Dagur - 02.08.1978, Page 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Að kaupa köttinn
í sekknum
Þegar þetta er ritað eru liðnar full-
ar fimm vikur frá alþingiskosning-
um. Fráfarandi stjórnarflokkar
urðu fyrir stórfelldu fylgishruni, en
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið unnu mjög á.
Stjórn Geirs Hallgrímssonar
sagði af sér um leið og úrslitin
lágu fyrir. Framsóknarmenn tóku
þá afstöðu að eðlilegast væri að
sigurvegararnir, Alþýðuflokkur og
Alþýðubandalag, stæðu saman að
stjórnarmyndun með hiutleysi
Framsóknarflokksins. Ekki er al-
veg Ijóst hvað sjálfstæðismenn
hugsuðu í þessum efnum, en Geir
Hallgrímsson lét í Ijós áhuga sinn
á þátttölu í ríkisstjórn, ef sam-
staða yrði um málefni, og taldi að
til greina kæmi þjóðstjórn.
Það er eftirtektarvert að form-
iegar stjórnarmyndunarviðræður
drógust mjög á langinn. U.þ.b. 10
dögum eftir kosningar hófust svo-
nefndar „könnunarviðræður“
milli Aiþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags. Stóðu þær dögum
saman, en ekki er full-ljóst hvað
þar var rætt eða hvern árangur
þær báru í raun og veru. En upp úr
þessum könnunarviðræðum fól
forseti íslands Benedikt Gröndal,
formanni Alþýðuflokksins, að
gera tilraun til myndunar meiri-
hlutastjórnar. Benedikt freistaði
þess fyrst að mynda stjórn með
Sjálfstæðisflokki og Alþýðu-
bandalagi. Sjálfstæðismenn
reyndust fúsir tii viðræðu um slíkt
samstarf, en Alþýðubandalagið
hafnaði hugmyndinni. Jafnframt
var ítrekað, sem áður hafði komið
fram, að sigurvegararnir hefðu
ekki áhuga á minnihlutastjórn
með hlutleysi Framsóknarfiokks-
ins.
Benedikt Gröndal hélt enn um-
boði sínu til myndunar meirihluta-
stjórnar og sneri sér nú til Fram-
sóknarflokksins með tilmæli um
að flokkurinn tæki þátt í viðræðum
um myndun þriggja flokka vinstri
stjórnar. Þingflokkur Framsókn-
arflokksins samþykkti á fundi sín-
um 18. júlí að ganga til slíkra við-
ræðna.
Þessar viðræður þríflokkanna
undir stjórn Benedikts Gröndals
stóðu í 10 daga, en báru engan
árangur. Það kom í kjós, sem
hlýtur að vekja athygli, að Alþýðu-
flokkurinn og Alþýðubandalagið
áttu litla sem enga samleið í efna-
hagsmálum, þegar til kastanna
kom. Það liggur Ijóst fyrir, að
fólkið, sem jók fylgi Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags í kosningun-
um, í trausti þess, að það væri
skynsamlegt og hagkvæmt, keypti
köttinn í sekknum.
Baldur á Ófeigsstöðum
er dáinn
Ég sé út um skrifstofugluggann
minn, að búið er að flagga í hálfa
stöng á elsta húsi Kaupfélags
Þingeyinga. Islenski fáninn
blaktir þarna fyrir hægri sunnan
golu og ber í bláleit Kinnarfjöllin.
Hvað hefur komið fyrir? Baldur á
Ófeigsstöðum er dáinn.
Þetta kom að vísu ekki á óvart.
í meira en ár var hann búinn að
liggja fársjúkur á Sjúkrahúsinu í
Húsavík og þess mátti vænta þá
og þegar að kallið kæmi. Og svo
kom kallið, og fáninn blaktir við
þessar aðstæður, en það vekur
ættingjum og vinum trega.
Minningarnar streyma fram í
hugann um þennan glaða góða
dreng, manninn, sem átti svo létt
með, að skapa bjart og glatt
mannlíf umhverfis sig. Nú er því
lokið, morgundagurinn verður
ekki lengur eins og dagurinn í
gær. Merkur héraðshöfðingi setur
ekki lengur svip á mannlífið í
okkar héraði. Blaktandi fáninn
kallar fram söknuð.
