Dagur - 25.03.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 25.03.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JOHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Helgar-Dagur Þáttaskil voru mörkuð í blaðaút- gáfu á landsbyggðinni, þegar Dagur jók útgáfu sína úr einu blaði á viku í tvö, fyrir rösklega tveimur árum síðan. Þar með öðlaðist blaðið algjöra sérstöðu, sem fyrsta og eina raunverulega frétta- blaðið utan Reykjavíkursvæðis- ins. Greinilegt er af viðtökum fólks, að mikil þörf er fyrir öflugt landsmálablað, þar sem sagðar eru fréttir úr byggðarlaginu og birtar auglýsingar, og þar sem fólk getur komið skoðunum sínum á framfæri. Ríkisfjölmiðlarnir og Reykjavíkurblöðin geta á engan hátt komið í stað landsmálablað- anna í þessum efnum. Nú hyggst Dagur færa enn út kvíarnar og auk þjónustuna við lesendur sína, og í þessari viku kemur út fyrsta eintakið af helgar- blaði Dags, sem hlotið hefur nafnið Helgar-Dagur. Fyrst um sinn er fyrirhugað að blaðið komi út einu sinni í mánuði, en ætlunin er að útgáfutíðnin verði aukin smátt og smátt, þannig að Dagur komi innan tíðar út reglulega þrisvar í viku. Er þá vonandi stutt í það að landsbyggðin eignist sitt fyrsta dagblað. í helgarblaðinu, sem verður með nýju yfirbragði, verða ekki dagbundnar fréttir, heldur verður leitast við að flytja fróðlegt og skemmtilegt efni og sérstök áh- ersla verður lögð á greinar um menningarmál á Akureyri og á Norðurlandi. Hafa valinkunnir menn, bæði leikir og lærðir, verið fengnir til að skrifa greinar í blað- ið. Þá er þess ekki langt að bíða, að Dagur auki enn á útgáfuna, þó að með öðrum hætti sé. Aukinn véla- kostur mun innan skamms gera það kleift, að fjölga blaðsíðunum, og einnig opnast þá möguleikar fyrir litprentun. Fjölgun blaðsíðna er mjög mikilvægt mál fyrir Dag, þar sem auglýsingar taka sífellt meira rúm og lesendur biaðsins senda því nú greinar í mjög aukn- um mæli. Dagur hefur nú starfað í rösk- lega sextíu ár og sýnt það og sannað, að góður grundvöllur er fyrir rekstri hans. Áskrifendum hefum fjöigað jafnt og þétt og eru þeir um allt Norðurland og reynd- ar dreifðir um aiit land. Dagur hef- ur t.d. svipaða útbreiðslu á Akur- eyri og öll dagblöðin úr Reykjavík til samans, og segir það þó nokkra sögu um stöðu blaðsins. Þegar þetta er skrifað (10/2) er kosningabaráttan hér í Kanada í algleymingi. Kosningarnar eru eftir viku. Hér eru lítil einmenn- ingskjördœmi og barist er um hvert sæti. Stóru flokkarnir eru þrír. Frjálslyndi flokkurinn (liberals) undir forystu Trudeau, íhaldsflokkurinn (progressive conservative, bein þýðing fram- sóknaríhald) undir forystu Joe Clarks og Demokrataflokkurinn (new democrats) undir forystu Ed Broadbents. Ég hef freistast til að líkja þessum flokkum við flokkana heima, lalda í sömu röð, Fram- sóknarflokk, Sjálfstœðisflokk og A Iþýðuflokk. í síðustu kosningum fékk íhaldsflokkurinn um 48% at- kvœða, Frjálslyndi um 44% og Demokratar um 5%. Auk þessara flokka eru svo ýmsir smáflokkar sem átt hafa fáa eða enga menn á þingi, svo sem sérstakur flokkur frönskumœlandi Quebecbúa, Marxist-Leninistar og hér er líka „grínflokkur“, svipaður O- flokknum sem einu sinni bauð fram á íslandi, hér nefnist hann Nashyrningaflokkurinn. Mér veitist erfitt að átta mig á málefnaágreiningi stóru flokk- anna þriggja. Kosningabaráttan hér snýst mest um forsprakkana þrjá, þeir þeytast um allt þetta við- áttumikla