Dagur - 24.04.1979, Síða 5

Dagur - 24.04.1979, Síða 5
úlgefandi'. ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Simi auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVlÐSSON Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr : JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Söngurinn breytist Ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar ákvað að berjast gegn verðbólg- unni og þrýsta henni niður fyrir 30%, miðað við ár. Efnahags- málafrumvarp forsætisráðherra var m.a. við þetta miðað. Um af- greiðslu þess fór svo sem kunnugt er, að samstarfsflokkarnir í ríkis- stjórninni vildu ekki ganga eins langt í þeim aðgerðum, sem frum- varpið gerði ráð fyrir og sérstak- lega var beint gegn verðbógunni. Ágreiningurinn sem varð innan ríkisstjórnarinnar, snérist um það, hvort standa ætti við stóru orðin um að koma verðbólgunni niður fyrir30%. Alþýðubandalagið, sem bjó sér til kenningu um, að kosn- ingar ættu fljótlega að fara fram, taldi sig standa betur að vígi í kosningabaráttu, að hafa ekki samþykkt óvinsæiar stjórnarað- gerðir. Afstaða þessa flokks hefur hvorki mótast af ábyrgðartilfinn- ingu né hugrekki. Fyrir alþingiskosningarnar í vor tóku tveir fiokkar höndum saman í áróðrinum gegn þáverandi ríkis- stjórn og stefnu hennar í kaup- gjalds- og efnahagsmálum. Það voru Alþýðubandalagið og Al- þýðuflokkurinn. Þeir mynduðu kór og sungu hin kunnu stef: Samningana í gildi. Enga lög- bindingu í kjaramálum. Aldrei gengisfeilingu og Alþýðubanda- lagið bætti við einskonar ein- söngs-hendingu, sem hljóðaði svo: Engan samdrátt í búvöru- framleiðslu. Söngurinn sá arna fékk hinar bestu viðtökur hjá kjósendum í landinu, svo góðar, að þessir flokkar tvöfölduðu þingmannatölu sína í þessum einu kosningum. Að kosningum loknum reyndu þessir sigurvegarar að koma sér saman um nýja ríkisstjórn, en það tókst ekki og kom það í hiut Ólafs Jó- hannessonar að mynda stjórnina og veita henni forystu. Og í okkar ágætu ríkisstjórn hafa sigurveg- arar kosninganna, ráðherrar vinstri flokkanna fellt gengið, sett kjaralög og gert ráðstafanir til að draga úr landbúnaðarframleiðsi- unni. Efnahagsmálafrumvarp Ólafs Jóhannessonar er nú orðið að iögum og þrátt fyrir veikari tök á verðbólguvandanum eftir sam- komulagsbreytingar á frumvarp- inu, markar það spor í viðnámi gegn honum. Ákvæði verðbóta- kafla efnahagsmálafrumvarpsins fela í sér minni krónutöluhækkun en án frumvarpsins hefði orðið, en þau ákvæði draga jafnframt úr ör- um víxilhækkunum, sem allir ættu að hafa fengið sig fullsadda af. En fyrst og síðast miðast frumvarpið við það, að halda verðbólgunni í skefjum og tryggja fulla atvinnu í landinu. Óttinn við geðsjúkdóma fer stöðugt minnkandi m i i Á liðnum árum hafa ýmsir þeir hópar landsmanna, sem erfitt eiga að hrinda fram sinum hagsmunamálum, eignast sér skelegga málsvara er hafa unnið mikið og þakkarvert starf. Má i því sambandi nefna yngstu þjóðfélagsþegnana, aldraða og síðast en ekki síst þá er eiga við geðræn vanda- mál að etja, en nú eru starfandi í landinu mörg félög áhuga- manna sem hafa málefni þess- ara og fleiri hópa á sinni könnu. Hvað geðsjúklingum viðvíkur þá hafa þeir smám saman verið að ná rétti sínum þó enn vanti mikið á að þeim sé liösinnt sem skyldi. Heilbrigð- isyfirvöld hafa yfirleitt látið máletni þeirra sitja á hakan- um, en sem betur fer er sá tími liðinn þegar geðsjúklingum var hent út á gaddinn og al- menningur skopaðist að þeim. M.