Dagur - 22.02.1979, Qupperneq 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreióslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Frumvarpið
um efnahagsmál
Frumvarp forsætisráðherra um
efnahagsmál, sem nú er mjög til
umræðu, er byggt á samstarfsyfir-
lýsingu núverandi stjórnarflokka,
greinargerð með desemberlögun-
um og í þriðja lagi byggist það á
tillögum ráðherranefndarinnar.
Fyrsti kaflinn, sem fjallar um
stefnumótun efnahagsmála er
efnislega samhljóða niðurstöðum
ráðherranefndarinnar og einnig
samráðin við stéttasamtökin, sem
um er fjallað í öðrum kafla. Þriðji
kaflinn er um ríkisfjármálin og er
einnig í meginatriðum samhljóða
ráðherranefndinni. En sú grein
hefur verið rangtúlkuð hjá Al-
þýðubandalaginu.
I 12. grein þriðja kaflans eru
ákvæði um, að heildartekjur og
gjöld ríkissjóðs haldist innan
marka, sem svarar til 30% af vergri
þjóðarframleiðslu áranna 1977 og
1978 og er það með samþykki
allra stjórnarflokka. Þar er einnig
ákvæði um möguleika til frávika,
ef atvinnuöryggið krefðist þess.
Fjórði kaflinn, sem fjallar um
fjárfestingar og lánsfjáráætlun
ríkisstjórnarinnar, er einnig í
megindráttum í samræmi við álit
ráðherranefndarinnar. Fimmti
kaflinn, sem fjallar um peninga-
og lánamál, er að verulegu leyti í
samræmi við áiit ráðherranefnd-
arinnar. Það ákvæði er þó nýtt, að
stefnt skuli að því, að aukning
peningamagns í umferð fari ekki
yffir tiltekið hámark 1979. Hér er
um stefnumið að ræða.
Um efni sjötta kaflans, sem
fjallar um verðtryggingu sparifjár
og lánsfjár, var ráðherranefndin
ekki sammála. Kaflinn er byggður
á því, að allir stjórnarflokkarnir
eru fylgjandi verðtryggingu, þótt
þeir vilji ganga mismunandi langt.
Sjöundi kaflinn, sem fjallar um
verðbætur á laun, gat ekki stuðzt
við álit ráðherranefndarinnar, því
að hún hafði algera eyðu í áliti
sínu varðandi þetta atriði.
Áttundi kaflinn, sem fjallar um
vinnumarkaðsmál, og 9. kaflinn,
sem fjallar um verðlagsmál, eru að
öllu leyti byggðir á áliti ráðherra-
nefndarinnar, nema að gildistöku
verðlagslaganna frá í fyrra er flýtt
um tvo mánuði.
Það, sem hér hefur verið rakið,
sýnir glöggt, að forsætisráðherra
hefur í meginatriðum bundið sig
við það, sem samkomulag var
orðið um hjá stjórnarflokkunum.
Um viss atriði var híns vegar ekki
orðið samkomulag. Þar setur
hann fram sínar eigin hugmyndir,
en ekki sem úrslitakosti. Nú er
það hinna flokkanna að koma með
sínar tillögur um þau efni og sjá
hvort ekki næst um þær sam-
komulag.
Sæbjörg ísleifsdóttir
Með Sæbjörgu ísleifsdóttur er farin
sannkölluð gæðakona. Hún gekk
hljóðlega um garðinn og lætur eftir
sig bjartar minningar. Hún var
fædd að Ósi í Hjaltastaðaþinghá 6.
júlí 1881. Foreldrar hennar voru
Lukka Jónsdóttir og Isleifur Sæ-
björnsson. Hún var næstelst í hópi
7 systkina. Komust af þeim 6 til
fullorðinsára. Þegar hún var á
fyrsta ári fluttist hún með foreldr-
um sínum að Steinboga í sömu
sveit. Nokkru síðar fluttist hún að
Ekru til Gróu Magnúsdóttur og
Jóns Stefánssonar. Reyndist Gróa
henni sem besta móðir, er Sæbjörg
mat mikils alla tíð. Þau Gróa og
Jón höfðu tekið sér fósturdóttur,
Jónínu Hermannsdóttur. Kærleik-
ar miklir tókust með þeim Jónínu
og Sæbjörgu, sem héldust, meðan
báðum entist líf. Sæbjörg réð sig
eftir fermingu að Dratthalastöðum,
næsta bæ við Ekru, til hjónanna
Þorgerðar Snorradóttur og Þórólfs
Richardssonar. Eftir lát Þorgerðar
var hún ráðskona hjá Þórólfi, uns
þau gengu í hjónaband árið 1901.