land á kosningafundi, og í fylgd með þeim er heill her af fréttamönnum frá blöðum, út- varpsstöðvum og sjónvarpsstöðv- um og skýra fjölmiðlarnir daglega frá því sem þeir segja. Yfirleitt er ekki talað um það hvað flokkurinn œtli að gera, heldur hvað formað- urinn œtli að gera. Ádeilan er meira á formennina en flokkana. Pierre Trudeau var forsœtisráð- herra um 11 ára skeið, frönsku- mœlandi Quebecbúi, en talaði mjög góða ensku. Hann var pipar- sveinn, en kvœntist fyrir nokkrum árum Margréti, ungri blómarós, og eignaðist með henni þrjá sonu. Fyrir þremur árum hljópst hún svo á brott frá þeim feðgum og hefur stundað léttúðugt skemmtanalífið siðan. í fyrra gaf hún svo út ber- sögla œvisögu sina, aðeins þrítug að aldri, og hefur hún auðvitað verið þýdd á íslensku. Ég hélt að þetta mál hefði flokkurinn án þess þó að ná meirihluta. Joe Clark tók við með hlutleysisstuðningi Demokrata. Ég hef þó komist að raun um að Trudeau er talinn standa jafnréttur eftir þessa hjónabandsörðugleika, sem allir eru skrifaðir á reikning Margrét- ar, og er hún ekki í miklu áliti hjá KanadamönnumPierre er talinn snjall og mikilhœfur leiðtogi, sem lét fréttamenn ekki vaða ofaní sig að óþörfu. Menn vilduþó einhverja breytingu og því komst Joe Clark að. Hann hafði lofað ýmsu en stóð svo ekki við það allt svo sem venja er hjá stjórnmálamönnum. Ýmis- legt af því sem hann œtlaði að gera var óframkvœmanlegt þegar til framkvœmda kom. Hann œtlaði að flytja sendiráð Kanada í ísrael til Jerúsalem, hann œtlaði að gera Kanadiska olíuleitarfyrirtœkið S—BRÉF Petrocan að einkafyrirtœki og hann œtlaði að fœkka ríkisstarfs- mönnum um 60.000 á þremur ár- um. Þegar hann svo lagði fram fjárlög sín í desember og lítið ból- aði á efndum kosningaloforðum hœttu Demokratar hlutleysis- stuðningi og felldu fjárlagafrum- varpið ásamt Frjálslynda flokkn- um. Frjálslyndi flokkurinn var óvið- búinn þessum ótímabœru kosn- ingum, níu mánuðum eftir síðustu kosningar. Það hafði legið I loftinu síðan í kosningaósigrinum í vor að Trudeau mundi hœtta for- mennsku. Hins vegar var enginn sjálfsagður eftirmaður. í haust átti Trudeau að vera á einhverjum flokksfundi í Vancouver en boðaði forföll vegna veikinda. Sama dag sást svo til hans á skemmtistað i New York. Þetta atvik gaf orð- róminum um afsögn hans byr undir báða vœngi og skömmu síðar sagðist hann œtla að hœtta for- mennsku til að helga sig uppeldi sona sinna. Enginn arftaki var reiðubúinn og svo kom afsögn Joe Clarks og var Trudeau því beðinn um að halda formennskunni á- fram. Hann féllst á að leiða flokk- inn í enn einni kosningabarátt- unni. Kosningabarátta frjálslyndra ber merki þessa millibilsástands. Trudeau lofar fáu, segir ekki hve lengi hann œtli að halda áfram og neitar að taka þátt í sjónvarpsum- rœðum flokksformannanna, en þœr hafa verið jastur liður I hverri kosningabaráttu hér. Allar líkur eru á því að hann leiði flokk sinn til sigurs, þó e.t.v. ekki meiri- hlutasigurs. Trudeau er þreytuleg- ur að sjá, með bauga undir augum, hrukkótt andlit og þunnt ritjulegt hár en vel vaxinn og unglegur í fasi. Hann er búinn að vera í eld- línunni lengi og œtti sannarlega skilið að fá að hvíla sig og sinna sonum sínum. Mér virtist Joe Clark fremur óöruggur í framkomu fyrst þegar ég sá hann, en eftir að skoðana- kannanir fóru að sýna að flokkur hans mundi tapa I kosningunum, harðnaði hann og er nú öllu ákveðnari. Sálfrœðingar segja að