Dagur - 21.06.1978, Blaðsíða 8
DAGTJR
Akureyri, miðvikudaginn 21. júní 1978
EINANGRUNARBAND
Aðalfundur K.S.
Skjaldhamrar á Akureyri
Leikfélag Reykjavíkur hefur
sýnt Skjaldhamra Jónasar
Árnasonar, síðan 1975 og hafa
þeir gengið síðan. Sýningar
þessa verks hafa slegið öll met
íslenskra leikrita í Iðnó, því
sýnfngar hafa orðið 183. Og
Leikfélag Reykjavíkur endar
starfsár sitt með því að senda
Skjaldhamra til Akureyrar, þar
sem það verður sýnt í leikhúsi
bæjarins þessa viku.
Vigdís Finnbogadóttir, leik-
hússtjóri LR, sagði í viðtali við
blaðið fyrir helgina, að sýningar
hæfust á sunnudagskvöldið 18.
júní og að dvalið yrði á Akureyri
á meðan fólk sækti sýningar.
Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson.
IVIeð aðalhlutverkin fara Þor-
steinn Gunnarsson og Valgerður
Dan. Aðrir leikarar eru: Karl
Guðmundsson, Hjalti Rögn-
valdsson, Kjartan Ragnarsson og
Áslaug Guðmundsdóttir.
Það var ánægjulegt, sagði Vig-
dis ennfermur, að Leikfélag Ak-
ureyrar er nýbúið að heimsækja
okkur suður með tvö leikrit. sem
hér voru sýnd og gekk það alveg
ágætlega.
Þorstelnn Gunnarsson og Valgerður Dan f hlutverkum slnum.
Heildarveltan rúmir fjórir
milljarðar króna
Aðalfundur Kaupfélags Skag-
firðinga var haldinn 8. júní í Sel-
Inu, samkomusal félagsins.
Gísli Magnússon í Eyhildarholti,
stjórnarformaður, setti aðal-
fundinn og mfnntist í upphafi 19
látinna félagsmanna. Fundar-
stjórar voru, séra Gunnar Gísla-
son og Geirmundur Jónsson, en
fundarritarar þeir Þórarinn
Magnússon og Trausti Pálsson.
Gísli Magnússon flutti skýrslu
stjórnarinnar en kaupfélags-
stjórinn, Helgi Rafn Traustason,
ræddi um starfsemi félagsins á
síðasta ári og las og skýrði
reikniga þess.
Félagsmenn voru í lok síðasta árs
1434 og hafði fjölgað um 37 á ár-
inu. a framfæri félagsmanna, að
þeim sjálfum meðtöldum voru á
sama tíma 3298 manns, en íbúar í
Skagafirði, ásamt Sauðárkróki
voru 4296 hinn 1. desember sl. og
hafði fjölgað um 98.
Heildarvelta kaupfélagsins og
fyrirtækja þess varð 4 milljarðar
271 milljón og hafði aukist um
rúman milljarð frá 1966.
Sala á vöru og þjónustu varð
rúmlega 1,1 milljarður króna. Sala
á innlendum afurðum varð 1.116
milljarður króna og sala Fiskiðj-
unnar varð 517 milljónir.
Um síðustu áramót voru fast-
ráðnir starfsmenn 210 og hafði
fjölgað um 13 frá síðasta ári. Fé-
lagið og fyrirtæki þess greiddi í
laun og launatengd gjöld, 675,9
milljónir og hafði launakostnaður
hækkað um 56,6%.
Fjárfestingar námu 110 milljón-
um króna. Bókfært verð á öllum
fasteignum félagsins, ásamt vélum,
innrettingum og bifreiðum er 1,228
milljarðar króna.
Samtals greiddi félagið til bænda
fyrir afurðir þeirra, nær 1,5 milljarð
króna. Eftir 58 milljón króna af-
skriftir varð tekjuafgangur tæplega
1,6 milljón króna.
Úr stjórn áttu að ganga þeir Gísli
Magnússon, sem ekki gaf kost á sér
til endurkjörs og Stefán Gestsson
og Þorsteinn Hjálmarsson, sem
báðir voru endurkjörnir. Aðrir í
stjórn eru: Konráð Gíslason, Jó-
hann Salberg Guðmundsson,
Gunnar Oddsson, Jónas Har-
aldsson og Jónas Sigurðsson. Gísla
Magnússyni voru þökkuð áratuga
forystustörf í þágu samvinnu-
manna í héraðinu.
H-listi Framsóknarfé-
lags Svarfaðardals og
óháðra kjósenda.
Hjalti Haraldsson, Ytra-Garðs-
horni
Jónas Þorleifsson, Koti
Jóhann Ólafsson, Ytra-Hvarfi
Símon Helgason, Þverá
Friðbjörn Jóhannsson, Hlíð
Jón Þórarinsson, Hæringsstöðum
Fjóla Guðmundsdóttir, Húsa-
bakka
Margrét Kristinsdóttir, Skeiði
Júlíus Friðriksson, Gröf
Klemenz Vilhjálmsson, Brekku.