Baldur Baldvinsson bjó allan
sinn aldur á Ófeigsstöðum og tók
þar við búsforráðum, í upphafi af
foreldrum sínum. Hann giftist
ungur Hildi Friðgeirsdóttur frá
Þóroddsstað, en missti hana eftir
stutta sambú, sonur þeirra er
Baldvin bóndi á Rangá. Síðari
kona Baldurs er Sigurbjörg Jóns-
dóttir frá Litlu-Strönd, en börn
þeirra eru Svanhildur húsmóðir á
Ófeigsstöðum, og Ófeigur lög-
regluþjónn á Akureyri.
Baldur hafði aldrei mjög stórt
bú á Ófeigsstöðum, en fjárhags-
lega komst hann vel af, hann
hafði sérstaka ánægju af að um-
gangast og hirða sauðfé, en engan
áhuga hafði hann á að safna ver-
aldlegum auði. Því meiri var
áhugi hans að safna vináttu, og
treysta samfélagsþræði, við mik-
inn fjölda manna, það var fjár-
sjóður sem hann átti mikinn að
leiðarlokum.
Baldur og Sigurbjörg gengu
marga ferðina fram á hlaðvarp-
ann, til að fagna gestum sínum,
ogsíðar að kveðja þá við brottför.
Gestir voru umvafðir vinarþeli,
MINNING
sem streymdi frá húsráðendum
og heimafólki, og gestirnir komu
aftur og aftur. Allt þetta hafði að
sjálfsögðu áhrif á búskapinn, en
gestrisnin sat fyrir öllu, og stöðugt
var haldið áfram að spinna þræði
vináttunnar, bæði við fólkið sem
bjó nær og fjær.
Baldur var að eðlisfarð mikill
félagsmálamaður, hann kom því
mjög við félagslega sögu Þingey-
inga. Hann tók þátt í miklum
störfum fyrir sveitina sína, Kinn-
ina, hann var mikill forystumaður
í Búnaðarsambandinu, og stjórn-
armaður í Kaupfélagi Þingeyinga
í fjölda ára, í sambandi við það
starf er mér Ijúft að færa fram
þakkir okkar Kaupfélagsmanna.
Baldur þurfti því um dagana að
mæta á mörgum fundum, og
hann var fjölhæfur fundarmaður.
Hann átti það til að vera harður í
horn að taka, og verja fast skoð-
anir sínar og stefnu. Hann átti
það þó oftar til að vera sáttamað-
urinn í ræðuflutningi, þegar deil-
ur risu meðal fundarmanna.
Oft var það, eins og hann
ákvæði það fyrir fram, að taka
ekki beinan þátt í fundarstörfum,
en sitja afsíðis með vasabók og
búa til vísur úr ræðum fundar-
manna. í kaffi eða matarhléi,
flutti hann svo vísurnar, oftast
snjallar og hnitmiðaðar, og skip-
aði þannig gleðinni hátt á loft. Oft
fór þannig í fundarlok, að margir
höfðu gleymt ræðunum, en
mundu því betur hinar fleygu
vísur Baldurs.
Baldur var snjall og fyndinn
hagyrðingur, og átti marga góða
vini og samstarfsmenn á því sviði.
Hann gisti oft heima hjá okkur
hjónunum í Húsavík, þar fauk hjá
honum og félögum hans mörg
fleyg vísan. Þetta er minninga-
sjóður, sem við erum þakklát fyrir
að eiga.
Ríkasti þáttur í eðli Baldurs var
heit og björt lífstrú á lífið. Hann
var trúhneigður og taldi mesta og
merkasta rannsóknarefnið væri
um lífið eftir dauðann. Hann var
traustur vinur og jafnan tilbúinn
að bera sorgina með öðrum, og
styðja þá á hálu svelli lífsins.
Bjartsýnin var hans sterki þáttur,
þegar hann var 75 ára sagði hann
við mig. Mér finnst gaman að lifa,
á hverju kvöldi hlakka ég til
næsta dags. Þannig stráði hann
lífsgleðinni í kringum sig og allir
samferðamennirnir hrifust með.
Útför Baldurs á Ófeigsstöðum
var gerð á Þóroddsstað. Það var
mildur júlídagur, sólin skein
gegnum þunna þokuslæðu.
Kinnin tjaldaði sínu bezta, öll
blóm og gróður skörtuðu sínu
fegursta, engjarnar, áin og fljótið,
allt var á sínum stað, til heiðurs
föllnum foringja.
