Dagur - 25.03.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 25. mars 1980
22. tölublað
m v\mut ndaiéta papp"
m
Hlíðarfjall um páskana:
Börðu bíl-
stjórann
Eldur hjá Ú.A.
Laust fyrir klukkan 15 í gær kom upp
eldur í frystihúsi Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Mikill reykur myndaðist og
skemmdist hráefni af völdum reyks, auk
þess sem hætta þurfti vinnslu í gær,
meðan þrifið var.
Eldurinn kviknaði i einangrun þegar
verið var að sjóða. Mikill og slæmur
reykur barst inn f vinnslusal og er allt
hráefnið, sem þar var i vinnslu, metið
ónýtt, en það voru nokkur tonn.
Starfsfólkið var sent heim f gær, en
vinnsla hófst aftur í morgun.
Sérstætt mál kært til bæjarfógeta
Bflasölur í
iðnaðarhverfi
Fyrir skömmu barst skipulags-
nefnd erindi frá Bílasölunni
Stórholti 1. Þar er óskað eftir
því að skipulagsnefnd úthluti
bílasölunni lóð til reksturs bíla-
sölu, miðsvæðis á Akureyri, t.d.
gegnt lögreglustöðinni við
Þórunnarstræti.
Skipulagsnefnd telur að
starfsemi sem þessi eigi helst
heima á svæðum, sem ætluð eru
fyrir iðnað eða iðnað og versl-
un. Eins og kunnugt er af frétt-
um DAGS hefur umrædd bíla-
sala ekki leyfi til að starfa í
Stórholti i,
Verður sundlaugin loks
að veruleika?
Mánudaginn 17. mars var al-
mennur borgarafundur haldinn í
Glerárskóla um fyrirhugaða
sundlaug í Glerárhverfi. Nokkr-
ir fulltrúar bæjarins voru mættir
ásamt hátt á annað hundrað
íbúa, þar á meðal hópur nem-
enda skólans sem tók á móti
Fann giftingarhring-
inn í legi kýrinnar!
Á miðvikudaginn í síðustu viku
var myndarlegri kú úr Svína-
vatnshreppi slátrað á Blöndu-
ósi. Bóndinn bað slátrarana að
halda legi kýrinnar til haga og
það ekki að ástæðulausu.
Dýralæknirinn fór að krukka í
legið og fann þar giftingar-
hring bónda, en hringurinn var
búinn að liggja í legi kýrinnar í
heilt ár.
Bóndi glataði giftingarhringn-
um fyrir ári síðan þegar hann var
að hjálpa kúnni við burð. Hann
grunaði hvar hringurinn væri, en
eins og gefur að skilja var illt að
leita fyrr en kýrin var öll. Að sögn
sjónarvotta var hringurinn í
ágætu standi þegar hann fannst,
að öðru leyti en því að eitthvað
hafði fallið á hann. Nafn bónda-
konu var grafið í hringinn svo
ekki lék neinn vafi á eignarrétt-
inum.
fundargestum með kröfuspjöld
þar sem krafist var sundlaugar
við skólann strax. Ennfremur
sátu allmörg börn fundinn og
tóku nokkur til máls.
Allfjörugar umræður urðu á
fundinum og kom það vel fram
hversu óviðunandi aðstaða nem-
enda Glerárskóla er til sundnáms.
Þeir þurfa að sækja sund í Sund-
laug Akureyrar og getur tekið þau
upp í 3 klst. að komast í einn sund-
tíma og til baka í skólann.
Nokkrar deilur urðu á fundinum
um boð Sjálfsbjargar um að sund-
laug sú, sem hafist verður handa
um að byggja í vor í tengslum við
hina nýju endurhæfingarstöð fatl-
aðra í Glerárhverfi, verði nýtt til
kennslu yngri aldurslokka.
Að lokum var samþykkt áskorun
til bæjarstjrnar að taka af skarið um
staðsetningu sundlaugarinnar.
Fyrir skömmu bar það til tíðinda
að þrír karlmenn réðust á bíl-
stjóra og börðu hann. Aðdrag-
andi málsins er sá að þrír menn
voru á gangi á fáfarinni götu á
Akureyri þegar bíll kom aðvíf-
andi og flautaði bílstjórinn á
mennina, sem gengu á miðri
götunni. Mennirnir voru eitt-
hvað seinir að vikja og urðu
lyktir þær, að þeir börðu bíl-
stjórann svo sá á honum. Einnig
skemmdist bíllinn, en deiluaðil-
ar eru ekki á eitt sáttir um or-
sakir skemmdanna.
Við yfirheyrslur hafa árásar-
mennirnir borið því við að bílstjór-
inn hafi oft ekið mjög ógætilega
eftir umræddum vegi. Þeir munu
því hafa gengið á miðjum veginum
og ætlað að kenna ökumanninum
rétt aksturslag. Eftir þetta fer
framburði ekki að bera saman, en
þremenningarnir segja að öku-
maðurinn hafi ekið aftan á einn
þeirra með þeim afleiðingum að
hann hafi fallið á bílinn og skemmt
hann. Þá hafi þá brostið þolin-
mæðin og tekið bílstjórann í karp-
húsið.
