Dagur - 03.01.1980, Page 7

Dagur - 03.01.1980, Page 7
Skræpótti fuglinn Skáldsaga eftir Jerzy Kosinsky, íslenskuð af Gissuri Ó. Erlingssyni Margt bóka hefur komið á mark- aðinn síðasta mánuðinn, svo sem venja er á þessum árstíma. Að venju er þar að finna margt góðra verka, en fleiri þó af lakari gerð, bækur sem ekki er ætlað langt líf en geta þó kannski selst vel í jólaösinni og fært þeim, sem að útgáfu standa einhverjar krónur í vasa. Einkennilega fátt þýddra önd- vegisrita kemur á markaðinn að þessu sinni. Þýddu bækurnar eru yfirleitt væmnar ástarsögur eða reyfarar í viðhafnarútgáfu, svo að nota megi til jólagjafa. örfáar undantekningar er þó að finna. Ein þeirra er Skræpótti fuglinn, eftir Bandaríkjamann af pólskum ættum, að ég hygg. Ekki hafði ég áður heyrt hans getið, en þetta verk, sem mun vera fyrsta skáldsaga hans (fleiri hafa komið út síðar), er svo eftirtektarvert, vel skrifað og kyngimagnað, að því verður hiklaust að skipa á bekk með fremstu bókmenntaverkum. Ekki spillir, að þýðingin er mjög vel gerð. Ég hef að vísu ekki lesið bókina á frummálinu, en hin ís- lenska gerð ber það með sér, að hún hefur verið vel unnin, og málið er ósvikin íslenska. Það er Skjaldborg hf., sem sent hefur bók þessa á markað, og eiga forráðamennimir, Björn og Svavar, þakkir skildar fyrir að koma þessu ágæta verki á fram- færi við íslenska lesendur. Mig grunar, að fleiri forlög hafi áður átt þess kost að fá bókina til út- gáfu, en horfið frá því ráði vegna þess, hve margar frásagnir í bók- inni séu af ljótum atburðum. Og víst verður því ekki neitað, að margt ljótt kemur þarna á papp- írinn. En ekki er þó allt með einu marki brennt. Víða glittir einmitt á demantana í mannssálinni, hið fagra og góða. Hvort fyrir sig verður auðvitað áhrifameira, þegar andstæðurnar eru miklar. En svo verður bók heldur aldrei metin eftir því, hvort hún segir frá fögmm eða ljótum atburðum, heldur því, hvort vel eða illa er sagt frá, hvort uppbyggingin er eðlileg eða tilgerð ein. Islend- ingasögur margar væru víst ekki hátt skrifaðar, ef aðeins væri krafist frásagna af fögrum verk- um, og muni ég rétt eru ekki frá- sagnir í bók bóka, bíblíunni, ein- vörðungu af því góða. Mér var álíka innanbrjósts við lestur þessarar bókar, og þegar ég las Aðventu Gunnars Gunnars- sonar fyrsta sinni. Ég efaðist ekki um sannleiksgildi hvers orðs og hverrar setningar. Er það ekki Veiðimenn — Fluguköst Fyrsta kastnámskeið vetrarins hefst í íþróttahúsi Glerárskóla laugardaginn 12. janúar kl. 8.30 f.h. Öll nauðsynleg tæki á staðnum. Látið skrá ykkur sem fyrst. Upplýsingar í síma 21208 og 25513. Stangveiðifélagið Flúðir Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á sjötíu ára afmœli mínu 24. desember sl. með blómum, símskeytum, símtölum, gjöfum og heimsóknum. Lifið heii KARLOTTA JÓHANNSDÓTTIR. Ykkur sem munduð mig sextugan 20. nóvember síðastliðinn, sendi ég innilegar þakkir fyrir gjafir skeyti og aðrar vinakveðjur. ÓLAFUR BALDVINSSON, Gilsbakka. Hjartans þakkir sendi ég börnum mínum, tengda- börnum og barnabörnum, skyldfólki og vinum nœr og fjœr, sem glöddu mig á 90 ára afmceli mínu þann 23. des. sl. með heimsóknum gjöfum, skeytum og blómum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. JÓHANN GUÐMUNDSSON, frá Hauganesi. Við undirritaðir sendum öllu starfsfólki á Dvalar- heimilinu á Dalvík okkar innilegustu óskir um gleðilegt nýár og þökkum því kærlega fyrir liðna árið og alúð og lipurð í starfi og prýðilega þjónustu í alla staði. Þá þökkum við féiagasamtökum fyrir rausnarlegar jólagjafir. Ennfremur sendum við öllum þeim, sem komið hafa á heimiiið til að skemmta okkur, inni- legar þakkir, en þeir eru nú þegar orðnir fjölmargir, þar á meðal fjölmennir kórar af Dalvík og nágrenni. Væntum við þess, að svo verði fram haldið sem hafiö er. Með kærri kveðju, íbúar Dvalarheimilisins á Dalvík. einmitt einkenni snilldarverka, að svo fari fyrir lesandanum. Annað er það, að lesandanum verður kannski að lestri loknum á að hugsa: Hvernig gat nokkurt barn lifað af allar þær hörmung- ar, sem frá segir í bók þessari. Sex ára fór drengurinn á vergang meðal