Dagur - 11.03.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR'
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 11. mars 1980
18. tölublað
i\mut rÁ&P pappw
Fll M1
Borgarafundur um skipulagsmál: °
Meirihlutinn
vildi höfn
BORGARAFUNDURINN um
skipulagsmál, sem haldinn var á
laugardag, stóð í rösklega fjórar
klukkustundir, og á þriðja
hundrað manns sóttu fundinn.
Þetta var þriðji borgarafundur-
inn um skipulagsmálin, auk þess
sem haldnir hafa verið sérfundir
með ýmsum hagsmunaaðilum.
Sautján tóku til máls á fundin-
um á laugardag, og voru þeir nær
allir á einu máli um að hafnar-
mannvirki ættu að vera í nánd
við miðbæinn, en skiptar skoð-
anir voru um það, hvernig ætti
að leysa málið.
Helgi Bergs, bæjarstjóri, setti
fundinn, sem hófst klukkan 14, en
Finnur Birgisson, skipulagsstjóri,
stjórnaði honum og fundarritari
var Ágúst Berg. Tryggvi Gíslason,
skólameistari og formaður skipu-
lagsnefndar, flutti framsöguræðu
og rakti hann m.a. þá miklu undir-
búningsvinnu, sem lögð hefur verið
í nýtt miðbæjarskipulag.
Eins og áður sagði, voru flestir
sem til máls tóku þeirrar skoðunar,
að hafa ætti höfn í nánd við mið-
bæinn, þar sem væri aðstaða til að
taka á móti farþegaskipum, en
einnig aðstaða fyrir smábáta, og til
siglinga. Minntust menn m.a. á
neflausa ásjónu Akureyrarbæjar, ef
Torfunefsbryggjurnar færu að
mestu og ekkert kæmi í staðinn.
Frestur til að skila skriflegum
athugasemdum við miðbæjar-
skipulagið rennur út n.k. föstudag.
Skipulagsnefnd mun síðan taka at-
hugasemdirnar til meðferðar strax í
þessum mánuði. Skipulagstillög-
urnar verða síðan lagðar fyrir bæj-
arstjórn að nýju til endanlegrar af-
greiðslu og þaðan fara þær til
skipulagsstjórnar ríkisins og fé-
lagsmálaráðuneytisins til staðfest-
ingar.
Vel neppnaður
téndagur
UM EITT þúsund manns heim-
sóttu Tónlistarskólann á Akur-
eyri á sunnudag, en þá var hald-
inn kynningar- og fjáröflunar-
dagur skólans.
Haldnir voru fernir tónleikar og
voru flytjendur samtals 22. Um 300
manns hlýddu á þessa tónleika.
Auk þess gafst gestum kostur á að
skoða nýja kennsluálmu skólans,
seldir voru happdrættismiðar og
kaffi og góðgæti voru á boðstólum.
Jón Hlöðver Áskelsson, skóla-
stjóri Tónlistarskólans, sagðist vera
mjög ánægður með undirtektir
fólks. Hann sagði að þessi mikla
aðsókn bæri vott um áhuga bæjar-
búa á starfi skólans og að þeir væru
samhuga í því átaki, sem kaup og
frágangur nýbyggingarinnar væri.
Vildi hann koma á framfæri sér-
stökum þökkum til þeirra sem
heimsóttu skólann og ekki hvað síst
til kennara, nemenda og aðstand-
enda þeirra, fyrir þeirra framlag.
Ágóðanum af tóndeginum verð-
ur varið til áframhaldandi upp-
byggingar skólans.
Ungir sem aldnir heimsóttu Tónlistarskólann á sunnudaginn. Sumir hlustuðu á
tónleika, en aðrir settust fyrir framan sjónvarpið, þegar „Stundin okkar“ hófst.
Mikið var um dýrðir f skólanum þennan dag og veitingar á boðstólum. Mynd: h.s.
Myndina tók á.þ. 1 afgreiðslu skattstjórans.
Framtalsfrestur liðinn:
LANGFLESTIR VELJA
FASTAN FRÁDRÁTT
— VIÐ LAUSLEGA skoðun á
þeim framtölum, sem komin
eru, sýnist mér að langflestir,
eða 80-90% framteljenda, velji
fasta frádráttinn, sagði Hallur
Sigurbjörnsson, skattstjóri í
Norðurlandsumdæmi eystra i
viðtali við Dag í gær, en þá var
síðasti skiladagur skattfram-
tala þeirra einstaklinga sem
ekki eru með atvinnurekstur.
Gífurlegt annríki var á skatt-
stofunni í gær og fjöldi manns
kom þangað og leitaði upplýsinga
um ýmis atriði varðandi framtöl-
in. Einnig voru látlausar sím-
hringingar. Starfsmenn skattstof-
unnar leiðbeindu fólki eins og
unnt var, en vafalaust hafa þeir
verið allmargir, sem ekki tókst að
ná sambandi við starfsfólkið.
Nokkuð var áberandi, hve margir
drógu það fram á síðustu stund að
telja fram og leita upplýsinga.
Hallur sagði, að beiðnir um
lengingu framtalsfrests hefðu
verið með minna móti, enda átti
fólki að vera ljóst, að til þess að
hægt væri að verða við slíkum
beiðnum, þurfti ærnar ástæður.