Bílstjórinn segir hins vegar að
hann hafi einungis flautað á
mennina, enda hafi þeir hindrað
hann í að komast áfram. Einnig
harðneitar hann að hafa ekið á
umræddan mann. Málið sé
þannig vaxið að þegar hann flaut-
aði hafi einn þremenninganna
snúið sér við og lamið ofan í vélar-
hlífina, síðan hafi þeir ráðist á sig í
bíldyrunum.
Málið hefur verið kært til bæjar-
fógeta.
Mikið um að
Mikið verður um að vera í
Hlíðarfjalli næstu dagana. Á
laugardaginn hefst unglinga-
meistaramótið á skíðum, sem
stendur til mánudags, en á
þriðjudaginn hefst síðan skíða-
landsmótið, sem lýkur á páska-
dag. Andrésar Andar-leikarnir
verða síðan 11.—13. apríl. Þar
verða 300 keppendur.
Ivar Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðastaða, sagði í
viðtali við Dag, að búist væri við 80
keppendum á skíðalandsmótið.
ívar sagði að fremur lítill snjór væri
nú í Hlíðarfjalli, en þó nægur,
þannig að skíðafæri væri ágætt.
Unglingameistaramótið átti að
vera á Ólafsfirði, en vegna snjó-
leysis þar, var það flutt til Akur-
eyrar. Mikil aðsókn er nú í að
dvelja á skíðahótelinu og nefndi
vera
ívar sem dæmi, að biðlisti væri út
allan apríl til helgardvalar.
í páskavikunni verða skíðalyft-
umar í Hlíðarfjalli opnaðar fyrr en
venjulega, eða klukkan 9, og þær
verða opnar til klukkan 6 eftir há-
degi.
í mótsstjórn skíðalandsmótsins
1980 eru Hermann Sigtryggsson,
ívar Sigmundsson, Magnús
Ingólfsson og Þröstur Guðjónsson,
sem er mótsstjóri.
Eld-
varnar-
dagur
Junior Chamber Akureyri stóð
fyrir eldvarnardegi s.l. laugardag í
samvinnu við slökkviliðið í bæn-
um. Almenningi var gefinn kostur
á að reyna handslökkvitæki á
bílastæði slökkvistöðvarinnar.
Sýnd var notkun ýmissa gerða af
slökkvitækjum og kom glögglega í
Ijós, hvílíka yfirburði þurrdufts-
tækin hafa fram yfir t.d. vatn og er
rétt að hvetja fólk til þess að afla
sér handslökkvitækja. Slík tæki
geta skipt sköpum þegar eldur
brýst út og þá er ekki síður mikil-
vægt að hafa reykskynjara í
íbúðarhúsum, en ýmsir nefna þá
ódýrustu líftryggingu sem völ er á.
J. C.-félagar á Akureyri seldu slík
tæki á laugardag og einnig gengu
þeir í hús í Innbænum og á Eyr-
inni, þar sem víða eru gömul
timburhús, og dreifðu gluggamið-
um, sem eiga að auðvelda
slökkviliði að vita hvar hefjast
skuli handa við björgun fólks,
þegar eldur kemur upp. Ljósm.: h.s.
Tóku vel í erindi
unglinganna
Haraldur Hansen, framkvæmda-
stjóri Dynheima, fékk fyrir
skömmu bréf frá stjórn Kaupfé-
lags Eyfirðinga, sem svar við er-
indi samstarfshópa unglinga í
Dynheimum. í erindi ungling-
anna var farið fram á að neðri
hæð Dynheima fáist til nota fyrir
æskulýðsstarf. Stjórn KEA lýsti
yfir jákvæðu viðhorfi til þess að
Akureyrarbær geti eignast húsið í
náinni framtíð. Ekki er þó enn
ákveðið hvernær starfsemi sú,
sem er í húsnæðinu (Kassagerð-
in) verði flutt í nýtt húsnæði.
Félagsheimili
í miðbænum
Að undanförnu hafa Helgi M.
Bergs bæjarstjóri og Freyr
Ófeigsson bæjarfulltrúi átt við-
ræður við undirbúningsnefnd
verkalýðsfélaganna að byggingu
félagsheimilis um hugsanlegt
samstarf.
Það hefur komið fram í við-
ræðunum að uppi eru hugmyndir
um að leita eftir lóð í miðbænum
og reisa á henni 4-6 hæða hús,
samtals að flatarmáli um 6.400
fermetrar, með 5-6 eignaraðilum.
Biðskýli S.V.A. Tónleikar
Sótt hefur verið um leyfi til að
byggja 4 strætisvagnaskýli úr
steinsteyptum einingum á eftir-
töldum stöðum: Við gatnamót
Skarðshlíðar og Smárahlíðar, við
gatnamót Skógarlundar og
Hjallalundar, við gatnamót Þing-
vallastrætis og Grundargerðis og
við Hörgárbraut gegnt lóð Lang-
holts 9.
Jonathan Bager, flautuleikari, og
Philip Jenkins, píanóleikari, leika
á tónleikum í Borgarbíói á Akur-
eyri á fimmtudag klukkan 19.15.
Þeir starfa báðir sem kennarar við
Tónlistarskólann á Akureyri og
eru tónleikarnir á vegum skólans.
Á efnisskránni verða verk eftir Le
Clair, Frank Martin, Poulenc og
Prokoffiev.