Dagur - 05.02.1980, Page 6
Lionsklúbburinn Hængur. —
Fundur n.k. fimmtudag kl.
19.15 íH-100
Lionskúbburinn Huginn. —
Fundur að Hótel K.E.A.
fimmtudaginn 7. febrúar kl.
12.15.
Aðalfundur Náttúrulækninga-
félags Akureyrar verður
haldinn laugardaginn 9.
febrúar kl. 2 síðd. í kaffi-
stofu Amaró. Mætið vel og
takið með nýja félaga.
Stjórnin.
I.O.O.F. 2 —161288'/2
□ RÚN 5980267 — 1 Erl.
Konur í styrktarfélagi Vangef-
inna fundur á Sólborg mið-
vikudaginn 13. febrúar kl.
20.20 Aðalfundur-Þorra-
matur. Stjórnin.
Svalbarðskirkja. Guðsþjónusta
sunnudaginn 10. febrúar
n.k. kl. 2 e.h. Sóknarprestur.
Lögmannshlíðarkirkja. Messað
verður n.k. sunnudag kl. 2
e.h. Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 1.30 B. S.
Möðruvaliaklausturprestakall.
Guðsþjónusta í Glæsibæ
n.k. sunnudag 9. febr. kl. 2
e.h. Aðalsafnaðarfundur
eftir guðsþjónustu. Sóknar-
prestur.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n.k. sunnudag
kl. 11 f.h. öll börn velkomin.
Sóknarprestar.
Akureyrarkirkja messað n.k.
sunnudag kl. 2 Biblíudagur.
Sálmar 288, 166, 369, 295, 9.
P.S.
Takið eftir. Spilakvöld hjá
Sjálfsbjörg í Alþýðuhúsinu
fimmtudaginn 7. febrúar
n.k. kl. 8.30 síðd. Allir
velkomnir. Stjórnin.
Kristniboðshúsið Zfon. Sunnu-
daginn 10. febr. n.k. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. oo f.h.
Fundur í Kristniboðsfélagi
kvenna kl. 4.00. Samkoma
kl. 20.30. Ræðumaður
Reynir Hörgdal. Allir vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 10. febr. kl. 13.30
sunnudagaskóli. kl. 17 al-
menn samkoma. Mánudag-
inn 11. febr. kl. 16 heimilis-
samband. Þriðjudaginn 12.
febr. kl. 20.30 Hjálparflokk-
ur Ath. 10-18. febr. Barna-
vikan. Barnasamkomur
hvern dag kl. 17.30. Fjöl-
breytt dagskrá. Allir krakkar
velkomnir.
Fósturmóðir mín
ÓLÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja Árgerði, Saurbæjarhreppi,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfararnótt
31. janúar, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn
9. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar láti Elliheimili
Akureyrar njóta þess.
Aðalheiður Axelsdóttir.
Við þökkum af alhug auðsýnda vináttu og hluttekningu
við andlát og útför
ÞURÍÐAR VILHJÁLMSDÓTTUR,
fyrrum húsfreyju á Svalbarði í Þistilfirði.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Minning
Kristján Pétursson
DAGUR.
Hr. Ritstjóri:
Hermann Sveinbjörnsson.
Tryggvabraut 12.
600 Akureyri.
Athuasemd varðandi grein í Degi 24. 01 ’80 undir yfirskrift.:
„Saurbæjarhreppur: Símamál í ólestri.
í þessari grein kemur fram ábending frá Svanlaugi Einarssyni
bónda, eins og segir í greininni;, að það geti tekið óeðlilega langan
tíma að ná sambandi við símstöðina i Saurbœ, jafnvelþó reynt sé á
auglýstum afgreiðslutíma, sem eru sex stundir á dag. Hrepps-
nefndin hefur reynt að fá úrbœtur, en ekki þokast til betri vegar. “
Hér virðist vera um einhvern misskilning að rœða og œtla égþví
hér á eftir, að veita upplýsingar, sem ég vœnti að megi verða tilþess
að leiðrétta þennan misskilning.
