Dagur - 22.11.1979, Page 1

Dagur - 22.11.1979, Page 1
DAGTJR BLAÐII - ----- Rösklega 200 þúsund hafa sótf um far! 216 komast í Auga vindsins, skip Drake leiðangursins Ung akureyrsk stúlka tekur þátt í leiðangrinum Bjargey, sem lauk stúdentsprófi frá M.A. sl. vor, starfar nú sem erindreki Landssambands íslenskra skáta. I starfi sinu verður hún að ferðast vítt og breitt um landið. Mynd: á.þ. skemmtiferð — þvert á móti. Briggskipið Auga vindsins á siglingu. Skíp DRAKE leiðangursins er 150 tonna briggskip og heitir „The Eye of the Wind“, eða Auga vindsins, en leiðangur þessi hefur verið nefndur Operation Drake eins og áður hefur komið fram. Skipið lagði af stað í október á s.l. ári og lýkur ferðinni í október 1980. Ferð skipsins er skipt niður í níu áfanga sem hver um sig tekur þrjá mánuði. Tveir ís- lendingar hafa þegar farið, en þrír bíða — Bjargey mun fara 20. júlí 1980 og kemur heim í október. Um borð í skipinu er hópur vísindamanna og félagsfræðinga, auk þess sem 24 ungmenni eru um borð í hverjum áfanga. Þeim gefst kostur á að taka þátt í ýmis- konar rannsóknarstörfum og má án efa segja að þessi ævintýraferð verði flestum þeirra ógleymanleg. I upphafi hvers hluta ferðar- innar fer nýr hópur ungmenna um borð í skipið, þannig að hver hópur fyrir sig er í þrjá mánuði um borð. Einnig verður skipt um leiðsögumenn í hverjum áfanga, þannig að leiðsögumennirnir verða sérhæfðir í þeim áfanga sem þeir fara. En hvert er búið að fara og hvert verðu farið? Þegar skipið lagði af stað í nóvember á síðasta ári fór það frá Bretlandi til Pan- ama, þaðan var haldið til Galap- agos-eyja og endað á Fiji-eyjum. Mánuðina júlí til október fór skipið frá Fiji til Nýju-Gíneu og ef við erum ekki þeim mun verr að okkur í landafræðinni — þá er skipið nú norðan við Ástralíu, á leið til Sulawesi. En það er ekki fyrr en skipið fer að nálgast Af- ríku að Bjargey mun stíga um borð — nefnist sá áfangi „Phase 8a“. Vísindastarfinu um borð er stjórnað af sérfræðingum á hverju sviði, sem vinna með ung- mennunum að rannsóknum og öðru slíku. Ungt fólk frá þeim stöðum, sem heimsóttir eru, munu fá tækifæri til að vinna með leiðangrinum, meðan á heimsókninni stendur á viðkom- andi stað. Um borð í skipinu er einföld rannsóknarstofa, sem aðallega er ætluð til rannsóknar- starfa á hafi úti. Segja má að markmiðið með þessari ferð sé að gera ungu fólki kleift að fylgjast með og vinna við ýmiss konar rannsóknir og sýna hvað í því býr. Þau atriði sem mest áhersla hefur verið lögð á að rannsaka eru jurta- og 'dýralíf í regnskógum hitabeltisins, ýmsar fomminjar og líffræðileg atriði. Verndari ferðarinnar er Karl Bretaprins. BJARGEY Ingólfsdóttir, tví- tug Akureyrarmær af Brekk- unni, ætlar utan næsta sumar i dálítið óvenjulegt ferðalag. Hún mun taka þátt i ieiðangri sem nefnist „OPERATION DRAKE“ á ensku máli, en leiðangur þessi er kenndur við Sir Francis Drake sem sigldi umhverfis hnöttinn sællar minningar fyrir 400 árum. Þessi leiðangur hófst í október á síðasta ári og líkur næsta haust. Ferðinni er skipt niður i níu áfanga, sem hver um sig tekur þrjá mánuði. Frá því að ferð þessi var auglýst á siðasta ári hafa rösklega 200 þúsund ungmenni víðsvegar að úr heiminum sótt um að fá að vera með, en