ö.o. hefur fólk æ betur skil- ið að til eru fleiri sjúkdómar en þeir sem hægt er að greina með berum augum. Hálfdán Hjaltason F. 10. maí 1918 — D. 29. jan. 1979 Vinarkveðja Það minnir stundum á morgun skin og mildi, sem gróandinn vekur, að mæta á vegferð þeim vinar hug, sem vonleysi í burtu hrekur. Og bendir frá sorta í sólarátt til sigurs á nýjum degi. Þú áttir þá gjöf og gafst hana þeim, sem gengu með þér um vegi. Við kveðjum þig vinur, okkar leið var ei löng, en ljúf er hver stund sem við minnumst. Og framtíðin bíður með ljóð sitt og lag á landinu þar sem við finnumst. Því allt, sem að lifir frá liðinni tíð er ljósbrot þess góða og sanna. Það er sumar angan og söngva þeyr í sólfari minninganna. Valdimar Hólm Hallstað. Afstaða almennings hefur.breyst Geðvemdarfélag Akureyrar er eitt þeirra félaga sem hefur helg- að geðsjúkum krafta sína. Félagið var stofnað í desembermánuði 1974 og í dag eru meðlimir hátt á annað hundrað, en starfsvett- vangur félagsins er Akureyri og næsta nágrenni. Af verkefnum ber hæst fræðsla um geðsjúk- dóma og gefur félagið út öðru hvoru tvíblöðung sem ber nafnið Geðfræðsla. Auk þess aðstoðar félagið beint og óbeint aðstand- endur geðsjúkra. — Við höfum mætt góðum skilningi hjá ýmsum ráðamönn- um á Akureyri, en sérstaklega vildi ég nefna skólastjóra Barna- skóla Akureyrar, því í þeim skóla höfum við fengið afnot af hús- næði og hist vikulega —, sagði Brynjólfur Ingvarsson, geðlækn- ir, sem er formaður félagsins. — Sem betur fer hefur afstaða almennings til málefna geðsjúkra breyst mjög til batnaðar. For- dómar eru mun minni en hér áð- ur fyrr. Óttinn við geðsjúkdóma fer líka stöðugt minnkandi og skilningur á því að til eru fleiri sjúkdómar en hægt er að staðfesta með t.d. blóðprufum og mæling- um. Ef við skoðum opinbera að- I I I I ila sem heild verður að segjast að í þeir eru jákvæðir í afstöðu sinniH en heilbrigðisyfirvöld hafa til- ■ hneigingu til að láta verkefni sem I heyra undir geðvemdarmál sitja á jS hakanum. 9 Skemmtun á laugar- I dagskvöld Næstkomandi laugardag mun S Geðvemdarfélagið standa fyrir | skemmtun fyrir almenning í ■ Dynheimum og koma þar fram 9 ýmsir kunnir skemmtikraftar. 9 Brynjólfur sagði að þeir myndu S allir gefa vinnu sína á skemmt- j| uninni hvers tilgangur er að afla félaginu fjár. Meðal skemmti- krafta eru: ítalski söngvarinn — Reinard Geiflon, Örn Arnarson 9 gítarleikari, fslandsmeistarinn í ■ diskódansi og trúðar koma í 9 heimsókn — Ágóðinn rennur í hús- J kaupasjóð. Hinn stóri draumur ■ félagsins er að kaupa húsnæði fyrir ráðgjafamiðstöð og skrif- stofu. Hitt er svo annað mál að draumurinn er enn langt frá því | að rætast. Því má skjóta hér inn í S að Geðverndarfélag fslands í | Reykjavík hefur slíka aðstöðu, en ■ hún auðveldar til muna alla 9 starfsemi félags af þessu tagi. I I Að