í fyrirspurn til varðstjóra landsímaafgreiðslunnar hér á Akur-
eyri hafa þeir tjáð mér, að símstöðin í Saurbœ sé alltaf inni á
afgreiðslulima og hafa engar kvartanir borist þar um. Ennfremur
að stöðin óski iðulega eftir afgreiðslu utan auglýsts afgreiðslutíma
ogsé hún veitt. Stöðvarstjórinn í Saurbœ hefurjafnframt tjáð mér,
að engar kvartanir hafi borist frá hreppsnefnd um, að illa sé svarað
á auglýstum afgreiðslutíma. Mér er hinsvegar kunnugt um, að
oddvitar hafa fyrir hönd hreppsnefnda í fram Eyjafirði margsinnis
óskað eftir úrbótum í símamálum með hliðsjón af handvirka
símakerfinu og hins stutta afgreiðslutíma. En þeir hafa aldrei
kvartað nema síður sé undan þjónustu, sem starfsfólk þessara
stöðva hefur veitt á afgreiðslutima, en hinsvegar bent á, að iðulega
fái þeir afgreiðslu utan tíma.
Ég vil vekja athygli á þvi, að stjórnvöld hafa aldrei œtlaðpóst og
simamálastofnuninni að reka öryggisþjónustu á símstöðvum, sem
eru opnar skemur en 24 klst. á sólarhring og símataxtar ekki við
það miðaðir. Hinsvegar hafa stjórnvöld ákveðið sólarhringsþjón-
ustu á tiltölulega fáum landsímastöðvum á landinu og frá upphafi
landssímans, hefur það œtíð viðgengis, að oddvitar hafa samið
sérstaklega við hlutaðeigandi símstöðvarstjóra um að svara neyð-
arhringingum utan þjónustutíma frá notendum handvirkra síma,
sem stöðinni tilheyrðu og hefur stofnunin þá lagt til nauðsynlegan
búnað að kostnaðarlausu. Hefur þetta fyrirkomulag gefist vel eftir
atvikum við þœr ófullkomnu aðstœður, sem handvirku símakerfi
fylm-
í beinu framhaldi af fjölgun landsímastöðva með sólarhrings-
þjónustu hefurpóst og simamálastofnunin unnið markvisst aðþví,
að leggja handvirku símstöðvarnar niður og tengja handvirka síma
við símstöðvar með sólarhringsþjónustu og má í því sambandi
nefna símstöðvar eins og Skóga í Fnjóskadal og Bœgisá í Öxnadal
þar sem simar notenda voru tengdir tilsimstöðvarinnar á Akureyri
og nú siðast voru simstöðvarnar Lindarbrekka og Hafrafellslunga
í Öxarfirði lagðar niður í þessum mánuði og um 70 notendasimar
tengdir til símstöðvarinnar á Húsavik.
í fram Eyjafirði hefur þetta verið meiri erfiðleikum bundið og
áœtlaðar framkvœmdir dýrar, en nú liggur fyrir hjá stjórnvöídum
til ákvörðunar tillaga um lagningu jarðsíma á þessu ári í Hrafna-
gilshrepp og hluta Öngulsstaðahrepps, sem eftir er frá fyrri fram-
kvcemdum og í framhaldi af því, að setja upp á nœsta ári sjálfvirka
símstöð í skólahúsið að Hrafnagili. Þessi framkvœmd erácetluð að
kosti um 130 m. kr. þar af er jarðsímakerfið um 60 m. kr.
Koslnaður við framkvœmdir í Saurbcejarhreppi er áœtlaður um
120 m. kr., en sú áœtlun hefur enn ekki verið lögð fram, en ráðgera
má, að það teljist eðlilegt að leggja hana fram þegar búið er að
taka ákvörðun um Hrafnagils og Öngulsstaðahrepp.
Ef áœtlunin um framkvœmdir í Hrafnagils og Öngulsstaða-
hreppi verður ákveðin, eru hugmyndir í athugun um að leggja
símstöðina í Saurbce niður og tengja notendasímana til A kureyrar
við sólarhringsþjónustu, en það mundi bceta símaþjónustuna þótt
eitthvað dragist að lagður yrði jarðsími í Saurbcejarhreppi og
símar tengdir við sjálfvirkni að HrafnagiH.
A rsœll Magnússon,
umdœmisstjóri Pósts og síma, Akureyri.
