Dagur - 04.10.1979, Side 4

Dagur - 04.10.1979, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVÍÐSSON Blaöamaóur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Harðindin og Bjargráðasjóður Nú er liðið eitt kaldasta sumar sem yfir land okkar hefur gengið. Áhrifin af því eru að koma í Ijós. Fallþungi dilk- anna, mun víða vera um 20% minni en í meðalári. Það þýðir að bændur missa á þessum eina lið um eða yfir 40% af árslaunum sínum. Vanhöld á búfé hafa orðið mikil. Kartöfluupp- skeran hefur alveg brugðist, þar er um að ræða tug milljónatjón fyrir ýmis býli. Grasspretta á túnum hér norð- anlands var víðast 20-30% minni en í meðalári — það spratt seint og víðast var ekki hægt að slá fyrr en í ágúst- mánuði. Síðan sláttur hófst hefur tíð verið með eindæmum vætusöm hér norðanlands, þó mest á Norðaustur- landi austanverðu með þeim afleið- ingum að í byrjun október eru margir bændur sem lítil eða engin hey hafa fengið í hlöður. Við þetta bætist að fóðurkostnaður var geysimikill á síð- asta vori hjá bændum um allt land enda mun vorið hafa verið það harð- asta sem sögur fara af. Það var því með meiriháttar afrek- um að bændastéttin skyldi komast fram úr þeim harðindum án meiri- háttar áfalla. Þar sem áföllin hafa orðið mest standa bændur nú uppi tekjulitlir — jafnvel tekjulausir — með lélegt og lítið fóður og vetur að ganga í garð. Fyrirsjáanlegt er að um verulegan niðurskurð verður að ræða og við þetta bætist að engin trygging er fyrir því að bændur fái fullt grundvallar- verð fyrir afurðir sínar í haust eða frá síðasta ári, vegna vöntunar á útflutn- ingsbótum. Samkvæmt lögum Bjargráðasjóðs er það hlutverk hans m.a. að tryggja bændur fyrir áföllum af völdum nátt- úruhamfara. Er þetta nánar skilgreint í níundu grein laganna og fer þar ekkert á milli mála að átt er við tjón af því tagi sem hér um ræðir. Enda greiða bændur iðgjöld til sjóðsins — tiltekna prósentutölu af framleiðsl- unni. Nú liggur fyrir að Bjargráða- sjóður hefur ekki fjármagn til þess að aðstoða bændur á þann hátt sem lögin mæla fyrir um og gert hefur ver- ið þegar meiriháttar áföll hafa átt sér stað — t.d. þegar óþurrkarnir urðu á Suðurlandi og uppskerubrestur varð á kartöflum í Djúpahreppi fyrir nokkr- um árum. Þá var útvegað fjármagn sem til þurfti af stjórnvöldum. Einn þriðji af aðstoðinni sem bændur fengu þá var styrkur, en 2/3 hlutar — vaxtalaust lán til 5 ára. Þegar Vestmannaeyjagosið varð 1974 og snjóflóðið féll í Neskaups- stað 1975 varð þjóðin í heild skattlögð til að bæta tjónin eins og sjálfsagt var. Hvað verður gert nú? Hér er um að ræða meiriháttar náttúruhamfarir, sem á að bæta á svipaðan hátt. Vegna harðindanna á síðasta vori var bænd- um gefinn kostur á lánum úr Bjarg- ráðasjóðí, vaxtalausum en með fullrl verðtryggingu. Bændur kalla slíkt ekki bjargráð, heldur launráð og telja að sjóðurinn standi ekki undlr nafni ef aðstoðin nú verður ekki með svipuð- um hætti og verið hefur hingað til. Nemendur kennarar, góðir gestir. Hundraðasta starfsár Mennta- skólans á Akureyri er að hefjast. I dag, fyrsta október, eru liðin rétt 99 ár síðan Stefán sýslumaður Thorarensen setti skólann á Möðruvöllum, þar sem þá voru 35 lærisveinar. Skólastjórn var í höndum Jóns A. Hjaltalíns skólameistara, sem þá var ný- kominn frá Edínaborg, en hann hafði dvalist erlendis hálfan ann- an áratug við kennslu og