Dagur - 21.02.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, fimmtudagur 21. febrúar 1980
13. tölublað
Blönduós
Hitaveitan
loks komin
í samt lag
„ÞAÐ MÁ SEGJA að vandræð-
um Hitaveitu Blönduóss hafi
endanlega lokið um síðustu
helgi, en þá var lokið við að setja
niður dælu í borholu á Reykja-
um. Nokkru áður var búið að
setja niður dælu í aðra holu á
sama stað. Þar með er lokið
þeim framkvæmdum sem varð
að ráðast í á sínum tíma vegna
þess að hitaveitan hékk ekki
nægjanlega mikið heitt vatn,“
sagði Hilmar Kristjánsson, odd-
viti á Blönduósi
Hilmar sagði að nú ættu rúmlega
40 sekúndulítrar að fást frá Reykj-
um. Hins vegar nota íbúar
Blönduóss aðeins um 30, svo bær-
inn má stækka töluvert áður en
bora þarf á nýjan leik. Vatnsrennsli
til Blönduóss jókst töluvert með
tilkomu dælanna og jafnframt
hitnaði það um 2 til 3 stig. Vatnið er
nú 61-62 stig þegar það kemur til
bæjarins.
Að svo komnu máli liggja end-
anlegar kostnaðartölur ekki fyrir,
en Hilmar sagði að hitaveitan hefði
orðið að greiða u.þ.b. 2 milljónir
króna í kyndingarkostnað á mán-
uði í húsum sem heita vatnið var
tekið af. „Það má segja að við séum
búnir að kynda sleitulaust í eitt ár,“
sagði Hilmar.
„Við höfum fengið mikla aðstoð
við að koma hitunarmálum okkar í
samt lag. Vinstri stjórnin sáluga út-
vegaði okkur 100 milljónir vegna
dæluframkvæmdanna, við fengum
lán úr lánasjóði Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og RARIK
kostaði línuna til Reykja," sagði
Hilmar að lokum.
Lítill klaki
NÝLEGA VAR ATHUGAÐ Á
Svalbarðsströnd hve þykkur
klaki væri í jörðu. Ekki er hægt
að segja að þykktin sé mikil. en í
ljós kom að á bersvæði er klak-
inn milli 30 og 40 sentimetrar.
Þar sem snjór liggur yf ir er klaki
víða 10 til 15 sentimetrar.
Ólafur Jónsson ráðunautur sagði
að nú væri e.t.v. sá tími sem sker úr
um það hvort tún koma kalin und-
an vetrinum. „Reynslan er sú að
það eru fyrst og fremst svellalög
sem liggja yfir landinu í langan
tíma sem valda kalinu og hafa þrír
mánuðir verið nefndir í því sam-
bandi,“ sagði Ólafur. „Nú eru
svellalög á fáum stöðum, en ef
hleyptur í svell í janúar og febrúar
og þau liggja yfir fram í maí má
alveg reikna með kali.“
Smásfld veidd í sumar
NÚ ERU horfur á því, að smá-
síld verði veidd í Eyjafirði í
sumar, Sjávarútvegsráðuneytið
veitti leyfi í fyrra, sem ekki hefur
verið nýtt, en K. Jónsson og Co.
mun hafa hug á því að veiða
smásíld í sumar til niðursuðu.
Á síðast liðnu sumri veitti
Sjávarútvegsráðuneytið leyfi til
veiða á 100 lestum af smásíld í
Eyjafirði í tilraunaskyni, til niður-
lagningar nú í vetur. Heimild þessi
var háð ýmsum skilyrðum, m.a. um
eftirlit ráðuneytisins og um að
áætlun yrði lögð fram um hvernig
standa ætti að veiðunum, m.a. um
báta, veiðarfæri, veiðitíma og
hversu mikið æskilegt væri að veiða
daglega. Einnig áttu að fylgja með
upplýsingar um verkun síldarinnar.
Að sögn Jóns B. Jónassonar,
deildarstjóra í Sjávarútvegsráðu-
neytinu, hefur ekkert heyrst frá
neinum varðandi þetta mál síðan
þessi vilyrði fyrir veiðum voru gef-
in, en það væri hins vegar ljóst, að
ekki mætti hefja veiðarnar fyrr en
að þessum skilyrðum uppfylltum
og í samráði við ráðuneytið.
Kristján Jónsson, forstjóri K.