lokum fáein orð um „Litla- Klepps“ deild F.S.A. Þessi deild sýnir okkur í dag sorgleg dæmi um sjúkl- inga og sjúkdóma, sem læknuðust ekki. A einhverju tímabili á ævi þessa ólánsama fólks hefði e.t.v. verið hægt að fyrirbyggja framþróun og framvindu geðsjúkdóms hjá því, en í dag er það of seint. Látum vitneskjuna um tilvist þeirra vera okkur dagleg áminning og hvatning til allra um að leita stöðugt nýrra leiða til að fyrirbyggja geðsjúk- dóma, jafnvel þótt afkomendur okkar njóti góðs af erfiðinu en ekki við sjálf. Gleymum því aldrei, að geðsjúklingar, sem eru orðnir grónir eða mosavaxnir í langdvalarstofnunum og hættir að kvarta, hættir að fmna til, hættir að láta í ljós vanlíðan, hafa þar áður nær undantekningarlaust tekið út á sjálfum sér þann hámarksskammt andlegra þjáninga, sem mannlegur máttur fær afborið. Sýnishorn úr riti félagsins. Leikfélag Húsavíkur Fiðlarinn á þakinu: Söngleikur byggður á sögum eftir Cholom Aleichem. Leikstjóri: Einar Þorbergsson. Söngstjóri: ingimundur Jónsson. Leikmynd: Slgurður Hallmarsson. Á Húsavík er verið að leika Fið- larann á þakinu. Leikhúsgestum er birtur heimur fallegra söngva og dansa svo og harmur bágra lífskjara Tevyes mjólkurpósts, Goldu konu hans og fimm dætra þeirra. Veröld þeirra er samfélag Gyðinga í rússnesku þorpi árið 1905. Þá sem löngum fyrr og síðar var erfitt að vera Gyðingur i ver- öldinni. Umkomuleysi þeirra í hinu rússneska þorpi svo og fá- tækt þeirra, var sorg þeirra. 1 lok leiksins eru Gyðingarnir flæmdir i burt úr þorpi sínu. Höfundur sagnanna um Tevye, mjólkurpóst mun hafa þekkt þennan heim. Rússneskur Gyðingur að nafni Marc Chagall stundaði málaralist í París. í leikskrá segir á þá leið, að hann hafi á síðari árum starfs- æfi sinnar fléttað æskuminningar frá fæðingarþorpi sínu inn í mál- verk sín. I ævintýri æskuminn- inganna birtist fiðla á þaki í mál- verkunum. I þá tvo brunna: sög- umar um Tevye og málverkin með fiðluna er sótt efnið í söng- Ieikinn, Fiðlarann á þakinu. Nema hvað, að í þeim harmræna heimi, er ástin salt jarðar og til sögur, söngvar og dansar. Til að sýna þetta allt stefnir Leikfélag Húsavíkur 40 manns fram á svið- ið, leikurum, söngvurum, döns- urum og hljóðfæraleikurum og gerir með því stóra hluti í litlu húsi. Húsið er svo lítið, að það eitt er aðdáunarvert hversu vel hefur tekizt að koma þar fyrir svo fjöl- mennri sýningu. Sýningin með söngvum sínum, hljóðfæraleik og dönsum er með þeim ágætum, að ég trúi vart öðru, en að hún verði nokkurt yndi hverjum þeim, sem hana sækir. Sigurður Hallmarsson leikur aðalhlutverkið, Tevye mjólkur- póst, og dylst engum, er sér, hve góður leikur hans er. Sigurður er kunnur leikari og með Tevye hefur hann unnið einn leiksigur sinn af mörgum. Hrefna Jóns- dóttir leikur Goldu konu Tevyes. Hún hefur ekki leikið áður og kemur því skemmtilega á óvart hve vel hún skilar hlutverki sínu. Víða blundar í mannssál geta til listrænnar tjáningar, sem kemur ekki fram fyrir annara sjónir nema sérstakir atburðir verði til þess. Dætur Tevyes leika: Anna Ragnarsdóttir og Sigrún Harðar- dóttir. Leikur þeirra er góður. Tzeitel í meðferð önnu Ragnars- dóttur