Dagur - 21.02.1980, Síða 6
Hálsprestakall. Guðsþjónusta
að Draflastöðum n.k.
sunnudag 24. þ.m. kl. 14.00.
Sóknarprestur.
=M\im
Ólafsfjörður: lögregla: 62222,
sjúkrabíll: 62222, lækna-
vakt: 62112.
Raufarhöfn: lögregla: 51222,
sjúkrabíll: 51222, lækna-
vakt: 51245.
Sauðárkrókur: slökkvistöð:
5550, lögregla: 5282, sjúkra-
bíll 5270, læknavakt: 5270,
sjúkrahús: 5270.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17.00.
Biblíulestur á fimmtudag kl.
20.30. Sunnudagaskóli í
Glerárskóla kl. 13.15. Verið
velkomin.
Fíladelfía Lundargötu 12. Al-
menn samkoma sunnudag-
inn 24. fgbr. kl. 20.30. Fagn-
aðarerindi Krists flutt í tali
og söng. Allir hjartanlega
velkomnir. Almennur
biblíulestur á fimmtudögum
kl. 2.030. Verið velkomin.
Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 10.30 f.h. Öll
böm velkomin. Fíladelfía.
Kristniboðshúsið Zfon sunnu-
daginn 24. febr. sunnudaga-
skóli kl. 11 fundur í Kristni-
boðsfélagi kvenna kl. 4.
Samkoma kl. 20.30 Ræðu-
maður Reynir Valdimars-
son. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn n.k. sunnu-
dag kl. 13.30 sunnudaga-
skóli og kl. 17 samkoma.
Mánudaginn 25. febr. kl. 16.
Heimilissamband. Þriðju-
dag 26. febr. kl. 20.30
Hjálparflokkur Verið hjart-
anlega velkomin.
Félagsráðsfundur
Kaupfélags Eyfirð-
inga
Félagsráðsfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður
haldinn miðvikudaginn 28. febrúar næstkomandi
og hefst kl. 10.30 að Hótel K.E.A.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Útför sonar okkar og bróður,
SIGURÐAR HARÐARSONAR,
verður gerð frá Akureyrarkirkju laugardaginn 23. febrúar n.k. kl.
13.30.
Unnur Áskelsdóttir, Hörður Adólfsson,
og systkinl hins látna.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR HALLGRlMSDÓTTUR.
Þorbjörg J. Hansen, Stefán Hansen,
Jóna Hansen, Erlingur Jónasson,
Örn Hansen, Freygerður Geirsdóttir,
Ásta Hansen, Símon Þorsteinsson,
Harpa Hansen, Gunnar Skarphéðinsson,
Gígja Hansen, Árni Frfðriksson,
Auður Hansen, Guðmundur Sigurðsson.
— Húseiningar á Siglufirði...
okkur eru rúmlega tilbúin undir
tréverk þegar þau eru reist. Þá höf-
um við orðið að bíða í 2-3 mánuði
eftir fyrstu tveim hlutunum og 3ja
hlutann 6 mánuðum seinna. Fyrr-
verandi félagsmálaráðherra hafði
ráðgert að svona fyrirtæki fengi
lánið greitt um mánuði eftir að
húsið væri komið á ákveðið bygg-
ingarstig. Ég vildi geta þess að
starfsmenn Húsnæðismálastjórnar
hafa verið ákaflega skilningsríkir
við okkur, en hér er um að ræða
pólitíska ákvörðun," sagði Sigurð-
ur að lokum.
Sveitahraðkeppni
Bridgefélags Akureyrar hefst þriðjudaginn 26.
febrúar kl. 8 að Félagsborg.
Spilaðar verða 4 umferðir. Þátttöku þarf að tilkynna
til stjórnar fyrir sunnudagskvöld.
Stjórn B.A.
(Framhald af bls. 8).
stjórnar að sjá fyrirtækinu fyrir
fjármagni. Þess má geta að ef Hús-
einingar framleiddu t.d. staðlaðar
eldhúsinnréttingar á lager fengi
fyrirtaækið fyrirgreiðslu hjá Seðla-
bankanum! Sigurður sagðist eiga
erfitt með að sjá muninn að fram-
leiða hús á lager eða innréttingar.