aðeins 216 kom- ast um borð í skútuna sem þátttakendur er siglir nú i kjölfar Sir Franeis. Þess má geta að fsland er eina Skandi- naviska landið sem hefur átt þess kost að senda fulltrúa í leiðangurinn. Fékk hugmyndina í flugvél Hún Bjargey kom í heimsókn til okkar á ritstjórn Dags og auð- vitað var hún fyrst spurð að því hvenær hún hefði fengið þá hug- mynd að fara með leiðangrinum. „Ég sat í flugvéi á leið til Ak- ureyrar. Þetta var í ágúst á s.l. ári og ákvað ég að sækja um strax. Annars hef ég haft mikinn áhuga á seglskipum síðan ég skoðaði Gorch Foch, þýska seglskipið, sem kom til Akureyrar fyrir ein- um tíu árum síðan. Við vorum sextíu sem sóttum um að vera fulltrúar íslands, og vorum próf- uð á ýmsan hátt, en að lokum voru 13 valin til lokaprófs í sumar sem leið. Það fólst m.a. í sundi, skyndihjálp og ýmiskonar útilífi. Vegna þessa komu breskir full- trúar frá DRAKE leiðangrinum og af íslenskum prófdómurum má n.a. nefna Hannes Hafstein og Jón Oddgeir. Einnig voru við- staddir prófið þeir Hinrik Bjarnason og Sturla Friðriksson, en þeir eiga sæti í nefnd er hefur með þennan leiðangur að gera. Þórólfur Bjamason á einnig sæti í nefndinni.“ Og hvernig gekk? „Strax og prófinu lauk var ákveðið að piltur frá Húsavik og stúlka úr Garðabæ fengju að fara með leiðangrinum. Stúlkan er núna úti. En af því að hópurinn sem heild hafði staðið sig vel var ákveðið að tvö til viðbótar fengju að fara. Ég var svo heppin að fá jákvætt svar svo og strákur úr Vestmannaeyjum. Ferðin er strangt nám Þú sagðir mér áðan að ísland fengi eitt Norðurlandanna að senda fulltrúa um borð í skútuna. Hvernig stendur á þvi? „Þannig stendur á því að breskur maður, Jim Edwards, er giftur íslenskri konu og búa þau hjónin í Nepal. Edwards á sæti í nefnd þeirri er ferðina skipulagði. Sjálfsagt hefur það ráðið úrslitum að Island fékk að senda fulltrúa að Edwards er kvæntur íslenskri konu. Annars eru þetta einungis lönd innan Breska samveldisins sem geta sent unglinga og ungt fólk um borð í skútuna. Þá þrjá mánuði sem ég verð um borð er ég í hópi 24 ungmenna frá ýmsum löndum. Þetta er því kjörið tækifæri til að kynnast öðrum þjóðum og fá að taka þátt í störfum leiðangursins. Ég mun líka fá tækifæri til að kynnast lifnaðarháttum þeirra þjóða sem við heimsækjum, en ég vil í því sambandi taka það fram að þetta er ekki hugsað sem einber Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið er þetta strangt nám. Hljóta að hafa metnað Ungmennin sem fara, hvort sem það eru íslendingar eða Bretar, eru að mestu leyti styrkt til fararinnar og í Bretlandi þykir fyrirtækjum og félögum það hinn mesti heiður að komast í bækur leiðangursins, en þeirra fyrirtæki sem aðstoða ungmennin er sér- staklega getið í bæklingum, sem dreift er um allan heim. Hinrik Bjamason, þáverandi æskulýðsfulltrúi Reykjavíkur- borgar komst svo að orði s.l. sumar þegar Garðbæingurinn og Húsvíkingurinn voru valdir í leiðangurinn: „Bæjarfélög og fyrirtæki hljóta að hafa metnað fyrir hönd síns æskulýðs til að styrkja hann og styðja til ein- stæðrar farar, sem býðst aðeins örfáum einstaklingum í heimin- um.1 Ungmennin taka þátt f margvfslegum vfsindastörfum f leiðangrum. DAGUR.9

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.