fyrirhugaðrar út-
færslu landhelginnar í 50 mílur og
tilkynnti það bréflega. Má út frá
þessu leiða hugann að því, hvar
við stæðum nú í landhelgisbarátt-
unni, ef Alþýðuflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur hefðu átt lengri
samleið í ríkisstjórn. Flokkurinn
með nýja andlitið, sem gerði sig
svo sakleysislegan, að hann birti í
málgögnum sínum reikninga yfir
mat og kaffi, sem agentar hans
urðu að kaupa sér á ferðalögum,
hefur gert sig sekan um að eiga
mestan þátt í svæsnustu rógskrif-
um síðari tíma, sem öllum hefur
verið hrundið á eftirminnilegan
hátt. Það er ekki því blaði að
þakka, að saklaust fólk hlaut frelsi
en situr ekki enn innilokað, heldur
því frumkvæði dómsmálaráð-
herra, að fá víðkunnan glæpa-
málasérfræðing í Geirfinnsmálið
og leysa það.
Alþýðuflokkurinn telur sig hafa
á að skipa sveit forystumanna,
sem vel séu til þess fallnir að tak-
ast á við vanda erfiðra stjórnmála.
En sami flokkur getur ekki stjórn
að sjálfum sér án eriendrar að-
stoðar, og getur jafnvel ekki gefið
út sitt eigið blað.
Um Frjálslynda og vinstri menn
þarf ekki að eyða mörgum orðum.
Þessi samtök voru mynduð til að
sameina vinstri öflin í landinu í
eina sterka heild, gegn íhaldinu.
En þau sundruðu ekki aðeins
sjálfum sér, heldur einnig þeirri
ríkisstjórn, sem þau tóku þátt í,
vinstri stjórninni. íhaldsandstæð-
ingar eiga auðvelt val.
Ingi Tryggvason alþingismaður
Rödd landsbyggðarinnar verður
að heyrast áfram í þingsölum
Framsóknarflokkurinn hefur nú
staðið að ríkisstjóm í sjö ár sam-
fleytt. Á árunum 1971-1974 hafði
flokkurinn forystu fyrir svokall-
aðri vinstri stjóm. Síðastliðin tæp
fjögur ár hefur verið stjórnar-
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Þessi sjö ár hafa verið miklir
framfaratímar í þjóðlífinu, eftir
kyrrstöðu viðreisnaráranna. Þessi
sjö ár hafa fyllt menn nýrri trú á
framtíð íslensks atvinnulífs og á
framtíð íslenskrar þjóðar.
Byggðastefnan, sem Gísli
Guðmundsson barðist lengst og
best fyrir, varð að veruleika undir
forsæti Ólafs Jóhannessonar í
vinstri stjórninni, og hún hefur
sett ótvíræðan svip á uppbygg-
ingu atvinnulifsins og þjóðlífið
allt.
Faxaflóatrúin vék fyrir þeirri
vissu, að uppbygging atvinnulífs
á landinu öllu væri ekki aðeins
hverju einstöku byggðarlagi,
heldur þjóðinni í heild til far-
sældar.
Straumar fólks og fjármagns
utan af landsbyggðinni til
Reykjavíkursvæðisins kyrrðist,
snérist jafnvel við og margt fólk
breytti mati sínu á lífsgæðum og
framtíðarmöguleikum í hinum
dreifðu heimabyggðum með
þeim árangri, að margar byggðir
gjörbreyttu um svip á örfáum
árum.
Þótt sjö ár séu ekki langur tími,
hygg ég að mörgum brygði í brún,
ef þeir væru á þessari stundu
horfnir þessi ár aftur í tímann og
gengju um byggðarlag sitt á
lokadögum viðreisnar. Margir
mundu þá fyrst gera sér ljósa
grein fyrir þeim alhliða framför-
um, sem orðið hafa á þessum ár-
um.
Vinstri stjórnin stóð aðeins í
þrjú ár. Samtökin, svokölluðu,
sundruðu ekki aðeins sjálfum sér,
heldur einnig stjórnarsamstarf-
inu. Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag tóku þátt í löngum
stjórnarmyndunarviðræðum
undir forystu Ólafs Jóhannesson-
ar 1974.
