Dagur - 23.10.1979, Qupperneq 1
/Fldfcu TRÚLOFUNAR- 6/HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS DAGXJR
GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI LXII. árg. Akureyri, þriðjudagurinn 23. október 1979 70. tölublað
Togararnir
Kaldbakur landaði 11.
okt. 176 t. skiptaverð-
mæti 26,7 millj. Sval-
bakur landaði 8. okt. 145
t. skiptaverðmæti 23,6
millj. og var að landa
svipuðu magni er leitað
var upplýsinga í gær.
Harðbakur landaði 16.
okt. 182 t. skiptaverð-
mæti 25,6 millj. Slétt-
bakur landaði 18. okt.
175 t. skiptaverðmæti
24,1 millj., og Sólbakur
landaði 10. okt. 157 t.
skiptaverðmæti 21,3
millj. Sólbakur fór í
slipp til eftirlits en er að
fara á miðin.
*
Sælgætissala í
íþróttaskemm-
unni
Bæjarráð hefur heimilað
íþróttafulltrúa að semja
við íþróttafélögin K.A.
og Þór og rekstur sæl-
gætissölu í íþrótta-
skemmunni.
*
Almennar vilja
bjóða
Almennar tryggingar
hafa farið þess á leit við
bæjarstjórn Siglufjarðar
að félaginu verði gefinn
kostur á að gera tilboð í
brunatryggingar fast-
eigna í umdæminu næst
þegar um þær verður
samið.
ZONTA
Sontaklúbbur Akureyr-
ar hefur látið gera vegg-
spjald í tilefni Barnaárs
S.Þ. Vilja Zontakonur
vekja athygli á hættum
þeim, sem börnum eru
búnar í umferðinni, ekki
síst í skammdeginu.
Veggspjaldið er unnið af
Teiknihönnun KG á
Akureyri og verður því
dreift víða um landið.
Framsókn eykur fylgi
q!U Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
■■ tapa í skoðanakönnun DB
DAGBLAÐIÐ gerði um helg-
ina könnun á fylgi stjórnmála-
flokkanna — 300 manna úrtak
var spurt álits. Útkoman varð
sú að 12,8% þeirra sem höfðu
tekið afstöðu kváðust mundu
kjósa Alþýðuflokkinn. Hann
fengi samkvæmt þessu 7-8
þingmenn. í síðustu Aiþingis-
kosningum fékk hann 22% og
14 þingmenn.
Alþýðubandalagið fengi
21,9%, sem gæfi 13 þingmenn. í
síðustu kosningum fékk Alþýðu-
bandalagið 22,9% og 14 þing-
menn. Alls studdu Framsóknar-
flokkinn 21,9% og hann fengi
samkvæmt því 13 þingmenn. 1
síðustu kosningum fékk flokkur-
inn 16,9% og 12 þingmenn. Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi 43,3% ef
kosið væri nú samkvæmt þessari
könnun og 26-27 þingmenn.
Fylgi hans í síðustu kosningum
var 32,7% og þingmenn 20.
Dagur hefur hlerað að Dag-
blaðið hafi einnig spurt hver væri
hæfastur núverandi leiðtoga
stjórnmálaflokkanna til að
stjórna landinu og fékk Ólafur
Jóhannesson langflest atkvæði.
„Þessi úrslit koma heim við
mína eigin reynslu síðustu daga,
að Framsóknarflokkurinn sækir
á. Ég finn að það andar góðu í
okkar garð og Ólafur Jóhannes-
son er í miklu áliti hjá almenningi
í landinu," sagði Ingvar Gíslason
þegar blaðið spurði hann álits á
þessari skoðanakönnun.
„Það verður að taka þessar
skoðanakannanir með fyrirvara.
Hvorttveggja er að úrtakið er lítið
og ekki liggur ljóst fyrir hvernig
það er tekið. Hinsvegar virðist
mér að útkoman úr skoðana-
könnun Dagblaðsins vera í höf-
uðdráttum í samræmi við við-
brögð almennings. Það er enginn
vafi á því að Framsóknarflokk-
urinn hefur verulegan og vaxandi
byr í upphafi þessarar kosninga-
baráttu. Síst minni en umrædd
skoðanakönnun sýnir. Það gefur
vonir um hagstæða útkomu —
ekki síst vegna þess að almenn-
ingur gerir sér ljóst í ört vaxandi
mæli hvað þessar kosningar eru
örlagaríkar fyrir þjóðina.
Mér kemur það ekki á óvart þó
að skoðanakannanir sýni það að
Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi
forsætisráðherra, sé talinn lang-
hæfastur núverandi leiðtoga
stjórnmálaflokkanna og það er
sérstaklega ánægjulegt að Dag-
blaðið skuli framkvæma þá
könnun, sem þetta sýnir. rniðað
við það sem á undan er gengið,"
sagði Stefán Valgeirsson uni
könnun DB.
