Dagur - 23.11.1978, Blaðsíða 7
VERÐSAMANBURÐUR I NÓVEMBER 1978
Vöruheiti Magn KEA Kjörb. Kaupfél. Kjörm. Hagkaup
Hrísal. Bjarna verkam. KEA
Hveiti 10 lbs. 700.00 844.00 764.00 630.00 749.00
Strásykur 2 kg. 263.00 343.00 296.00 261.00 ekki til
Molasykur 1 — 229.00 284.00 246.00 114.00 ekki til
Flórsykur 1/2 — 94.00 103.00 140.00 93.00 119.00
Borðsalt fínt 1 — 92.00 200.00 142.00 83.00 139.00
Sólgrjón 950 gr. 357.00 372.00 ekki til 322.00 289.00
Cocoa puffs 450.00 480.00 ekki til ekki til 315.00
Súpur Maggi pk. 156.00 211.00 147.00 180.00 - 175.00
Búðingur Royal 90 gr. 118.00 124.00 121.00 107.00 105.00
Matarkex Frón 400 — 265.00 283.00 248.00 239.00 235.00
Flatbrauð Korni 300 — 253.00 292.00 285.00 214.00 ekki til
Paxo kryddrasp 160.00 152.00 ekki til 144.00 119.00
Nesquik 400 — 860.00 933.00 885.00 774.00 669.00
Epli rauð 1 kg. 427.00 473.00 560.00 385.00 398.00
Appelsínur 1 — 385.00 450.00 445.00 329.00 358.00
Sardínur K.J. 3/4 oz 198.00 208.00 250.00 179.00 185.00
Iva Þvottaduft 700 gr. 349.00 314.00 295.00 ekki til 275.00
Vex þvottaduft 3 kg. 1.385.00 ekki til ekki til 1.247.00 ekki til
Handy Andy 13 oz 269.00 313.00 270.00 243.00 315.00
Lux handsápa 90 gr. 117.00 104.00 103.00 102.00 115.00
Bómull 100 — 167.00 191.00 ekki til 151.00 209.00
Frigg teppasjampo I Itr. 450.00 513.00 377.00 405.00 ekki til
VEITINGASALA
HÓTEL VARÐBORG
★
Kalt borð - Heitur matur
Heilar sneiðar og snittur
Sendum heim
★
Einstaklingar, (élög og fyrirtœkl
Útvegum sali undir (undi, samkvæmi og ráöstefnur
simi
22600
f pQTj Ý
7T“Í TT
aam ee'
'M
Aukinn jarðhiti á Keldunesbæjum
OQ I G iástvlcki ~ sjónlína á milli Meiðavalla og Lyngáss
9 '-jwoiyivivi hefur tekið breytingum
Allt er nú með kyrrum kjörum í
Þingeyjarsýslu, eftir óróa þann
á Kröflusvæðinu, sem þar varð
á dögunum. Haraldur í Lyng-
ási, Þórarinsson, sagði blað-
inu, að hann áliti að nokkrar
breytingar hefðu orðið á landi í
Kelduhverfi. Til marks um það
hefði sjónlína á milli Meiða-
valla og Lyngás tekið breyt-
ingum.
Frá Meiðavöllum sjást húsin á
Lyngási og munar það um 30-40
sentimetra og sýnir það óyggjandi
breytingu. Hinsvegar hækkaði
vatnsborð í gjánum hér, ekkert að
þessu sinni, svo sem áður hefur
orðið í kvikuhlaupum, sagði
Haraldur.
Kvikuhlaupið hefur e.t.v. farið
norður á miklu dýpi, en þó hefur
hiti mikið aukist á Keldunesbæj-
um, án þess að það sé rannsakað
sérstaklega þar sem áður var hiti.
Ég kom í Gjástykki nokkrum
S.V.F.I. á Akureyri...
(Framhald af bls. 5).
merkileg vél, því hún mun vera
fyrsta sjúkravél á Islandi.
Deildin hér hefur látið byggja
tvö björgunarskýli, hið fyrra í
Keflavík, austan Eyjafjarðar.
Skýlið var byggt á Akureyri en
flutt ósamansett með póstbátnum
Drangi 27. júní árið 1951. Síðan
var aftur farið 30. júní og húsið
reist. Klukkan tvö næsta dag var
svo húsið vígt af séra Birgi Snæ-
bjömssyni og mun þetta hafa
verið eitt af hans fyrstu prest-
verkum.
Skýlið á Öxnadalsheiði var
byggt af Daníel Sigmundssyni á
ísafirði og var það byggt í flekum,
sem fluttir voru hingað, en Jón
Sigurjónsson hafði umsjón með
uppsetningu skýlisins. Þetta skýli
var svo vígt 17. september 1967 af
sóknarprestunum hér, séra Pétri
Sigurgeirssyni og séra Birgi Snæ-
bjömssyni og hlaut nafnið Sess-
eljubúð.