Fram hefur komið á stjórn-
málafundum í héraðinu, að Al-
þýðuflokkurinn hafi aldrei ætlað
sér að taka þátt í nýrri ríkisstjórn,
vegna afhroðs hans í alþingis-
kosningunum. Hreinlegra hefði
verið að segja þetta strax. Fram-
bjóðendur Alþýðubandalagsins
leggja á það höfuðáherslu nú, að
kenna Framsóknarflokknum um,
að ekki tókst myndun nýrrar
vinstristjómar 1974. Mín skoðun
er sú, að Alþýðubandalagið hafi
talið sér hagstætt að vera utan
ríkisstjórnar, frá pólitísku sjónar-
miði, næstu árin, vegna fyrirsjá-
anlegra örðugleika, sem glíma
þurfti við. Víst er a.m.k að eftir að
upp úr viðræðum slitnaði kenndu
þeir hvor öðrum um, Alþýðu-
flokkur og Alþýðubandalag, að
upp úr viðræðum slitnaði. Mál-
gögn þessara flokka nefndu í
fyrstu lotu ekki Framsóknar-
flokkinn á nafn, fyrr en áð
nokkrum dögum liðnum, að ein-
hver uppgötvaði, að hæpið væri
upp á síðari tíma, að reyna ekki
að bendla Framsóknarflokkinn
við umræðuslitin!
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur mynduðu svo ríkis-
stjórn þá, er enn situr. Ekki spar-
aði Þjóðviljinn hrakspár sínar og
ekki hefur síðan verið sparað að
beita öllum ráðum til að gera
ríkisstjórninni erfitt fyrir. Auðvit-
að hefur ýmislegt farið úrskeiðis,
en hinu má ekki gleyma, sem
þokast hefur í rétta átt. Ekki hefur
tekist að ná tökum á verðbólg-
unni, en uppbygging hefur verið
ör og atvinnuleysi nær óþekkt.
Byggðasjóður hefur verið efldur
og áhrifa hans hefur mjög gætt í
atvinnuuppbyggingunni, jafnvel
svo, að einstöku úrtölumenn á
Faxaflóasvæðinu telja of langt
gengið. Fullnaðarsigur hefur
náðst í landhelgismálinu.
Fróðlegt væri að rifja upp
svikabrigsl þau, sem birtust á síð-
um sumra stjómarandstöðublaða
við svo til hvert skref, sem stigið
var til sigurs í því máli. Áhrif
landhelgissigursins gætir nú í
hverju sjávarplássi um vestan vert
og norðanvert landið og um
landið austanvert. Vonandi ber-
um við gæfu til þess, að skipu-
leggja svo fiskveiðar okkar, að þær
tryggi hagsæld þjóðarinnar um
ókomin ár.
Ég tel, að Norðurland eystra
hafi haldið vel sínum hlut, í
framkvæmdum og atvinnuupp-
byggingu, enda hefur fólki fjölg-
lngi Tryggvason
að verulega í kjördæminu síðustu
árin. Hitt er þó ljóst, að hvergi má
slaka á og ótal verkefni bíða,
ýmist hálfleyst eða óleyst með
öllu.
Framsóknarflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn, sem á höf-
uðvígi sitt utan Faxaflóasvæðis-
ins. Hagsmunir umbjóðenda
dreifbýlisþingmanna Framsókn-
arflokksins krefjast þess, að jöfn-
un lífskjara og lífsaðstöðu allri, án
tillits til búsetu, sé áfram höfuð-
baráttumál flokksins og þing-
manna hans. Því aðeins getur
flokkurinn sinnt þessum baráttu-
málum, að hann hafi þingstyrk til
að láta til sín taka í þingsölum.
Stefna Framsóknarflokksins
hefur verið og er þessi m.a.:
1. Lögð verði höfuðáhersla á
uppbyggingu vega vegna vetrar-
samgangna. Jafnframt hefjist
lagning bundins slitlags á ein-
staka vegi og vegarkafla og
áhersla á þann hátt aukin eftir
því sem uppbyggingu miðar
áfram. Sérstök stórverkefni í hér-
aðinu eru t.d. lúkning Sléttuveg-
ar, vegur um Víkurskarð og yfir
Leirur, og svo almenn uppbygg-
ing snjóþungra eða lélegra vegar-
kafla. I flugmálum verði áherslan
lögð á bætta öryggisþjónustu.
Fylgt verði fast fram byggingu
hafna í kjördæminu, sem nú fer
fram.
2. Lögð verði áhersla á fram-
kvæmdir við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri og þær heilsu-
gæslustöðvar, sem þegar eru í
byggingu eða í undirbúningi.
