Dagur - 22.01.1980, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 22. janúar 1980
4. tölublað
Bjóða Pósti og síma:
30 milljóna vaxta-
laust lán í eitt ár
SVEITARSTJÓRNIR Öngulsstaða- og Hrafnagilshrepps
hafa boðist til að útvega Pósti og síma 30 milljóna króna
vaxtalaust lán til eins árs, gegn því, að lagður verði sjálf-
virkur sími, samkvæmt áætlun á árunum 1980-81, í þá hluta
sveitarfélaganna, sem ekki hafa nú þegar þannig síma.
Þá hafa hrepparnir boðið afnot
af sérhönnuðu húsnæði, sem þeir
eiga að Hrafnagilsá, endurgjalds-
laust um nokkur ár, ef henta
þykir. Þá kemur einnig til greina,
til að greiða enn frekar fyrir þessu
máli, að heimamenn leggi til tæki
til afnota við lagningu símans,
sem gæti orðið í formi láns til
viðbótar þessum 30 milljónum,
sem hrepparnir bjóðast til að út-
vega.
Staðið hefur til í nokkur ár, að
leggja sjálfvirkan síma I hrepp-
ana. Af því hefur hins vegar ekki
orðið, þar sem fjármagn til fram-
kvæmdanna hefur sífellt verið
skorið niður. Sjálfvirkur sími er
að hluta til í báðum hreppunum,
og á þeim bæjum er síminn opinn
allan sólarhringinn. Sveitasíminn
er í 90-100 húsum í báðum
hreppunum, og þar geta menn
hins vegar aðeins hringt frá kl.
9-12 og 15-18 virka daga og kl.
11-15 á helgum dögum. Þetta
veldur miklum óþægindum og
getur raunar skapað stór hættu 1
þessum fjölmennu sveitum, ef t.d.
eldur kviknar og ófært er. Mikil
óánægja er með þetta misræmi og
þann aðstöðumun, sem þannig er
milli fólks í sömu sveitarfélögum.
Oddvitar hreppanna skrifuðu
póst- og símamálastjóra bréf, þar
sem ofangreind tilboð voru
kynnt, þann 7. janúar s.l., og
tvisvar á síðasta ári voru send
bréf, svipaðs efnis, til Ragnars
Arnalds, þáverandi samgöngu-
ráðherra.
Sæstrengur yfir Eyja-
fjörð?
Strengurinn boðinn út án þess að
f jármagn sé fyrir hendi
RAFMAGNSVEITUR ríkisins
hafa óskað eftir tilboðum í 12
Kw sæstreng yfir Eyjafjörð, en
800 undir-
skriftir
SAMSTARFSHÓPUR um
eflingu æskulýðsheimilisins
Dynheima hefur nýlega safn-
að tæplega 800 undirskriftum
til styrktar kröfum sínum um
aukið húsrými fyrir æsku-
lýðs- og tómstundastarfið.
Æskulýðsráð Akureyrar á
hluta hússins, en kassagerð
KEA neðri hæðina, sem ung-
lingarnir hafa augastað á.
Sendu þeir því Vali Arnþórs-
syni, kaupfélagsstjóra, undir-
skriftarlistana í síðustu viku.
Valur sagði í viðtali við Dag,
að hann myndi leggja erindi
unglinganna fyrir stjórn kaup-
félagsins, og kvaðst ekki efast
um, að vel yrði brugðist við.
Hann sagði að stefnt hafi verið
að því, að láta bæinn fá þetta
húsnæði undir kassagerðina.
Hann sagði mögulegt að þetta
mál leystist á þessu ári.
með tilkomu hans mun raf-
magnsskortur á Grenivík og ná-
grenni heyra sögunni til. Ástæð-
an fyrir lagningu strengsins er
sú að Svalbarðsstrandarlínan er
fyrir löngu orðin yfirlestuð og
endurbygging hennar ákaflega
kostnaðarsöm. Þá mun sæ-
strengurinn tryggja rekstrarör-
yggi RARIK og gera Grenvík-
ingum kleift að hita hús sín upp
með raforku.
„í tillögum okkar til fjárlaga
1980 er áætlað að verja 230
milljónum króna til þessa verks.
Þetta hefur ekki verið samþykkt, en
rafveitumar hafa undanfarið barist
fyrir framgangi málsins og nú var
strengurinn boðinn út upp á von og
óvon,“ sagði Kristján Jónsson raf-
magnsveitustjóri. „Við gerum þetta
í þeirri von að þegar tilboðin koma
fáum við samþykki stjórnvalda til
að vinna verkið, en það er engan
veginn víst ennþá.“
Kristján sagði að nauðsynlegt
hefði verið að bjóða strenginn út nú
— ef það biði, fengist strengurinn
ekki afgreiddur í tæka tíð, þ.e. fyrir
DAGUR
Tvö blöð f viku!
