Dagur - 29.03.1979, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 29. mars 1979
BREMSUBORÐAR
OG KLOSSAR
I FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
Enn eitt metár í
laxveiðinni
Þverá í Borgarfirði hæst,
en Laxá í Aðaldal fylgir á eftir
Nú liggja fyrir endanlegar tölur
um laxveiði hér á landi sumarið
1978, sem varð enn eitt met-
veiðiárið. Alls veiddust 80.578
laxar að heildarþunga 290.853
kíló. Á stöng veiddust 65 af
hundraði veiðinnar og í net
komu því 35%. Veiðin varð um
40 af hundraði betri en meðal-
veiði tiu ára, 1968-1977, og um
9% betri en síðasta metveiðiár
1975 en þá fengust rúmlega 74
þúsund laxar. Þess má einnig
geta, að fyrrgreind tíu ár eru
jafnframt bestu laxveiðiárin
hérlendis. Að öðru leyti var lax-
veiðin sumarið 1978 yfirleitt
mjög góð og metveiði í mörgum
ám bæði hvað snertir veiði á
stöng og í net.
Af einstökum landshlutum var
laxveiðin að tiltölu best í Vestur-
landskjördæmi eða 36% af heild-
inni og í Suðurlandskjördæmi 25%.
Laxveiði á einstökum vatnasvæð-
um var mest á Hvítársvæðinu í
Borgarfirði en þar komu á land alls
16.962 laxar og á vatnasvæði Ölf-
usár-Hvítár veiddust alls 14.645
laxar og er hvorttveggja metveiði.
Tvær bestu stangarveiðiárnar voru
Þverá í Borgarfirði með rúmlega
Mikil ræktun i Laxá f Aðaldal hefur borið góðan árangur. Innan tfðar verður lokið við
gerð eins fulikomnasta iaxastiga f Evrópu, en hann er einmitt f Laxá. Mynd: á.þ.
3.100 laxa og Laxá í Aðaldal en þar
veiddust tæplega 3.100 laxar 1977
veiddust þar 2.699 laxar. Þriðja
Geisli minnist
70 ára afmælis
með hófi n.k. laugardagskvöld
Ungmennafélagið Geisli í Aðaldal minnist 70 ára afmælis síns i hinu
nýbyggða félagsheimili Aðaldæla laugardagskvöldið 31. mars og
hefst sá mannfagnaður kl. 21.00 Þangað er öllum sveitarbúum boðið
og einnig eru burtfluttir félagar mjög velkomnir og makar þeirra.
Stofnfundur ungmennafélagsins
Geisla var haldinn í Brekku 14. júní
1908 og eru fimm stofnfélagar á lífi.
Fyrsti formaður var Konráð Vil-
hjálmsson, kennari og bóndi á
Hafralæk og með honum í stjórn,
Kristján Júlíus Jóhannesson, síðar
bóndi í Hriflu og Jón Jónsson,
bóndi í Brekknakoti. Núverandi
formaður er Guðný Gestsdóttir
húsfreyja í Múla.
Sauma-
stofan
á Dalvík
Leikfélag Dalvíkur frumsýn-
ir Saumastofuna eftir Kjart-
an Ragnarsson, föstudaginn
30. mars kl. 21.00 í Ung-
mennafélagshúsinu á Dalvík.
Leikstjóri er Guðrún AI-
freðsdóttir.
Leikendur eru: Dagný
Kjartansdóttir, Guðný Bjarna-
dóttir, Herborg Harðardóttir,
Kristjana Arngrímsdóttir, Sig-
ríður Hafstað, Svanhildur
Ámadóttir, Helgi Þorsteinsson,
Kristján Hjartarsson og Rúnai
Lund.
Næstu sýningar verða sunnu-
daginn 1. apríl kl. 16.00 og
þriðjudaginn 3. apríl kl. 21.00.
Eins og að líkum lætur hefur fé-
lagsstarfið verið misjafnlega öflugt
á 70 ára ferli. Eitt mesta átakið var
bygging þinghússins á Hólmavaði,
á árunum 1927-1928, en að því átti
félagið verulegan hlut og var það
samkomuhús sveitarinnar hátt á
fimmta áratug og stendur enn þó
aflagt sé til þeirra nota. Geisli á
hlutdeild í hinu nýja félagsheimili
við Hafralækjarskóla og hefur
stuðlað að byggingu þess og ýmsir
félagar unnið þar sjálfboðavinnu.
Fyrr á árum var gefið út hand-
skrifað blað og lesið upp á fundum
og var það, ásamt alls konar fé-
lagsstarfi, mörgum góðum skóli.
Útgáfan hefur lengi legið niðri, en í
sambandi við þetta afmælishald
verður nú gefið út blað.
Meðal verkefna, sem að hefur
verið unnið, mætti nefna bindindi,
skógrækt, landgræðslu, heyskap,
hjálparstörf, leiklist, dansnám-
skeið, samkomuhald og síðast en
ekki síst íþróttir, sem alltaf hafa
verið stundaðar meira og minna í
ýmsum greinum.