Ætli mamma
fari ekki að
koma úr
húðinni?
Niðurstaðan olli mér von-
||M — segir bæjarstjóri um endalok
lll ItywllMI I Landsvirkjunarsamningsins
BÚFÉ
VELDUR
USLAÍ
GORÐUM
AÐ UNDANFÖRNU hefur
lögreglunni borist fjölmargar
kvartanir írá íbúuni í Glerár- og
Gerðahverfi. Hefur búfé valdið
umtalsverðum skemmdum á
mörgum görðum í þessum
hverfum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni voru 3 kindur_hand-
samaðar í Glerárhverfi fyrir
skömmu en þær höfðu valdið
skemmdum í görðum í Seljahlíð.
Umráðamanni kindanna varð gert
að leysa þær út innan sólarhrings
og varð hann að greiða áfallinn
kostnað, sem var um 30 þúsund
krónur.
Húseigandi í Glerárhverfi hefur
kært skemmdir á lóð sinni og kraf-
ist bóta, en ekki er búið að ganga
endanlega frá mati á skemmdun-
um.
Árni Magnússon, varðstjóri,
sagði að ástæða væri til að brýna
fyrir skepnueigendum að hafa búfé
í öruggri vörslu. Hann sagði einnig
að ætlunin væri að herða mjög allt
„ÞAÐ eru mér ákaflega mikil vonbrigði að þessi samningur skyldi
ekki hafa verið staðfestur í borgarstjórn Reykjavíkur. Ég á erfitt að
gera mér grein fyrir því hvað lá að baki en get ekki séð annað, en að
það hafi verið ákaflega óeðlileg sjónarmið,“ sagði Helgi M. Bergs,
bæjarstjóri um að sameignarsamningurinn um Landsvirkjun var
felldur, en hjáseta Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, borgarfulltrúa AI-
þýðuflokksins, réði þar úrslitum.
Helgi sagði, að haldið yrði áfram
að vinna að því að Laxárvirkjun
sameinaðist Landsvirkjun. Bæjar-
stjórn fjallaði um samninginn hinn
11. september s.l. og var hann þá
samþykktur með 11 samhljóða at-
kvæðum bæjarfulltrúa. Þá var eft-
irfarandi bókun gerð: „Vegna
óvissu um, hvort eignaraðilar
Landsvirkjunar staðfesta sameign-
arsamninginn, þá ítrekar bæjar-
stjórn samþykkt sína frá 11. júlí
1978, og felur fulltrúum sínum í
stjórn Laxárvirkjunar að halda
áfram undirbúningi að sameiningu
Laxárvirkjunar og Landsvirkjunar,
samkvæmt núgildandi lögum um
Landsvirkjun."
Helgi sagði að það yrði eflaust
óhagstæðara fyrir alla aðila ef
sameiningin færi fram á grundvelli
núgildandi laga.
„Fyrst og fremst verður um allt
annað fyrirtæki að ræða. Það fyrir-
tæki mun eiga tvo hópa virkjanna
— annarsvegar á Suður- og Suð-
vesturlandi og hinsvegar hér á
Norðausturlandi. Þetta fyrirtæki
mun ekki eiga línurnar sem tengja
virkjanirnar og því verður sam-
keyrsla á þessum tveimur kerfum
að fara eftir línum sem þriðji aðil-
inn á. Sá hinn sami mun væntan-
lega krefjast þess að það rafmagn,
sem verður flutt eftir hans kerfi
verði látið standa undir þeim
kostnaði, sem hann hefur lagt í við
uppbyggingu kerfisins. 1 þeim
samningi sem var felldur var gert
ráð fyrir að ríkið tæki allverulega
hluta af verði línanna á sig og það
þyrfti ekki að koma fram í raf-
orkuverðinu — nú gerir það vænt-
anlega."
eftirlit með búfé bæjarbúa. í reglu-
gerð segir: Sá, sem fær leyfi til bú-
fjárhalds samkvæmt reglugerð
þessari skal hafa búfé í öruggri
vörslu ðg ber hann ábyrgð á öllu
því tjóni, sem það kann að valda."
Tapa húnvetnskir bændur 250 milljónum?
ÚTLIT er fyrir að rninni fallþungi
dilka í Húnavatnssýslu verði bænd-
um æði dýr. Að sögn Árna S.
Jóhannssonar kaupfélagsstjóra á
Blönduósi, kemur f Ijós þegar mið-
að er við sama tfma og f fyrra að
meðalþunginn er 1,9 kg. lægri en þá,
og á hans svæði þýðir þetta 250
millj. króna tap samanlagt, eða
eitthvað á aðra milljón á bónda að
meðaltali.
Rækjuveiði er ekki hafin frá
Blönduósi á þessari vertíð en hug-
myndin er að fara að byrja úr þessu.
Til tals hefur komið að fara að
byggja nýja bryggju á Blönduósi, en
gamla bryggjan er algjörlega óvið-
unandi.