Hún var þá tvítug að aldri. Þótt
húsmóðirin væri ung, sýndi hún
brátt, hvað í henni bjó. Hún ávann
sér þegar traust og virðingu. Hjá
þeim voru tvö börn frá fyrra
hjónabandi Þórólfs. Voru þau hjá
þeim fyrstu árin og dáðu mjög,
Sæbjörgu. Hélst sú vinátta alla tíð.
Hið sama má segja um tengdaföður
hennar, Richard, sem fluttist til
þeirra eftir það, að þau giftu sig.
Hann var hjá þeim þangað til hann
dó árið 1908. Mat hann mikils
tengdadóttur sína. Árið 1902 flutt-
ust þau að Ekru í Hjaltastaða-
hreppi og þaðan eftir 5 ár að Húsey
í Hróarstungu. Þar bjuggu þau til
ársins 1923, er þau fluttu að
Bakkagerði í Borgarfirði eystra. Á
meðan þau dvöldu í Húsey, hafði
hún einnig foreldra sína hjá sér í 7
ár.
Það sem hér hefur verið skráð,
hvað er það í raun og veru? Örlítið
brot úr ramma, æviferli skilnings-
ríkrar konu, sem ég vil kalla ein-
stæða konu. Vitnisburðir þeirra,
sem þekktu hana, hníga allir á einn
veg: „Hún Sæbjörg var góð kona."
Ævistarf hennar var ekki vanda-
laust. Ætíð var margt fólk í heimili.
Oft reyndi á. Æðruleysi, varð að
sýna, umhyggju og hagsýni í hví-
vetna. Þau hjónin fluttu frá
Bakkagerði til Ákureyrar árið 1930
með sonu sína báða, Björn og Ric-
hard. Tuttugu og þriggja ára stúlku
höfðu þau misst árið 1926 og sökn-
uðu hennar mjög. Söllu Rögnu
Sigmarsdóttur tók Sæbjörg að sér
fjögurra ára og var hún hjá henni
þar til hún gifti sig. Eiríkur Þor-
steinsson sem var fóstursonur Þór-
ólfs og fyrri konu hans og ólst upp
hjá Sæbjörgu, leit á hana sem fóst-
urmóður sína. Mann sinn missti
Sæbjörg árið 1934 eftir erfiða sjúk-
dómslegu. Eftir það hélt hún um
hríð heimili með sonum sínum og
fósturbörnum. Síðari ár naut hún
umhyggju sona sinna og tengda-
dóttur, þar sem sonardætur hennar,
Anna María og Sæbjörg Ingigerður
nutu ástríkis ömmu sinnar. Emil
Sigurðsson var einnig hjá henni í
um 40 ár. Fyrir nokkrum árum
keypti hann íbúð ásamt Birni, þar
dvaldi hún nú síðast þar sem Björn
hjúkraði henni af sérstakri alúð þar
til yfir lauk. Hún fékk þá ósk upp-
fyllta, að hún þyrfti ekki að dvelja
lengi í sjúkrahúsi Hún lést 18.
janúar síðastliðinn eftir stutta legu.
Á efri árum er kraftar hennar
tóku að þverra bar hún enn reisn
sem fyrr. Leit hún björtum augum
á lífið framundan, þakkaði fyrir
liðnu árin. Hún var fastheldin á
þau innri verðmæti, sem henni
höfðu hlotnast í æsku, sem létt
höfðu henni gönguna hvort sem
brautin var grýtt eða slétt. Kyrlátt,
hlýlegt viðmót hennar var túlkun á
orðum postulans, sem ritaði: „Ég
veit, á hverjum ég hefi fest traust
mitt.“ Kemur þetta vel fram í eft-
irfarandi versi sem hún gerði.
„Það haustar að og húmið færist yfir,
ég hugrökk er á meðan andinn lifir,
i sannri trú á Drottins dýrð og mildi,
það dugir mér ef Iffið hverfa skyldi.“
Stundum er lærdómsríkt að
staldra við og virða fyrir sér hina
eldri, sem með þögulli rósemi eru
að kveðja leiksvið lífsins. Jafnvel
eftir að tjaldið fellur, geymist mynd
þeirra til blessunar þeim, sem meta
nokkurs fagurt mannlíf.
