Dagur - 30.11.1978, Page 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 30. nóvember 1978
ÞJÓNUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Farþegafjöldinn
hefur aukist um
30-40% hjá
0 Óskabarn
þjóðarinnar
Er Eimskipafélagi íslands
stjórnað af hluthöfum? Eru
völdin í félaginu í höndum
fárra manna og eiga þeir
einnig ítök í nokkrum af
stærstu einkafyrirtækjum
landsins? Samkvæmt upp-
lýsingum eins dagblaðanna
elga sumir stjórnarmanna
Eimskips sæti í einkafyrir-
tækjum og eru dæmi nefnd
um nokkra þeirra. Stjórnar-
formaður Eimskipafélagsins
(Halldór H. Jónsson) er einn
af stjórnendum Garðars
Gíslasonar hf., stjórnarfor-
maður íslenska álfélagsfns,
stjórnarmaður í Shell, stjórn-
armaður í sameinuðum verk-
tökum, stjórnarmaður í
Flugleiðum og í Áburðar-
yerksmiðjunni í Gufunesi.
Annar stjórnarmaður (Ingvar
Vilhjálmsson) situr einnig í
stjórn SH og í stjórn Sjóvá, en
þar er Elmskip vátryggt. Þriðji
stjórnarmaðurinn (Axel Ein-
arsson) er í stjórn Hótels Esju
og Ferðaskrifs.tofunnar Úr-
vals. Fjórði stjórnarmaðurfnn
(Thor Ó. Thors) er forstjóri
íslenskara aðalverktaka og á
hann einnig sæti í stjórn
Flugleiða og Shell. Ekki þykir
ástæða til að haia upptaln-
inguna öllu lengri.
0 Hvaðum
hluthafana?
Það má með ólíkindum telj-
ast ef meirihluti hluthafa
Eimskipafélagsins hefur
nokkur áhrif á stjórn félags-
ins, en hluthafarnir eru um 13
þúsund talsins. Þar sem hluti
stjórnarmanna Eimskipafé-
lagsins á sæti í fyrirtækjum
og stofnunum sem eiga
hagsmuna að gæta í sam-
bandi við ákvarðanatöku
hljóta þeir að hafa fyrirtækin í
huga þegar greidd eru at-
kvæði í stjórn Eimskips.
0 Opinber
rannsókn?
Albert Guðmundsson og
Ólafur Ragnar Grímsson hafa
lagt fram frumvörp á Alþingi
um rannsókn á Eimskipafé-
laginu, Flugieiðum og Sam-
bandi íslenskra samvinnufé-
laga. Öll eru þessi félög risar
á hérlendan mælikvarða og
e.t.v. standa þau á traustum
og heiðarlegum fótum, en
óneitanlega eru mikil tengsl á
milli tveggja fyrstnefndu
fyrirtækjanna þ.e. Flugleiða
og Eimskipafélagsins. Ein-
okun í hvaða mynd sem er
getur haft skaðleg áhrif og
því full ástæða til að taka
þessi mál föstum tökum.
Samruni félaga getur verið
nauðsynlegur, en tæplega
hefðu opinberir aðilar í ná-
grannalöndum okkar látið
vinskap Bifrastar og Eim-
skipafélagsins með öllu af-
skiptalausan.
MIKLAR FRAMKVÆMD
IRIVOPNAFIRÐI
Svo virðist sem Akureyringar
kunni vel að meta aukna þjón-
ustu SVA því farþegafjöldinn
hefur aukist um 30 til 40%. Að
vísu hafa þessar tölur ekki feng-
ist staðfestar, en Gunnar Jó-
hannesson, verkfræðingur hjá
Akureyrarbæ, taldi þær ekki
fjarri lagi. Nokkrir gallar hafa
komið fram á leiðakerfi vagn-
anna, en yfirleitt hafa þeir verið
smávægilegir og auðvelt að laga
þá.
„í stórum dráttum hefur leiða-
kerfið gengið ágætlega. Það hafa
komið fram ákveðnir gallar, en við
höfum reynt að leysa þá eftir bestu
Herstöðvaand-
stæðingar . . .
Næst komandi sunnudag kl.
15.30 efna samtök herstöðva-
andstæðinga til fundar að Hótel
KEA í tilefni þess að nú eru liðin
60 ár síðan landið varð fullvalda
ríki. Dagskrá fundarins fjallar
fyrst og fremst um hcrstöðina á
Miðnesheiði og tengsl hennar
við ástandið í heiminum. Dag-
skrá fundarins er fjölbreytt,
m. a. eru fluttar ræður sungið og
„Tröllaslagur hinn nýi“ verður
fluttur í fyrsta sinn á Akureyri.
Opnunartími
verslana
fyrir jólin
Flestar verslanir á Ak-
ureyri verða að venju
opnar í desember á
laugardögum og Þor-
láksmessu með þeirri
breytingu þó að opnun-
artíminn er styttur
nokkuð miðað við liðin
ár. Að sögn kaupmanna
er ástæðan sú að staða
verslunarinnar hefur
sjaldan eða aldrei verið
jafn slæm. Samkvæmt
auglýsingu frá KEA,
Verslunarmannafélagi
Akureyrar og Kaupfé-
lagi Verkamanna verður
lokað laugardaginn 2.
desember, laugardaginn
9. desember verður opið
til kl. 16, laugardaginn
16. desember verður op-
ið til kl. 22 og laugar-
daginn 23. desember
verður opið til kl. 23.
