Dagur


Dagur - 25.10.1979, Qupperneq 1

Dagur - 25.10.1979, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LXII. árg. Akureyri, fimmtudagurinn 25. október 1979 71. tölublað Stapafell komið til landsins Eins og fram hefur kom- ið í fréttum fjölmiðla kom Stapafellið nýja til landsins hinn 15. okt- óber. Kom það til Hafn- arfjarðar að kvöldi þess dags og losaði þar full- fermi af ljósaolíu. Þaðan var haldið til Reykjavík- ur, þar sem Stapafell var fyrsta skipið sem lagðist upp að Holtabakka, hinum nýja viðlegukanti við Holtagarða. Þar voru mættir fjölmargir gestir Skipadeildar, sem skoð- uðu skipið, og við það tækifæri afhenti Gunnar Sveinsson kfstj. mynd frá Keflavík, þar sem heimahöfn skipsins er, til varðveizlu um borð. Daginn eftir fór skipið svo til Hvalfjarðar og hóf að því búnu að sinna verkefnum sínum við olíudreifingu út um land. Verður þá ekki lengur þörf erlendra leiguskipa til þeirra flutninga, eins og verið hefur að hluta frá því að Stapafellið eldra var selt Stapafellið nýja er hinn glæsilegasti far- kostur og mjög vel búið til að sinna verkefnum sínum. Áhöfnin er 12 manns, skipstjóri er Barði Jónsson og yfir- vélstjóri er Jón Guð- mundsson. Sýnjng í Háhóli Á laugardaginn kl. 15.00 opnar Jóhann Björnsson frá Húsavík sýningu á verkum sínum í Gallery Háhóli. Jóhann er kunnur um allt land af verkum sín- um einkanlega af út- skornum munum gerð- um af miklum hagleik. Jóhann var nemandi Ásgríms Jónssonar og Ríkharðs Jónssonar og eins var hann nemandi í Handíðaskólanum og lauk þaðan prófi. Sýningin í Háhól er þriðja einkasýning lista- mannsins. Á sýningunni eru 43 verk unnin með vatnslit og nokkrir út- skornir munir. Sýningin er sölusýning og verði mjög stillt í hóf. Sýningin stendur dag- ana 27. okt-4. nóv. opin virka daga kl. 20.00-22.00 og um helg- ar 15,00-22,00. Efni til bygginga: Ovenjumiklu stolið ÓVENJU MIKLU hefur verið stolið af byggingarefni á Akureyri í sumar og haust. Fjölmargar kærur hafa borist til lögreglunnar, en erfitt er að hafa hendur í hári þeirra sem hér eru að verki. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er náið fylgst með nokkrum aðilum og þess beðið með óþreyju að þeim verði fótaskortur. Ófeigur Baldursson, rannsókn- arlögreglumaður, sagði að helst væri efni stolið frá stórum bygg- ingum og ekki síst þeim er væru afskekktar. Þjófarnir taka m.a. timbur, steypujárn og þakjárn svo eitthvað sé nefnt. Svo virðist sem ýmsir aðilar bjóði hættunni heim með því að láta byggingarefni liggja á víð og dreif í stað þess að koma því undir þak eða girða umhverfis svæðið sem unnið er á eða varan geymd. Ófeigur sagði það ágætt ef hægt væri að lýsa upp byggingarsvæðið og ef menn vildu þekkja aftur efni eins og t.d. timbur væri hægt að mála það eða auðkenna með öðr- um hætti. „1 sumum tilfellum hafa bygg- ingavörur að verðmæti hundrað þúsunda horfið á einni nóttu." sagði Ófeigur. ,,Okkur gengur erf- iðlega að ná þessum mönnum. enda nánast ógerningur að þekkja þetta aftur, en ef fólk sér t.d. mann að næturlagi, sem er að flytja varn- ing ætti það að hafa samband við lögregluna strax. Einu sinni vorum við látnir vita og reyndist viðkom- andi vera að stela járni." „Það er Ijóst að árlega er stolið byggingarefni á Akureyri fyrir mjög háar upphæðir — og sagði Ófeigur að menn skyldu hafa það í huga að t.d. búðarhnupl unglinga væru smámunir einir hjá þjófnaði af þessu tagi. Svo mætti spyrja hvernig fólki liði í húsum sem að einhverju leyti væru byggð úr illa fengnu efni. Af framboðum FRAMBOÐSLISTAR stjórn- málaflokkanna í Norðurlands- kjördæmi eystra eru sem óðast að verða tilbúnir. Alþýðubanda- lagið hefur ákveðið sinn lista, sjálfstæðismenn gera það um helgina og kratar sömuleiðis, en framsóknarmenn á kjördæmis- þingi, sem verður haldið 2.