Ég vil ljúka þessum orðum með
því að birta kafla úr afmælisgrein
sem „ferðafélagi" skrifaði á sjötugs
afmæli hennar.
„Þeir sem kynnst hafa Sæbjörgu,
munu allir telja það sér til ávinn-
ings. Hið glaða ljúfa viðmót, og
hlýjan er streymir frá henni til
samferðamanna, hafa skapað
henni varanlegar vinsædir. Þess
vegna er hún gæfukona, þrátt fyrir
það þó hún hafi eins og svo margir,
orðið fyrir ástvinamissi á farinni
leið. Þeir eru sælir sem eiga slíkan
innri auð, og miðla honum til sam-
ferðamanna, en það gera þeir
margir, er fara hljóðlega og há-
vaðalaust sína götu, eins og þessi
kona.
Sæbjörg er enn þá sveitabarn og
minningar þær, er hún á frá hinum
gróðursælu bemskustöðvum, þar
sem hún með manni sínum byggði
grundvöllinn undir framtíð barna
þeirra, mun fylgja henni ávalt og
verða ljósgeisli fram á veginn.
Á þessari umbrotaöld, þegar
stórvirkar vélar erja jörðina og
jarðýtur velta grettistökum, gleym-
ist það stundum, að heima í húsinu
er konan, móðirin, að hlúa að ný-
græðingnum. Heima í bænum sín-
um er hún að velta „að sínu leiti“
jafn stóru bjargi og jarðýtan, svo að
rækta megi upp siðferðislega heil-
brigt og sterkt þjóðfélag með mót-
stöðuaf! gegn ásóknum skaðlegra
þjóðfélagsmeina."
Nú lokið degi lífs þíns er,
og letrað allt hans skriftamál.
En friður Guðs, sem fylgdi þér,
bar fagurt vitni þinni sál.
Þig leiddi Drottins líknarráð
á langri ferð um jarðarsvið,
og lífið þitt í lengd og bráð
bar ljósan vott um hjartafrið.
Því um þig lukti andblær hlýr,
og aldrei nafn þitt skugga bar,
þér gleði vakti gróður nýr,
sem gjafaranum þakkað var.
Og hvar sem helst um byggð og bó
þú barst það ljós, er fegurst skín,
og vinir sem þér veittu skjól,
þeir voru dýrmæt gjöf til þin.
Þig ætíð vermdi andans glóð
um æviskeið að hinstu stund,
og fyrir Jesú fórnarblóð,
í friði leiðstu Guðs á, fund.
Vinur.
-------------^----------------
Sjómanna minnst
að Nesi í Aðaldal
Laugardaginn 17. febrúar fór fram minningarathöfn í Nesi í
Aóaldal, úm tvo menn, sem týndust á Skjálfanda með mótor-
bátnum Þistli 15. janúar í vetur. En það voru þei'r Guðmundur
Baldursson frá Bergi og Kristján Arnbjörnsson frá Bergsstöðum.
Athöfnin var fjölmenn. Minningarræðu flutti séra Sigurður
Guðmundsson, prófastur á Grenjaðarstað og flutt voru minn-
ingarkvæði eftir Heiðrek og Valtý Guðmundssyni og Brynhildi
Bjarnadóttur frá Hvoli.
Skákþingi Akureyrar lauk i síð-
ustu viku. Keppendur voru 16
talsins, 5 tefldu í A flokki og 11 í B
flokki.
I A flokki var tefld tvöföld
umferð. Gerðist keppnin þar
strax mjög spennandi. þar sem
hver skák gat ráðið úrslitum um
efsta sætið. Eftir mikinn darrað-
ardans urðu þeir Kári Elíasson og
Gylfi Þórhallsson efstir og jafnir
með 51/: af 8 mögulegum. Sigur
Gylfa kom lítið á óvart, þar sem
hann hefur verið einn af okkar
snjallari skákmönnum um árabil.
En lyftingamaðurinn Kári Elías-
son sannaði það áþreifanlega að
hann er ekki síður sterkur and-
lega en líkamlega! Ákváðu þeir
félagar helgina eftir að tefla 4
skáka einvígi um nafnbótina.
