Dagur - 05.02.1980, Blaðsíða 7

Dagur - 05.02.1980, Blaðsíða 7
Leikrit æft á Hvammstanga Hvammstanga 30. janúar. — LEIKFLOKKURINN á Hvammstanga er nú að æfa leikritið „Sunneva og sonur ráðsmannsins“ eftir Rögnvald Egilsson. Það var frumflutt á Egilsstöðum s.I. vor, en fyrsta sýning á Hvammstanga er fyrir- huguð 20. febrúar. Leikritið fjallar um svokallað Sunnevumál, sem upp kom austur á fjörðum 1739 og stóð til 1757. Fjórtán hlutverk eru i leikritinu, sem 11 leikarar fara með. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. P. M. Bókauppboð í Varðborg FJÓRÐA bókauppboð Jóhannesar Óla Sæmundssonar verður í Hótel Varðborg á Akureyri laugardaginn 9. febrúar og hefst kl. 15.30. Þar verða á boðstólum m.a. þessar bækur: Ferðabœkur Vilhjálms Stefánssonar, óbundnar. Skrifuð Annálsbók, líklega 1-200 ára gömul (innb.). Þorlákskver (Nokkur ljóð- mæli) 1836. Sálmar og kvœði Hallgr. Péturssonar 1852. Þjóðsög- ur Ólafs Davíðssonar I-III., ib. Hausbók 1892-96. ób. Fagurt er í Fjörðum, ób. Einokunarverslun Dana á Islandi, ib. Grimbergs Verdenshistorie I-XVI. Jörð I-IX. Kvennafrœðarinn 1891. Heljarslóð- arorrusta 1893. Kvœði Bjarna Thorarensen 1884, ib., Einars H. Kvaran og Gísla Brynjólfssonar. Sálma- og bœnakver 1824. Mynsters hugleiðingar. Heima og erlendis (ljóð) e. Guðm. Magnússon. Gullna hliðið 1941 í forl.b. Bragi 1. og 4. h. Horfnir góðhestar I. í forl.b. ísl. þœttir Tímans I-VI, ib. Sunnud.bl. Tímans I.-XIII, ib. Grafir og grónar nistir. Alls um 160 númer. (Fréttatilkynning) — Grímsey ... (Framhald af bls. 8). ársins hring og Drangur tvisvar í mánuði yfir vetrartímann, en tvis- var í viku á sumrin vegna ferða- fólksins. Stundum koma fiskitöku- skip, en Drangur flytur mikið af saltfiskinum til lands. Grímseyingum finnst það órétt- látt, að þurfa að greiða langlínu- gjald fyrir allar símhringingar til lands. Mikil samskipti eru við Ak- ureyri t.d., og símareikningar mjög háir. S. S. — Jómfrúrræða ... (Framhald af bls. 5). fyrir styttingu niður í 21 ár, það er um 5 ár frá því sem nú væri. Síðan sagði Guðmundur: „Nú kann að vera, að einhverj- um finnist hér vera keimur af yfir- boðum. Hækkun lána, aðlögunar- tími styttur, vextir lækkaðir, láns- tíminn lengdur, en svo tel ég þó ekki vera. Ég tel, að allt séu þetta óhjákvæmilegar aðgerðir og sjálf- sagðar. Með þessu drögum við úr þeirri spennu, sem nú ríkir í hús- næðismálum, við hægjum hraðann og komum á meira jafnvægi. Með því drögum við einnig verulega úr hraða verðbólgunnar, ef rétt er á málum haldið. Og það verðum við að viðurkenna, að öll sú spenna og það kapphlaup, sem nú ríkir í hús- næðismálum er stór liður í verð- bólguvandanum. Farsæl lausn þessara mála er því einn veigamik- ill þáttur í lausn efnahagsvandans, sem nú er við að etja.“ AU6LÝSIÐ1DEGI Opiðhús er að Hafnarstræti 90 öll miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.30. Spil — Tafl — Umræður Sjónvarp á staðnum Lesið nýjustu blöðin Kaffiveitingar Allir velkomnir Framhaldsaðalfundur Samtaka grásleppuhrognaframleiðenda verður haldinn laugardaginn 16. febrúar n.k. að Hótel K.E.A. kl. 13.30. Dagskrá: 1. Aðild grásleppusjómanna. 2. Önnur mál. Stjórnin. Atvinna Viljum ráða sem fyrst starfsmann (karl eða konu) til afgreiðslustarfa í nýrri sérverslun, með fjölþættum tómstundavörum o.fl. Þeir sem vildu sinna þessu sendi umsóknir sínar um starfið í þósthólf 32, Akureyri fyrir 10. febrúar n.k. Starfskraftur í mötuneyti Vegagerð ríkisins óskar eftir að ráða verkstjóra í mötuneytið að Miðhúsavegi 1. Umsóknum skal skila til Vegagerðar ríkisins, Mið- húsaveg 1, Akureyri, fyrir 20. febrúar. Upplýsingar í síma 21700. Hestur í óskilum Að Höskuldsstöðum í öngulsstaðahreppi er brúnn þriggja vetra hestur í óskilum, mark alheilt hægra, bragð aftan vinstra. Sími um Munkaþverá Skíðaskólinn Hlíðarfjalli Þínir peninpar erumeira viróií KJORMARKYÐH^ Ný námskeið hefjast á hverjum mánudegi. Uþþlýsingar á Skíðastöðum og í símum 22930 og 22280. Hraðbátur Til sölu er 17 feta langur trébátur með 45 hestafla Chrisler mótor, keyrður í 10 klukkustundir. Upplýsingar í síma 91-40736 eftír kiukkan 17. Húsnæði til leigu Til leigu í Gránufélagsgötu 4, á annarri hæð, 185 fermetra húsnæði (einn salur). Til greina kemur að leigja út í minni einingum. Upplýsingar gefur Jón M. Jónsson, sími 23599 og 24453. TOTO súpur í bréfum, m. teg. TORO pottréttir í bréfum, m. teg. TORO sósur í bréfum, m. teg. HRÍSALUNDI 5 Aðalfundur Sveinafélags járniðnaðarmanna, Akureyri verður haldinn að Hótel K.E.A. laugardaginn 9. þ.m. og hefstkl. 13.30. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Kosning í iðnráð. 4. Kjaramál. 5. önnur mál. Mætið stundvíslega. STJÓRNIN. Aðdráttarlinsa töpuð FYRIR allnokkru tapaðist hér í bæ mjög vönduð aðdráttarlinsa fyrir Nikon myndavél. Linsan er af gerðinni Nikkor 500 mm, spegillinsa. Þeir sem geta gefið upplýsingar um linsuna geta snúið sér tii ritstjórnar Dags. Fundarlaunum er heitið. uci 191 aani j stuohimáó sterku Dlao i noróan Umds DAGUR DAGUR.7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.