Dagur - 03.01.1979, Blaðsíða 3

Dagur - 03.01.1979, Blaðsíða 3
Listi yfir gjafir og áheit til Dýraverndunarfélags Akureyrar Úr söluhverfi J.S. kr. 315.00, Úr söluhverfi G.Kn. kr. 600.00, G.H. (J.Ó.) kr. 600.00, Kr. St. kr. 180.00, Synir Á. Þorl., sölulaun kr. 800.00, K.G. og Þ.E. sölulaun kr. 1.780.00, Áheit N.N. kr. 10.000.00, N.N. kr. 10.000.00, Samtals kr. 24.275.00 Ennfremur móttekið til Dýra- verndarans kr. 12.000.00 Með kæru þakklæti Dýraverndunarfélae Akureyrar. AKUREYRARBÆR Auglýsing um lausar íbúðarhúsalóðir Upplýsingar um nýjar íbúðarhúsalóðir fyrir einbýl- ishús, raðhús og fjölbýlishús eru veittar á skrifstofu bvqqinqarfulltrúa, Geislagötu 9 í viðtalstíma kl. 10.30-12.00 f.h. Umsóknarfrestur er til 16. janúar n.k. Nauðsynlegt er að endurnýja eldri umsóknir. Byggingarfulltrúi Akureyrar Úrskurður um lögtök Hér með úrskurðast lögtök hjá gjaldendum á Ak- ureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu fyrir þeim hluta eignarskattsauka, sérstaks tekjuskatts samkvæmt bráðabirgðalögum nr. 96, 1978, sem í gjalddaga féll 1. nóvember og 1. desember og ógreiddur er. Fara lögtök fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þesss. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaður- inn í Eyjafjarðarsýslu 15. desember 1978. fbúðir Höfum nú til sölu íþúðir við Keilusíðu 6 til 8. (búð- irnar eru 2ja 3ja og 4ra herbergja og seljast tilbúnar undir tréverk með frágenginni sameign. Lán frá Hsunæðismálastofnun er 5,5 milljónir króna. Teikningar og aðrar upplýsingar á skrifstofu. Þinur h.f., Fjölnisgötu 1, sími: 22160 AUGLÝSIÐ í DEGI | Silfurtúnglið Ýmislegt hefur blaðinu borist um jólaleikrit sjónsvarpsins og þar sem það er allt á einn veg, er nægilegt að birta eitt bréf af þeim umsögnum og það hljóðar svo: „Á annan í jólum 1978 var sýnt í sjónvarpinu leikritið Silfurtunglið eftir Halldór Laxness. Hinn 28. desember sá ég í tímanum um- sagnir sex manns um leikinn og bar enginn þeirra lof á hann. Furðar mig það ekki. Mér finnst ekki annað hægt en að láta í Ijósi vanþóknun yfir því, að sjónvarpið skuli senda lands- mönnum annann eins óþverra á ORÐ DAGSINS SÍMI - 2 18 40 Blönduós- kirkju berst dánargjöf. Nýlega barst Blönduóskirkju veg- leg dánargjöf, en Anna Guðrún Guðmundsdóttir, er nýlega látin, ánafnaði kirkjunni húseign sína Njálsgötu 74, í Reykjavík, eftir sinn dag, til minningar um mapn sinn Árna Ólafsson, rithöfund og bóka- útgefanda, en hann var fæddur og ólst upp á Blönduósi. Mun andvirði húseignarinnar verða varið til byggingar nýrrar kirkju á Blönduósi. Við guðþjónustu í Blönduós- kirkju þann 3. des. s.l. þakkaði sóknarprestur sr. Árni Sigurðsson, gjöfina fyrir hönd safnaðarins. Minningar- gjöf til Undirfells- kirkju í Vatnsdal Á s.l. sumri færðu systkinin frá Haukagili í Vatnsdal, A-Hún, Konráð, Kristín, Haukur, Svava og Sverrir, Undirfellskirkju í Vatns- dal, að gjöf kr. 500. þús. og var sóknarnefnd afhent gjöfin að við- stöddum sóknarpresti sr. Árna Sig- urðssyni í samsæti að Húnavöllum. Fjöfin er gefin til minningar um foreldra þeirra systkina, Eggert Konráðsson, hreppstjóra á Hauka- gili, en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári og konu hans Ágústínu Grímsdóttur, sem hefði orðið 95 ára. Sóknarprestur og formaður sóknarnefndar Undirfellasóknar Irtgvar Steingrímsson, bóndi á Eyjólfsstöðum, þökkuðu gjöfina fyrir hönd safnaðarins. ÞORLEIFUR MEIDDUR Á laugardaginn kemur KR norður og leikur við KA í annarri deild handbolta. Þeir eru með eitt sterkasta liðið í deildinni og verða því KA menn að taka á sínum stóra ef þeir ætla að leggja þá af velli. Þorleifur Ananíasson fyrirliði KA leikur ekki með, en hann slasaðist á æfingu fyrir skömmu og má ekki leika í a.m.k. í einn mánuð. Áhorfendur er hvattir til að fjölmenna í skemmuna og hvetja KA til sigurs í þessum leik. jólunum og eyða í það að sögn 40 milljónum króna. I leiknum er einkum höfðað til lægstu hvata manneskjanna og einskis svifist til að eyðileggja og drepa hinar bestu og helgustu til- finningar, sem mennirnir bera í brjósti, einkum mæðurnar. f leiknum kemur fram á sviður peningagráðug mannskepna, sem með fagurgala og gylliboðum lokkar móður frá litlu bami sínu upp á leiksviðið til að sýna móður- ástina, sem á eftir er dregin í svaðið af leikstjóra og leikendum. Loks kemur fram á sviðið sam- viskulaust manndýr, sem kaupir móðurina og fer með hana eftir sínu innræti og fleygir henni síðan frá sér, útúr-drukkinni eins og hverju öðm ónýti. Annað, sem sýnt er á sviðinu er einskisvert glys og skepnuskapur. Sárt er að sjá íslenska leikendur, sem vafalaust eru flestir besta fólk, ginnta til að sýna þennan ógeðslega leik. Að lokum vil ég vona, að ís- lenska sjónvarpið bæti ekki svörtu ofan á grátt með því að senda þetta afrek sitt úr landi, sér og þjóðinni til skammar. Alfreð Ásmundsson." Þorleifur Ananíasson fvrirliði KA f handknattleik meiddist illa á æfingu fvrir skömmu og getur því ekki leikið með liði sínu næstu leiki. Happdrætti Framsóknar- manna Þeir sem fengið hafa heimsenda happdrættismiða á Akureyri frá Framsóknarflokknum eru vinsamlegast beðnir að gera skil á afgreiðslu Dags Tryggvabraut 12. Drætti frestað. Framsóknarfélag Akureyrar. DAGUR.3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.