fræði- störf en lengst af verið bókavörð- ur í Skotlandi. Hart var í ári á íslandi þegar Möðruvallaskólinn tók til starfa og næstu ár var hafís og grasleysi og sum árin fór klaki ekki úr jörðu allt sumarið. í þess- um þrengingum hlaut hinn nýi norðlenski skóli eldskím sína og hann óx og efldist fyrir trú manna og eljusemi. og þá þörf sem fyrir hendi var á aukinni menntun. Alla tíð síðan hefur skólinn notið virðingar og trausts, enda hefur hann haft á að skipa dugandi mönnum og hæfileikafólki. Þegar ég lít um öxl á þessum tímamót- um finn ég á herðum okkar hvíla þunga byrði vegna fordæmis fyr- irrennara okkar, nemenda skól- ans og kennara hans. Það yrði langur lestur ef minnast ætti alls þessa fólks nú. Ég vil aðeins leyfa mér að nefna nöfn fyrirrennara minna, hins kyrrláta og hógværa val- mennis Jón A. Hjaltalíns, glæsi- mennisins, lærdómsmannsins og stórhugans Stefáns skólameistara Stefánsson, hugsuðarins og upp- alandans Sigurðar Guðmunds- sonar skólameistara, sem lengst allra þjónaði þessum skóla, ljúf- lingsins og gáfumannsins með barnssálina, meistara míns Þór- arins skólameistara Bjömssonar og síðast forvera míns í starfi, karlmennisins og fræðimannsins Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, sem tók við stjóm þessa skóla á erfiðum tímum þegar öllu gömlu skyldi kastað á glæ og taumleysi hins agalausa frelsis átti að taka við. Sú hræring átti sér að vísu sínar orsakir eins og allir hlutir og af þeim umbrotum má draga margan lærdóm, en ekki höfðu þar allir erindi sem erfiði. Enn hefur nýr tími raunar ekki gengið í garð. Okkar, sem hér störfum nú, bíður það hlut- verk að finna áttir að nýju, brjóta nýjar brautir að hollri menntun og sannri. Með þessari þjóð býr nú meiri glæsileiki en nokkru sinni áður, en dýrð heimsins og hið ytra prjál, skart og glaumur mega þó ekki verða eina vega- nesti okkar og viðmiðun. Allt hefur að vísu sinn tíma, en keppikefli okkar og takmark verður þó að vera æðra en glaumur og ytra prjál, sókn okkar skal ekki vera eftir vindi, og hé- góminn má ekki blinda augu okkar. Minnug skulum við vera þess að allt starf, sem vel er unnið, er gott. Enginn munur er á holl- um störfum manna annar en sá, hvernig starfið er unnið. Eftir þessu skulum við keppa í Menntaskólanum á Akureyri: að vinna holl störf okkar vel. Hollt starf er það starf sem veitir full- nægingu fleirum en sjálfum okk- ur og þessi störf skulum við vinna í birtunni af þeirri fullvissu að meira virði sé að sigrast á sjálfum sér en öðrum. Jafnræði skal ríkja meðal fólks og sannleikurinn skal gera okkur frjáls. Hugsun, þekk- ing og starf á að vera leiðarljós þeirra sem hingað sækja og hinna sem hér starfa. Þetta eru mér al- vöruorð á hátíðarstund en alvar- Hundraðasta starfsár .A. er hafið an er hin mesta gleðin, sem nokkrum getur hlotnast. Gott er að geta minnst liðinna daga og draga lærdóm af. Þegar við, nemendur og kennarar, hefj- um starf okkar nú á þessum degi, skulum við minnast þess sem lið- ið er, draga lærdóm þar af og styrkja hug okkar til meiri átaka og betra starfs. í vor verður haldið hátíðlegt 100 ára afmæli skólans. Þá er ætlunin að út komi saga norð- lenska skólans í þremur bindum. Ritstjóri þess verks er Gísli Jóns- son yfirkennari en auk hans skrifa söguna Steindór Steindórsson frá Hlöðum, Þórhallur Bragason safnvörður, sem sér um stúdenta- tal, og