Dagur - 30.01.1979, Blaðsíða 2
s SmáauöIvsinðar
Óska að kaupa vel með farna
notaða dráttarvél.
Uppl. í síma 22565, (Siguróur).
Bifreidir
Ford Bronco árg. 1973 til sölu,
ekinn 33 þúsund km.
Uppl. gefur Haukur Kristjáns-
son í síma 22545 eftir kl. 19.
Mercedes Benz árg. 1970 til
sölu. Góður Píll.
Uppl í síma 21758 eftir kl. 19.
--------------1-------------
Citroen Spesial árg. '71 til sölu.
Þarfnast smá lagfæringar.
Uppl. í síma 21346.
Land-Rover (lengri gerð) til
sölu, árg. 1971.
Uppl. í síma 22957.
Tapaó
Sá em tók poka með fimleika-
bol, æfingarbuxum, bikini og
handklæði í strætisvagnabið-
skýli við Ráðhústorg, vinsam-
lega hringi í síma 21236 eða til
lögreglunnar.
Atvinna
Afgreiðslustúlka óskast frá kl.
1-6 á daginn.
Uppl. eftir kl. 6 á daginn í síma
24094.
Atvinna óskast. 22 ára gamall
piltur óskar eftir atvinnu sem
fyrst. Allt kemur til greina.
Uppl. í síma 21898 milli kl. 9-18
á daginn.
Ungur maður óskar eftir kvöld-
og/eða helgarvinnu. Allt kem-
ur til greina. Hef Samvinnu-
skólapróf ásamt mjög góðri
ensku- og vélritunarkunnáttu.
Hef einnig bíl til umráða. Þeir
sem áhuga hafa, gjöri svo vel
að hringja í síma 22565 eftir kl.
5 síöd.
Sala
Þriggja rúmmetra súgkynntur
miðstöðvarketill óskast.
Uppl. í síma 97-3122 frá kl.
9-17.
Hundamatur, kattamatur,
fuglafóður.
Vörumarkaðurinn,
Hafnarbúðin,
Skipagötu 4.
Kæliborð (eldri gerð) til sölu.
Tækifæærisverð.
Uppl. í síma 24843 eftir kl. 7 á
kvöldin.
Yamaha 440 D vélsleði til sölu,
árg. '76. Vel meö farinn.
Uppl. í síma 23892 á kvöldin.
Philco Bendex þvottavél til
sölu.
Uppl. í síma 24536 eftir kl. 19.
Gömul Rafha eldavél (gorma)
til sölu, einnig svefnbekkur og
eldhúsborð.
Uppl. í síma 22237 eftir kl. 17.
Barnavagn til sölu. Vel með
farinn.
Uppl. í síma 21420.
Stereo hljómflutningstæki til
sölu, selst ódýrt.
Uppl. í síma 23307 milli kl. 7 og
8 á kvöldin.
Colly hvolpar (Lassy) til sölu.
Uppl. í síma 24905.
Til sölu snjóblásari fyrir trakt-
or. Upplýsingar í síma 22307
Félagslíf
Sauðfjáreigendur Akureyri.
Aðalfundur verður haldinn að
Hótel KEA fimmtudaginn 1.
febrúar kl. 8,30.
Rætt um vetrarrúning og önnur
mál. Mætið vel.
Stjórnin.
nusnæoi
íbúð til leigu í blokk sem er í Lundarhverfi. íbúðin er þriggja herbergja en eitt herb. leigist ekki með íbúðinni sem er laus frá 1. mars. Tilboð leggist inn á afgreiðslu Dags fyrir 10. febrú- ar merkt „íbúð í blokk".
Tvö herbergi til leigu nálægt miðbænum. Uppl. í síma 22757 eftir kl. 7 á kvöldin.
Óska eftir að taka á leigu tveggja herbergja íbúð ekki mjög stóra, helst sem fyrst eða frá 1. febrúar eða 1. mars. Uppl. gefur Margrét Sveins- dóttir í síma 24393 eða að Kambagerði 2, eftir kl. 5 á daginn.
Herbergi óskast til leigu. Sími 21816 eftir kl. 19.
Lítið einbýlishús eða lítil íbúð í bænum eða náeagrenni hans óskast til leigu. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Uppl. í síma 22986.
Mig bráðvantar 2ja til 3ja her- bergja íbúð sem fyrst. Er á götunni. Uppl. í síma 51272.
Kæru samborgarar! Við erum í hinum mestu húsnæðisvand- ræðum og óskum að taka á leigu 3-4 herbergja íbúð Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 22565.
Ungt par með þriggja mánaða gamlan son, óskar eftir að taka á leigu 2-3 herbergja íbúð. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 24313 milli kl. 7 og 8,30 á kvöldin.
AUGLÝSIÐIDEGI
Nýjar tillögur.
(Framhald af bls. I).
nefndin telur að komi til greina
varðandi skólaskipanina, en sam-
kvæmt niðurstöðum nefndarinnar
er talið heppilegast að tveir skólar
verði á framhaldsskólastigi auk
tónlistarskóla og myndlistarskóla,
sem sjái um sérhæfða menntun á
listasviði er varða tón list og
myndlist. Þá telur nefndin að allt
tómstundanám skuli vera í hönd-
um Námsflokka Akureyrar og
verði skólahúsnæði sem fyrir hendi
er á Akureyri notað til þeirrar
— Tómas
Árnason . . .
(Framhald af bls. 5).
ar. Það tekur mikinr. tím.a í sam-
starfinu, að mynda samræmda
stefnu þriggja stjórnarflokka.