„Skákmeistari Akureyrar 1979".
Að sjálfsögðu gefa fjórar skákir
gleggri mynd af styrkleika kepp-
enda. heldur en tvær. Þriðji varð
svo Jón Björgvinsson með 5
vinninga, Jón tefldi ofl mjög vel
og átti að mínu mati skilið að vera
með Kára og Gylfa í efsta sætinu.
Arngrímur
Gunnhallsson
skrifar um
SKÁK
Efstur í B flokki varð Níels
Ragnarsson með 8'/: vinningaf 10
mögulegum. I öðru til þriðja sæti
urðu þeir Ragnar Ragnarsson og
Pálmi Pálmason með l'h vinning.
Nú skulum við líta á aðra skák-
ina sem sigurvegararnir tefldu.
Skákin var tefld í 6. umferð.
Hvítt: Kári Elíasson.
Svart: Gylfi Þórhallsson.
Sikileyjarvörn.
1. e4-c5
2. Rf3-a6
3. b3-Rc6
4. Bb2-d6
5. d4-cxd4
6. Rxd4-Rf6
7. Bd3-Rxd4
(Ef 15.—Be6 þá 16. Bxb7.)
16. Had!-Ke7
(Það er heldur nöturlegt að leika
svona leik, en hvað á svartur að
gera? T. d. 16-Be7 þá kentur 17. f4
o. s. frv.)
17. f4!-Hd8
18. Dg3—
(Að sjálfsögðu ekki 18. fxe5?
vegna 19. Bc5+ og hvitur tapar
drottningunni.)
18. —exf4
19. Dh4t-Ke8
20. Dxh7-De7?
21. Bd5-Be6
22. Bxe6-Dxe6
23. Hdel-Bc5 +
24. Khl-Be3
25. Hxf4-Bxf4
26. Hxe6 + -fxe6
27. Dxg6 + -Kd7
28. Df7 + -Kc6
29. Dxe6 + -Kd7
30. De4 + -Kd7
31. Dxb7 + -Ke6
32. g3-gefið
Arngr. Gwmhallsson
Þessi Ijósmynd barst blaðinu nýlega. Hún er
sögð frá 1919 og er frá fimleikanáskeiði Ung-
mennafélags Akureyrar. F. v.: Snæbjörn Þor-
leifsson, Guðmundur Baldvinsson, Steindór
Hjaltalín, Finnur Níelsson, Friðþór Jakobs-
son, Zophonías Árnason, Hallfreð Sigtryggs-
son, Eggert Stefánsson, Ingólfur Pálsson,
Steingrímur Kristjánsson, Sveinbjörn Lárus-
son og Ragnar Davíðsson. Það er kennarinn,
Sigurliði Kristjánsson, sem situr fyrir miðju.
Leikstjóri: Einar Þorbergsson, kennari.
Söngstjóri: Sigrún Harðardóttir, kenn-
arí. Leikmynd: Ólafur Guðmundsson og
Hrönn Eggertsdóttir, kennarar. Bún-
ingar: Þóra Þorvaldsdóttir,. kennari.
Dansa æfði: Guðrún Margrét Þorbergs-
dóttir, nemandi framhaldsdeildar G.H.
Gagnfræðaskóli Húsavikur
frumsýni sjónleikinn, Nýársnóttina
eftir Indriða Einarsson, föstudag-
inn, 9. febrúar s.l. i samkomuhús-
inu á Húsavík. Áður hefur verið frá
því sagt í Degi, að sýningin er tengd
aldarafmæli Benedikts Bjömsson-
ar, skólastjóra.
Skemmst er frá að segja, að sýn-
ingin var Ijómandi skemmtileg á að
horfa og gaman var að skynja lif-
andi áhuga ungu leikaranna á
verkefnum sínum. Þeir kunnu vel
hlutverkin sín, en nokkuð vantaði
á, að framburðurinn væri góður.
Talið er, að ungt fólk á Islandi sé
ekki ýkja feimið, þótt svo væri,
hljóta hinir ungu leikarar gagn-
fræðaskólans að hafa þurft að beita
sig miklum aga, til að geta komið
svo frjálslega og fallega fram fyrir
áhorfendur og þeir gerðu í sýningu
sinni á Nýársnóttinni.
