Dagur - 21.06.1978, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXI. ÁRG. Akureyri, miðvikudaginn 21. júní 1978
39. tölublað
m \\m\ ndaic'M pappw
Steinullarverk-
smiðja á Hjalteyri
Ingimar Brynjólfsson,
oddviti Amarnesshrepps
og Stefán Valgeirsson,
alþingismaður, fengu
nýlega verkfræðing til að
gera fyrstu athuganir á
aðstöðu til steinullar-
framleiðslu á Hjalteyri
við Eyjafjörð.
Umsögn verkfræð-
ingsins var á þá leið, að
steinullarverksmiðja geti
verulega notað gamlar
verksmiðjubyggingar á
staðnum og að hafnar-
aðstaða sé góð. Hins-
vegar þurfi að kanna
aðstöðu til hráefnisöfl-
unar, orku- og markaðs-
mál og mörg önnur
atriði, sem máli skipta.
Þarf lengur vitn-
anna við?
Á framboðsfundi á
Grenivík sagði Bragi
Sigurjónsson, að eftir
síðustu kosningar hefði
Alþýðuflokkurinn ekki
viljað taka þátt í stjórn-
armyndun. Hann sagði,
að afstaða sú væri blátt
áfram samkvæmt leik-
reglum lýðræðisins, þar
sem flokkurinn hefði
tapað verulegu fylgi í
nýafstöðnum kosning-
um 1974.
Þurfa menn þá lengur
vitnanna við um það,
hvers vegna ekki var
mynduð vinstristjóm?
Það kom fram á sama
fundi í ræðu Stefáns
Valgeirssonar, að ef
Framsóknarflokkurinn
yrði fyrir áfalli í al-
þingiskosningunum,
eins og byggðakosning-
amar gætu bent til, liti
hann svo á, að það væri
krafa um, að ekki yrði
mynduð vinstri stjórn að
kosningum loknum, því
vinstri stjórn yrði ekki
mynduð án Framsókn-
arflokksins.
24166
23207
24167
Hátíðahðldln 17. |únf lóru Iram að hefðbundnum hættl 6 Akur-
eyrl, f umsjá Knattspyrnufélags Akureyrar að þessu slnnl. Veður
var sæmllegt, en þó ekkl elns og best verður kosið og þvf var
ekkl elns mlklð fjðlmennl ð hátíðasvæðlnu og oft hefur verlð.
Þeir síanda ekki við stóru orðin
— segir dómsmálaráðherra
„Ég vona að úrslit alþingis-
kosninganna muni ekki vera
svipuð þeim sem urðu í sveit-
arstjórnarkosningunum. Fólk
mun nú eflaust taka mið af
síðustu ráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar og svo hitt að það
sér að stjórnarandstöðuflokk-
unum gengur ekki vel að
standa við stóru orðln. Þar á ég
m.a. við Reykjavík og Siglu-
fjörð“, sagði Ólafur Jóhannes-
son ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins. „Ég hef
ekki skýringu á reiðum hönd-
um á fylgistapi Framsóknar-
flokksins, en það var nokkuð í
Reykjavík. Annarsstaðar var
það ekki stórvægilegt og á
sumum stöðum jók flokkurinn
við fylgi sitt“.
Ólafur sagði það vera
stærstu verkefni næstu ríkis-
stjóinar, ef Framsóknarflokk-
urinn hefði áhrif á þau mál, að
ráðast gegn verðbólgunni,
halda áfram atvlnnuuppbygg-
ingunni og tryggja atvinnu-
öryggi. „Á þessi mál, auk
launajöfnunarstefnu og endur-
grelðslu verðjöfnunargjalds,
sem framkvæmdanefnd Fram-
leiðsluráðs hefur ákveðið að
taka, mun Framsóknarflokkur-
inn m.a. leggja áherslu á ef
hann hefur aðstöðu til“, sagði
Óiafur Jóhannesson ráðherra.
Sorg
ríkir
á Dalvík
Fjögurra ungra manna frá Dal-
vík, sem fóru á plastbáti með
utanborðvél, snemma morguns
17. júní áleiðis til Hríseyjar, er
saknað. Víðtæk leit var sam-
dægurs hafin á sjó, úr lofti og í
landi og stendur hún enn, sagði
séra Stefán V. Snævarr prófast-
ur á Dalvík blaðinu í gærmorg-
un og sagði blaðinu nöfn pilt-
anna:
Stefán Ragnar Ægisson, Drafn-
arbraut 1, fæddur30. sept. 1959.