Þennan milda júlídag, virtust
allra leiðir liggja til Þóroddsstað-
ar. Mikill mannfjöldi kom á
kirkjustaðinn. Ef til vill er þetta
fjölmennasta jarðarför, sem
nokkurntíma hefur farið fram í
Þóroddstaðakirkju, ég veit það
ekki með vissu, en fjölmennið
sýnir vinarþelið, og þakklæti hér-
aðsbúa fyrir manninn sem var
merkisberi vináttu og alltaf
drengur góður.
Ég sendi Sigurbjörgu og ætt-
ingjunum öllum hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Finnur Kristjánsson.
Framkvæmdastjóraskipti hjá
Fataverksmiðjunni Heklu, við tekur Sigurður
Arnórsson í stað Ásgríms Stefánssonar
Þann l. júlí s.l. urðu verksmiðju-
stjóraskipti á Fataverksmiðjunni
Heklu, Akureyri. Ásgrímur Stef-
ánsson, sem verið hefur verk-
smiðjustjóri frá stofnun verksmiðj-
unnar, ict af störfum að eigin ósk
og tekur við öðru starfi á vegum
Iðnaðardeildar SÍS. Við verk-
smiðjustjórastarfinu tekur Sigurður
Arnórsson, sem verið hefur fulltrúi
verksmiðjustjóra s.l. 5 ár. Hann
lauk prófi frá Samvinnuskólanum
Ásgrímur Stefánsson,
fyrrv. verksmiðjustjóri.
að Bifröst árið 1970 og starfaði hjá
Landsbanka íslands í Reykjavík.
Haustið 1971 hélt hann til Lund-
úna þar sem hann lauk prófi
í management studies frá
Polytechnic og Central í London í
ágústmánuði árið 1973. I. septem-
Margir eru þeir, sem stutt hafa
baráttu Styrktarfélags vangefinna
fyrir málefnum þroskaheftra norð-
anlands. Erú þær gjafir auðvitað
misjafnar að stærð en sumar í
háum upphæðum, svo sem frá
ýmsum félagslegum samtökum.
Mikil þörf er á slíkum stuðningi
framvegis. Að þessu sinni vil ég
biðja DAG að geta um viðbrögð
fámenns sveitarfélags, sem ber vott
um almennan áhuga og skilning á
verkefnum S.V.N. Þetta eru Gríms-
eyingar. Fyrir forgöngu frú Jór-
unnar Magnúsdóttur hefur þar
verið stofnuð deild styrktarmanna
með 36 stofnendum, en það er allt
að þriðjungur íbúa eyjarinnar.
Þetta ágæta fólk hefur sent árgjöld
sín fyrir þetta ár, öll með tölu, 500
krónur á mann, alls 18.000.00
ber 1973 hóf hann störf hjá Fata-
verksmiðjunni Heklu sem fulltrúi
verksmiðjustjóra og hefur gegnt því
starfi síðan. Sigurður er kvæntur
Margréti Jónsdóttur frá Raufar-
höfn, og eiga þau tvö börn.
(Fréttatilkynning)
krónur, sem félagið kvittar hér með
fyrir og þakkar innilega. Verður
meðfylgjandi nafnaskrá færð inn í
gerðabók félagsins.
Þetta frumkvæði Grímseying-
anna mætti verða öðrum sveitar-
félögum fyrirmynd og ntikill yrði sá
fjárhagslegi stuðningur, ef þetta
yrði almennt um Norðlendinga-
fjórðung, sem er félagssvæði
S.V.N., jafnvel þó að hlutfallið af
íbúatölu yrði hvergi svona stór-
myndarlegt í framlagi til starfsem-
innar.
Hvar verður næsta átak gert?
Hver verður Styrktarmannadeild
S. V.N. nr 2? Grímseyingar eru nr. 1.
Vel sé þeim.
F.h. stjórnar S.V.N.
Jóhannes Óli Sæmundsson
formaður.