Aukin verði þjónusta við aldraða
með því að hraða framkvæmdum
við byggingar í þeirra þágu, svo
og við öryrkja, og þessum hópum
verði búin viðunandi aðstaða á
heimaslóðum.
3. Skólamál kjördæmisins verði
skipulögð þannig, að það hús-
næði, sem þegar er fyrir hendi,
nýtist sm best og bætt sé úr þörf-
um þeirra, sem laklega aðstöðu
hafa. Þá sé að því unnið, að
framhaldsnám ýmiskonar geti
farið fram á svæðinu í meira mæli
en nú er.
4. Sveitarfélögum verði
tryggður tekjustofn til að sinna í
vaxandi mæli félagslegum þörf-
um íbúanna, svo sem í íþrótta-
málum, dagvistun barna og ýms-
um menningar- og tómstunda-
málum.
5. Staðið verði fast við bakið á
samvinnuhreyfingunni, og það
tryggt, að þáttur samvinnuhreyf-
ingar í verslun og atvinnulífi
stuðli áfram að atvinnuöryggi og
lífskjarajöfnun.
6. Unnið sé markvisst að jöfn-
un aðstöðu til að njóta hverrar
þeirrar þjónustu, sem samfélagið
veitir. Nefna má jöfnun orku-
verðs, símagjalda, flutnings-
kostnaðar og sjúkrakostnaðar.
7 Endurskoðuð verði löggjöf
um framleiðslu og verðlagsmál
landbúnaðarins, með það mark-
mið í huga, að fyrst og fremst, að
tryggja byggð í sveitum og af-
komu fólksins sem þar býr, um
leið og þjóðinni allri er tryggð
eins góð búvara og landið getur
framleitt. Leystur verði sá vandi,
sem bændum er nú búinn vegna
taps á útflutningi búvara og að
ríkið endurgreiði þau verðjöfn-
unargjöld, sem lögð hafa verið á
bændastéttinga.
Framsóknarflokkurinn hefur
átt miklu fylgi að fagna í þessu
kjördæmi og fengið hér þrjá
þingmenn kjörna frá því að
breyting var gerð á kjördæma-
skipuninni 1959. Fylgisaukning
Alþýðuflokksins í sveitarstjórn-
arkosningunum í vor veldur því,
að nú ríkir meiri óvissa en áður
um úrslit þingkosninganna 25.
júní.
Hér verður engu spáð um
stjórnarmyndun að loknum
kosningum. En hinu mega menn
ekki gleyma, að rödd Framsókn-
arflokksins er sterkasta og jafn-
framt eina hreina rödd byggða-
stefnunnar í þeim kór, sem kemur
saman í Alþingishúsinu eftir
næstu kosningar. Þessa rödd
þurfa kjósendur á Norðurlandi
eystra að styrkja, sjálfum sér.
kjördæminu og landinu öllu til
vegs og hagsbóta.
IFF-Ekki hugsað umstór
mót heldur holla hreyfingu
Vetrarstarfi (þróttafélags fatlað-
ra er nú lokið og var það með
líku sniði og verið hefur. Æfing-
ar voru tvisvar í viku og sund var
iðkað einu sinni f hverri viku.
Vormót félagsins var haldið eins
og venja er og var keppt í boccia,
borðtennis og bogfimi.
íþróttafélagið er aðili að IBA og
ISI og styrkt af báðum samtökun-
um. Félagið er opið öllum þeim
sem eiga við einhverja fötlun að
stríða og skiptir ekki máli hvort sú
fötiun er til lengri eða skemmri
tíma. Einnig geta þeir sem hafa
áhuga á starfseminni fengið inn-
göngu.
I bréfi er Júlíanna Tryggvadóttir
sendi blaðinu segir m.a. „Á þessum
æfingum okkar er ekki endilega
verið að hugsa um einhver stórmót,
heldur er það hreyfingin, sem allir
hafa gott af og enginn þarf að gera
meira en hann vill. Nýjar tillögur
um íþróttimar eru vel þegnar. Fé-
laginu hefur borist góðar gjafir á
árinu. Lionsklúbburinn Hængur
gaf eina milljón króna til styrktar
félaginu. Lionsklúbburinn Huginn
færði því eitthundrað þúsund og
sendum við báðum þessum aðilum
bestu þakkir svo og öllum öðrum
sem hafa lagt okkur lið með vinnu
og fjárframlögum".
Eins og undanfarin ár voru þeir
Þröstur Guðjónsson og Magnús H.