Útibú matvörudeildar
KEA verða hins vegar
ekki öll opin á framan-
greindum tímum og vís-
ast til auglýsingar í síð-
asta blaði Dags um opn-
unartíma þeirra fyrir
jólin.
getu Sem dæmi má nefna að áður
en kerfið var tekið í notkun gekk
vagn rétt fyrir kl. 5 niður norður-
brekkuna, en nú niður suður-
brekkuna. Konur sem hófu vinnu á
verksmiðjum SÍS um þetta leyti
kvörtuðu og í þessari einu ferð
gengur vagninn nú niður Þórunn-
arstræti,“ sagði Gunnar.
Seinkanir á vögnum hafa verið
fremur fátíðar. Helsta töfin er í
miðbænum og sagði Gunnar að
það kæmi til álita að setja bið-
skyldu á Skipagötuna, þar sem
Sauðárkróki 28. nóvem-
ber. Hér er mikið uro kjöt að
endaðri sláturtíð en lítið af fiski.
Eitthvað svolítið sannleikskorn
er í því, að hér sé borðað kjöt í
alla mata, af því fiskurinn fáist
ekki.
Togararnir hafa verið að sigla
með afla sinn og því hefur
Sauðárkrókur ekki verið mikill
fiskibær um tíma. En nú eru
tveir togararnir á veiðum og
þegar þeir koma með afla sinn,
S.V.A.
vagnarnir eru stundum lengi að
komast umhverfis Ráðhústorgið.
Væntanlega mun umferðarnefnd
fjalla um málið í þessari viku.
Svo virðist sem fullorðið fólk
notfæri sér þjónustu SVA meira en
áður og eins og fyrr sagði hefur
farþegafjöldinn aukist stórlega.
Þetta kemur heim og saman við
erlenda reynslu, að þegar ferða-
tíðnin er aukin um helming fjölgar
farþegum að sama skapi. Nákvæm
athugun á notkun vagnanna verður
gerð eftir áramót.
mun fiskurinn þykja góður, eftir
allt kjötátið. Skafti liggur hér í
höfninni nýkominn úr söluferð.
Hinn 21. og 22. nóvem ber sl. sótti
Skógræktarfélag Skagfirðinga 400
stafafurujólatré í skógargirðinguna
á Hólum í Hjaltadal. En þar er
skógur uppvaxandi barrtrjáa, sem
gróðursettur var síðustu 10-20 árin.
Unnu bændaskólanemar og skóla-
fólk á Hólum ágætt starf við að
fella trén, flytja þau og snyrta,
undir umsjón Sigurðar Blöndal
skógræktarstjóra. í fyrra komu 300
Vopnafirði 28. nóvember. —
Miklar framkvæmdir hafa verið
hér í Vopnafjarðarkauptúni á
árinu, eins og á undanförnum
árum. Hafin var bygging 16
íbúða. Af þeim voru 10 einbýlis-
hús og sex íbúðir í sambýlishúsi.
AIls eru 25 íbúðir í smíðum á
ýmsum byggingarstigum en 15
íbúðir voru teknar í notkun á
árinu. Kaupfélagið er einnig
jólatré frá Hólum og var það í
fyrsta sinni, sem skagfirsk jólatré
voru á boðstólum. Þau seldust flest
í Skagafirði, svo og á öðrum stöð-
um í þessu kjördæmi og skiluðu
600 þúsund króna hagnaði. Verður
hagnaði af jólatrjánum varið til
skógargirðingar á Hólum. Ágætt
samstarf hefur lengi verið milli for-
ystumanna Hólaskóla og Skóg-
ræktarfélags Skagfirðinga, um að
koma aftur upp skógi að Hólum.
Var jólatrjáasaían góður áfangi á
þeirri leið. G.Ó.
með í byggingu 500 fermetra
vörugeymsluhús.
Olíumöl var lögð á 700 lengdar-
metra á götum og er nú búið að
leggja olíumöl á rúmlega tvo þriðju
hluta gatnanna.
Tangi hf, sem á og rekur togar-
ann Bretting, tekur á næstunni í
notkun nýtt húsnæði, sem byggt
var í sambandi við gamla frysti-
húsið og verður afkastageta frysti-
hússins þá 20-25 tonn á dag, miðað
við átta klukkustunda vinnu, en
það eru þreföld afköst við það sem
verið hefur.
Nýbyggingar voru litlar í sveit-
inni í sumar. Á sumum stöðum var
þó lokið við byggingar, sem áður
var byrjað á, svo sem í Engihlíð, þar
sem lokið var smíði 30 kúa fjóss,
sem er vandað. Þá voru rörmjalta-
kerfi sett upp i sex fjósum og tank-
væðing stendur nú yfir hjá mjólk-
urbændum.
Fallþungi dilka í haust í slátur-
húsinu var 15,35 kg, sem er með því
besta sem hér hefur verið, miðað
við að nú voru skrokkarnir án nýr-
mörs.
Laxveiðin var mjög góð í öllum
laxveiðiánum í sumar. í Vestur-
dalsá veiddust rúmlega 500 laxar, í
Hofsá 1340 laxar og í Selá 1390
laxar.
Fé kom á hús um miðjan nóv-
ember, en þá var kominn nokkur
snjór. Þ. Þ.
Starf strætisvagnastjóra er ekki alltaf dans á rósum. Keðjurnar slitnuðu á þessum
vagni og varð bilstjórinn að skríða undir bílinn í snjókomu og kalsaveðri. Mynd: á.þ.
SKAGFIRSK JÓLATRÉ
PRÝÐA SKAGFIRSK
UEIIUIII I Jólatré frá Hólum í annað
nCIIVIILI sinn á boðstólum