Sviðsmynd úr Nýársnóttinni. Talið frá vinstri: Áslaug álfkona, Anna Sigriður
Jónsdóttir; Guðrún, Arnþrúður Kristjánsdóttir; Ljósbjört, Vilborg Svcrrisdóttir;
Mjöll, Hólmfriður Garðarsdóttir; Jón, Guðntundur Á. Ólafsson; Hciðbláin, Guð-
rún Ingimundardóttir.
8. Bxd4-e5
9. Bb2-d59?
(Tapleikurinn, svartur þurfti að
undirbúa þennan leik miklu betur.
Nú opnast miðborðið hvitum f
hag.)
10. exd5-Dxd5
11. 0-0!-Bd6
12. Rc3-Dc6
Stöðumynd
13. Re4!—
(Hvítur notfærir sé skemmtilega
hvað svörtu mennirnir standa
illa.)
13. —rxe4
14. Bxe4-Dc7
15. Dd3!-g6
Efni leiksins er æfintýri um
huldufólk og mennskt fólk, falleg
sönglög og dansar. Sumir dansarnir
voru færðir í nútimalegan búning,
ættaðan frá heitum löndum t suðri.
Sjálfsagt hafa þeir verið dansaðir
með öðrum hætti, þegar Nýárs-
nóttin var sýnd í fyrsta skipti árið
1871, en fáir munu vera til frá-
sagnar um, hvernig huldufók
dansaði á fslandi á liðnum öldum.
Hugþekkur og fallegur var söngur
Arnþrúðar Kristjánsdóttur, sem lék
mannska stúlku og Guðrúnar Ingi-
mundardóttur, sem lék álfamey.
Leikstjórinn, Einar Þorbergsson,
söngstjórinn, Sigrún Harðardóttir
og sú, sem æfði dansana, Guðrún
Margrét systir leikstjórans, eru öll
nýflutt til Húsavíkur og er mikill
fengur að þeim fyrir hverja byggð,
er þau fóstra. Þorm. J.
Gagnfræðaskóli Húsavíkur:
Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson.
Júdómót
í Reykjavík
Kökubasar KA
Á laugardaginn heldur knattspyrnudeild KA kökubasar á Hótel
Varðborg og hefst hann kl. 15.00. Þar verða á boðstólum gómsætar
kökur bæði rjómatertur og fl. Vissara er fyrir þá sem ætla að kaupa
tertu að koma tímanlega þvf á síðasta kökubasar seldist upp á
örfáum mfnútum. Það sem inn kemur á basarnum rennur til
styrktar knattspyrnudeildinni, en knattspyrnumenn félagsins verða
í eldlinunni i allt sumar i öllum flokkum.
Þá eru það vinsamleg tiimæli til þcirra sem vilja gefa köku á
basarinn að hafa samband við Gullý f sfma 21885 eða Laugu f síma
21879.
Þann 11. febrúar s. 1. fóru 3
judomenn suður til Reykja-
víkur á vegum judoráðs Ak-
ureyrar. Þeir kepptu þar á
móti sem sérstaklega var
ætlað þeim sem ekki hafa náð
2. kyu, en til glöggvunar má
geta þess að þeir sem hafa
náð bestum árangri á Akur-
eyri eru 4. kyu.
Keppendum var skipt í þrjá
þyngdarflokka. Kristján Þor-
kelsson, er glímdi í þyngsta
flokknum, veitti andstæðingum
sínum harða keppni og lenti í 4.
sæti. I léttasta flokknum glímdu
þeir Jón Hjaltason og Brynjar
Aðalsteinsson. Jón varð í fyrsta
sæti og Brynjar í þriðja. Er þetta
mjög góður árangur hjá Bryn-
jari er glímdi við sér þyngri
menn.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í síðasta
tölublaði að í sambandi við
Hermannsmótið á skíðum, var
rangt farið með nafn þess er af-
henti Helgubikarinn.
Það var Björg Finnbogadóttir
sem gaf bikarinn og afhenti hún
hann við verðlaunaafhendingu
í Skíðahótelinu í mótslok.
Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessu.
Punktamót
unglinga á
Dalvík
Um næstu helgi verður haldið á
Dalvík punktamót unglinga í
alpagreinum skíðaíþróttarinn-
ar. Mót þetta átti að fara frarn á
Húsavík en vegna snjóleysis
varð að færa það til Dalvikur.
Á Dalvík eru margir sem æfa
skíðaíþróttina og þar er aðal-
þjálfari Viðar Garðarsson frá
Akureyri.