Ólafsson þjálfarar hjá félaginu. Ef
einhverjir vilja fá upplýsingar um
íþróttafélag fatlaðra á Akureyri, er
þeim hinum sömu bent á að hringja
í síma 21186 - til loka mánaðarins.
Starfið hefst á nýjan leik í septem-
ber.
Ætlf þeir
hafi
orðid varir?
Svarfaðardalsá
Svarfaðardalsá var opnuð þann
10. júní, en veiði hefur verið lítil
enda hefur áin verið skoluð, að
undanteknum tveim eða þrem
dögum, en þá var vart við sjó-
birting. Sjóbirtingur hefur verið
sjaldséður gestur í ánni undan-
farin ár, en þar sem ekki er búið
að skila inn veiðileyfum er ekki
vitað um þyngd fiskanna.
„Það eru tíu stangir í ánni og á
sl. sumri fengust 1550 fiskar úr
henni. Af þessari tölu eru 15 lax-
ar, en hitt er bleikja og urriði",
sagði Snorri Árnason, Völlum.
„Ætlunin var að sleppa 20 þús-
und bleikjuseiðum í ána í sumar,
og haft var samband við þá aðila
sem hafa seiði til sölu. Að lokum
fengum við tilboð um 600 seiði
hjá Tungulaxi, en því var hafn-
að“.
Árið 1966 var 10 þúsund
bleikjuseiðum sleppt í Svarfaðar-
dalsá og í tíu ár þar á undan var af
og til sleppt laxaseiðum í ána. Það
var á þeim árum þegar stanga-
veiðifélagið Fossar á Dalvík hafði
ána á leigu. Fiskifræðingar álíta
að áin sé of köld fyrir lax, en
prýðileg fyrir bleikju.
„Þar sem seiðin fengust ekki
ætlum við í haust að grípa til þess
ráðs að taka hrygningarfisk úr
ánni og höfum við vilyrði Jó-
hannesar Kristjánssonar á Akur-
eyri, fyrir því að hrognin verði
klakin út í laxeldisstöðinni á
Laxamýri", sagði Snorri.
Þess má geta að aðalveiðitím-
inn er frá miðjum júlí og út ágúst.
Veiðileyfi eru seld hjá Snorra
Árnasyni.
Ormarsá á Sléttu
Laxinn gengur snemma í Orm-
arsá á Sléttu. Samkvæmt upplýs-
ingum Þorsteins Steingrímssonar
á Hóli, veiddust þar fyrstu lax-
arnir á sunnudaginn, 18 punda
lax í Berghyl og 9 punda lax við
Arnarþúfufoss og sást mikill lax í
ánni. Þetta er viku fyrr en í fyrra
og hálfum mánuði fyrr en 1976.
Er þeirri fullyrðingu hér með
hrundið, að lax gangi seint í
Ormarsá, sagði fréttamaður.
Jón Benediktsson
prentari
Öldungur með eld í hjarta
œskuglóð í lund.
Barmur þinn á blóm er skarta.
Björt er aftanstund.
Grasið ilmar, grœnkar jörðin,
geislar fögur sál,
þín er heilsteypt þakkargjörðin,
þrungið stuðlamál.
Enn þú geymir angan blóma,
innri hjartafrið,
hlýja, bjarta helgidóma,
hátt er blasa við.
Sól og vorið, síglöð hyggja
sigra hverja raun,
lýsa þeim sem landið byggja,
leggja smyrsl á kaun.
Áttrœður berð öðlings heitið,
auðnan fylgi þér.
Hér er, vinur, heillaskeytið,
hjartans þökk frá mér.
Jóhann Sigurðsson.
Jafntefli
Fyrsti heimaleikur KA í fyrstu
deild var leikinn á sunnudag.
Það voru Vestmanneyingar
sem sóttu þá heim.
Veður var eins og best
verður á kosið til fótbolta-
leikja, og fjölmargir áhorf-
endur mættu á völlinn og
hvöttu sína menn.
Fyrstu mínútur leiksins
voru mjög vel leiknar af báð-
um aðilum, og þó sérstaklega
áttu KA menn góðan leik.
Fyrsta mark leiksins kom á 12.
mín„ en þá höfðu Sigurbjörn
Gunnarsson, Jóhanna
Jakobsson og Guðjón Harð-
arson leikið vel í gegnum vörn
Vestmanneyinga, og gefið var
á Ármann Sverrisson sem
skaut hörkuskoti á markið og í
netið fór boltinn. Næstu tíu
mínúturnar héldu KA menn
uppi sókn á mark Vestmann-
eyinga, en smám saman náðu
Eyjamenn tökum á leiknum,
og sóttu mjög stíft að marki
KA.