Hann sagði að helstu ástæðurnar
hefðu reynst vera veikindi og að
fólk væri ekki í bænum vegna at-
vinnu sinnar.
Endurskoðun framtalanna
hefst strax í þessari viku og ætti að
geta orðið fljótvirkari en áður,
þar sem margir erfiðir liðir eru nú
ekki lengur í framtölunum.
Meiri áhersla á
saltfiskverkun
— ÞAÐ KÆMI mér ekki á
óvart, þó að menn sneru sér nú
að saltfiskverkun af meiri krafti
en áður, bæði vegna þessara
góðu sölusamninga við Spán-
verja og Portúgala, en einnig
vegna þess slæma ástands sem
nú ríkir í frystiiðnaðinum, sagði
Bjarni Jóhannesson, stjórnar-
maður í Sölusambandi íslenskra
fiskframleiðenda og forstjóri
Útgerðarfélags KEA, en hann
var einn þeirra sem sömdu um
saltfisksölur til áðurnefndra
þjóða nú fyrir skemmstu.
Samningarnir um saltfisksölurn-
ar eru með þeim stærstu sem gerðir
hafa verið og er verðmæti þeirra
samtals um 30 milljarðar króna.
Samningarnir hljóða upp á 7-10
þúsund tonn til Spánar, og er þar
um að ræða venjulega stærðar-
flokka, og 20 þúsund tonn af þorski
til Portúgals, auk 2500 tonna af
öðrum tegundum.
Bjarni Jóhannesson sagði, að það
hefði verið mjög fróðlegt að taka
þátt í þessari samningsgerð, sem
Sauðárkróki 10. mars
HIN HEFÐBUNDNA sæluvika
Skagfirðinga hefst á Sauðárkróki á
laugardaginn. Skemmtanir vikunn-
ar verða fjölþættar að vanda, leik-
sýningar og kvikmyndasýningar
verða alla daga vikunnar, kórar
syngja og dansleikir verða sex kvöld
vikunnar. Hljómsveit Geirmundar
hann gerði nú í fyrsta sinn. Það
fyrsta sem spænsku og portúgölsku
samningamennirnir fóru fram á var
að fá að veiða í lögsögu okkar, og
sagði Bjarni það dæmigert fyrir þá
ásókn, sem sífellt væri í fiskimiðin
við ísland. Þeim var hins vegar
fljótlega gert ljóst, að slíkt var ekki
til umræðu.
leikur á öllum dansleikjunum nema
á fimmtudag (20. mars) þá verða
gömlu dansarnir og hljómsveit
hússins (nýstofnuð) leikur.
Sæluvikuleikrit Leikfélags
Sauðárkróks verður að þessu sinni
Týnda teskeiðin eftir Kjartan
Ragnarsson. Leikstjóri er Ásdís
(Framhald á bls. 7).
Sæluvikan að hefjast
Veiðileyfi í Laxá
ofan Brúar
UM SÍÐUSTU helgi hófst for-
sala veiðileyfa í Laxá ofan Brúar.
Veiðileyfin eru til sölu í Sport- og
hljóðfæraverslun Akureyrar, en
vilji menn fá ákveðna daga í
sumar geta þeir hringt í síma
25264 í Reykjavík. Veiðileyfin í
versluninni eru ódagsett. Þess má
geta að urriðaveiðin sl. sumar var
mun lélegri en undanfarin ár og á
þetta sérstaklega við um efri hluta
árinnar. Að dómi vísindamanna
er ástæðan sú að lítið mý var í
ánni og eru menn því miður ekki
bjartsýnir á að ástandið batni
næsta sumar. Veiðin hefst í byrj-
un júní. Næsta sumar má búast
við að einn og einn lax fáist ofan
brúa, því fiskvegurinn við
virkjunina er að verða tilbúinn.
Nokkrir laxar gengu upp sl. haust.
Sundiaug í
Glerárhverfi
ÞRÁTT FYRIR ítrekaðar áskor-
anir frá Foreldrafélagi Glerár-
skóla og Kvenfélaginu Baldurs-
brá til bæjaryfirvalda um að gera
eitthvað róttækt varðandi sund-
laug í Glerárhverfi, hefur lítið
sem ekkert áunnist. Því hefur
verið brugðið á það ráð að halda
almennan fund um þetta áhuga-
mál hverfisbúa. Nokkrir af helstu
ráðamönnum bæjarins munu
koma á þennan fund til skrafs og
ráðagerða. Fundurinn verður
haldinn í Glerárskóla mánudag-
inn 17. mars klukkan 20.30 Allir
sem áhuga hafa á málinu eru
hvattir til að mæta. (Fréttatil-
kynning frá Foreldrafélagi
Glerárskóla og Kvenfélaginu
Baldursbrá).
Fyrst hús með lé-
leg kynditæki
SAMÞYKKT hefur verið að
hefja hitaveitutengingar í iðnað-
arhúsnæði í dreifikerfisáföngum
frá 1979. Ákveðið er að byrja á að
tengja þau hús sem hafa léleg eða
ónýt kynditæki og síðan þau sem
hafa undanþágu frá brunavarn-
arákvæðum, en síðan verði tengd
önnur hús.