gangfræðinga, ásamt kennaratali, og auk þeirra mun- um við Tómas Ingi Olrich kon- rektor leggja málinu lið. í fyrsta bindi verður saga skólans til 1930, í öðru bindi verður saga skólans til 1980 en í þriðja bindi verða töl og ættvísi. Verkið allt verður um 1200 síður, þar af um 300 myndasíður. Þegar líður á vetur verður safnað áskrifendum að sögunni, sem ráðgert er að kosti um 40 þúsund krónur. Formáls- orð að sögu norðlenska skólans ritar gamall nemandi skólans, kennari hans og prófdómari, dr. Kristján Eldjárn forseti íslands. Búast má við að margt gesta komi að afmælishátíðinni og skólaslitum á vori komanda. Vona ég að hátíðin verði ekki að- eins minningarhátíð heldur marki hún einnig upphaf nýrrar sóknar í skóla- og menntamálum Norðlendinga. í vetur eru skráðir 580 nem- endur í skólann, þar af 80 í öld- ungadeild, sem nú hefur fimmta starfsár sitt undir stjórn Magnús- ar Kristinssonar kennslustjóra. Þótt nokkru færri nemendur sitji nú í öldungadeild, en áætlað var í upphafi, hefur hún ótvírætt sannað tilverurétt sinn, og með aukinni fullorðinsfræðslu og auknum skilningi á símenntun fólks trúi ég að öldungadeild Menntaskólans á Akureyri eigi eftir að vaxa að mun, þótt enn sé hún að vísu aðeins, eins og meðal fjölbrautarskóli úti á landi. Nýnemar í skólanum eru taldir 202, 141 í þriðja bekk, 21 í fjórða, 3 í fimmta bekk, og 30 í öldunga- deild. f efsta bekk skólans sitja nú 120 nemendur og eiga að vori að brautsk-rást frá skólanum á hundrað ára afmæli hans 34 nemendur sitja í máladeild, 21 í fílagsfræðideild, 42 náttúru- fræðideild, 11 í eðlisfræðideild, 11 í viðskiptadeild, og einn nem- andi stundar nám á síðasta ári á tónlistarkjörsviði. Til ykkar, efstubekkingar, er litið sem fyrir- myndar. Margt í starfi skólans ræðst af viðhorfum ykkar. Vona ég að þið setjið góðan svip á skólann síðasta ár ykkar, svo að ykkar verði minnst með virðingu. Ég býð ykkur velkomin til starfa, sjöttubekkingar. Sérstaklega vil ég bjóða velkomna nemendur í viðskiptadeild, 11 nemendur sem stundað hafa nám sitt hingað til við Gagnfræðaskóla Akureyrar. Þið eruð að vísu sem eins konar fósturbörn eða tökubörn hér í skóla. Ekki skal þó farið með ykkur eins og neina niðursetn- inga. Allir eru nemendur skólans fósturbörn hans og tökubörn og ég vona að þið fáið notið ykkar hér á nýjum stað og reynt verður að veita ykkur gott fóstur og hollt vegamesti til frekara náms. f fimmta bekk eru skráðir 109 nemendur, og er þetta fámennasti bekkur skólans. í þennan bekk hafa frá upphafi sest 164 nem- endur. 55 hafa helst úr lestinni á tveimur árum, eða þriðjungur. Þetta er mikið mannfall og vissu- lega tilfinnanlegt. Þó ber þess að gæta að allmargt nemenda kemur hingað óráðið og leggur lítið af mörkum sjálft við nám sitt. Skól- inn vill koma öllum nemendum sínum til þroska en árangur af Menntaskólinn á Akureyri. námi nemenda er að mestu kom- inn undir áhuga þeirra og elju- semi. Um þetta gildir hin gamla saga: Leitt get ég hest minn að vatninu en ekki látið hann drekka. Það gerir hann þegar hann þyrstir. f fjórða bekk er skráður 131 nemandi. f þeim hópi eru 107 nemendur sem sátu í þriðja bekk síðast liðinn vetur. 