er vel gerð fallega ástfang- in ung stúlka. Hodel, eina af fjór- um systrum hennar, leikur Sigrún Harðardóttir. í leik hennar kemur fram beiskja þeirrar ungu konu, er skinjar meint ranglæti í tilver- unni og á að líkindum að vera þar. Einar Njálsson, Kristján Elís Jónasson og Bjami Sigurjónsson leika allir biðla dætra Tevyes. Þeir eru sviðsvanir á Húsavík og er leikur þeirra áferðargóður. Sá sem aðeins hefur séð eina sýningu og hefur ekki fylgst með æfingum, veit ekki til fulls hver hefur gert hvað af þeim sem (Framhald á bls. 3). 4.DAGUR Askrifendagetraun Dags: Dregið verður úr nöfnum áskrifenda þann 1. maí Þetta eru staðirnir sem sá heppni getur valið um: □ Kanaríeyjar Kanaríeyjar hafa frá alda öðli verið sveipaðar töfraljóma sakir gróð- ursældar og veðurblíðu og stærst Kanaríeyja er Las Palmas, en þá eyju sem er stjómarsetur Kanaríeyja, prýðir 3. km. löng baðströnd og er hún á svipaðri breiddargráðu og Kairó og Havana. Las Palmas prýðir flest það sem best fer á svona hvíldar og afþreyingarstað og allt er gert til þess að sem best fari um þá sem gista eyjarnar. Leiksvæði, diskótek, hótel, baðstrendur, matsölur og hinir ýmsu skemmtistaðir eru allt fyrsta flokks. Allir hlutir og öll aðstaða um að gera dvölina sem ánægjulegasta. Til Kanaríeyja teljast einnig eyjamar Tenerife og Puertorico, sem þarf ekki að fjölyrða um, svo margfrægar sem þær eru. □ Costadelsol Bestu meðmæli sem hægt er að gefa Costa del sol er að ferðin þangað er árviss viðburður í lífi margra Islendinga og róma þeirmjög alla aðstöðu bæði á hótelum og baðströnd. Costa del sol er markaður fyrir sölu- vaming sem er á himsmælikvarða, listmunir þaðan prýða heimili fjöl- margra Islendinga. Og þess utan er aðstaða fyrir ýmsa afþreyingu sem er af fjölbreytilegum toga spunnin; sem sagt enginn lætur sér leiðast í ferð til Costa del sol. □ Grikkland Vagga Iýðræðis og fagurra lista, heillandi hetjuljóða og harmleikja. Ef minnst er á hina frægu ferðamannaparadís Grikklands dettur mönnum helst í hug gullaldarmenjar eins og t.d. Aþena, Ólympíufjall, Akro- pólíshæð og Maraþon. En Grikkland á sér líka nútíma sem lýstur er með suðrænni sól og einkennist af sól og sjóböðum, hótelum sem eru fræg fyrir þjónustu sína og næturlíf sem er geysilega fjölbreytt. Þar nægir að nefna diskótek, matsölustaði, leiksvæði, skemmtibátahöfn, sauna, keilubrautir o.s.frv. Og ef fólk vill slappa af eru hótelherbergin hin vönduðustu, vel búin húsgögnum með góðri loftkælingu. Sími og útvarp er í hverri íbúð, og sagt er að þeir sem þangað fara til að eyða orlofinu fái „kokkteil" af fortíð og nútíð, sem hvergi er göfugri. □ Costa brava Þeir íslendingar sem farið hafa til Costa brava hafa nefnt staðinn „Homstrendur Spánar" ekki vegna þess að þar sé eitthvert Hombjarg heldur vegna þess að landslag er þar svo margbreytilegt, því þar skipt- ast á sæbrött fjöll jafnvel strandberg og skjólsælar víkur og vogar, sem eru úrvals sjó og sólbaðsstaðir. Costa brava er táknræn fyrir unað baðstrandalífsins sem þar er í hámarki sem á svipuðum ferðamanna- stöðum. Eitt af því sem laðar ferðamenn að Costa brava eru skelfisk- réttir