Gunnar Jónsson, Skíðabraut
11, fæddur 3. oktober 1960.
Símon Jóhann Hilmarsson,
Karlsbraut 21, fæddur 31. maí
1960.
Egill Antonsson, Mímisvegi 7,
fæddur3. maí 1962
Prófasturinn hefur haft sam-
band við aðstandendur pilt-
anna. Mikil sorg ríkir á Dalvík
vegna þessa átakanlega atburð-
ar.
Slösuð eftir árás
Samkvæmt umsögn lögreglunnar á
Akureyri, var ölvun með mesta
móti að kveldi 17. júní. Fanga-
geymslur lögreglunnar fylltust og
hjálpaði hún þó mörgum heim til
sín um nóttina.
En að morgni hins 17. júní bar
það við á bak við útibú Útvegs-
bankans, að ráðist var á stúlku og
hún slösuð. Árásarmaðurinn
handleggsbraut hana og veitti
henni áverka á höfði. Þau munu lítt
eða ekki hafa þekkst. Hjá báðum
aðilum mun áfengis hafa verið
neytt. Mál þetta er í rannsókn en
lögreglan hefur þegar haft hendur í
hári árásarmannsins.
Þá var mikil ölvun á dansleik KA
í Kjamaskógi á föstudagskvöldið,
og lauk honum fyrr en auglýst
hafði verið. í auglýsingum var
áfengisneysla ekki bönnuð og því
auðvelt að flytja áfengi á sam-
komustað, enda var svo gert og þess
neytt í ríkum mæli, þrátt fyrir eins
mikla aðstoð lögreglunnar og unnt
var. Þeir yngstu, sem lögreglan
hafði veruleg afskipti af, voru 13
ára.
Menntaskólanum á Akureyri slitiö
r ^ Q m _______________í_______
i yæ. sinn 1 Nýjar umsóknir fleiri en nokkru sinni áður
Menntaskólanum á Akureyri var
slitið í Akureyrarkirkju og að
viðstöddu miklu fjölmenni,
laugardaginn 17. júní. Nú eru
liðin 50 ár síðan fyrstu stúdent-
arnir brautskráðist, flmm manna
hópur. Tveir þeirra eru á lífi,
Haukur Þorleifsson og séra
Guðmundur Benediktsson og
voru báðir viðstaddir skólaupp-
sögnina, ásamt fulltrúum 40 ára
stúdenta, 25 og 10 ára stúdenta,
er fluttu ávörp og færðu skólan-
um góðar gjafir.
Að þessu sinni brautskráðust 103
stúdentar, 47 stúlkur og 56 piltar. í
máladeild voru 33 nemendur, 15 i
félagsfræðideild, 21 í eðlisfræði-
deild og 34 í náttúrufræðideild.
Hæsta einkunn á stúdentsprófi
hlaut Þórunn Rafnar á Akureyri,
9.0 sem er fyrsta ágætiseinkunn.
Tryggvi Gíslason, skólameistari
brautskráði stúdentana og flutti
skólaslitaræðuna. 1 vetur voru nær
600 nemendur og umsóknir fyrir
næsta vetur hafa aldrei verið eins
margar og nú, eða 230 talsins.
Menntaskólinn hefur nú keypt
skála einn, sem koma á í stað gamla
Útgarðs, sem MA átti í Glerárdal
en er löngu ónýtur. Verður nýi
skálinn settur upp í nágrenni Ak-
ureyrar á þessu sumri. Hann er
smíðaður hjá Þaki hf. í Hafnarfirði,
burstahús, 60 fermetrar að gólffleti
með 30 fermetra svefnlofti.
Kennarar við Menntaskóiann á
Akureyri voru 44 þar af 30 fast-
ráðnir. Á þessu vori lét Elinbjörg
Þorsteinsdóttir, matselja skólans í
21 ár, af störfum og voru henni
þökkuð þau.
Byggðastefnan varð að veruleika undir forsæti Ólafs Jóhannessonar