67 nemendur af þeim 174, sem í fyrrahaust hófu nám í þriðja bekk, hafa horfið úr þessum hópi, 10 hættu námi og 57 stóðust ekki próf og er það rétt um þriðjungur þeirra sem hófu nám. En alls heltust úr lestinni 38,51% nemenda í þriðja bekk síðast liðinn vetur. f þriðja bekk er nú skráður 141 Úr setningar- ræðu Tryggva Gíslasonar, skólameistara Menntaskól- ansá Akureyri nemandi og er það þrjátíu og þremur færra en í fyrrahaust en þá voru nemendur í þriðja bekk fleiri en nokkru sinni. Engu að síður eru nemendur færri jí þriðja bekk en gert var ráð fyrir pg gera mátti ráð fyrir. Skýringin er að vísu að hluta til fólgin í /þ'ví, að öllum umsækjendum, seni höfðu einkunina D í einni grein eða fleirum, var nú neitað um skóla- vist, eins og í fyrra, Önnur skýring á því að hingað sækja færri nem- endur en áður, er fólgirid því'áð fæðingarárgangar eftir 1962 fara minnkandi. í þriðja lagi hefur það áhrif að nýir skólaii eru stofnaðir, á ísafirði, Egilsstöðum og nú síðast á Sauðárkróki, auk þess sem framhaldsdeildum grunnskóla fjölgar. með ári hverju. Á margan hátt er það til bóta að fjölga skólum og stofna til kennslu á framhaldsskólastigi. Vegur þar þyngst að ungt fólk getur lengur dvalist í heimahús- um og hlotið styrk af heimili sínu. Auk þess sparar það fé að geta búið heima og munar það orðið miklu þegar leggja þarf út um hálfa milljón króna fyrir hvern nemanda sem að heiman fer um- fram það sem væri, þegar dvalist er á heimili sínu. Að vísu gleymist þá að taka með í reikninginn að það kostar líka að halda heimili, og sé sá kostnaður tekinn með, þegar upp er gert verður munur- inn auðvitað minni. Og vel mætti fólk, bæði foreldrar og börn, hafa þetta í huga þegar um fæðissölu og mötuneytisrekstur er rætt. Vil ég þá rifja upp, og minna á, að fullt fæði pilta í mötuneyti Menntaskólans á Akureyri kost- aði síðast liðinn vetur 51 þúsund krónur á mánuði tæpar og 45 þúsund fyrir stúlkur og varð fæð- ið hvergi ódýrara í sambærilegu mötuneyti. Á hinn nýi bryti skól- ans, Sigmundur Rafn Einarsson, miklar þakkir skilið fyrir hagsýni og dugnað. Vona ég að nemendur kunni áfram að meta starf hans og taki sjálfir þátt í rekstri mötu- neytis síns, því að mötuneyti skólans er sjálfseignarstofnun, sem selur fæði á kostnaðarverði. Mötuneytið er með öðrum orðum eign mötuneytisfélaga og rekstur þess er meðal annars undir því kominn að mötuneytisfélagar sýni sjálfir hagsýni og sparsemi, gangi vel um mat sinn og eignir og ræki skyldur sínar að öðru leyti. Mörgum er nú að verða það ljóst að efla þarf einstaklings- ábyrgð með fólki, okkur sem lif- um í þessu stóra tryggingarfélagi sem samfélag okkar er. Að vísu má enn margt betur fara, en meira hefur verið talað um rétt- indi okkar undanfarin ár og ára- tugi, en skyldur okkar. Nú er líka svo komið að enginn þykist hafa skyldur við annan, jafnvel ekki böm sín og alls ekki samfélagið og það er því von að maðurinn spyrði: „Samfélagið, hvaða skepna er það?“ Að okkar tali á Menntaskólinn á Akureyri rætur að rekja til elstu skólastofnunar á landinu, hins forna Hólaskóla, sem stofnaður var um 1106. Þessi kenning eða trú okkar er ekki aðeins steigur- læti, og því síður gamanmál, heldur viljum við, geta litið með virðingu til glæstrar fortíðar, svo að unnt megi vera að takast á við nýjan og síbreytilegan vanda. Mikil breyting hefur orðið á skólahaldi á Norðurlandi síðan á 12tu öld. Hólaskóli var stofnaður af brýnni þörf og hann gegndi mikilsverðu hlutverki sínu, sem lærður skóli og prestaskóli, nær sex aldir. Enn hefur mikil breyt- ing orðið á, þá öld tæpa