Dagur - 29.03.1979, Blaðsíða 7
: Sjálfstætt
j fólk |||§
; sýning föstudag, laugar-
; dag og sunnudag kl.
■ 20.30. Bleik kort gilda á
Z föstudagssýninguna.
Z Aðgöngumiðasalan er
S opin daglega frá kl. 17-19
S og til 20.30 sýningardag-
S ana
; Leikfélag Akureyrar
- sími 24073
— Leikhúsbréf .
(Framhald af bls. 4).
megi finna hliðstæðu hér á landi!
Klaustursystumar, Paule og
Denise, eru sendar út í heiminn
skv. nýjum sáttmála á kirkjuþing-
um. Þær ætla að eyða verðmætum í
minningu öreiganna í heiminum og
gera slag í því. Þær eru leiknar af
Soffíu Jakobsdóttur og Valgerði
Dan. Báður fjölhæfar og dansatriði
þeirra og Þorsteins, gerðu „lukku“
og vöktu hlátur, í öllu Travoltaæð-
inu.
Hinsvegar vantar eiginlega skýr-
ingu á því hversvegna þær ætla að
gerast fatafellur og eru klæddar
hræðilega svörtum sokkaböndum
og tilheyrandi, innundir nunnu-
feldi. Ég er ekki viss um að hér séu
réttar „týpur" í hlutverkum. Hefði
ekki verið meira absúrd að hafa
nunnumar „algjörar hlussur" eða
þá hreinlega yngri leikkonur með
danslist sem aukafag?
Karl Guðmundsson leikur rektor
og var dálítið líkur persónum sem
hann hefur áður skapað, en fynd-
inn er Karl, en um of í öllu æði.
Steindór Hjörleifsson leikur vís-
indamanninn sem er á góðri leið að
finna upp allra meina bót. Allir sjá
að það gengur ekki í dag. Hvað
verður þá um læknana sem lifa af
því að skrifa lyfseðla á hægðalyf?
eða valíum? Hvað með alla fræð-
ingana sem eru í tengslum við spít-
ala og sjúkdómafarganið? Hvað
með alla læknaritarana spyr ég nú,
hjúkrunarfræðingana og hvað með
Sókn og þvottakonur hennar?
Kerfið er sjálfu sér líkt; það kemur
og hirðir tæki læknisins og heiður
hans og framavonir, hann hefur
ekki einu sinni peninga til að stofna
til friðarverðlauna, eins og Nobels
kallinn eftir að hann var búinn að
finna upp sterkari og sterkari
sprengiefni. Þá var líka kominn
tími til að verðlauna friðinn.
Leikmyndin sem slík þ.e. tækin
var hugmyndaríkum höfundi til
sóma, en ég hefði samt kosið að
þau væru ekki öll á einum stað og
tækju nær allt pláss á sviðinu.
Steinþór Sigurðsson er mikill lista-
maður. Og tæknideild leikhússins
stóð fyrir sínu, þeir Gissur Pálsson
og Daníel Williamsson útfærðu
leiksviðsgræjurnar af hagleik og
nákvæmni.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir og stjómaði hér sinni fyrstu
sýningu hjá LR. Þórhildur er sér-
hæfð í sviðshreyfingum og fer það
ekki framhjá neinum hér. Ég er
ekki sammála öllu sem hún sýnir
og þótt oft sé samgróningur hjá
farsa og fjarsæðu, væri alveg óvit-
laust að skilja á milli tvíbura í þetta
sinn og láta annan hfa.
Ég fór út í frosthart kvöldið með
það á tilfinningunni að hér hefði
verið keyrt með nokkru offorsi og
áhorfendur við það, víða misst af
góðum texta. Vigdís Finnboga-
dóttir þýðir nefnilega vel þetta
leikrit og á köflum af miklum hag-
leik, tekst að yfirfæra franska
hugsun til sængur með aðstæðum,
þekktum hér heima. Ég held að
þið, norðanmenn, ættuð að gefa
ykkur tíma að sjá þetta, frumsýning
er oft versta sýning.
Bestu kveðjur. Jónas Jónasson.
Aðalskoðun
bifreiða á Akureyri, Dalvík
1979 fer fram, sem hér segir
2. aprfl A-1—A-200 20.
3. aprfl A-201—A-400 23.
4. apríl A-401—A-600 24.
5. aprfl A-601—A-800 25.
6. apríl A-801—A-1000 26.
9. aprfl A-1001—A-1200 27.
10. apríl A-1201—A-1400 30.
11. apríl A-1401—A-1600 2.
17. aprfl A-1601—A-1800 3.
18. aprfl A-1801—A-2000 4.
og í Eyjafjarðarsýslu
apríl A-2001—A-2200
apríl A-2201 —A-2400
aprfl A-2401—A-2600
apríl A-2601—A-2800
aprfl A-2801 —A-3000
apríl A-3001 —A-3200
apríl A-3201—A-3400
maí A-3401—A-3600
maí A-3601—A-3800
maí A-3800—A-4000
Skoðun fer fram við skrifstofu bifreiðaeftirlitsins við
Þórunnarstræti kl. 08 til 16 daglega.
Festivagnar og tengivagnar skulu fylgja bifreiðum
til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja
fram fullgild ökuskírteini, skilríki fyrir því að bif-
reiðaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja
bifreið sé í lagi.
Skoðun bifreiða á Dalvík og nágrenni fer fram
7-10 maí. Skoðunarstaður verður auglýstur síðar.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
verður hann látinn sæta sektum skv. umferðarlög-
um og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu
27. mars 1979.
Óskum að ráða
frískar stúlkur í bónusvinnu viö snyrtingu og pökk-
un í frystihúsi. Mötuneyti á staðnum. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 94-6105 og 94-6182
Fiskiðjan Freyja Suðureyri
Blaðburðarbarn
óskast í Þórunnarstræti, Ásveg, Þingvallastræti og
Hamarstíg.
Dagur
Tryggvabraut 12, símar 24167, 24166 og 23207
INNHVERF ÍHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION
Kynningarfyrirlestur, sem öllum er opinn, veröur
haldinn í stofu 2 aö Möðruvöllum (MA) fimmtu-
daginn 29. mars kl. 20.30.
fslenska fhugunarfélagið
AÐ HRÍSALUNDI 5
MÁNUDAGINN 2. APRÍL UNDIR NAFNINU
Frá sama tíma lokar Kjörmarkaðurinn við
Glerárgötu 29.
Leggið leið ykkar í Hrísalund 5 og gerið
góð kaup.
NÆG BÍLASTÆÐi
vmm.i)