Nú er unnið að því að fyrirtæki
sem Húseiningar fái betri lánafyr-
irgreiðslu frá Húsnæðismálastjórn
þannig að þriðja og síðasta lánsaf-
greiðsla húsnæðismálastjórnar
berist fyrr en nú er. „Húsin frá
„Hart í
bak“
UNGMENNAFÉLAGIÐ Leifur
heppni í Kelduhverfi frumsýnir
leikritið Hart í bak sunnudaginn
24. febr. kl. 21.00 í Skólagarði.
Hart í bak er annað leikhús-
verk Jökuls Jakobssonar og hefur
hlotið miklar vinsældir víða um
land.
Leikstjóri er Saga Jónsdóttir,
leikari, leikmynd er gerð eftir
hugmynd Steinþórs Sigurðssonar
og tónlist er eftir Jón Þórarinsson.
Leikendur eru 12 og með
helstu hlutverk fara Tryggvi ís-
aksson, Kristveig Árnadóttir,
Friðgeir Þorgeirsson og Guðný
Björnsdóttir. Um 20 manns hafa
unnið kappsamlega að undan-
fömu við uppsetninguna.
Áformað er að fara með leik-
inn í nágrannasveitir ef aðstæður
leyfa.
Hvert er hægt að fara?
Costa
del sol
ENGINN baðstaður getur nú
keppt við Costa del Sol, Miðjarð-
arhafsströnd Andalúsíu, með
bezta loftslag álfunnar, náttúru-
fegurð, sem óvíða á sinn líka,
beztu hótel Spánar, ódýrt og fjöl-
breytt skemmtanalíf og verzlanir,
og óteljandi ferðamöguleika fyrir
þá, sem ekki vilja aðeins njóta
sólar og skemmtunár heldur
einnig kynnast töfrum þessa sól-
bjarta lands, sögu þess, siðum og
þjóðlífi í þeim hluta þess, sem
sérkennilegastur er, fegurstur og
sögufrægastur, því af öllu
spönsku er ekkert jafn spánskt og
Ándalúsía og íbúar hennar.
Enginn staður í álfunni tryggir
ferðamanninum betur hinn eftir-
sótta fagurbrúna hörundslit, því
að hér skín sólin frá morgni til
kvölds í a.m.k. 320 daga ársins án
þess að geislar hennar verði
óþægilega heitir. Mildur andvar-
inn frá hafinu dregur úr hitanum,
sem síðsumars og á haustin er að
jafnaði 25-30° C.
Hér reistu Márarnir skraut-
hallir sínar og skemmtigarða til
foma, hér er Flamengodansinn
fæddur og skáldskapur, söngur
og dans samofinn lífi fólksins.
Hafið speglar bláma himinsins,
og öldumar kliða við mjúka,
sendna strönd.
Fjölbreytni og litaskrúð gróð-
ursins er með ólíkindum, þar sem
pálmatrén sveigja krónur sínar
fyrir hafgolunni en purpurarauð
bougainvillan og önnur skraut-
blóm fléttast upp skjannahvíta
húsveggina. Vínekrur, appelsínu-
og sítrónulundir teygja sig upp
fjallshlíðamar, og skammt er upp
í kyrrlát fjallaþorpin sem varð-
veita aldagamla siði og þjóð-
venjur ósnortin af erli nútímans.
Hvergi eru hátíðahöld Spán-
verja með meiri gleði og glæsi-
brag, og í ágústmánuði þyrpast
ferðamenn hundruðum þúsunda
saman til að sjá hátíðahöldin í
Malaga, Nerja og fleiri borgum
Costa del Sol, „feria“ eða fiesta.
Matargerðarlist stendur á háu
stigi í Andalúsíu og vínin ljúffeng
og fræg um allan heim, enda eru
hér einhverjar elztu vínekrur
heimsins, allt frá dögum
Föníkíumanna.
Costa del Sol er heillandi
heimur sólskins og glaðværðar,
sögu og náttúrufegurðar, og héð-
an snýr farþeginn heim endur-
nærður og hvíldur með efldan
lífsþrótt. ÚTSÝN hefur valið yð-
ur beztu staðina á Cösta del Sol.
Myndgetraun Dags -
Tryggvabraut 12, pósthólf 58, 602 Akureyri
Lausnin þarf að berast blaðinu í síðasta lagi hálfum mánuði eftir að gátan
birtist ef þú vilt eiga möguleika á aukaverðlaunum. Til að eiga möguleika
á ferðavinningnum verður þú að taka þátt í öllum gátunum
O
Nafn
Heimili sími
Staflur
Lausn
6.DAGUR