Sveit Páls Norðurlands-
meistari í bridge 1978
Norðurlandsmótið í bridge var
spilað á Siglufirði 9.-H. júní s.l.
Álls spiluðu þar 10 sveitir, tvær frá
Siglufirði, Húsavík og Akureyri, en
ein frá Dalvík, Mývatnssveit,
Blönduósi og Skagafirði.
Norðurlandsmeistari 1978 varð
sveit Páls Pálssonar frá Akureyri en
auk Páls eru í sveitinni Frímann
Frímannsson, Magnús Aðalbjöms-
son, Gunnlaugur Guðmundsson,
Soffía Guðmundsdóttir og Dísa
Pétursdóttir.
Að lokinni keppninni bauð
bæjarstjóm Siglufjarðar til kveðju-
hófs og þar voru verðlaun afhent.
Keppnisstjóri var Níels Frið-
bjamarson frá Siglufirði.
Röð efstu sveita var þessi:
1. Sveit Páls Pálssonar,
Akureyri, 130 stig.
2. Sveit Bjöms Þórðarsonar,
Siglufirði, 125 stig.
3. Sveit Alfreðs Pálssonar,
Akureyri, 117 stig.
4. Sveit Stefáns Jónssonar,
Dalvík, llóstig.
5. Sveit Boga Sigurbjörnssonar,
Siglufirði, 115 stig.
6. Sveit Guðmundar Hákonar-
sonar, Húsavík, 102 stig.
Norðurlandsmót í bridge er spil-
að á hverju ári og verður næst spil-
að á Blönduósi.
Framsóknarfélag Svarfaðardals
svarar ávirðingum Dagblaðsins
í tilefni af skrifum í Dagblaðinu 8.
júní sl. um úrsagnir úr Framsókn-
arfélagi Svarfaðardals, vegna að-
ildar félagsins að framboði við
hreppsnefndarkosningar 25 júní
nk., og „óróa“ í sambandi við það
framboð viljum við taka fram eft-
irfarandi:
Engra upplýsinga leituðu D.B.
menn sér hjá stórn félagsins varð-
andi þetta mál, og vitum við raunar
ekki hvaðan þeim kemur slíkur
„fróðleikur", sem er að finna í
greinarkorni þeirra.
Sannleikurinn í málinu er þessi:
Er séð varð að um listakosningar
myndi verða að ræða í væntanleg-
um hreppsnefndarkosningum, og
seinna var formlega óskað eftir af
hálfu svokaliaðs I-lista fólks, gekkst
Framsóknarfélag Svarfaðardals
fyrir könnun í því skyni, að
grennslast um vilja fólks, og fólk
beðið að skrifa nöfn þeirra manna
er það vildi hugsanlega hafa í
framboði til. hreppsnefndarkjörs.
Þessu nýmæli okkar var mjög vel
tekið, og um 70 manns tók þátt í
könnun þessari. Úrslit könnunar-
innar voru skýr, og eftir þeim var
farið, eftir því sem við varð komið
við uppstillingu á lista þeim er
borinn er fram af Framsóknarfé-
lagi Svarfaðardals og óháðum
kjósendum, og fengið hefur lista-
bókstafinn H. Við viljum þakka
öllu því fólki, sem sýnt hefur áhuga
á þessu máli, og stutt okkur með
ráð og dáð, og þar viljum við sér-
staklega nefna, - og þakka unga
fólkinu, sem margt kýs nú í fyrsta
sinn.
Varðandi úrsagnir úr félaginu, er
því til að svara, að þrír félagar
gengu úr félaginu á árinu, tveir á
aðalfundi þess 16. apríl sl. og sá
þriðji nokkrum dögum síðar, eða
eftir dagsetningu úrsagnarbréfsins
2. maí. Þessar úrsagnir komu áður
en nokkuð var talað um framboð til
hreppsnefndarkosninga, sem
Framsóknarfélagi Svarfaðardals
væri tengt, og geta því á engan hátt
tengst þeirri ákvörðun félagsins.
Þessar úrsagnir voru okkur í stjórn
félagsins ekkert áhyggjuefni, enda
var hér um að ræða félaga.sem
engan áhuga höfðu sýnt á málefn-
um Framsóknarfélagsins og
flokksins í áravís. Hins er vert að
geta, að í stað þeirra þriggja, sem úr
félaginu fóru, gengu 15 nýir í það á
aðalfundi þess, og margt af því
ungt fólk, og félagið aldrei verið
fjölmennara en nú.
F. h. Framsóknarfélags
Svarfaðardals.
Björn Daníelsson,
Húsabakka.