Dagur - 03.01.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGXJR
LXIII. árgangur Akureyri fimmtudagur 3. janúar 1980
1. tölublað
Bærinn styrkir
Bjargeyju
Bæjarráð lagði til á fundi
fyrir jól að Bjargeyju
Ingólfsdóttur yrði veitt-
ur styrkur vegna þátt-
töku hennar í næstsíð-
asta áfanga „Drake“
leiðangursins „Um-
hverfis jörðina“.
Bjargey verður ein af
fimm fslendingum sem
gefst kostur á að fara
með „Drake“ leið-
angrinum. Tugir þús-
unda ungmenna hafa
sótt um að taka þátt í
leiðangrinum, en örfá-
um gefst kostur á að
fara með skútunni
„Auga vindsins.“
Hækkað verð
Vegna hækkana á rekst-
urskostnaði blaðanna
hækkar verð Akureyrar-
blaðanna og auglýsingar
frá og með 1. janúar.
Áskriftarverð Dags
verður nú kr. 1.200 pr.
mánuð og í lausasölu kr.
230 eintakið. Grunnverð
auglýsinga verður kr.
2.200,- fyrir hvern
dálksentimetra.
Milljónir í gas-
og súrmiðstöð
Framkvæmdadeild inn-
kaupastofnunar ríkisins
lagði til við bæjaryfir-
völd að tekið væri tilboði
frá Aðalgeir og Viðar
h/f í gas- og súrmiðstöð
við F.S.A. Tilboð fyrir-
tækisins hljóðaði upp á
tæpar 56 milljónir sem er
99,5% af kostnaðaráætl-
un hönnuða. Bæjarráð
samþykkti tillöguna.
Starfsmanna-
breytingar
Ragnar Ragnarsson,
sem stjórnað hefur Hótel
KEA í tæp 16 ár, lætur af
þeim störfum þann 30.
janúar n.k. Við störfum
hótelstjóra tekur Gunn-
ar Karlsson, sem undan-
farin ár hefur verið önn-
ur hönd Ragnars við
hótelreksturinn.
Bjarni Jóhannesson
tók fyrr á þessu ári við
starfi fulltrúa kaupfé-
lagsstjóra á sjávarút-
vegssviði, en Bjarni hef-
ur um árabil verið fram-
kvæmdarstjóri Útgerð-
arfélags KEA h.f. og
mun einnig gegna því
starfi áfram.
Ritstjóraskipti hjá
Degi e
Erlingur Davíðsson lætur af störfum
UM ÁRAMÓTIN lét Erlingur
Davíðsson af starfi sem rit-
stjóri Dags, en Hermann
Sveinbjörnsson varð ritstjóri
frá sama tíma. Erlingur
Davíðsson hefur verið ritstjóri
Dags um árabil — var áður
afgreiðslumaður blaðsins.
Hermann Sveinbjörnsson hef-
ur starfað sem fréttamaður
ríkisútvarpsins í Reykjavík
síðan í maí 1977. Hann er lög-
fræðingur að mennt.
Erlingur tók við ritstjórn Dags
frá ársbyrjun 1956 af Hauki
Snorrasyni sem gerðist ritstjóri
Tímans. Miklar breytingar hafa
átt sér stað á ritstjóraferli Erlings
— m.a. hefur blaðið keypt offset-
prentvél, flutt í nýtt eigið húsnæði
að Tryggvabraut 12 og aukið
verulega við fjölda áskrifenda.
Dagur hefur undir stjórn Er-
lings og annarra ritstjóra verið
málgagn Norðlendinga og ef vel
gengur verður Dagur væntanlega
fyrsta norðlenska dagblaðið. Ef
það tekst verður framlag Erlings
Davíðssonar mikilvægt spor í þá
átt.
Sjá opnu
Skúlagarður:
Kveikti í
fangaklefa
Eiga togararnir að afla
fyrir erlenda fisksala?
MÁLEFNI Þórshafnarbúa hafa
verið nokkuð í sviðsljósinu að
undanförnu, en þeir hafa m.a.
stungið upp á því að fá breskan
togara til að fiska fyrir frysti-
húsið þar sem íslenskir togarar
fáist ekki til þess. Togarinn
Fontur var seldur til Siglufjarð-
ar, og útgerðarfyrirtækið Tog-
skip h/f á Siglufirði seldi Dag-
nýju SI til Hafnarfjarðar.
Dagný landaði öðru hvoru á
Þórshöfn — mun sjaldnar en
samningar kváðu um, segja
heimamenn, sem sjá fram á at-
vinnuleysi ef ekki rætist úr
hráefnismálum.
