Dagur - 08.01.1980, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 8. janúar 1980
2. tölublað
m \daYé\ai
■ =
Nýr söngstjóri
frá Noregi
Karlakórinn Heimir á
Sauðárkróki fékk nýjan
söngstjóra í haust. Sá er
norskur að ætt og uppruna,
kennir við Tónlistarskóla
Skagafjarðar. Hann heitir
Sveinn Arni Korcham.
Kórinn hefur þegar haldið
eina söngskemmtun. G.Ó.
*
Hlaut fálka-
orðuna
í síðustu viku sæmdi
forseti íslands Arngrím
V. Bjarnason, fv. aðal-
fulltrúa KEA, riddara-
krossi, fyrir félagsmála-
störf.
*
Eitt blað í viku
í janúar
Auglýsendur og áskrif-
endur Dags eru beðnir
að athuga að í janúar
kemur Dagur út einu
sinni í viku — á þriðju-
dögum. Auglýsingar
þurfa að hafa borist af-
greiðslu blaðsins fyrir kl.
19 á mánudagskvöld.
*
Þorrablót
framsóknar-
manna
Fyrirhugað er þorrablót
og kosningahátíð fram-
sóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra í
Hlíðarbæ föstudaginn
25. janúar n.k. Nánar
verður greint frá þessu í
næsta blaði.
*
Húsmæðra-
fundur
Fyrirhugað er að halda
fund með húsmæðrum á
Vopnafirði í byrjun
þessa árs. Fenginn
verður erindreki með
matvælakynningu eða
annað áhugavert. Kynnt
verður starfsemi félags-
ins og leitað eftir skoð-
unum húsmæðra á
þjónustu. Kaffiveitingar
verða á boðstólum. Slík-
ir fundir hafa verið fjöl-
sóttir og þótt gagnlegir,
þar sem þeir hafa verið
haldnir.
Tveir stungnir til bana
um borð í varðskipinu Tý
LAUST FYRIR kl. 19 á gær
lagðist varðskipið Týr að
Torfunefsbryggju á Akureyri,
með lík tveggja ungra skip-
verja. Þeir létust af áverkum
sem skipsfélagi þeirra veitti
þeim með hnífi í gærmorgun
þegar skipið var statt 50 sjó-
mílur norður af Grímsey. Sá
sem verknaðinn framdi hvarf
fyrir borð og fannst ekki
Atburður þessi gerðist
klukkan 9.30 í gærmorgun.
Aðdragandinn er ekki fullljós,
en voðaverkið mun hafa gerst
í eldhúsi skipsins. Flugvél frá
Landhelgisgæslunni kom til
Akureyrar á sjötta tímanum í
gærdag með menn frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og
hófst frumrannsókn málsins
strax og skipið lagðist að
bryggju. Hvorki illindi né
áfengisneysla munu hafa
valdið þessari ógæfu.
Þeir sem létust hétu
Jóhannes Ólsen, 21 árs,
Meistaravöllum 25, Reykja-
vík, Einar Ó. Guðfinnsson, 18
ára, Skriðustekk 13, Reykja-
vík og nafn mannsins sem er
saknað, er Jón D.
Guðmundsson, 32ja ára,
Reykjavík.
Rannsóknarlögreglumenn komu frá Reykjavik með flugvél Landhelgisgæslunnar
og hófu þegar frumrannsókn málsins. Mynd: á.þ.
Skipverjar á varðskipinu Tý sfóðu heiðursvörð, þegar lík skipsfélaga þeirra voru borin í land á Torfunefsbryggju. Mynd: á.þ.
Framtalseyðublöðin koma í næstu viku:
Frestur gefinn
til 10. febrúar
NÚ ER verið að prenta skatt-
framtalseyðublöð, sem vænt-
anlega fara að berast skatt-
greiðendum í næstu viku, að
sögn Halls Sigurbjörnssonar,
skattstjóra i Norðurlandsum-
dæmi eystra. Byrjað var að
senda út launamiða í gær-
morgun.
Framtalseyðublöðin verða
mjög frábrugðin því, sem þau
hafa verið undanfarin ár og má
búast við því að þessi árlegi við-
burður, að telja fram til skatts,
vefjist venju fremur fyrir mönn-
um. Hallur Sigurbjörnsson sagði,
að framtalið væri þó ekki eins
flókið og það liti út fyrir að vera í
fljótu bragði. Þó ætti sú staðhæf-
ing ef til vill við núna, sem margir
hafa haldið fram, að skattamálin
yrðu flóknari og flóknari með
hverri einföldun sem gerð væri á
þeim. Væri því ekki óeðlilegt, þó
ýmsum óaði við því að telja fram
til skatts í þetta sinn. Hallur sagði
að leiðbeiningar um skattframtöl
væru væntanlegar um leið og
eyðublöðin kæmu og ættu þær að
auðvelda mönnum mjög mikið
að telja fram.
Framtalsfresturinn hefur verið
lengdur og verður nú til 10.
febrúar í stað 31. janúar eins og
verið hefur. Lenging frestsins
stafar ekki fyrst og fremst af því,
að nú kemur nýtt framtalseyðu-
blað til sögunnar, heldur vegna
þess, að reynsla undanfarinna ára
hefur sýnt. að fólk þarf lengri
frest. Skattstjóri sagði að með til-
komu þessa lengri frests, mætti
búast við því að erfiðlegar gengi
að fá framlengingu, eins og svo
algengt hefur verið á undanförn-
um árum. Nú þyrftu menn að
sýna fram á að þeim væri nær
ómögulegt að telja fram á réttum
tíma, vegna fjarveru sjúkdóma
o.s.frv. ef þeir ætluðu að fá fram-
talsfrestinn lengdan.