Til fyrirmyndar
4.DAGUR
ATHUGASEMD - frá sýslumanni Þingeyinga
vegna fréttar Dags um silungsveiði í sjó
í blaði yðar „DEGI“ hinn 19. júlí
sl. birtist frétt undir fyrirsögninni
„Silungsveiði í sjó bönnuð í Eyja-
firði?“. Þar sem ég tel fréttina vera
að nokkru villandi og þegar hafa
valdið misskilningi lesenda og
sögusögnum, vil ég gera stutta at-
hugasemd við hana. I upphafi
greinarinnar segir:
„Mikið hefur borið á því í sumar,
að menn hafi gerst sekir um ólög-
legar netalagnir í Eyjafirði. Einnig
hafa nokkrir einstaklingar stundað
ádrátt skammt frá árósum ein-
stakra áa við fjörðinn, og í þeim
hópi hefur m.a. mátt finna starfs-
mann sýslumannsins á Húsavík.“
Helzt er að skilja á frásögn þess-
ari, að einn af starfsmönnunum á
sýsluskrifstofunni á Húsavík hafi
stundað ádrátt í Eyjafirði. Það hef-
ur ekki átt sér stað. Ef til vill á
greinarhöfundur við einhvern
bónda eða aðra íbúa Svalbarðs-
strandarhrepps, sem stundar um
einstaka helgar störf sem héraðs-
lögreglumaður á dansleikjum. Má
til sanns vegar færa, að héraðslög-
reglumenn á Svalbarðsströnd séu
starfsmenn sýslumannsins á Húsa-
vík, af því að þeir teljast við störf á
hans vegum og fá laun sín greidd úr
rikissjóði. Frétt blaðsins er þó allt
að einu villandi og vekur hjig-
mundir um annað.
Á undanförnum árum hafa
sýslumannsembættinu borizt kær-
ur frá eftirlitsmanni með silungs-
veiði og laxveiði við Eyjafjörð.
Hefur hann átt í stappi við nokkra
Svalbarðsstrendinga. Fulltrúar
sýslumanns Þingeyjarsýslu rann-
sökuðu þetta mál m.a. sumarið
1976 með því að fara á staðinn og
taka dómsskýrslur af þeim, sem
kærðir höfðu verið.
Hinn 26. júlí 1976 voru mál 7
einstaklinga vegna þessara meintu
veiðilagabrota send ríkissaksókn-
ara. Svör við 5 mála þessara bárust
með bréfum ríkissaksóknara, dags.
25. ágúst 1976. Niðurlag allra bréf-
anna 5 var á sama veg eða.... „skal
tekið fram, að eftir atvikum er eigi
af ákæruvaldsins hálfu krafizt
frekari aðgerða í máli þessu.“
Ef Dagur vill afla sér frekari
upplýsinga um mál þessi hér hjá
sýslumannsembættinu, er ég vita-
skuld reiðubúinn að liðsinna blað-
inu í því efni. Einnig má benda
blaðinu á að snúa sér til embættis
ríkissaksóknara.“
Húsavík, 27. 7. 1978
Sigurður Gizurarson.
Unglingastarf UMSE
Undanfarin 5 ár hefur farið fram
keppni í hinum ýmsu greinum
íþrótta skák, frjálsum íþróttum,
sundi, skíðagöngu og knattspyrnu
milli 6 skóla á sambandssvæði
Ungmennasambands Eyjafjarðar á
vegum UMSE. Eftirtaldir skólar
hafa verið þátttakendur: Árskógs-
skóli, Dalvíkurskóli, Hrafnagils-
skóli, Hríseyjarskóli, Húsabakka-
skóli og Þelamerkurskóli.
Vikublaðið Dagur á Akureyri
gaf á 50 ára afmæli UMSE, Ung-
mennasambandinu stóran og veg-
legan bikar er settur var í umferð er
keppni þessi hófst á sínum tíma, og
hefur bikarinn verið nefndur
„Dagsbikarinn."
Keppni þessi hefur verið stiga-
keppni milli fyrrnefndra skóla og
hefur Þelamerkurskóli unnið í öll 5
skiptin.
Á skólaslitsdegi Þelamerkur-
skóla er Dagsbikarinn var afhentur
í 5. sinn gat formaður Ungmenna-
sambandsins Jóhannes Geir Sigur-
geirsson þess að þetta yrði í síðasta
sinn sem þessi bikar yrði afhentur
sem farandgripur, en hann yrði
tekinn úr umferð vorið 1979 og
varðveittur á skrifstofu UMSE.
Sem eignargrip, fyrir sigur í 5
skipti í skólakeppni UMSE, var
Þelamerkurskóla afhentur mynd-
arlegur bikar er Trésmiðjan Börkur
h/f á Akureyri gaf.
