Dagur - 06.11.1979, Page 3
Eyjafjarðarprófastsdæmi:
Skírð voru 355 börn
á síðasta ári
Héraðsfundur Eyjafjarðarpró-
fastsdæmis var haldinn á Akur-
eyri sunnudaginn 28. okt. Fund-
urinn hófst með guðsþjónustu í
Akureyrarkirkju kl. 11 f.h. Séra
Birgir Snæbjörnsson messaði.
f veikindaforföllum séra Stefáns
Snævars prófasts á Dalvík setti séra
Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup
fundinn og stjórnaði honum.
Sunginn var héraðsfundarsálmur
Valdimars V. Snævars: „Vér lyft-
um hjörtum hátt frá jörð.“ Undir-
leik annaðist Jakob Tryggvason
organisti. Minnzt var kirkjunnar
manna í leikmannastétt, er látizt
höfðu: Kristjáns E. Kristjánssonar
fyrrv. bónda og hreppstjóra Hellu
Árskógsströnd, Daníels Júlíussonar
bónda Syðra-Garðshorni Svarfað-
ardal, Jóns J. Þorsteinssonar fyrrv.
bamakennara Akureyri og Finn-
boga S. Jónassonar forstöðumanns
Kristneshælis. Fundarmenn risu úr
sætum í þökk og virðingu við
minningu hinna látnu.
í prófastsdæminu er 21 kirkju-
sókn og tvær kirkjur í tveimur
þeirra. Viðgerðir og endurbætur
fara fram um þessar mundir á
nokkrum kirkjum prófastsdæmis-
ins. Safnaðarfulltrúar rita prófasti
fréttabréf um gang mála heima í
héraði, og kemur þar fram að
margir einstaklingar gefa kirkju
sinni fagrar gjafir og vinna fórnfús
störf í söfnuðunum. Akureyrar-
kirkja er daglega opinn yfir sumar-
tímann, og er þar kirkjuvarzla fjór-
ar stundir á dag. Margt manna
kemur í kirkjuna á þessum tíma,
eins og gestabókin sýnir, og fólk á
þá sínar helgistundir.
Öskað eftir
götulýs-
ingu
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
farið þess á leit við Vegagerð
ríkisins að sett verði upp hið
fyrsta götulýsing á Hörgár-
braut, norðan Hlíðarbrautar
norður fyrir byggð, sem nú er að
rísa í Síðuhverfi.
komin frá starfsháttanefnd er gerði
ítarlegar tillögur um nýja starfs-
hætti kirkjunnar. Framsögumaður
þessa máls var séra Þórhallur
Á liðnu ári voru fluttar í pró-
fastsdæminu 395 guðsþjónustur
(404). Innan sviga er samanburður
frá árinu 1977. Skírð voru 355 böm
(351) fermd 409 (414) hjónavígslur
146 (103) jarðarfarir 130 (110) og
altarisgestir 1708 (1303).
Aðalmál héraðsfundarins var
um skipulagsmál prófastsdæma,
stjóm þeirra, embætta, fjárreiður
og fleira. Hér er um að ræða þrjú
frumvörp frá síðasta kirkjuþingi, er
milliþinganefnd var falið að kanna
og leita álits kirkjulegra aðila.
Frumvörp þessi eru upphaflega
Bjargaðist úr Mý-
vatni
(Framhald af bls. 1).
upp í bátinn, en árangurslaust þar
sem borðstokkarnir eru háir.
Ákvað hann því að reyna að
halda í bandið og freista á þann
hátt að ná landi. Eftir hátt í tvær
klukkustundir var hann kominn
svo nálægt áðurnefndum dælu-
pramma að hann freistaði þess að
reyna að komast upp sem honum
tókst, en var þá orðinn mjög
þrekaðursem að líkum lætur. Gat
hann hlýjað sér við heitan blást-
urinn frá kæliviftu diselvélarinn-
ar. Hefur þetta án efa bjargað lífi
Finns.
Verður þessi raun að teljast
með ólíkindum. Mikið kraparek
var í Mývatni og hefur hitastig
þess því verið við frostmark.
Þess má geta að ummræddur
verkstjóri, Bóas Gunnarsson, er
einn af flokksforingjum í björg-
unarsveitinni Stefáni og hefur
hann verið einstaklega heppinn í
leitum og fundið fleiri manns
heila á húfi.
Þá má einnig bæta því við að
alvarleg slys hafa aldrei orðið í
sambandi við Kísiliðjuna —
hvorki viðbyggingu verk-
smiðjunnar eða rekstur og hefur
stundum verið haft á orði að því
væri líkast að þar kæmi til ein-
hver hulinn verndarkraftur. J.I.