Verðlaunaafhending
Á sunnudaginn verður siðbúin verðlaunaafhending fyrir yngstu
knattspyrnumenn KA, og fer hún fram f Dynheimum. Þar verður
duglegum KA strákum og stelpum veittar viðurkenningar fyrir góð
skot síðasta sumar. Þar verður einnig eitthvað til skemmtunar og
gefnar verða hinar vinsælu pylsur og gos.
Meistaramót Islands
í frjálsum íþróttum
innanhúss: ÚRSLIT
800 m hlaup kvcnna.
1. Ragnheiður Ólafsd. FH 2.26.6
2. Thelma Björnsdóltir UBK 2.30.9
3. Aðalbjörg Hafsteinsd.Árm 2.34.0
4. Anna Hannesdótlir ÚlA 2.37.5
5. Hrönn Guðmundsd. UBK 2.37.7
6. Valdis Hallgrímsdóttir KA2.4I.7
800 m hlaup karla
1. Steindór Trvggvason KA 2.09.1
2. Jónas Clausen KA 2.13.2
3. Aðalst. Bernharðsson KA 2.13.3
4. Steindór Helgason KA 2.16.2
Kúluvarp karla
1. Hreinn Halldórsson KR 19.78 m
2. Guðni Halldórsson KR 17.55 m
3. Óskar Reykdalsson KA 15.23 m
4. Elías Sveinsson FH 13.95 m
Kúluvarp kvcnna.
1. Guðrún Ingólfsd. Árm. 12.95 m
2. Dýrfinna Torfad. KA 9.88 m
3. Irts Grönfelt UMSB 9.58 nt
Hástökk kvcnna
1. (ris Jónsdóttir UBK 1.60
2. Inga Úlfsdóttir Afturclding 1.50
3. Þórunn Sigurðardóttir KA 1.50
50 m hlaup karla
1. Oddur Sigurðsson KA 5.8
2. Þorvaldur Þórsson |R 5.9
3. Guðlaugur Þorsteinsson ÍR 5.9
4. Elias Sveinsson FH 6.0
50 m hlaup kvcnna.
1. Lára Svcinsdóttir Árm. 6.4
2. Sigríður Kjartansdóttir KA 6.6
3. Ásta Gunnlaugsdóttir UBK 6.6
4. Hólmfr. Erlingsd. UMSE 666.6
Langstökk karla
1. Jón Oddsson KA 7.02
2. Oddur Sigurðsson KA 7.87
3. Friðrik Þ. Óskarsson lR 6.79
4. Aðalst. Bernharðss. KA 6.55
1500 m hlaup karla
1. Steindór Trvggvason KA 4.23.3
2. Jónas Clausen KA 4.36.9
3. Bjarni Ingibergss. UMSE 4.43.1
Kvcnna boðhlaup
1. Sveit FH
2. Sveit UMSB
3. Sveit UBK
4. Sveit KA
Karlaboðhlaup
1. sveit KA
Hjörtur. Aðalsteinn.
Steindór. Oddur
2. Sveit UBK
3. Sveit IR
4.03.6
4.09.8
4.11.6
4.13.2
3.23.3
3.383
3.48.6
50 m grindahlaup karla
1. Elias Sveinsson FH 6.9
2. Þráinn Hafsteinsson |R 7.5
3. Þorsteinn Þórsson UMSS 7.5
4. Vésteinn Hafsteinsson KA 8.1
50 m grindahlaup kvcnna
1. Lára Sveinsdóttir Árm. 7.1
2. Helga Halldórsdóttir KR 7.4
3. Sigriður Kjartansdóttir KA 7.7
4. Hólrnfr. Erlingsd. UMSE 8.4
Þristökk
1. Friðrik Þór Óskarsson ÍR 14,92
2. Jón Oddsson KA 13.85
3. Aðalst. Bernharðss. KA 13.82
Langstökk kvcnna
1. Lára Sveinsdóttir Árnt. 5.61
2. Jóna Grétarsdóttir Árm. 5.38
3. Sigriður Kjartansdóltir KA 5.33
JÓN
HJALTA
SON
í FYRSTA
Myndin sýnir frjálsiþróttalið KA, en það hefur, ásamt fleiri félagsmönnum getið sér góðan orðstfr.
4.DAGUR
DAGUR.5