Árangur nemenda Þelamerkur-
skóla er sérlega athyglisverður þar
sem aðstaða til íþróttaiðkunar er
vægast sagt mjög bágborin, fyrir
utan sundlaugina, en enginn
íþróttavöllur er á staðnum né
íþróttahús. Það stendur þó til bóta
nú á næstunni hvað varðar íþrótta-
völl en einhver bið mun verða á að
íþróttahús verði byggt.
Skólakeppni þessi hefur verið
vinsæl hjá forráðamönnum skól-
anna og hafa skólastjórar og kenn-
arar viðkomandi skóla, stutt vel við
UMSE hvað varðar móthald allt í
skólunum sjálfum, en keppnin
hefur farið fram til skiptis í skól-
unum öllum.
Þetta unglingastarf UMSE yfir
vetrarmánuðina hefur nú verið að
skila sér með aukiqpi þátttöku
barna og unglinga í íþróttamótum
Ungmennasambandsins yfir sum-
armánuðina. Hefur t.d. ekki verið
eins mikil þátttaka í knattspyrnu-
mótum drengja sem í sumar, mörg
undanfarin ár. Sundið er einnig á
uppleið og verður nú á héraðsmót-
inu væntanlega mun meiri þátttaka
en hefur verið hin síðustu ár.
Frjálsíþróttamót yngri aldurs-
flokkanna hafa nú tvö síðustu ár
verið hvað ánægjulegust þeirra
móta er Ungmennasambandið
stendur fyrir, og fer þar saman,
mikill fjöldi þátttakenda,; keppnis-
Keppnislið Þelamerkurskóla sigraði í skólakeppni UMSE
gleði og ekki hefur vantað keppn-
isskap hjá þeim yngstu. Nokkuð
hefur verið um það, að foreldrar
hafa fylgt börnum sínum á mótin
og verið þar bæði sér og börnum
sínum til gagns og gleði, einnig
hafa margir rétt fram hjálparhönd
til starfsmanna mótanna og er það
ætíð vel þegið. Ánægjulegt væri þó
ef fleiri foreldrar sæju sér fært að
koma og fylgjast með börnum sín-
um í félagsstarfi þeirra og keppn-
um.
Þessi mikla gróska hjá yngri ald-
ursflokkunum er ekki síst ánægju-
leg þar sem Ungmennasamband
Eyjafjarðar mun halda næsta
landsmót UMFf 1981, svo sem áð-
ur hefur komið fram í fjölmiðlum.
Haldi áfram sem nú horfir hvað
varðar afskipti okkar, forustu-
manna Ungmennasambandsins,
ungmennafélaganna og foreldrá, af
málum yngri aldursflokkanna,
mun Ungmennasamband Eyja-
fjarðar tefla fram ungu, sterku og
þróttmiklu liði á landsmóti UMFÍ
1981 hér í Eyjafjarðarsýslu.
Halldór Sigurðsson.
Halldór Ágúst Guðmundsson,
Ásgerðarstöðum, Hörgárdal
Fæddur 7. ágúst 1898 — Dáinn 5. júlí 1978
Kveðja frá
Hreiðari Aðalsteinssyni
Þú gekkst ekki slóð þess, er frægðina fær
þig fýsti ei störfin að sýna
samt varstu mér fyrirmynd frændi minn kær
því færðu hér kveðjuna mína.
Hvem dag fannst mér ágætt að dvelja þér hjá,
sem drengur og fullorðinn maður
hin sífellda önn varð sem ævintýr þá
þú ætíð varst kátur og glaður.
Bjart er í sveitinni, blómskreytt er hlíð
þó bóndinn sé fallinn í valinn.
Einu má trúa, um ókomna tíð
mun andi þinn sveima um dalinn.
Þór kominn á toppinn
í annarri deild
Þórsarar bættu tveimur stigum í
safn sitt á föstudagskvöldið þegar
þeir sigruðu Völsung með tveimur
mörkum gegn einu. Með þessum
sigri náðu Þórsarar KR að stigum
í annari deild, en KR-ingar hafa
þó leikið færri leiki. Allt virðist nú
stefna að því að Þór endurheimti
sæti sitt í fyrstu deild, á komandi
keppnistímabili. Ef vel gengur
ættu bæði Akureyrarliðin að leika
í fyrstu deild á næsta ári, og þá má
segja að knattspyrnan hér í bæ
verði í blóma.