Höskuldsson Möðruvöllum en
hann er einn þeirra manna, er sæti
áttu í starfsháttanefnd. Frumvörp
þessi gera ráð fyrir því, að
prófastsdæmin verði sjálfstæðari
starfseiningar en nú er og héraðs-
fundur vettvangur stjórnunar og
skipulags, en ekki eingöngu starfs-
skila. Stefnt er að því að starfs-
kraftar prestanna nýtist sem bezt og
þar komi hver öðrum til hjálpar
eftir því sem aðstæður leyfa. Ætlazt
er til þess að starfsemi leikmanna
verði elfd til muna.
Um frumvörpin urðu allmiklar
umræður. Menn létu í ljós athuga-
semdir sínar, en voru þó á einu máli
um, að hér væri í heild um athygl-
isverðar nýjungar að ræða. Sam-
þykkt var að kjósa þriggja manna
nefnd til þess að vinna úr umræð-
unum á fundinum og skila milli-
þinganefnd fyrir 1. mars á næsta
ári. Sömuleiðis er nefndinni ætlað
að vinna úr athugasemdum sókn-
arnefnda, og óskað eftir að þær
berist nefndinni fyrir 1. febr. n.k. í
nefndina voru kosnir: Séra Vigfús
Þór Árnáson Siglufirði Magnús
Stefánsson bóndi Fagraskógi og
Jón Hjálmarsson bóndi Villinga-
dal.
Gestir fundarins voru Guð-
mundur Einarsson framkvæmda-
stjóri hjálparstofnunar kirkjunnar
og Oddur Albertsson aðstoðar-
æskulýðsfulltrúi: Fluttu þeir ávörp
á fundinum. í nefnd til að gera til-
lögur um bætt útlit og hirðingu
kirkjugarða voru kosnir: Séra Þór-
hallur Höskuldsson Möðruvöllum
Kristján Vigfússon bóndi Litla-Ár-
skógi og Kristinn G. Jóhannsson
skólastjóri Ólafsfirði. —
Minnt var á það böl, sem áfeng-
issjúklingar eiga við að stríða.
Samþykkt var að óska eindregið
eftir því við heilbrigðisráðherra, að
stofnuð verði hjálparstöð fyrir
drykkjusjúka í Kristneshæli í Eyja-
firði.
Fundarmenn þágu hádegisverð
og síðdegiskaffi í boði kirkjunnar,
beggja sóknarnefndanna á Akur-
eyri, svo og bræðrafélags og kven-
félags Akureyrarkirkju. Fundirnir
voru uppi í kirkjunni, en veiting-
arnar í kapellu (safnaðarsal)
kirkjunnar. Héraðsfundurinn var
afar vel sóttur, enda hið bezta
ferðaveður um Eyjafjörð. Fulltrúar
komu frá öllum sóknum prófasts-
dæmisins að tveimur undanskild-
um. Fundinum var slitið með ritn-
ingarlestri, bæn og sálminum: Son
Guðs ertu með sanni.
Samsöngur hjá
Geysi
KARLAKÓRINN
Geysir heldur sam-
söngva á Akureyri nú í
vikunni. Verður sungið í
Borgarbíói n.k. fimmtu-
dag og föstudag kl. 19.00
og laugardag kl. 17.00.
Tónleikar kórsins eru nú
á nokkuð öðrum tíma en
venja hefur verið en
þessi tími ætti ekki að
vera síðri en hinir hefð-
bundnu vortónleikar.
Aðgöngumiðar verða
seldir í Bókval og einnig
við innganginn. Að
loknum þessum sam-
söngvum tekur nýr
söngstjóri Bjarni Jóna-
tansson kennari við
Tónlistarskólann við
kórnum. Einnig er fyrir-
hugað að fá til starfa
með kórnum um tíma
raddþjálfara.
JJ) lk
Vgrum að takaupp^
/^~i^iýja sendingui
]IITTA
gjafavörum frá Finnlandi.\
MIKIÐ ÚRVAL AF
ilmkertum frá Flórida
NÝJAR LEIRVÖRUR FRÁ
Steinbœ og Helga Björgvinssyni\
MUNIÐ OKKAR^f^
VÖNDUÐU
Ipostulínsvöru fráTýfr
-Bing & Gröndal \
Blómabúðin'
LAUFAS
Hafnarstræti 96, sími 24Í
Nýtt:
Dömusloppar,
Náttkjólar,
Náttföt
Dömufatnaður:
Prjónafatnaður
4 gerðir
Pils í úrvali
Leðurhanskar
Nýtt:
Partnerbuxur,
tilboðsverð
Barnakjólar
Barnablússur
Utigallar barna
Barnapeysur
Sokkabuxur Ergee
Þtmr pennmar
erumeira vnðií
KJÖRMARKYÐ*<^M
COOP Jarðarberjasulta 454 g kr. 733
COOP bl. sulta 454 g kr. 537
COOP aprikosusulta 454 g kr. 963
COOP marmilaði 454 g kr. 810
HRISALUNDI 5
DAGUR.3