Hins vegar eru ný vinnubrögð á
Alþingi. Þegar stjórnmálaflokkar
vinna saman í ríkisstjórn, víkja
menn ágreiningsmálum til hliðar
en sameinast um ákveðna stefnu.
Því er óeðlilegt, að hinir og þessir
þingmenn stjórnmálaflokka flytji
mál á Alþingi, sem ekki eru í
samræmi við umsamda stjórnar-
stefnu. Það er viss stjórnarand-
staða í AA-flokknum, því er ekki
að leyna, sagði Tómas Ámason,
fjármálaráðherra að lokum og
þakkar blaðið svör hans. E. D.
kennslu eftir því sem hagkvæmt
þykir. Þá er lagt til að meistaraskóli
verði stofnaður á Akureyri til að
fullmennta iðnmeistara og stofnuð
verði frumgreinadeild tækniskóla
sem vísir að tækniskóla á Akureyri.
í greinargerðinni er einnig gerð
grein fyrir áfangakerfi, sem svo
hefur verið nefnt og víða hefur
komið í stað hins eldra bekkjakerf-
is. í áfangakerfi er námsefninu
skipt í afmarkaða þætti, áfanga,
sem nemendur geta valið að eigin
vild sinni. Ræður nemandi nokkru
um hversu margar námsgreinar
hann leggur stund á hverju sinni og
í hvaða röð hann tekur námsgrein-
arnar. Þá geta nemendur í áfanga-
kerfi einnig ráðið nokkru um
námshraða sinn.
Með því að taka upp áfangakerfi
telur framhaldsskólanefnd í grein-
argerð sinni að unnt sé að greiða
fyrir samvinnu skóla á Akureyri og
annars staðar á Norðurlandi. Geti
fámenn sveitarfélög eflt hjá sér
kennslu á ákveðnum sviðum með
því að taka upp kennslu í vissum
áföngum í samvinnu við stærri
skóla. Geta nemendur þá dvalið
heima lengur en ella til hagsbóta
fyrir bæði einstakl inga og
byggðarlagið allt.
Bennt er á að áfangakerfið hafi
líka sína galla. Vinnudagur nem-
enda og kennara getur orðið lengri
en í bekkjakerfi. Til þessa að vinna
gegn því og til að nota tíma nem-
enda og kennara betur verður að
koma upp lestrar- og vinnuaðstöðu
fyrir nemendur og kennara við
skólana. Af þessu og auknum
stjórnunarstörfum, svo sem leið-
beiningarstörfum, má búast við því
að beinn kostnaður við áfanga-
kerfisskóla verði meiri og eftirlit
með námi nemenda verði örðugra
nema komið verði á fót tölvuskrá í
skólunum. Við hið nýja námskerfi
þarf á meiri námsráðgjöf að halda
þar sem ábyrgð nemenda er gerð
meiri vegna aukins frjálsræðis í
námsvali.
Við afgreiðslu tillagna fram-
haldsskólanefndar á fundi bæjar-
stjórnar var samþykkt tillaga frá
Tryggva Gíslasyni um að vísa mál-
inu til bæjarráðs og leita umsagnar
skólastjóra allra skólastofnana á
Akureyri um tillögumar svo og
umsagnar fulltrúa launþegasam-
taka og atvinnuveganna auk þess
sem oddvitum nágrannasveitar-
félaga skyldu sendar tillögurnar til
álitsgerðar.
Aöstoöa
við gerð skattframtala.
Pantanir í síma 22270 og
22272.
Gunnar H. Gíslason,
viðskiptafræðingur.
Hryssa í óskilum
Á Akureyri er í óskilum rauð hryssa ca. 3ja vetra,
ómörkuð. Réttur eigandi gefi sig fram fyrir 7.
febrúar við Þórhall Pétursson á Vökuvöllum og
greiði áfallinn kostnað, að þeim tíma liðnum verður
hún seld.
FJALLSKILASTJÓRI.
Þýsk-íslenska félagið
sýnir sakamálamyndina
Sieben tage frist
með J. Fuchsberger, Petra Schúrmann o. fl.
fimmtudaginn 1. febrúar kl. 21.15 í félagsherberg-
inu Kaupangi v/Mýraveg.
Allir velkomnir.
STJÓRNIN.
Frá Glerárskóla
Akureyri
Vegna forfalla vantar strax kennara við Glerárskóla
í 4-6 vikur. Kennslugreinar: íslenska og enska í 7.
og 8. bekk.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 21395 og
21521
Skólastjóri
Húsa-
teikningar
önnumst alhliða teikngagerð s. s.
0 Húsateikningar
0 Lagnateikningar
0 Burðarþolsteikningar
Q Lóðaskipulag
Upplýsingar gefnar á kvöldin
Guðmundur Gunnarsson sími 25084
Björn Magnússon sími 24898
Hestamenn
Akureyri og Eyjafirði!
Árshátíð Léttis verður í Hlíðarbæ
laugardagirm 10. febrúar og hefst með
borðhaldikl. 7.30.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
sér um fjörið.
Miðapantanir í síma 24198 og 21554.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
SKEMMTINEFNDIN.
Auglýsing
um uppboð
Að kröfu Benedikts Ólafssonar, hdl. og innheimtu-
manns ríkissjóðs fer fram nauðungaruppboð á
ýmsum vélum Þyrnis h. f. í verkstæði fyrirtækisins
að Glerárgötu 34, Akureyri föstudaginn 9. febrúar
1979 kl. 13.15. Selt verður: bandslípivél, skápa-
pressa, hulsuborvél, borvél, bandsög, spónlagn-
ingarpressa og þykktarhefill.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn á Akureyri
29. janúar 1979
2.DAGUR