heimamanna og allir veitingastaðir bjóða upp á „langosta a la catalana“ en það er humar að katalónskum sið. Á Costa brava eða skammt þaðan eru ýmsar stærstu borgir á Spáni, þar á meðal Barce- lona, en þar er m.a. stærsti nautaatsleikvangur Spánar og þar leika listir hvem sunnudag frægustu nautabanar landsins. Náttúrufegurð staðar- ins er mjög rómuð og baðstrendur og þar er skemmtanalíf fyrir alla fjölskylduna. □ Mallorca Eyjan Mallorca er stærst Baleareyja um 3.640 km2 að stærð, en Baler- eyjar er eyjaklasi undan austurströnd Spánar, aðeins sunnar en borgin Valencia. Vegna staðsetningar sinnar er veðursæld mikil á Mallorca en það er sá segull sem dregur til sín ferðamenn hvaðanæfa að og oft frá norðlægum löndum. Á eyjunni er mikil náttúrufegurð og úrvals bað- strendur og þar liggur landinn sólar sig og slappar af og ef tími er afgangs frá sól og sjóböðunum geta menn gengið um bæinn, verslað, farið í hinn fræga Safari dýragarð eða á einhvem skemmtistaðinn, sem úir og grúir af, eða einfaldlega í skógarferð því skógar eru talsverðir á Mallorca. Meðal varnings sem einkennir Mallorca má nefna litríka leirmuni handgerða, knipplinga og blúndur, útskurð í ólífuvið, leður og skinnvaming og margt margt fleira. Bikarkeppni KRA hafin: Markvörðurinn maga- lenti í forarpolli Nú er hafin bikarkeppni knattspymuráðs Akureyrar, og að þessu sinni er keppt um veglegan bikar sem gefin er af Kjörbúð Bjarna. Bikar þessi vinnst til eignar sé hann unn- inn þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. Þrjú lið taka þátt í þessari keppni og eru það ann- arrar deildar lið Þórs og Magna frá Grenivík og fyrstu deildar lið KA. Á sumardaginn fyrsta var fyrsti leikur mótsins og þá mættust KA og Magni. Leikurinn fór fram á Sanavellinum sem var mjög gljúpur og forugur, og nánast ókeppnishæfur. KA byrjaði af 7 ára drengir 1. Vilhelm Þorsteinsson 2. Sverrir Ragnarsson 3. Sævar Guðmundsson 7 ára stúlkur 1. María Magnúsdóttir 2. Rakel Reynisdóttir 8 ára drengir 1. Jón Ámason 2. Jón Harðarson 3. Ámi Þ. Ámason 8 ára stúlkur 1. Þorgerður Magnúsdóttir 2. Sólveig Gísladóttir 3. Björg Erlingsdóttir KA vann Magna en Þór tapaði fullum krafti og náði fljótt yfir- burðastöðu en KA menn voru iðnir við að skora í fyrri hálfleik, þrátt fyrir stóran forarpoll fram- an við markið. Eftir að mark- vörður Magna hafði hent sér tvisvar eða þrisvar í pollinn var ekki þurr þráður í fötum hans og kalsaveður þannig að hann var ekki öfundsverður af hlutverki sínu. í hálfleik var staðan 6 mörk gegn engu fyrir KA, en í þeim síðari stóðu Magna menn sig eins 11 ára stúlkur 1. Guðrún Magnúsdóttir 2. Guðrún Kristjánsdóttir 3. Anna Kristjánsdóttir 12 ára drengir 1-2. Tryggvi Haraldsson 1-2. Jón Bjömsson 3. Helgi Bergs 12 ára stúlkur 1. Berghildur Þóroddsdóttir 2. Signe Viðarsdóttir 3. Anna María Malmqist og hetjur og Ömar gerði fallegt mark fyrir þá eftir góða fyrirgjöf utan af kanti. KA bætti einu marki við og urðu því lokatölur 7 mörk gegn 1. Mörk KA gerðu Gunnar Blöndal og Óskar þrjú hver og Elmar gerði eitt og jafn- framt sitt fyrsta mark fyrir KA. Á laugardaginn léku síðan Þór og Magni, og var það