Dagur - 30.10.1979, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDOIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg. Akureyri, þriðjudagurinn 30. október 1979 72. tölublað
Jón G. Sólnes
býður sig fram
Jón G. Sólnes hefur
ákveðið að bjóða sig
fram við næstu alþingis-
kosningar. Jón verður á
lista sem er borinn fram
af stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokksins.
Fimm næstu sæti listans
skipa: Sturla Kristjáns-
son fræðslustjóri á Ak-
ureyri, Viktor A. Guð-
laugsson skólastjóri á
Stóru-Tjörnum, Pétur
Antonsson fram-
kvæmdastjóri Krossa-
nesverksmiðjunnar,
Friðrik Þorvaldsson
framkvæmdastjóri
Norðlenskrar Trygging-
ar og Áslaug Magnús-
dóttir, skrifstofustjóri.
Sjötugur
Eggert Ólafsson í Laxár-
dal í Þistilfirði varð
sjötugur 28. október.
Hann hefur lengi verið
gildur bóndi í Laxárdal
og jafnan ótrauður til
fjölþættra félagsmála-
starfa. Dagur árnar af-
mælisbaminu allra
heilla á þessum tíma-
mótum og þakkar löng
og ágæt kynni.
HÚSAVIK:
FELLDU NIÐUR OPINBER
m m
GJOLD og verðid á kögglunum lækkaði verulega
ÞAR SEM heyfóðurskortur er
fyrirsjáanlegur í Þingeyjarsýsl-
um fór Kaupfélag Þingeyinga
þess á leit við bæjarráð Húsa-
vikur að felit yrði niður að-
stöðugjald af heykögglum, sem
fyrirtækið hyggst flytja inn í
héraðið. Er hér um að ræða 600
tonn af heykögglum, og er talið
að aðstöðugjald af þessum
flutningum muni nema um 1
millj. króna. Bæjarráð Húsavík-
ur samþykkti að vísa þessu er-
indi til bæjarstjórnar, er sam-
þykkti það, enda kæmi þessi
niðurfelling bændum til góða í
lægra graskögglaverði.
Við höfðum samband við Finn
Kristjánsson kaupfélagsstjóra K.Þ.,
og spurðum hann um af-
greiðslu þessa máls. Hann lýsti
ánægju sinni með þær undirtektir
er félagið fékk, því þar að auki
hefði verið samþykkt að fella niður
hafnargjöld í sambandi við þessa
flutninga. Einnig að þeir hefðu
komist að hagstæðum samningum
við Ríkisskip á flutningi hey-
kögglanna, sem hefðu verið seldir
með lítilli álagningu. Bændur
pöntuðu fyrirfram og tóku talsvert
af vörunni við skipshlið, þannig að
það var reynt á alla lund að spara til
við þessa flutninga. Finnur sagði að
fyrrgreindar ráðstafanir myndu
hafa lækkað verðið um 1.3 millj-
ónir króna.
Hrossa-
kjötá
norskan
markað
FYRIR HELGINA var á Sauð-
árkróki verið að lóga hrossum,
en 10 smálestir af frystu hrossa-
kjöti eiga að fara á norskan
markað til reynslu eftir helgina.
Það fréttist að Norðmenn
keyptu hrossakjöt vestan um haf
og þætti gott. Skagfirðingar eru
í litlum vafa um, að kjöt af
þeirra stóði sé langt um betra.
Væntanlega reynist það svo því
mikil þörf er á markaði vegna
mikils framboðs á þessari vöru
nú í haust.
Sauðfjárslátrun er lokið. Lógað
var 65.500 fjár og meðalþungi dilka
var 1,8 kg minni en í fyrra, sem þá
var 14,432 kg. Þetta er skaði, sem
nemur á þriðja hundrað millj.
króna. En auk þessa urðu mikil
vanhöld á sauðfé í vor, bæði á full-
orðnu fé og lömbum. Ljóst er, að
nú er fækkað á fóðrum á sauðfjár-
búum, því mörgu fullorðnu var
lógað og nær ekkert af lömbum sett
á í vetur.
Á nokkrum bæjum, fram til dala
og í Fljótum, er unnið við heyskap
síðustu blíðviðrisdaga.
(Samkv. viðtali við Þorkel
Guðbrandsson fulltrúa kaupfé-
lagsstjóra á Sauðárkróki).
Jón Konráðsson, skfðamaður á Ólafsfirði, æfir fyrir veturinn. Til þess að ná
árangrí verða menn að renna sér á „hjólaskfðum" á sumrin og haustin á meðan
snjó festir ekki. Myndina tók Jón Klemensson.
Fyrsta öngstræti
til hægri
Frumsýnt á föstudaginn
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýnir 2. nóvember nýtt íslenskt
leikrit, Fyrsta öngstrœti til hœgri
eftir Örn Bjarnason. Örn er
ungur höfundur, fæddur á Akur-
eyri 1948. Áður hefur verið flutt
leikrit eftir hann, Biðstöð 13, í
útvarpinu (1977).
í Fyrsta öngstræti til hægri er
komið inn á brýnt samfélags-
vandamál — þar greinir frá stúlku
sem hrekst til höfuðborgarinnar,
þar sem hún kemst í sálufélag við
eldri og „reyndari" kynsystur sína,
sem lent hefur utan garðs í „vel-
megunarsamfélagi" okkar. Þetta er
fyrsta leikrit Arnar sem flutt er á
leiksviði. Leikstjóri er Þórunn Sig-
urðardóttir, en Sigurjón Júhanns-
son gerir leikmyndina. Hlutverk
eru nítján og leikendur tíu. Með
aðalhlutverk fara Svanhildur
Jóhannesdóttir (María) og Sunna
Borg (Anna), en hún er nýráðin til
leikfélagsins. Frumsýningin verður
föstudaginn 2. nóvember.
Leikfélagi Akureyrar hefur verið
boðið til Svíþjóðar með þessa sýn-
ingu á norrænt mót landshlutaleik-
húsa (region teater), sem haldið
verður í Örebro 3.-8. desember. Er
hér um að ræða atvinnu leikhús
utan höfuðborganna. Sýningarytra
verða tvær.
Byrjað verður að æfa næsta
verkefni hjá L..A að lokinni frum-
sýningu á Öngstrætinu, en það er
Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht. Leikstjóri er Hallmar Sig-
urðsson. Vegna utanfara L.A. getur
frumsýning ekki orðið fyrr en í
janúar.
Barnaleikritið Galdrakarlinn í
Oz er nú sýnt fyrir fullu húsi, hefur
verið uppselt á allar sýningar fram
að þessu.
Páll Pétursson.
„Meiri
áhugi“
„ÞAÐ ER miklu meiri áhugi f
mönnum en hefur verið áður
þegar ég hef tekið þátt í kosn-
ingum,“ sagði Páll Pétursson,
fyrrverandi alþingismaður á
Höllustöðum í Húnavatns-
sýslu, en hann skipar fyrsta sæti
framboðslista framsóknar-
manna vegna Alþingiskosning-
anna. „Hér gengur a|ft eins og
best verður á kosið og ég held að
menn séu bjartsýnir.“
Sjá framboðslista í
opnu.
Svanhildur og Sigurveig i hlutverkum
sfnum. Ljósm.st. Páls.