Þar var hins vegar Þorberg-
ur Atlason fyrir og varði hann
oft á tíðum stórkostlega.
Önnur eins markvarsla hefur
ekki sést á þessum velli í mörg
ár. Margsinnis klöppuðu hin-
ir 1250 áhorfendur Þorbergi
lof í lófa, þegar hann hafði þá
varið stórkostlega. I síðari
hálfleik bjuggust menn við að
KA myndi hrista af sér slenið,
en allt kom fyrir ekki, Vest-
manneyingar héldu uppi nær
stanslausri sókn að marki KA
en í rúman hálftíma tókst
þeim að bægja allri hættu á
Þór vann Ármann
hjá KA og IBV
braut, en í einni af sínum
mörgu hornspyrnum tókst
Vestmanneyingum að gefa vel
fyrir markið, og Sigurlás Þor-
leifsson skállaði örugglega í
það. Vestmanneyingar héldu
áfram að pressa á mark KA,
og öðru hvoru áttu þeir
skyndisóknir og sérstaklega
var Elmar sprækur, og gerði
hann oft mikinn ursla í vörn
eyjaskeggja. Síðustu mínútur
leiksins voru æsispennandi.
Bæði liðin ætluðu sér sigur í
leiknum en sókn Vestmann-
eyinga var yfirleitt þyngri, og
fengu m.a. margar horn-
spyrnur á síðustu mínútunum.
Rétt fyrir leikslok átti KA
góða sókn upp vinstri kantinn
og Gunnar Blöndal skaut úr
þröngri stöðu en framhjá.
Jafntefli varð því útslit
þessa leiks eitt mark gegn
einu, og meiga KA menn vel
við una að halda stiginu.
Langbesti útileikmaður hjá
KA var Gunnar Gíslason en
þrátt fyrir að hann sé yngstur
leikmanna er hann sterkastur
og mjög duglegur og góður
vamarmaður. Þá hefur áður
verið getið þáttar Þorbergs í
leiknum, en hann var frábær
einu orði sagt. Næsti leikur
KA er á fimmtudaginn, en þá
leika þeir i Reykjavík við
toppklúbbinn Val. Dómari
leiksins var Óli Ólsen og
dæmdi hann mjög vel.
það langbesta sam KA hefur lelkið vlð ð þessu keppnlslímablll.
Fótboltinn heldur stanslaust
áfram að rúlla, og á föstudags-
kvöld léku í annarri deild Þór og
Ármann. Ármenningar hófu
leikinn af fullum krafti og sóttu
stanslaust fyrstu mínútur leiksins,
og virtist svo sem þeir ætluðu al-
gjörlega að yfirbuga andstæð-
inga sína. Smám saman réttu
Þórsarar úr kútnum og leikurinn
jafnaðist. Það voru hins vegar
Ármenningar sem skoruðu fyrsta
markið og kom það á 43. mínútu
leiksins markamínótunni frægu.
Þar var að verki Egill Stefánsson.
Þannig var staðan í hálfleik eitt
mark gegn engu fyrir Ármann. í
síðari hálfleik sóttu Þórsarar
meira og áttu mörg góð tækifæri,
en það var ekki fyrr en á 30 mín.
að þeir jöfnuðu, og var þar að
verki Sigþór Ómarsson eftir að
Jón Lárusson hafði skotið í þver-
slá. Sigþór bætti síðan öðru marki
við nokkrum mín. síðar og það
urðu úrslit leiksins tvö mörk gegn
einu þór í hag. Þórsarar börðust
vel í leiknum og var þar fyrst og
fremst dugnaði þeirra að þakka
að Þór vann.
Keppnin í annarri deild er nú
mjög jöfn, en þó virðast KR-ingar
greinilega bestir, en hverjir eru í
öðru sæti er erfitt að spá um. Þar
koma mörg lið til greina, og enn-
þá getur allt gerst.
Húsvíkingar virðast nú vera að
ná sér á strik, en þeir unnu á
föstudagskvöldið Hauka, en
Haukar unnu Þór um síðustu
helgi eins og menn muna.
BJÖm Vtklngsson
volprwit
4.DAGUR
DAGUR.5