Ástandið á Þórshöfn kom til
umræðu á Alþingi fyrir jól er Stef-
án Valgeirsson bar fram eftirfar-
andi fyrirspurnir til sjávarútvegs-
ráðherra um sölu á Dagnýju. Ráð-
herra hefur ekki svarað spurning-
um Stefáns, en mun væntanlega
gera það er þing kemur samaa
„1. Telur ráðherra eðlilegt að
heimila sölu á togskipinu Dagnýju
SI 70, sem hafði togveiðiheimild til
þorskveiða fyrir Þórshöfn, stað-
bundið og skilyrt við það byggðar-
lag, til Hafnarfjarðar, staðar sem
þegar hefur nóg hráefni og gerir nú
út a.m.k. tvo skuttogara til sölu á
ísfiski eingöngu erlendis, án þess að
bjóða áðurgreindu byggðarlagi
forkaupsrétt á skipinu?
2. Telur ráðherra það ekki sann-
gimismál, að byggðarlag, sem fékk
togveiðiheimild á þorskveiðar fyrir
b/v Dagnýju vegna ótryggs at-
vinnuástands, haldi heimildinni,
geti það nýtt sér hana? Væri í
framhaldi af því ekki eðlilegt, að sú
togveiðiheimild, sem b/v Dagný
SKÖMMU FYRIR áramót hélt
Ungmennafélagið Leifur heppni
dansleik í Skúlagarði. Dans-
leiknum var aflýst laust eftir
miðnætti, en þá fylltist húsið af
reyk og rafmagn fór af. f ljós
kom að ungur maður í fanga-
klefa í kjallara hafði kveikt í
dýnu og pappakössum í efri koju
og vildi það honum til happs að
eldurinn fór í rafmagnsleiðslu.
Sturla Sigtryggsson dyravörður
frá Keldunesi fór niður í
reykjarkófið og bjargaði piltin-
um. Var það mál manna að
Sturla hefði sýnt mikið áræði,
því engar reykgrimur er að hafa í
Skúlagarði. Eldurinn var
slökktur án aðstoðar
slökkviliðs.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins var pilturinn settur í fangaklefa
vegna ölvunar og að venju leitaði
lögreglan á honum, en sást yfir
eldspýtnabréf. Pilturinn kveikti í
dýnunni þegar lögreglan hafði
brugðið sér upp í danssalinn.
hefur haft vegna Þórshafnar til
þorskveiða, falli ella niður?
3. Telur ráðherra það samrýmast
hagsmunum þjóðarinnar að stuðla
að kaupum á togaranum til veiða
fyrir fisksölur erlendis, fremur en
til vinnslu hér innanlands, eins og
gert er með sölunni á Dagnýju til
Hafnarfjarðar? Eða ætlar ráðherr-
ann að beita sér fyrir því, að Hrað-
frystihús Þórshafnar fái leyfi til að
kaupa nýjan eða notaðan togara
erlendis frá, eitt sér eða í samvinnu
við aðra, til að tryggja rekstur
hraðfrystihússins þar og koma í veg
fyrir atvinnuleysi á staðnum?
4. Mun ráðherrann beita sér fyrir
því, að togarar og önnur togskip fái
því aðeins fiskvieðileyfi, að þeir
landi afla sínum hér innanlands, ef
fiskvinnslustöð eða stöðvar vantar
fisk til vinnslu og óska að fá afla
þeirra keyptan?
Hljómsveitin hafði spilað 5-6
lög, búið var að spila bingó í dá-
góða stund og dansinn átti að duna
á ný þegar rafmagnið fór og húsið
fylltist af reyk. Þess má geta að
spilað var um ferð til Reykjavíkur
— gárungarnir sögðu að það væri
aðeins önnur leiðin — vinninginn
hlaut Ólöf Sveinsdóttir Krossdal.
Norðurpóllinn við Gránufélagsgötu
í haust. Mynd: á.þ.
Ætla að
kveikja í
Norður-
pólnum
HIÐ NAFNTOGAÐA HÚS
„Norðurpóllinn“ hvarf af
sjónarsviðinu sl. föstudag.
Kaupfélag Eyfirðinga hafði
gefið íþróttafélaginu Þór
húsið með þeim skilmálum
að það yrði rifið. Spýtna-
brakið var flutt á íþrótta-
svæði Þórs, en þar verður
álfabrenna og dans n.k.
sunnudag klukkan 17.
Hilmar Gíslason, yfirverk-
stjóri hjá Akureyrarbæ, hafði
umsjón með niðurrifinu. Hann
sagði í samtali við Dag að verk-
ið hefði hafist á föstudags-
morgni og því lauk um nónbil á
laugardag. „Þetta var miklu
léttara en ég reiknaði með. Það
tóku 10 menn þátt í verkinu —
mest sannfærðir Þórsarar,"
sagði Hilmar. „Hins vegar er
ekki nóg að brenna Norður-
pólnum — við eigum eftir að fá
okkur meira í brennuna.“