-3. nóvember. Hvað framboðslista framsóknar- manna varðar, þá mun uppstill- inganefnd hafa komist að þeirri niðurstöðu að hafa tvö efstu sætin óbreytt og tillaga hefur komið um Guðmund Bjarnason, sparisjóðs- stjóra í Keflavík, og fyrrum forseta bæjarstjórnar Húsavíkur, i það þriðja. Rætt hefur verið um Niels Lund, kennara á Bifröst í Borgar- firði í fjórða sætið og Hákon Hákonarson, formann Alþýðu- sambands Norðurlands, eða Böðv- ar Jónsson á Gautlöndum, í fimmta sætið. Jóni G. Sólnes hefur verið vikið útaf lista sjálfstæðismanna og talið er að Lárus Jónsson komi í staðinn. Halldór Blöndal hefur fullan hug á öðru sætinu (myndi ekki fúlsa við því fyrsta) og væntanlega verður Vigfús Jónsson, Laxamýri, í þriðja sæti og Svavar Magnússon, Ólafs- firði, í fjórða sæti. Hart er barist hjá krötum. en þar sækja tvær fylkingar fram og próf- kjör verður um næstu helgi. Árni Gunnarsson gefur kost á sér í fyrsta sætið, Jón Helgason í annað og Sig björn Gunnarsson í þriðja. I hinni fylkingunni eru þeir Bragi Sigurjónsson, sem gefur kost á sér í fyrsta sæti, Jón Ármann Héðins- son, í fyrsta eða annað. og Bárður Halldórsson rekur lestina og vill i þriðja sætið. Alþýðubandalagið hefur þegar birt sinn lista, en talsverðrar óánægju gætir með uppröðunina meðal yngri liðsmanna. í fyrsta sæti er Stefán Jónsson, Soffía Guð- mundsdóttir er í öðru, Helgi Guðmundsson í þriðja og í fjórða sæti er Steingrímur Sigurðsson. Raufarhöfn. Útlit fyrir skortá heitu vatni í vetur VEITUNEFND, sem starfar á vegum Siglufjarðarkaupstaðar, hefur nýlega tekið að sér ygir- umsjón með rafveitu og hita- veitu. Af þeim ástæðum hefur hún farið fram á, að heildarút- tekt verði gerð á stöðu þessara fyrirtækja, bæði fjárhagslega og framkvæmdalega. Þetta kom fram í samtali sem við áttum við Ingimund Einarsson, nýráðinn bæjarstjóra á dögunum. Hann sagði líka að útlit væri fyrir skort á heitu vatni næsta vetur og af þeirri ástæðu hefði verið gripið til þess að stöðva allar tengingar. Staðan s.l. vetur hefði verið þannig að bæði sjúkrahúsið og gagn- fræðaskólinn hefðu verið tekin af heitavatnskerfinu og kynnt með olíu og hið sama gerðist núna. Að áliti Orkustofnunar. svarar ekki kostnaði að bora eftir heitu vatni að sinni, en þegar er fyrir hendi stór kyndistöð, sem fer i gang er hitinn fer niður fyrir ákveðið lágmark. Ingimundur sagði að nógu mikið neysluvatn væri fyrir hendi. en á einhvern dularfullan hátt þá eyðist vatnið óeðlilega hratt og á nú að fara að rannsaka hvað veldur. Inn- takið í bæinn er um 70 sek/l. og er talið að 2000 ntanna bæjarfélag nægi að hafa 35-40 sek/1. lnn í þetta dæmi koma frystihúsin, sem nota gífurlega mikið vatn. Er helst álitið að þar sé nýting vatnsins lélegri en hún þyrfti að vera. Eins og ástandið er núna, þá skortir vatn í efstu húsin í bænum, en slíkt á vart að geta komið fyrir. Til greina kemur að einhverstaðar séu sprungnar leiðslur og þar ,fari einnig mikið vatn til spillis. Neysluvatn Siglfirðinga er yfir- borðsvatn, sem alltaf er mjög við- kvæmt fyrir mengun. Snjótroðari til Siglufjarðar? AÐ SÖGN Kristjáns Möller, íþróttafulltrúa Siglufjarðar, er i athugun að kaupa snjótroðara, annað hvort seint á þessu ári eða snemma á því næsta. Sá troðari sem er verið að athuga er af sömu tegund og sá á Akureyri, Seyðisfirði og í Bláfjöllum. Ólafur ætlar í framboð ÓLAFUR jóhannesson fyrrver- andi forsætisráðherra hefur til- kynnt opinberlega að hann muni gefa kost á sér í framboð í Reykjavík í þingkosningunum í desember. Ólafur sagði að hann hefði tekið þessa ákvörðun eftir langa umhugsun og að hvatningar flokksmanna hefðu átt mikinn þátt í þessari niðurstöðu. Skoðanakönnun verður meðal framsóknarmanna um skipan framboðslista flokksins í Reykjavík og gera ýmsir ráð fyrir að Ólafur verði valinn í 1. sæti listans. Ólafur ætlar að kveðja stuðningsmenn í Norð- urlandskjördæmi vestra á kjör- dæmafundi um helgina. n - jPf! 4 jj i m * i i

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.