sem liðin er síðan Möðruvallaskóli tók til starfa. Upphaflega var ætlunin að stofna á Möðruvöllum bænda- skóla. Ýmsir góðir menn, þar á meðal séra Arnljótur Ólafsson á Bægisá og Grímur Thomsen skáld á Bessastöðum, vildu að á Möðruvöllum risi lærður skóli eða stúdentaskóli með sama sniði og Reykjavíkurskóli. Endirinn varð í það skiptið sá, að á Möðruvöllum reis tveggja ára skóli gagnlegra fræða, gagn- fræðaskóli. Leikur engin vafi á að Gagnfræðaskólinn á Möðruvöll- um og Ganfræðaskólinn á Akur- eyri gegndu vel menntunarhlut- verki sínu. Og enn hefur margt breyst síðan ný lög um Mennta- skólann á Akureyri voru sam- þykkt fyrir tæpri hálfri öld. Þá voru til að mynda 111 nemendur í menntadeild skólans og braut- skráðir stúdentar voru 15. Leið þessara nemenda lá til náms í embættismannadeildum Háskóla íslands. Þar voru þá 155 nem- endur við nám og fastir kennarar 11 talsins. Nú eru í Háskóla ís- lands liðlega þrjú þúsund nem- endur. Fastir kennarar eru nær 300, eða nær helmingi fleiri en allir nemendur Háskólans fyrir 50 árum. Deildir eru fleiri, og náms- brautir og skorir fjölmargar. Menntun hefur aukist og kröfur hafa vaxið. Það er því ekki furða þótt breytingar hafi orðið á framhaldsskólunum. Og enn er breytinga að vænta. Vonir standa til að frumvarp til laga um fram- haldsskóla, sem nú hefur þrívegis verið lagt fyrir alþingi, verði að lögum á næsta þingi. Mikla nauðsyn ber til, að meiri festa fá- ist í skipan framhaldsskólanna í landinu. Þótt mikið starf hafi þegar verið unnið er enn mikið ógert. Hlutur Menntaskólans á Akureyri verður mikill í þessu starfi. Skólinn verður miðstöð framhaldsmenntunar á Norður- landi og undir hið nýja mennt- unarhlutverk sitt verður hann að búa sig. Góður skóli á að gefa öllum nemendum sínum tækifæri til menntunar, hann á að koma öllum þegnum sínum til nokkurs þroska, eins og hinir fyrri menn orðuðu þetta. Nám í skólanum verður á næstu árum fjölþættara og fjölbreyttara. Tekin verður upp kennsla í fleiri greinum og reynt verður að nýta allt það sem að gagni má koma í hverri grein. Ytra svipmót skólans á því hugs- anlega eftir að breytast. Hitt vil ég taka fram til að fyrirbyggja mis- skilning, að þótt þessi breyting verði á Menntaskólanum á Ak- ureyri jafngildir það ekki því, að minni kröfur verði gerðar til nemenda og léttara verði að stunda hér nám. Slík tilslökun yrði heldur ekki nemendum til góðs. Þeim yrði fengið veganesti sem að lokum yrði engin mennt- un, þótt seldist sem menntun. Fyrir mitt leyti held ég að breyta þurfi framhaldsskólunum frá því sem verið hefur. Auka verður jöfnuð með nemendum eftir því sem frekast er kostur, meðal annars til að vinna gegn félagslegu misrétti í samfélaginu. Gefa verður nemendum kost á námi við hæfi og taka tillit til þarfa samfélagsins fyrir menntun og kunnátttu og starfsþjálfun, þótt skólinn eigi ekki að lúta sömu lögmálum og atvinnuveg- irnir. Námsval á að aukast, en varast verður eins og heitan eld- inn er gera skólann svo marg- slungið völundarhús að þar rati enginn um nema nokkrir náms- ráðgjafar, sviðsstjórar og senu- menn. Og framar öllu má skólinn ekki verða til að sýnast. Skipulag verður að vera og það verður að vera einfalt, og skynsamlegur agi verður að vera í námi, og með kennslu skal veitt aðhald því það er trú mín, að agi og aðhald þurfi að vera, enda þótt slíkt megi heldur ekki ganga