Jónssonar og Co, sagði að það væri
alls óvíst um það, hvort þeir reyndu
fyrir sér með síldveiðar á Eyjafirði
alveg á næstunni. Það væri eitthvað
af síld í firðinum núna, en þetta
væri ekki besti tíminn til síldveið-
anna. Sá tími væri aðallega á vorin
og sumrin. Kristján sagði, að síldin
sem væri í firðinum núna væri ekki
mjög hentug, of stór fyrir sardínur
og einnig of smá. Hann sagði að
þeir hefðu hins vegar hug á að fá
leyfi til síldveiða í sumar og ættu
100 tonn að nægja fyrir
innanlandsmarkaðinn.
Öskudagur á Akureyri
Á ýmsu gekk I gær, þegar börnin
þyrptust saman á Ráðhústorgi til að
slá köttinn úr tunnunni, sem var nú
reyndar hrafn, og leystu þar með
náttúruna úr fjötrum vetrar. Litlu
bömin úr leikskólanum horfðu dol-
fallin á aðfarirnar. Myndir: h.s.
Svona voru öskudagsbúningarnir
fyrir rúmum 50 árum. Myndin er
tekin á Ijósmyndastofu Hallgríms
Einarssonar. Ekki er vitað hver
drengurinn er, en allar upplýsingar
em vel þegnar. HE/Minjasafnið.
Takið þátt í myndagátunum
Aðalvinningurinn er ferð að verðmæti hálf milljón króna
í ÞESSU blaði birtist önnur
myndagátan af tíu í ferðaget-
raun DAGS og Útsýnar. Þeir,
sem vilja eiga þess kost að
hreppa aukavinning verða að
senda lausn á afgreiðslu DAGS
fyrir 6. mars. Aðalverðlaunin
eru ferðavinningur að verðmæti
hálf milljón króna og geta les-
endur blaðsins (þátttaka er ekki
bundin við áskrift) sent inn
lausnir á fyrstu myndgátunum
allt fram á síðasta dag (sem er 1.
maí) en eðlilega verða þeir þá af
aukaverðlaunum. Til þess að
eiga kost á þeim, verður blaðinu
að hafa borist lausnin á við-
komandi hálfum mánuði eftir að
hún birtist.
Eins og fyrr sagði verða birtar
10 myndagátur og fyrir þá sem
eru ekki vanir að leysa siíkar
gátur má geta þess að í 11. tölu-
blaði voru birtar ýmsar leið-
beiningar varðandi lausn mynd-
gáta. Til þess að eiga kost á að-
alvinningnum verður þú að taka
þátt í öllum tíu gátunum.
Skilafrestur vegna myndagát-
unnar er birtist í síðustu viku er
28. febrúar og þá verður dregið
úr þeim bréfum er borist hafa
afgreiðslu blaðsins. En ef ein-
hver vill fá gömul blöð til að geta
verið með frá upphafi skal bent á
að síminn á afgreiðsiu blaðsins
er 24167.
2. myndagátan
er á bls. 6
Kvikmynda-
sýningar á Akur-
eyri
KVIKMYNDASÝNINGAR á
Akureyri verða sem hér segir,
næstu daga: Borgarbíó sýnir „A
star is born“ með Barböru Streis-
and og Kris Kristofersson í síð-
asta sinn í kvöld. „Brandarar á
færibandi“ verður endursýnd
klukkan 9 annað kvöld vegna
mikillar aðsóknar og klukkan 11
verður sýnd myndin „Árásin á
Agathon." Klukkan 3 á sunnudag
sýnir Borgarbíó „Bugsy Malone"
Klukkan 9 í kvöld og næstu
kvöld sýnir Nýja bíó myndina
„Coma“ öðru nafni Dauðadá.
Myndin fjallar um heldur
óskemmtilega verslun í tengslum
við rekstur sjúkrahúss. Klukkan
11.15 í kvöld og næstu kvöld
verður svo sýnd myndin „Lög-
reglustjórinn ódrepandi."
Kosningafyrir-
heit og dagvist-
unarmál
NÚ UM nokkurt skeið hefur á
Akureyri starfað hópur áhuga-
fólks um dagvistunarmál. Hyggst
hópurinn hvetja bæjarstjórn Ak-
ureyrar til að efna kosningafyrir-
heit sín um fjölgun dagheimila
þegar á þessu ári.
Af þessu tilefni hefur hópurinn-
boðað nokkra fulltrúa stjórn-
málaflokkanna á sinn fund, n.k.
laugardagsmorgunn að Pálm-
holti.
Fundur um
fjárhagsáætlun
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur fund í Hafnarstræti 90
mánudaginn 25. febr. n.k. kl.
20.30. Til umræðu verður fjár-
hagsáætlun Akureyrar fyrir árið
1980. Fljótlega verður haldinn
fundur um landsmálin.