Eftir að nýi vegurinn var lagður
yfir Öxnadalsheiði þótti nauð-
synlegt að færa skýlið vegna
breyttra aðstæðna. Var það flutt
upp fyrir nýja veginn og nokkru
vestar en áður. Það var gert 17.
september 1977 og hittist svo
skemmtilega á, að þá voru liðin
nákvæmlega 10 ár frá því það
hafði verið reist.
Starfsmenn Vegagerðarinnar
sáu um flutninginn fyrir okkur,
ásamt Jóni Sigurjónssyni, en
flutning á síma önnuðust starfs-
menn Landsímans. Sérstök nefnd
annast viðhald skýlisins fyrir
okkur. Það er ánægjulegt að um-
gengni hefur batnað mikið síð-
ustu árin.
Á aðalfundi SVFl í vor bárum
við fram tillögu um að reist yrði
heiðarskýli með talstöð við
Sprengisandsleið.
Þar sem hér er ekki starfandi
nein björgunarsveit á vegum
SVFl, höfum við reynt að styrkja
á ýmsan hátt Flugbjörgunar-
sveitina og Hjálparsveit skáta hér
í bænum með kaupum á ýmsum
nauðsynlegum tækjum t.d. tal-
stöðvum, sjúkrabörum o. fl„ lagt
var fram fé til kaupa á gúmmíbát
til afnota fyrir lögregluna. Einnig
lögðum við fram fé í Hjartabílinn
og til Rauða Krosshótelsins og
þegar það var opnað gáfum við
rúmfatnað í öll rúm.
Nú í sumar gáfum við Flugfé-
lagi Norðurlands mjög fullkomið
súrefnistæki til notkunar við
sjúkraflug og fleira mætti nefna.
Síðastliðið ár gerðum við til-
raun með fræðslufundi í skólum
bæjarins. Til liðs við okkur feng-
um við þá Víking Björnsson og
Ólaf H. Óddsson lækni. Víkingur
sýndi kvikmynd og kynnti
slökkvitæki og meðferð þeirra,
en Ólafur leiðbeindi um blást-
ursaðferðina og sýndi kvikmynd
til skýringar. Þessir fundir voru
öllum opnir og tókust nokkuð vel.
Nú nýlega höfðum við opinn
fund um umferðamál í Alþýðu-
húsinu. Þar sagði m. a Indriði
Úlfsson skólastjóri frá umferðar-
fræðslu barna í Oddeyrarskóla og
erindreki SVFl, Óskar Þór Karls-
son, ræddi um umferðarmálin. I
lok fundarins var ný kvikmynd
um störf Slysavamarfélagsins í 50
ár, sem fyrirtækið Lifandi myndir
hefur gert.
I dag eru það umferðarmálin,
sem við höfum mestan áhuga á að
vinna að. Síðastliðið ár lést ein
félagskona í umferðarslysi hér í
bænum, Helga Sigurjónsdóttir.
Bárust deildinni þá minningar-
gjafir um hana, og var það fé,
ásamt fleiri minningargjöfum,
lagt í sérstakan sjóð, sem ætlaður
er til umferðarmála á Akureyri.
Við höfum m. a. áhuga á, að
vinna að því að komið yrði upp
umferðaræfingarsvæðum fyrir
börn, þar sem merktar væru
brautir og útveguð og komið fyrir
þeim tækjum, sem nauðsynlega
þyrfti.
Yrði þessu væntanlega komið
fyrir við einhvern skólann. Um
þetta þarf auðvitað bæði samráð
og aðstoð bæjaryfirvalda, skóla,
lögreglu og annarra þeirra aðila,
sem þetta snertir.
Þetta mál hefur verið lauslega
rætt og ég veit að áhugi og góður
vilji er fyrir hendi. Við munum
halda áfram að efla þennan sjóð,
og nú nýlega létum við útbúa
endurskinsmerki, bæði fyrir börn
og fullorðna. Ágóðinn af merkja-
sölunni rennur í þennan umferð-
arsjóð.
Slysavarnarfélag Islands er að-
ili að umferðarráði og vil ég nefna
hér eitt dæmi úr skýrslu umferð-
arráðs. Þar eru aðeins 2% rakin til
ástands ökutækis, en 98% til
mannlegra mistaka. Óhætt er að
fullyrða, að umferðarslysin séu
orðin ein versta plága, sem við
eigum við að stríða.
Auk þeirra andlegu og líkam-
legu þjáninga, sem þau leiða af
sér fyrir fjölda einstaklinga, kosta
þau þjóðfélagið óhemju fjár-
muni, vegna sjúkrahúskostnaðar
og eignatjóns.