Með byggingu félagsheimilisins,
sem jafnframt er vandað íþrótta-
hús, hefur aðstaða til íþróttastarfs
gerbreyst og eru miklar vonir
bundnar við, að hún verði vel not-
uð. Einnig má geta um, að sund-
laug er við skólann og íþróttavöll-
ur, hálfgerður. Þegar hann verður
frágenginn, má telja vel séð fyrir
aðstöðu æskufólks í Aðaldal til
íþróttaiðkana og raunar munu
fleiri njóta þess. I. K.
besta stangarveiðiáin var vatna-
svæði Blöndu með 2.443 laxa, en
næst í röðinni var Langá á Mýrum
með 2.411 laxa og fimmta besta áin
var Miðfjarðará með 2.337 laxa.
Meðalþyngd laxins í heild var 3,6
kíló en hún er annars nokkuð
breytileg í einstökum landshlutum
og einstökum ám. Sé meðalþyngd
athuguð í einstökum kjördæmum,
er hún hæst á Austurlandi eða 4,9
kíló en lægst á Suður- og Vestur-
landi rétt liðlega 3,0 kíló.
Aldursskipting laxins úr sjó 1978
var svipuð og áður eða 51% árs-
fiskur og 49% tveggja ára eða eldri
úrsjó.
# Hestartil
Frakklands
Búvörudeild SfS hefur á.
þessu árl selt og flutt út 100
hesta. Þar af eru nú 25 seldir
tll Frakklands, sem ekki hefur
áður verið gert. Eins og
undanfarin ár fara flestir ís-
lensku hestarnlr til Noregs,
Danmerkur og Þýskalands.
Nýlokið er í Eseen hestasýn-
ingunnl ”Equitana“, sem
haldin er annað hvort ár. Bú-
vörudeild SÍS sýndi þar ís-
lenska hesta. Fóru þeir með
sigur af hóimi í sínum grein-
um og það gerðu þeir einnig
fyrir tveim árum.
Formanna-
skipti
Nythæð kúa
hefur aukist
um 23 kg. á
því
Jó-
Reykjavíkurblöð halda
ákaft fram, að Óiafur
hannesson, forsætísráðherra
og formaður Framsóknar-
flokksins muni á miðstjórn-
arfundi fiokksins um helgina
segja af sér formennskunnl
og við henni taka Steingrímur
Hermannsson, dómsmála-
ráðherra. Hvergi sýnist þetta
þó staðfest, og ekki er það
líkt Ólafi Jóhannessyni, að
ganga frá borði frá óleystum
verkefnum, svo sem efna-
hagsmálafrumvarpi sínu, og
ekkl er það líklegt, að fulltrú-
ar á miðstjórnarfundf óskl að
sklpta um formann á þessum
viðsjárverðu tímum
málanna.
iiðin 30 ár
Mikll aukning hefur orðið í
starfsemi nautgriparæktarfé-
laganna á síðastlfðnum 10
árum. Árið 1969 voru um 15
þúsund. Árið 1948 var með-
alnyt fullmjólkandf kúa 3085
kg. með 3.75% feitri mjólk. Á
síðastliðnu ári var meðalnyt-
in 3867 kg. og fitan 4.14%.
• Framleiðsla
og sala á
kjöti árið 1978
Heildarframleiðsla á kinda-
kjöti árið 1978 var 15.378
lestir, en það var 10.1% meira
en árið áöur. Dilkakjöt var
7.6% meira, en kjöt af full-
orðnu 30.8% melra en árið
áður. Dilkakjöt var 7.6%
meira, en kjöt af fullorðnu
30.8% melra. Á árinu voru
seldar 8.141 lest af dilkakjöti,
sem var 8.7% aukning frá ár-
inu 1977 og aukning i sölu af
kjöti af fullorðnu nam 11.3%.
Fluttar voru út 4040 lestir af
dilkakjötl, sem var 14.5%
minna en árlð áður og ekki
nema 27 lestlr af kjöti af full-
orðnu, sem var 94% minna en
árlð 1977.
Blrgðlr í upphafi þessa árs
voru 10.041 lest af diikakjöti,
en það var 10.4% meira en I
upphafi ársins 1978
fbúðarhús byggð á Sauðárkróki. Mynd: G. M.
Þeim fjölgar og
þeir byggja
fbúum Sauðárkróks
f jölgaði um 80 á sl. ári
Sauðárkróki 19. mars. íbúum
Sauðárkróks hefur fjölgað verulega
á undanfömum árum og eru þeir
nú 2080 og hafði fjölgað um 80 á
síðasta ári.
í ársbyrjun 1978 voru 79 íbúðir í
smíðum á Sauðárkróki, ýmist í
einbýlis- eða raðhúsum, 56 bíl-
skúrar og 11 aðrar byggingar. Á
árinu var byrjað á 47 íbúðum, þar
af 28 í sambýlishúsum. Þannig var
unnið meira eða minna við 123
íbúðir á síðasta ári, 31 bílskúrog 17
öðrum byggingum. Fullgerðar
voru 24 íbúðir, allar í einbýlis- eða
raðhúsum, auk bílskúra og annarra
bygginga.
í ár, 1979 verður töluvert að gera
í byggingariðnaði, þar sem 99
íbúðir voru í smíðum nú í ársbyrj-
un, þar af 28 í sambýlishúsum. Þess
mágeta, að nú erbúið aðúthluta 17
einbýlislóðum og raðhúsalóðum
fyrir 22 íbúðir, auk þess nokkrum
iðnaðarlóðum. í ársbyrjun 1979 var
561 íbúð í notkun á kaupstaðnum.
Drangey er að landa 200 tonnum
og hinir togararnir hafa aflað vel.
Afli þeirra þriggja er orðinn rúm
2000 tonn frá áramótum. G.Ó.