Dagur - 15.03.1979, Side 8

Dagur - 15.03.1979, Side 8
DAGUR Akureyri, fimmtudagur 15. mars 1979 RAFGEYMAR í BÍUNN, bátinn, vinnuvélina VELJIÐ RÉTT MERKI Þelamerkurskóli í Hörgárdal. Mynd: á.þ. Leggur Vegagerðin nýjan veg við hjið fjölmenns BPI IM M ^ I #| ^ Skólanefnd Þelamerkurskóla mót- Ml II IwlmwlCI ■ mælir fyrirhuguðum framkvæmdum Á næstu árum verður væntan- lega hafist handa við gerð nýs vegar fram Þelamörk í Hörg- árdal og mun Vegagerð ríkis- ins hafa um það ákveðnar skoðanir hvernig best verði staðið að framkvæmdinni. M.a. er ætlunin að leggja hinn fyrirhugaða veg spottakorn frá grunnskólanum á Þelamörk; á því sem næst sama stað og nú- verandi vegarstæði er, en skólanefnd Þelamerkurskóla hefur, munnlega, mótmælt lagningu nýs vegar svo nálægt skólanum og skólanefndar- menn bent á hættuna sem sé því samfara að hafa hraðbraut við hliðina á fjölmennum barnaskóla. Stefán Halldórsson, formaður skólanefndar, sagði í viðtali við Dag, að forráðamenn Vegagerðar ríkisins hefðu látið þau orð falla að búið hefði verið að ákveða nýtt vegarstæði áður en endanlegt skipulag Þelamerkurskóla hefði legið fyrir og teldi stofnunin sig ekki bundna af því. „Skólanefndin hefur mikinn áhuga á að færa veginn frá skól- anum, bæði með tilliti til um- ferðarhættu og ryks frá veginum. Einnig viljum við að Vegagerðin taki mið af því, að land neðan núverandi vegar er mjög tak- markað og eigi börnin að hafa aðstöðu til útivistar á vetuma verður vegurinn að færast upp í hlíðina," sagði Stefán Halldórs- son. Þess má geta að Skógræktarfé- lag Eyfirðinga hefur farið fram á það við skólayfirvöld að félagið fái um 100 hektara svæði á leigu ofan við skólann. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til beiðnar félagsins. „Ráðamenn Vegagerðar ríkis- ins telja vegarstæði sem lægi 50 til 70 metrum ofar ekki eins heppi- legt og það gamla, því þá muni myndast brekka sunnan við skól- ann,“ sagði Stefán," Hugmyndin er sú að vegurinn verði nálægt ánni fram Þelamörk, en sú stað- setning er engu að síður umdeil- anleg. Við höfum enn ekki haft skriflegt samband við Vegagerð- armenn, en innan tíðar er ætlunin að rita vegamálastjóra bréf, þar sem við skýrum sjónarmið okk- ar.“ Hagkaupi h.f. bent á lóð við Geislagötu Samkvæmt bókum skipulags- nefndar frá 2. mars sl. kemur fram, að formaður skipulagsnefndar hef- ur átt viðræður við forsvarsmenn Hagkaups hf, vegna umsóknar fyr- irtækisins um verslunarrekstur í húsi Baugs við Norðurgötu. Skipu- lagsnefnd felur formanni, Tryggva Gíslasyni, að skrifa Hagkaup hf og gera grein fyrir hugmyndum um deiliskipulag reitsins sunnan Sjálf- stæðishúss, milli Glerárgötu og Geislagötu og leita eftir afstöðu fyrirtækisins til að reisa verslunar- hús á því svæði. Sjálfstætt fólk í næstu viku £ Sérkennileg stjórnmála- umræða íslensk stjórnmálaumræða hefur undanfarna mánuði snúist um það öðrum þræði, hvort stjórnin lifi til næstu viku eða jafnvel til næsta dags. Þetta er þó ekki sökum harðrar stjórnarandstöðu, sem fyrirfinnst engin, heldur vegna ósamlyndis þeirra tveggja stjórnarflokka, sem ríkisstjórn Ólafs Jóhannes- sonar styðst við. Undantekning frá drunga stjórnarandstöðunnar á Al- þingi var þó tillaga Sjálf- stæðisflokksins um þingrof og nýjar kosnlngar, með til- heyrandi útvarpsumræðum og síðan atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla þessarar tillögu varð sú, að hún var feld með 39:19 atkvæðum. Má e.t.v. segja, að stjórnar- andstaðan hefi risið upp til þess eins að falla. 