jafn leikur. Þorsteinn Þorsteinsson kom Magna yfir með laglegu marki og þannig var staðan í hálfleik. I þeim síðari bætti Jón Illugason öðru marki við fyrir Magna Og þannig urðu lokatölur leiksins, tvö mörk gegn engu. Á síðustu mínútum fengu Þórsarar gullið tækifæri að minnka muninn er þeir fengu dæmda vítaspyrnu. Nói Björnsson skaut hins vegar beint á markvörðinn þannig að í netið komst boltinn ekki. Þrátt fyrir að Þórsurum gengi erfiðlega að koma boltanum í netið áttu þeir nokkur góð tæki- færi, sem þó nýttust ekki til marks. Hringur Hreinsson gerði mikinn usla í vörn Þórs og komst nokkrum sinnum í gott færi en náði ekki að skora. Þetta eru fyrstu alvöruleikir Magna eftir að þeir komust í aðra deildina og verður að segja að þeir hafi staðið sig með prýði. Þröstur Guðjónsson hjá Feyenord Fyrir skömmu fór Þröstur Guðjónsson íþróttakennari til Hollands, til að kynna sér þjálfun hjá hinu heimsþekkta knattspyrnufélagi Feyenord. Þröstur hefur undanfarin ár annast þjálfun yngri flokka Þórs, og unnið á því sviði mjög mikið starf. Þá hefur hann um árabil leikið körfubolta með úrvalsliði Þórs og verið fyrirliði þess liðs. Þröstur hefur einnig þjálfað aðrar greinar íþrótta svo sem séð um þrekæfingar skíðamanna, og þjálfað hjá frjálsíþróttafólki. Er ánægjulegt til þess að vita að þjálfarar eigi þess kost að fara utan og auka þekkingu sína, en Þröstur er þriðji þjálfarinn sem fer erlendis héðan frá Akureyri á þessu ári. Aka til Akureyrar á æfingar Leikmenn Magna frá Grenivík leggja mikið á sig til að æfa íþrótt sína. Þeir hafa undanfarnar vikur æft fjórum sinnum í viku hér á Akureyri, og þurfa því að aka í hvert sinn til Akureyrar, en sú vegalengd fram og til baka er tæpir 100 kílómetrar. Að sögn Magnúsar Jónatanssonar, þjálfara Magna, mæta 15-18 á hverja æfingu og er liðið að mestu skipað Grenvíkingum, en aðeins tveir búa hér á Akureyri. Fyrsti leikur Magna í annarri deild er gegn Austra hér heima þann 12. maí. Þrír Akureyringar í landslið Nú fyrir skömmu var valið í landslið karla í lyftingum. Þar í hópi eru þrír Akureyringar þeir Freyr Aðalsteinsson, Kári Elisson og Kristján Falsson. Þeir munu keppa á Norður- landameistaramótinu sem fram fer í Danmörku um helg- ina. Úrslit í páskamóti í stór- svigl barna 9 ára drengir 1. Jón Halldórsson 2. Jón H. Ingvason 3. Jón M. Ragnarsson 9 ára stúlkur 1. Kristín Hilmarsdóttir 2. Þóra Víkingsdóttir 3. Kristín Jóhannsdóttir 10 ára drengir 1. Hilmir Valsson 2. Guðmundur Pálmason 3. Vignir Bjartsson 10 ára stúlkur 1. Gréta Bjömsdóttir 2-3. Erla Bjömsdóttir 2-3. Ama Ivarsdóttir 11 ára drengir 1. Guðmundur Sigurjónsson 2. Smári Kristinsson 3. Ólafur Frímannsson Happdrætti KA Þann 28. mars var dregið hjá Bæjarfógeta í KA happdrætt- inu. Vinningshafar geta vitjað vinninganna til form. KA Haraldar Sigurðssonar. Mmiði no. 1. Rómarferð 3275 2. Kvikmyndavél 76 3. Mínútugrill 258 4. Veiðistöng 52 5. Miði á knattspyrnuleiki KA 2908 6. — — — — 2085 7. Miði á allar frjálsíþr. keppnir. 2860 8. — — — — — — 960 9. — — — — — — 2938 10. — — — — — — 1128 (Birt án ábyrgðar.) DAGUR.5

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.