DAGUR kemur nú aftur út tvis-
var í viku. Auglýsendur eru
minntir á að skilafrestur auglýs-
inga í fimmtudagsblaðið er
klukkán nitján á miðvikudögum.
Síðustu forvöð til að koma aug-
lýsingum í þriðjudagsblaðið er
klukkan 19 á mánudögum.
haustið. „Ef við fáum grænt Ijós frá
yfirvöldum er stefnt að því að
strengurinn komist í gagnið fyrir
haustið. Af hálfu Rafmagnsveitna
ríkisins er mikil áhersla lögð á að
þetta mál nái fram að ganga, því
það er orðið mjög brýnt. Sæstreng-
ur verð fyrir valinu, en annars hefði
þurft að byggja Svalbarðsstrandar-
línuna upp. Með því að leggja sæ-
strenginn fáum við hring í kerfið
frá Akureyri og út með Eyjafirði að
norðanverðu, yfir fjörðinn sagði
Kristján Jónsson að lokum.
Hitaveitan:
Horft til Súlna af Torfunefsbryggju. Mynd: á.þ.
Tengingar hafnar
STARFSMENN Hitaveitu Ak-
ureyrar eru farnir að tengja hús
á nýjan leik. Nú er verið að
tengja hús við hitaveituna á
Oddeyri og um mánaðamót
verða tengingar hafnar í
Glerárhverfi. Húseigendur sem
ekki hafa fengið hitaveitu, en
búa í tengdum hverfum, geta
fengið tengingu nú þegar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hitaveitu Akureyrar geta húseig-
Svavar hættir
SVAVAR Gestsson skilaði í
dag umboði sínu til myndunar
meirihlutastjórnar. Líklegt
þykir að Benedikt Gröndal fái
boltann næst, en ósennilegt er
talið að hann nái árangri.
Allt er því í óvissu um hvað
gerist í stjórnarmyndunar-
málunum. Talsvert er rætt um
utanþingsstjórn, sem einu
lausnina, en margir eygja
ennþá von um vinstri stjórn.
Svavar Gestsson mun hins
vegar vera þeirrar skoðunar,
að nú sé útséð um að takist að
mynda slíka stjórn.
endur við eftirtaldar götur fengið
tengingu nú þegar: Sólvellir, Víði-
vellir, Reynivellir, Grenivellir.
Ránargata, Ægisgata, Hriseyjar-
gata (norðan Eiðsvallagötu) og
Eyrarvegur. Bjarmastígur er tilbú-
inn til tengingar.
Seinni hluta vikunnar verður
farið að tengja hús við Fjólugötu,
Grænugötu Eiðsvallagötu, Norð-
urgötu (suður að Eiðsvallagötu),
Lundargötu, Fróðasund, Gránufé-
lagsgötu og Strandgötu (vestan
Norðurgötu).
í næstu viku verða tengd hús við
syðri hluta Norðurgötu og húsin
austur að Hjalteyrargötu. Eftir
mánaðamótin verður farið að
tengja hús við „holtin" í Glerár-
hverfi. Um svipað leyti verður farið
að tengja í Síðuhverfi.
Öryrkjar fá
ókeypis aðgang
BÆJARRÁÐ hefur lagt til að
fötluðu fólki, svo og öðrum ör-
yrkjum, sem ráðlagt er af
sjúkraþjálfara eða lækni að iðka
sund, sem einn þátt í endur-
hæfingu, verði veittur ókeypis
aðgangur að sundlaug bæjarinsf
Miðbæjarskipu-
lagið
TILLAGA AÐ miðbæjarskipu-
lagi, ásamt með fylgigögnum og
skýringaruppdráttum, verður
almenningi til sýnis í sal bæjar-
stjórnar að Geislagötu 9 (4.
hæð) frá og með 21. janúar til og
með 29. febrúar. Bæjarbúum og
öðrum, sem hér eiga hagsmuna
að gæta, er bent á að frestur til
að skila athugasemdum við til-
löguna er til 14. mars n.k. At-
hugasemdir skulu vera skrifleg-
ar og skal þeim skilað til skrif-
stofu bæjarstjóra. Sjá nánar
auglýsingu í blaðinu í dag.
Málið verður tekið fyrir á fundi
bæjarstjórnar, sem haldin er i
dag.
Dalbær
í SÍÐUSTU viku var tekið í
notkun nýtt heimili fyrir aldr-
aða á Dalvík. Vegna plássleysis
í blaðinu var ekki unnt að
greina frá þessum merka at-
burði. en síðar verður heimilið
sem hlaut nafnið Dalbær
heimsótt og íbúar þess
Jón fær lán
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt
að Jóni Egilssyni verði veitt lán
til kaupa á fólksflutningabifreið
í Þýskalandi til notkunar
strætisvagnaakstri á Akureyri