Þórsarar hófu leikinn með
mikilli sókn og á 5. min. átti
Baldvin Harðarson skot í Þverslá
og niður en innfyrir línu fór bolt-
inn ekki. Skömmu síðar átti Jón
Lárusson gott skot sem fór fram-
hjá. Á 19. mín. kom þrumuskot
frá Sigurði Lárussyni í bláhornið,
en góður markmaður Völsungs
bjargaði í horn. Fyrsta mark
leiksins kom á 25. mín. en þá lék
Óskar Gunnarsson upp vinstri
kantinn og gaf góðan bolta fyrir
markið sem Sigurður Lárusson
skallaði örugglega í netið. Rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks sóttu
Völsungar hart að marki Þórs og
einu sinni björguðu Þórsarar á
línu.
Á 24. mín. síðari hálfleiks leik-
ur Kristján Olgeirsson á varnar-
menn Þórs og kemst innfyrir,
leikur á markmanninn og spyrnir
að markinu, en vamarmaður Þórs
var þar kominn og varði með
hendinni. Dómarinn, Þorvarður
Björnsson, dæmdi umsvifalaust
vítaspyrnu. Hermann Jónsson,
hin gamla kempa Völsunga,
skoraði örugglega úr vítinu og
jafnaði metin.
Völsungar börðust nú vel og
voru nú staðráðnir í að ná a.m.k.
öðru stiginu. Þórsarar gerðu hins
vegar út um leikinn á 37. mín.
þegar Guðmundur Skarphéðins-
son gaf góðan bolta til Jóns
Lárussonar, sem skoraði örugg-
lega. Völsungar mótmæltu mark-
inu og töldu Jón hafa verið rang-
stæðan, en dómarinn var ekki á
sama máli. Það urðu því örlög
Völsunga að tapa þessum leik en
staða þeirra í deildinni er nú að
verða mjög erfið. Það yrði mikið
áfall fyrir Húsvíkinga að falla
niður í þriðju deild, því aðstaða til
knattspyrnu á Húsavík er til
fyrirmyndar. Þórsarar eru hins
vegar komnir með annan fótinn í
fyrstu deild, eftir frekar slæma
byrjun í mótinu.
Bestur í þessum leik var Völs-
ungurinn Kristján Olgeirsson.
KA-strákunum
gengur vel
S.l. sunnudag fóru fram á Akur-
eyri 2 leikir í íslandsmótinu,
öðrum flokki. Áttust við annars
vegar Þór og Fram, og skildu
leikmenn jafnir, l-l. Mark Þórs
skoraði Árni Stefánsson. Hins
vegar keppti KA við Ármann og
sigruðu KA menn 2-L Mörk KA
skoraði hinn efnilegi Óskar Ingi-
mundarson. Þar með eru KA
menn komnir í úrslit í íslands-
mótinu.
í kvöld leikur KA við Víking á
Laugardalsvellinum og hefst
leikurinn kl. 20.00. Mikilvægt er
fyrir KA að vinna þennan leik og
hefna ófaranna hér fyrir norðan
en þá sigruðu Víkingar
KA vann Fram eftir
óskabyrjun
KA og Fram leiddu saman hesta
sina á Akureyrarvelli í fyrstu
dcildinni í knattspyrnu á laugar-
daginn. KA hafði harma að hefna,
þvf Fram sigraði i fyrri umferðinni
með einu marki gegn engu. Þá var
þarna einnig um að ræða uppgjör
þríggja bræðra, þeirra Jóhannes-
ar, Þorbergs og Kristins Atlasona.
Kristinn er nú einn af máttar-
stóipum Framliðsins, en Jóhann-
es fyrrverandi leikmaður og þjálf-
ari Fram, og Þorbergur stóð í
marki Fram um margra ára skeið,
en vinna nú báðir með KA. Að
þessu sinni höfðu KA bræðurnir
betur og Kristinn mátti láta í
minni pokann fyrir sínum eldri
bræðrum. Þorbergur stóð sig mjög
vel í markinu og margsinnis
klöppuðu áhorfendur leiksins
honum lof í lófa.
Leikur var rétt hafinn þegar
Sigurbjörn Gunnarsson gefur
langan stungubolta til Gunnars
Blöndal og inn í vítateig Fram.