hann sé of kanadiskur, of venju- legur, til þess að geta sópað að sér fylgi. Truleau er hins vegar sér- stœður og þess vegna hefur honum tekist að stjórna í 11 ár. Clark á erfitt með að útskýra hvers vegna ýmis kosningaloforð voru svikin. Hann segir að sex mánuðir séu ekki nœgur tími til að breyta um stefnu eftir 11 ára stjórn frjáls- lyndra. Kosningaslagorð íhalds- manna er: „Raunveruleg stefnu- breyting þarf að fá almennilegan möguleika. “ Þeir segjast hafa ver- ið að byrja breytingarnar, ekki síst með fjárlögunum sem vorú felld. Núna rétt fyrir kosningarnar reynir Clark, sem enn er í forsœt- isráðherrastóli, að afla sér vin- sælda með einarðri utanrikisstefnu og hefur t.d. ákveðið að hundsa Olympiuleikana I Moskvu og hef- ur tvívegis vísað sovjetskum sendi- ráðsmönnum úr landi fyrir njósnir. Hann vonast einnig til þess að að- stoð Kanadamanna við flótta sex bandarískra gísla frá íran verði reiknuð honum til tekna. Demokratar virðast samkvœmt skoðanakönnunum œtla að bœta við sig nokkru fylgi, ekki þó veru- legu. Fólk hér er hrætt við sósial- isma, sem Demokratar standa næst þessara þrigga flokka. Kosn- ingaslagorð þeirra er: „Þið hafið séð hvað stóru flokkarnir gera, þeir eru báðir eins, látið okkur um að breyta stefnunni“. Forsprakki þeirra, Ed Broadbent er vel fram- bœrilegur, þéttvaxinn og vel máli farinn. Hið sama verður ekki sagt um alla flokksbræður hans, sem margir eru ungir, skeggjaðir hug- sjónamenn. Þeir berjast sumir í kosningabaráttunni vopnaðir gít- ar, syngjandi baráttusöngva eða níðsöngva um andstæðingana. Flokkarnir eyða miklu fé i út- varps- og sjónvarpsauglýsingar. Ekki veit ég hve mikil áhrif þœr hafa, enda eru þœr mest á þá lund hve illa andstœðihgunum hafi farnast, einkum formönnum þeirra. Kosningabaráttan er ekk- ert sérlega skemmtileg, helst varpa athugasemdir nashyrningaflokks- ins nokkru Ijósi á gráan hvers- dagsleikann. Formaður hans vitn- ar í það að í síðustu kosningabar- áttu gáfu þeir mörg kosningalof- orð svo sem venja er. Eitt þeirra lofuðu þeir sérstaklega að standa við, og það var á þá lund að þeir lofuðu að svíkja öll önnur kosn- ingaloforð ef þeir kœmust til valda. Þeim þykir það lítilmótlegt af Joe Clark og íhaldsflokknum að þeir skuli hafa stolið þessu kosninga- loforði og efnt það. MINNING JóhannG. Guðmundsson t Og þar cr hlýrra og fegra en nokkurn gæti grunað, þar glampa hallir, þar Ijómar allt og skin. Þar syngja hiirpustrengir um ástarinnar unað — og um þær slóðir liggja þau víða, sporin þín. (Jón frá Ljárskógum). Dáinn, horfinn, harmafregn. Mig setti hljóðan, er ég frétti, að góðvinur minn og fyrrum sam- starfsmaður hjá Pósti og síma á Akureyri, væri látinn, en hann andaðist á sjúkrahúsinu hér, síðla dags þriðjudaginn 11. þ.m. Maður á svo bágt með að trúa, að menn á besta aldri, eru skyndilega kallaðir til æðri heima. En svona er lífið. Að vísu hafði Jóhann ekki gengið heill til skógar síðustu árin. Ég kynntist Jóhanni fyrst, er ég tók við umdæmis- og símstjóra- stöðunni hér á Akureyri, í ársbyrj- un 1966, en þá hafði hann nokkru áður verið skipaður sem póst- meistari. Tókst strax með okkur ánægjuleg samvinna og góð vinátta. Eftir að breytt var tilhögun um starfrækslu Pósts og síma, og að- skilið umdæmisstjórastarfið frá póst- og símstjórastarfinu, tók hann við stöðvarstjórastarfinu við Akur- eyrarstöðina, sem hann gegndi með alúð og samviskusemi, eins og öll störf hans