of langt, og er þá enginn að tala um neins konar yfirgang og því síður ofbeldi. í sumar hafa starfað tvær nefndir, sem menntamálaráð- herra skipaði, til að vinna að skólaskipan á Norðurlandi og til að gera samræmda námsskrá fyr- ir nám á framhaldsstigi á Norð- urlandi. Um það verður einnig leitað samstarfs við skóla fyrir sunnan og austan. Ætlunin er að báðar nefndir hafi lokið störfum sínum fyrir áramót og unnt verði að hefja starf í skólum á Norður- landi eftir hinni nýju skipan á næsta hausti. í Menntaskólanum á Akureyri er einnig starfandi námsskipun- arnefnd — eða áfanganefnd eins og hún hefur verið kölluð. Verk- efni nefndarinnar er að kanna með hvaða hætti skólinn geti þjónað sem best hlutverki sínu sem miðstöð framhaldsmenntun- ar á Norðurlandi. Meðal annars verður tekin afstaða til þess hvort taka skuli upp við skólann ein- inga og áfangakerfi og fjölga hér námsbrautum. Mikið starf bíður því og hugsanlegt er, að á þessum vetri verði mörkuð ný stefna í málefnum og reksti skólans. En allt tal um að Menntskólinn á Akureyri verði lagður niður, er úr lausu lofti gripið, og að því mun ég ekki standa. En skólinn skal semja sig að breyttum aðstæðum og hann á að þjóna hlutverki sínu og koma öllum nemendum til nokkurs þroska. Að öðrum kosti verður hann að safngrip. Hver og einn verður að þekkja sinn vitjunartima og nú er stundin runnin upp og mikið starf bíður. Miklar endurbætur standa nú yfir í eldhúsi skólans og mötu- neyti og verður þeim ekki lokið fyrr en nokkuð er liðið á þennan mánuð. Þótt enn sé margt ógert, þegar þessari viðgerð er lokið hefur mikið áunnist og lagfær- ingar í eldhúsi eru mjög til bóta. í lóð skólans hefur verið plant- að allmiklu af trjám og verður því verki haldið áfram á næsta ári. Umhverfi skólans er hið fegursta og hefur lengi verið til þess tekið hversu fagurt hefur hér verið og snyrtilegt. Heiti ég á alla að ganga vel um lóð og hús skólans. Nokkrar lagfærivír hafa verið gerðar í kennarastofu og lokið hefur verið að ganga frá nýjum kjallaragluggum í gamla skóla ásamt smálegum lagfæringum. Sífellt reynist erfiðara að vinna að viðgerðum sem nauðsynlegar mega teljast. Hús skólans og munir eru nú metin á um það bil eitt þúsund milljónir eða einn milljarð króna. Á þessu ári fást 14 milljónir i viðhald úr ríkissjóði. Er það um fjórðungur þess sem þyrfti til að sæmilegt mætti kall- ast. Ekki þykir mér skynsamlega að fara með fé það sem fæst til skólahúsnæðis þessi ár. Fyrir um það vil 10 árum var hafist handa við smíði Menntaskólans Þá var Menntaskólinn við Hamrahlíð hálfkaraður og húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík í miklum ólestri. Nú er verið að hefjast handa um smíði skólahúss fyrir Menntaskólann á ísafirði. Eiga í því húsi að rúmast 300 nemendur eða helmingi fleiri en þeir hafa nokkurn tíma orðið. Á Egilsstöðum er verið að reisa skólahús, og heimavistarhús er fullgert að hluta. Þar verða í vetur um 100 nemendur og gætu orðið liðlega 200 þegar skólinn er full- búinn. En áður en skólinn á Eg- ilsstöðum er fullbúinn og á með- an verið er að reisa húsið á Isa- firði og um leið og verið er að vinna að húsnæðismálum menntaskólanna á Reykjavíkur- svæðinu, sem margir búa við þröngan kost, er ráðist í að stofna Fjölbrautarskóla á Sauðárkróki með 90 nemendum. Þar er nú senn lokið verknámshúsi, sem kosta mun fullbúið um 300 