0 ísfyrir Noröurlandi ís er nú fyrir öllu Norðurlandi, allt austur fyrir Langanes. Hvergi er hann landfastur en jakar eru á siglingu og neta- bátar hafa þurft að taka upp net sín á veiðislóðum. Á all- breiðu belti er þó aðeins ís- hrafl, en meginfsinn er mun norðar. í þrálátri norðanátt hefur ísinn færst nær landi og hann teygir sig venjufremur langt austur. v—aJ V—/ U v_;uu U 0 Nýtt Helgafell Sklpadeild Sambandsins keypti tvö þrjú þúsund tonna systurskip, smiðuð í Dan- mörku og kom hið fyrra landsins í janúar og heitir Arnarfell. Hið síðara er ný- komið, heitir Helgafell og kom með timburfarm á Aust- fjarðahafnir, í sinni fyrstu Is- landsferð. Q Þorsteinn Jónatansson kvaddi Á aðalfundl Einingar voru skiptar skoðanir um brott- vfkningu Sævars Frímanns- sonar úr samtökunum. Lauk því máli svo, að brottvikning- in var ómerk gerð, en hins vegar sagði Þorsteinn Jóna- tansson sig úr samtökunum, en hann hefur ötullega í þeim unnið um fjölda ára. 9 Neytenda- samtökin og starf þeirra Á síðari árum hafa íslenskir stjórnmálaflokkar f æ rfkari mæli skilið nauðsyn þess að réttur neytendans væri tryggður. I stefnuskrá flokk- anna hefur mátt sjá greinar er fjalla sérstaklega um neyt- endamál, en í verki hafa flokkarnir ekki stutt við bakið á þeim samtökum sem beita sér fyrlr umbótum á þessu sviði Fiðlarinn á þakinu í æfingu á Húsavík Um miðjan janúar hóf Leikfélag Húsavíkur æfingar á hinu vinsæla leikriti —Fiðlarinn á þakinu. Leikstjóri er Einar Þorbergsson. Þetta er eitt viðamesta leikritið, sem Leikfélag Húsavíkur hefur tekið til meðferðar, en talið er að heildarkostnaður vegna uppsetn- ingar sé tæpar 3 milljónir króna. „Við ætlum að reyna að frum- sýna leikritið í lok mars. Þetta er annað leikritið í vetur, sem Leik- félagið tekur til sýninga. Hið fyrra var Heiðursborgarar,“ sagði Einar Njálsson á Húsavík. „Alls taka um 36 til 40 manns þátt í leikritinu og þá tek ég eingöngu með þá sem leika eða syngja eða dansa á sen- unni. í aðalhlutverkum eru þau Sigurður Hallmarsson og Hrefna Jónsdóttir." Einar sagði, að hluti búninga yrði væntanlega fenginn að láni hjá Þjóðleikhúsinu, en þar var leikritið sýnt við miklar vinsældir. Akureyrardeild Neytendasamtakanna: Stofnfundur á laugardaginn Leikfélag Akureyrar hefur æft Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxnes á annan mánuð og hyggst hafa frumsýninguna 23. mars. Leikstjóri er hinn kunni leikari og leikstjóri, Baldvin Halldórsson og leiktjaldamálari er Gunnar Bjarnason. Ræddu þeir, ásamt Oddi Björnssyni, leikhússtjóra, við blaðamenn í gær. Skáldsagan Sjálfstætt fólk vakti ákafar umræður þegar hún kom út, enda fundust Bjartur í sumarhús- um og sveitungar hans í næstum hverri sveit á íslandi! Leikritað Sjálfstætt fólk var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á 70 ára afmæli höfundar, 1972. Hér er það flutt endurskoðað og eitthvað stytt og um leið var hlutverkum fækkað, svo eftir eru 20. Forráðamenn leik- hússins sögðu, að vonir stæðu til, að höfundur gæfi sér tíma til að koma hingað norður og verða viðstaddur frumsýninguna. Með aðalhlutverkið, Bjart í Sumarhúsum, fer Þráinn Karlsson og Ástu Sóllilju leikur Svanhildur Jóhannesdóttir. Jóhann Ögmunds- son leikur séra Guðmund og Sig- ríður Schiöt leikur Rauðsmýrar- madömuna en Sigurveig Jónsdóttir leikur Hallberu í Urðarseli. Heimir Ingimarsson leikur Jón hrepp- stjóra. Sjálfstætt fólk er fjórða verkefni LA á þessu leikári og eru sýningar- gestir með flesta móti það sem af er. Laugardaginn 17. mars verður haldinn stofnfundur Akureyrar- deildar Neytendasamtakanna að Hótel Varðborg. Fundurinn hefst kl. 14. Markmiðið með stofnun þessarar deildar er að gæta hagsmuna neytenda á Ak- ureyri og nágrenni og mun deildin veita félagsmönnum leiðbeiningar og fyrirgreiðslu, ef þeir verða fyrir tjóni vegna kaupa á vörum eða þjónustu. Einnig mun deildin reka útgáfu og fræðslustarfsemi. Á fundinn munu mæta stjórnar- menn og starfsmaður Neytenda- samtakanna í Reykjavík. Það er ástæða til að hvetja fóík til þess að mæta vel og stundvíslega á fund- inn, því það er hagsmunamál allra að hér í bæ sé starfandi öflugt félag neytenda. Ekki er síður ástæða til að benda íbúum kaupstaða og kauptúna á Norðurlandi á það að stofna sínar eigin deildir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.