„Það sem við getum
gertfyrir þig“
er heiti á bæklingi sem Félags-
málastofnun Akureyrar hefur
gefið út og dreift meðal bæjar-
búa. 1 bæklingnum eru nákvæm-
ar upplýsingar um starfsemi
stofnunarinnar eins og kaflaheit-
in gefa hugmynd um: Dagvistun
bama, Ráðgjöf - aðstoð, Heimil-
isþjónusta, Félagsstarf fyrir ald-
raða og Leiguhúsnæði. Prent-
smiðja Björns Jónssonar prent-
aði, en hönnun annaðist Teikni-
stofan Delfi. Félagsmálastofnun
Akureyrar á þakkir skyldar fyrir
framtakið - mættu fleiri bæjar-
stofnanir upplýsa hvað þær hafa
á sinni könnu.
Þann 2. desember s.l. andaðist að
heimili sínu, Litluvöllum í Bárðar-
dal, Kristján Pétursson bóndi þar.
Fæddur var hann 9. október 1902.
Foreldrar hans voru hjónin Pétur
Jónsson Þorkelssonar, sem síðast
búskapar síns bjó á Jarlsstöðum hér
í sveit og Rósa Tómasdóttir Frið-
finnssonar á Litluvöllum. Tómas
var afburðamaður á jám og annan
málm, en stundaði jafnframt bú-
skap frá 1862-1890. Foreldrar
Kristjáns, Pétur og Rósa, hófu bú-
skap á hálflendu Litluvalla á móti
Sigurtryggva bróður hennar 1905
og bjuggu í tvíbýli við Tryggva til
ársins 1920. Það ár lést Pétur, eftir
erfið veikindi. Rósa heldur áfram
búskap með syni sínum Kristjáni til
ársins 1928 að Kristján tekur við
búsforráðum. Hann kvæntist Eng-
ilráð Ólafsdóttur frá Dúki í
Sæmundarhlíð f. 23. mars 1933.
Þau eignuðust tvo sonu, Pétur og
Unnstein Ólaf, sem lést ungur að
árum. Engilráð andaðist 8. desem-
ber 1964. Síðan hafa feðgamir rek-
ið búskapinn saman tveir einir.
Kristján var hinn mesti léttleika-
maður að hverju sem hann gekk og
drengur hinn besti, fjármaður góð-
ur og í allri umgengni og svo var
um samvinnu þeirra feðga, sem var
með ágætum.
Á uppvaxtarárum Kristjáns var
þannig háttað að margt fólk var á
heimiium, stórar fjölskyldur og
einnig vandalaust fólk. Það var því
góður félagsandi ríkjandi og góð
þátttaka í félagsstarfi engu minni
en nú, þrátt fyrir þær aðstæður sem
voru, engir vegir og óbrúuð vötn.
Þrátt fyrir þessa annmarka sótti
fólkið samkomur sínar oft á „tveim
jafnfljótum" eins og sagt var.
Kristján tók góðan þátt í öllu slíku.
Það var sjáanlegt þeim, sem þessi
fátæklegu kveðjuorð vill flytja, og
leit heim til hans á s.l. vori að þrátt
fyrir þann aldur sem orðinn var
þungur á hans herðum, hélt hann
lífsgleði sinni.
Samfylgdina vil ég þakka honum
og æskuminningamar, og þar veit
ég mig mæla fyrir munn minna
nánustu, lífs og liðna.
ÞJ-
BLÓT MEÐ HEFÐ-
BUNDNUM HÆTTI
Gunnarsstöðum i Þistilfirði I. fcbrúar.
TÍÐARFAR hefur verið frekar
gott undanfarið. Að vísu hefur
verið nokkur föl á jörðu að und-
anförnu, en ekki til trafala. Þrjú
skip hafa nú þegar landað loðnu á
Þórshöfn. Bátarnir eru byrjaðir
að afla í net. Um helgina var
haldið þorrablót með hefð-
bundnum hætti — áti og heima-
tilbúnu gríni. Hér hvílir ró og
friður yfir öllu og þrátt fyrir allt
líður mönnum ágætlega, —
a.m.k. þeim sem hafa sæmilegan
frið í sálinni. Það held ég að flestir
hafi hér. Ó. H.
Mynd úr sögu Menntaskólans
Þessi mynd er tekin 1930 á Möðruvöllum. Á henni eru Snævarr. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hina á mynd-
nokkrir gamlir gagnfræðingar og hafa eftirtaldir menn verið inni eru beðnir að hafa samband við Tómas Inga Olrich,
nafngreindir: 1. frá vinstri er Páll Skúlason, 2. f.v. Jón konrektor M.A. eða ritstjórn blaðsins.
Kristjánsson, 4. f.v. Oddur Kristjánsson og 5. f.v. Valdimar
J
6.DAGUR