Nýta þarf sjónvarp meira í
áróðrinum gegn þessum vágesti
og allir þurfa að snúast til varnar.
Við verðum, hver ei'nasti einstak-
lingur, að gera okkur ljósa ábyrgð
okkar í umferðinni, bæði gang-
andi og akandi.
Fyrir tíu árum, þegar hægri
umferðin tók gildi, kom vel í ljós,
hvað hægt er að gera með sam-
stilltu átaki.
Að endingu vil ég f.h. Slysa-
varnarfélags Islands og deildar-
innar hér, færa bæjarbúum
þakkir fyrir hlýhug þeirra til fé-
lagsins alla tíð og sérstaklega
góðar móttökur þegar til þeirra
hefur verið leitað.
klukkustundum áður en fór að
snjóa. Þar hafa orðið miklar
breytingar og hitaaukning, auk
þess sem jarðhitasvæðið hefur
enn stækkað, sagði Haraldur að
lokum.
Vísur Bjarna
frá Gröf
Út er komin bók er hefur að
geyma vísur eftir Bjama frá Gröf
sem um langt árabil starfaði sem
úrsmiður á Akureyri. Bjami er
fæddur árið 1900 á Stómborg, en
hann kennir sig gjama við býlið
Gröf í Víðidal. Á bókarkápu segir:
„Þegar í bemsku tók Bjarai miklu
ástfóstri við rímur, sem mikið
vora iesnar eða kveðnar, og hann
var langt innan við fermingu, þeg-
ar hann fór að fella hugsanir sínar
í bundið mál.“ Bókin er samtals
143 blaðsiður, smekklega unnin
og í henni era fjölmargar hnyttnar
og skemmtilegar vísur og kvæði.
Vísur Bjaraa frá Gröf eru gefn-
ar út af bræðraútgáfunni s.f.
Prentverk Odds Björnssonar
prentaði.
Stórbingó
Náttúrulækningafélags Akureyrar verður haldið í
Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 26. nóvember kl.
8.30 e.h.
Glæsilegir vinningar sem eru til sýnis í glugga
Iðnaðarbankans.
Rúllugjald.
Bingónefndin.
Leiðalýsing í
kirkjugarði
Eins og áður verða Ijósakrossar settir á leiði og
kosta nú kr. 4.000 krossinn.
Þeir sem vilja hætta við krossa tilkynni það vin-
samlegast í síma 22517 eða 21093.
Einnig verður tekið við pöntunum í nýja krossa í
sömu símum til 3. desember n.k.
St. Georgsgildið.
— Æ fleiri tryggja ...
(Framhald af bls. 1).
hann að fyrir nokkru brann hluti
innbús í húsi á Akureyri. Það hafði
verið tryggt fyrir 2,5 milljónir
króna og þegar matsmenn trygg-
ingarfélagsins höfðu metið innbúið
eftir brunann kom í ljós að við-
komandi hafði átt innbú samtals að
verðmæti rúml. 5 milljónir króna.
Þar af leiðandi fékk eigandinn
helmings bætur, því hinn var
ábyrgð eiganda.
„Tökum sem dæmi mann, sem
hefur tryggt innbúið fyrir 2 mill-
jónir króna. Nú verður hann fyrir
tjóni og það er metið á 1 milljón.
Við mat kemur í ljós að hann átti
innbú fyrir 4 milljónir, og fær
helming í bætur, þ.e.a.s. 500 þús-
und, þar sem hann tryggði aðeins
helming eigna sinna,“ sagði Sig-
mundur.
— Hvað gerir hitaveitan
(Framhald af bls. 8).
Þverá og hefur það verk gengið vel.
Sumarið 1980 er síðan fyrirhugað
að gera dreifikerfi frá
Syðra-Laugalandi að Stór-Hamri.
Áfangi 11. Það er viðbætur í
Síðuhverfi. Síðuhverfi er nýbygg-
ingahverfi og þar verður haldið
áfram gerð dreifikerfis í samræmi
við byggingarframkvæmdir.
Kostnaður er áætlaður 100 mkr. og
tengigjöld 30 mkr.
Þegar þeim dreifikerfisáföngum,
sem hér hafa upptaldir, er lokið,
verða aðeins tvö hverfi á Akureyri
án hitaveitu, þ.e. Gerðahverfi II
eins og áður sagði og Innbærinn
ásamt einstökum götum og býlum í
bæjarlandi Akureyrar. Ekki eru
uppi áætlanir um tengingu býlanna
að sinni. En áætlað er að ljúka
framkvæmdum við hitaveituna
sumarið 1980 með gerð dreifikerfis
í Innbæinn og Gerðahveríi II.
DAGUR.7