Þar voru varnarmenn heldur að-
gangsharðir við Gunnar, og
dómari leiksins Magnús V. Pét-
ursson dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu. Þar brást Sigbirni Gunn-
arssyni ekki bogalistin, frekar en
venjulega, og skoraði hann
örugglega úr vítaspyrnunni.
Aðeins mínútu síðar komst
Elmar skemmtilega inn í send-
ingu milli Framara og lék bolt-
anum laglega fram vinstri kant-
inn til Óskars Ingimundarsonar,
sem lék á tvo varnarmenn Fram,
kom sér í gott færi og skoraði
örugglega. Tvö mörk gegn engu
eftir aðeins þrjár mínútur er met í
deildinni í ár.
KA lék undan sunnan golu í
fyrri hálfleik og sótti mikið að
marki Fram. Á 25. mín. var
markmaður Fram nokkuð djarf-
ur í úthlaupi, og Óskar Ingi-
mundarson ætlaði að skjóta háan
bolta yfir vörnina og í autt mark-
ið, en markmaður komst í markið
á elleftu stundu og ætlaði að slá
boltan yfir en barði hann upp í
þverslána og boltinn hrökk aftur í
markmanninn og út. Þarna skall
svo sannarlega hurð nærri hæl-
um.
Á 30. mín. má svo segja að KA
hafi gert út um leikinn, en þá
sóttu þeir upp hægri kantinn,
Óskar var kominn upp að enda-
mörkum og spyrnti laglega til
Gunnars Blöndal sem afgreiddi
boltann umsvifalaust í netið. Þrjú
gegn engu var staðan í hálfleik.
Framarar hófu seinni hálfleik
með mikilli sókn, og pressuðu að
marki KA, en þar var Þorbergur á
réttum stað og greip örugglega
inn í á réttum tíma. Á I5. mín.
gerðu KA menn skyndisókn og
Gunnar Blöndal komst í dauða-
færi, en á einhvern óskiljanlegan
hátt náði varnarmaður Fram sem
kom aðvífandi að bjarga í horn.
Þrátt fyrir stöðuga sókn Fram-
ara og hættuleg skyndiupphlaup
KA urðu mörkin í þessum leik
ekki fleiri, og KA vann verð-
skuldaðan sigur, þrjú mörk gegn
engu. Með þessum sigri hafa þeir
aðeins þokað sér af hættusvæði
deildarinnar og vonandi tekst
þeim að tryggja stöðu sína þar.
Það vakti athygli vallargesta að
tveir af fastamönnum KA liðsins
voru ekki með að þessu sinni, en
þeir höfðu brotið agareglur liðs-
ins og voru því teknir úr liðinu i
þessum leik. Annars barðist liðið
vel og allir leikmenn áttu góðan
dag, og væri það ekki sanngjart
að telja að einn hafi verið öðrum
betri í þessum leik. Vonandi
gengur KA vel í næstu leikjum og
gulltryggir stöðu sína í deildinni.
Hvaða merki er efst í írskum máiara-
stigum? Hvað annað en STANZ?
iri fór til læknis og kvartaði sáran
undan því að í hvert sinn sem hann
fengi sér tesopa - yrði hann var við
sáran verk í öðru auganu. „Hefur þú
reynt að taka skeiðina úr bollanum",
spurði læknirinn.
Þórsarar eru orðnir
Akureyrarmeistarar
í f immta flokki
Á undan leik Þórs og Völsungs á
föstudagskvöld léku Þór og KA
úrslitaleik í fimmta flokki Akur-
eyrarmótsins. Áður höfðu þessi
lið leikið tvívegis og sigrað í sitt
hvort sinn og var því um algjöran
úrslitaleik að ræða. Þórsarar voru
sterkari aðilinn í þessum leik og
unnu verðskuldaðan sigur skor-
uðu þrjú mörk gegn einu hjá KA.
Mörk Þórs skoruðu Júlíus
Tryggvason, Jakob Jóhannsson
og Baldvin Guðnason, en öll þau
mörk voru skoruð í fyrri hálfleik.
Mark KA skoraði Jón Kristjáns-
son í byrjun síðari hálfleiks.
Það var skemmtileg nýbreyttni
fyrir drengina að leika á aðal-
leikvanginum, en völlurinn var
þeim þó greinilega ofviða, því
þeir æfa og leika yfirleitt á mal-
arvelli. Þórsarar urðu því Akur-
eyrarmeistarar í þessum flokki og
fylgja þeim árnaðaróskir
DAGUR.5