milljónir. Nemendur við hinn nýja fjölbrautarskóla geta ekki orðið fleiri en 220, ef öll kurl koma til grafar. Það getur ekki þótt stór skóli og naumast getur hann boðið nám nema á fáum námsbrautum. Skynsamlegra hefði mér þótt að ljúka því sem byrjað hafði verið á og búa þær skólastofnanir nauðsynlegum búnaði áður en hafist var handa um að byggja frá grunni nýja skóla. Fái Þingeyingar næsta menntamálaráðherra má búast við að fjölbrautarskóli rísi á Húsavík, enda veit ég þá ekki hvers Þingeyingar eiga að gjalda. En ekki þýðir að sakast um orðinn hlut, og vörn þeirra manna sem „eskapistar" hafa verið kallaðir er að semja sig að þeim aðstæðum sem eru, og það verður þá að vera vöm okkar um sinn. Hins vegar er það von mín að innan tíðar verði horfið frá þessari dreifbýlisstefnu í skóla- málum. Rétt er að búa mönnum sem jafnastan kost en einhvers staðar hljóta skynsamleg mörk þó að liggja. Framhaldsskólar geta ekki orðið þeir skólar sem eru litlir og vanmáttugir heldur verð- ur við fullgildan skóla að vera nægilegt fjölmenni til að skapa fjölbreytni og þann anda sem nærast má af í lærdómi og hugs- un. Kæru nýnemar. I gamalli bók stendur: „Betri er fátækur unglingur, sé hann vitur, heldur en gamall konungur, sé hann heimskur og þýðist eigi framar viðvaranir." Ungu fólki fylgir mikil óvissa og óvissan er að sönnu heillandi. En ég vona að þið, unga fólk, þýðist viðvaranir. „Ég sá alla lifandi menn, þá er gengu undir sólinni, vera á bandi unglingsins .. . þess er koma átti i hins stað." Nýnemar í Mennta- skólanum á Akureyri koma í stað hinna sem hverfa á braut. í þeim sem hverfa á burt er mikil eftirsjá og stundum hefur mér þótt það óbærilegt að sjá á eftir mörgu þessu fólki. En heillandi óvissu ykkar, sem hingað komið nú, er bundin mikil von, bæði von ykkar sjálfra og hinna sem vilja treysta ykkur. Þess vildi ég óska að þið brygðust ekki þessari von. Árin sem nú fara í hönd eru góð ár. Hér búast ykkur mörg tækifæri. Ég treysti ykkur til þess að nota þau til hollra starfa og vinna verk ykkar vel, nýtið þau tækifæri sem hér gefast til hollra starfa og hugsið til þess að gott mannorð er gulli betra. lllt er þeim er skeyta hvorki um skömm né heiður. Varðveitið því heiður ykkar og mannorð. Nemendum öllum, kennurum og starfsfólki óska ég velfarnaðar á nýju starfsári skólans. Megi ár- angur verða af starfi okkar hér sem færi þá umbun sem vel unnið starf eitt getur veitt. „Og svo sem hver sáir mun hann uppskera." Menntaskólinn á Akureyri er settur í eitt hundraðasta sinn. * Tvíburamir Garðar og Gylfi Gíslasynir veróa gamans má geta þess að þeir keppa fyrir sitthvert meðal keppenda á lyftingarmótinu, en þeir hafa æft Akureyrarfélagið, þ.e.a.s. annar er í KA en hinn í vel undanfarið og ætla sér mikið á þessu móti. Til Þór. Stórmót í lyftingum Á LAUGARDAGINN verður haldið í íþróttahúsinu í Glerárhverfi úrtökumót fyrir Norðurlandamót ung- linga í lyftingum. Keppt verður í tvíþraut og verða keppendur frá Akureyri og Reykjavík. Búast má við mjög góðum árangri og ef- laust verða sett mörg íslands- og héraðsmet. Lyftingamenn frá Akureyri hafa æft mjög vel fyrir þetta mót, og ætla sér að ná niörgum sætum í landsliðinu sem keppir á Norðurlandameistaramót- inu fyrir unglinga. Mótið hefst ki. 14.00 eru áhorfend- ur velkomnir meðan húsrúm leyfir. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.