fólks, sem var frumstætt, fátækt og sundrað af margra alda áþján. Þar við bætist, að hann lendir í versta helvíti síðari heimsstyrjaldarinnar. En hefur það ekki svo oft komið fyrir, að menn hafa lifað af raunir og erf- iðleika, sem virtust óyfirstígan- legir. Er það ekki alltaf að sann- ast, að „lífið það er sterkara en dauðinn?" Bókaforlagið Skjaldborg, sem nú hefur tekið ótvíræða forustu í bókaútgáfu norðanlands, gefur út margar bækur að þessu sinni, sumar góðar og ágætar en aðrar lakari. Með fullri virðingu fyrir þeim öllum, efast ég ekki um, að Skræpótti fuglinn muni lifa þær flestar og verða þegar frá líður talin einna merkust bók, þeirra er út komu á íslandi árið 1979. Þorsteinn Jónalansson. Starfsstúlka óskast Upplýsingar hjá verkstjóra Sana h.f. Starfsmenn óskast einnig rafsuðumaður. Útetan einangrun Óseyri 18. Tölvudeild KEA óskar eftir að ráöa í starf tölvustjórnanda. Upplýs- ingar um starfið í síma KEA 21400 hjá Gunnari Hallssyni og Kára I. Guðmann. Minningargjafir og áheit 1978-1979 í byggingarsjóð Glerárkirkju. Seld minningar-spjöld, til minningar um eftirtalin: 1978: Ingvar Ólafsson 1.000. Stefán Guðjónsson 1.000. Hjálmar Halldórsson 2.000. Guð- mund Stefánsson 3.000. Hlyn Snæ Þor- móðsson 500. Magnús Pétursson 3.000. Zóphanías Ámason 3.000. Rósu Thoraren- sen 3.000. 1979: Hallfríði Sigurðardóttir 14.000. Sæbjörgu ísleifsdóttur 2.000. Guðrúnu Jónsdóttur 4.000. Ara Kristjánsson 1.000. Kristín Kristjánsdóttir 1.000. Sigríði Sigtryggs- dóttur 2.000. Karl Jónsson 1.000. Vigni Ársælsson 3.000. Baldur Jónsson 1.000. Jón Sveinbjörnsson 2.000. Samtals 51.000. Tökum að okkur hreinsun og viðgerð á Ijósritunarvélum frá 3ja til 30. jan. n.k. fbúðin h.f. Radíódeild Jólahrað- skákmót Skákfélags Akureyrar verður haldið í Félagsborg föstu- daginn 4. janúar klukkan 19.30. Fjölmennið. stjórnin. Gjafir og áheit frá Ö.Á. 5.000. F.S. 5.000. S.S. 1.500. S.E.J. 2.500. gjöf H.S. 11.000. Gjöf frá Kirkjukór Lögmannshlíðar 119.500. — Samtalskr. 144.500. ' J. Sveinsdóttir. Landshappdrætti ung- mennafélaganna 1979. Vinningsnúmer: f Kr. No. l. Myndsegulband .... 1.200.00 6591 2. Litasjónvarp 700.000 9781 3. Plötuspilari 4. Stereo transitor- 560.000 7598 tæki með öllu 5. Transistortæki 240.000 6832 með segulbandi .... 6. Transistortæki 120.000 11047 með segulbandi .... 7. Transistortæki 120.000 7579 með segulbandi .... 8. Transistortæki 120.000 14741 með klukku 9. Transistortæki 30.000 1576 með klukku 10. Transistortæki 30.000 8143 með klukku 1 l.Transistortæki 30.000 13862 með klukku 12. Transistortæki 30.000 13141 með klukku 13. Transistortæki 30.000 16346 með klukku 14. Transistortæki 30.000 19750 með klukku 15. Transislortæki 30.000 3580 með klukku 16. Transistortæki 30.000 18822 með klukku 17. Transistortæki 30.000 14218 með klukku 18. Transistortæki 30.000 3981 með klukku 19. Transistortæki 30.000 500 með klukku 20. Transistortæki 30.000 2498 með klukku 30.000 10361 Akureyringar Flugeldasala H.S.S.A. í Alþýðuhúsinu verður oþin á föstudaginn frá kl. 13.00 til 18.00 Þar verða á þoðstólum þlys og flugeldar fyrir þrettándann. Á álfabrennu Þórs á sunnudaginn verðum við með glæsilega flugeldasýningu, sem bæjarbúar eru hvattir til að sjá. Óskum öllum bæjarbúum gleðilegs árs og þökkum veittan stuðning á sl. ári. Hjálparsveit Skáta Akureyri Norðurverk h.f. óskar starfsfólki sínu og viðskiptavinum farsæls nýs árs, þakkar viðskiptin á liðnu ári og vonast eftir áframhaldandi góðri samvinnu á nýju ári. Einnig viljum við nota tækifærið og tilkynna breytt heimilisfang. Frá og með 1. janúar 1980 verður skrifstofa okkar að Óseyri 16, Akureyri, símanúmer verður óbreytt 21777. Norðurverk h.f. Óseyri 16, pósthólf 161 600 Akureyri sími 21777 Samtök herstöðvarandstæðinga halda 13. gleði fyrir alla fjölskylduna í Alþýðuhúsinu 6. janúar n.k. kl. 2 e.h. Dansað í kringum jólatré, leikþáttur sem þörn flytja, leikir og ávörp og jólasveinninn kemur í heimsókn. Kaffi, kökur og gosdrykkir. Aðgangseyrir aðeins kr. 1.000,- öll fjölskyldan velkomin. Mætum öll ungir sem aldnir. DAGUR.7

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.