mótuðust af. En hann var búinn að starfa við póststörf, svo að segja allt frá sínum ung- lingsárum, og hafði hann því lang- an starfsaldur að baki. Jóhann var kvæntur Hjördísi Óladóttir — Óla P. Kristjánssonar, fyrrv. póstmeistara hér. Þau bjuggu sér mjög ánægjulegt heimili að Engimýri 12 hér í bæ. Þau eignuð- ust fjögur börn, en þau eru Óli G. póstvarðstjóri, Edda hjúkunar- fræðingur, Örn trésmiður og Emilía skrifstofustúlka, sem enn býr í foreldrahúsum. Jóhann var góður heimilisfaðir, enda voru hjónin samhent í, að skapa sér ánægjulegt heimili. Jóhann var félagslyndur, enda starfsamur í mörgum félögum, þó hygg ég, að hann hafi haft mesta ánægju af starfi sínu í karlakórnum Geysi sem hann starfaði mikið í um áratugi og var m.a. einsöngvari og fprmaður hans um árabil, en hann hafði mjög mikinn áhuga á sönglist enda söngrödd hans fögur og vel þjálfuð. Þá var hann starfandi í Lions- klúbbnum Huginn. Og um ára- tugaskeið var hann í Oddfellow- reglunni, og þakka reglubræðurnir honum langa og góða samfylgd þar. Þá hafði Jóhann mikla ánægju af veiðiskap, og stundaði það allmikið meðan heilsa hans leyfði. Einnig var hann mikill útivistarmaður, og hafði mikla ánægju af, að fara með fjölskyldu sinni um helgar og á öðrum frístundum, út 1 óbyggðir til að njóta kyrrðarinnar og heilnæms lofts þar. Um ætt hans veit ég lítið, enda verða aðrir vinir hans, allt frá ung- lingsárunum, sem munu greina frá því. En hann var fæddur að Hvammi í Langadal í Austur- Húnavatnssýslu, en flutti hingað til skólagöngu, og var búsettur hér æ síðan. Og nú er leiðir skiijast og vetur sezt að völdum, þá verður þetta siðasta kvcðjuóskin mín: Að vorið eigi I hjarta þinu völd á dögum köldum og vefji sinu fegursta skarti sporin þin. (Jón frá Ljárskógum). Við hjónin sendum Hjördísi, börnum þeirra og tengdabörnum, ennfremur háöldruðum tengda- föður hans, svo og öðrum aðstand- endum, einlægar samúðarkveðjur, og biðjum Guð að styrkja þau í sárri sorg þeirra. Maríus Helgason. 4.DAGUR Sigurvegarar 1 sveitahraðkeppni Bridgefélags Akurcyrar. Einar Sveinbjamarson, Sveinbjörn Jónsson, Baldur Árnason. Sitjandi Gfsli Jónsson, Árni Ingimundarson og Adam Ingólfsson. Ljósmynd: Norðurmynd. Elín Antonsdóttir: Orð og athafnir þurfa að fara saman Um árabil hefur verið rætt um að ekki væri vanþörf á að byggð yrði kennslu- og almenningssundlaug í Glerárhverfi. Strax kom fram sú hugmynd að hagkvæmast væri allra hluta vegna að hún skyldi staðsett við eða sem næst skólanum og hinu þá nýbyggða íþróttahúsi. Var það samþykkt í bæjarstjórn 1978 og húsameistara Ágúst Berg falið að gera kostnaðaráætlun, sem hann og gerði. Fjárveiting var til þessarar framkvæmdar 1978 og 1979 án þess nokkuð væri að gert. Nú á þessu ári er 22 milljónum áætlað til sundlaugar í Glerárhverfi og brennur mörgum í sinni til- hugsunin um, að enn líði ár án nokkurrar aðgerða. Sjálfsbjörg, félag lamaðra og fatlaðra, hefur verið úthlutað lóð fyrir endurhæfingarstöð sína út og upp í hverfinu eða ca. 800 m frá Glerárskóla. Munu byggingar- framkvæmdir af þeirra hálfu hefjast í vor. Þar í mun m.a. verða sundlaug. Nú hafa þeir boðið bænum það, að börn í Glerárskóla fái notið sundkennslu í þeirra sundlaug, að öðrum kosti muni hún ekki fullnýtt. 17. mars s.l. stóðu Kvenfélagið Baldursbrá og Foreldrafélag Gler- árskóla fyrir almennum borgara- fundi um þetta mál. Fjölmenni var á fundinum eða um 150 manns að ógleymdum stórum hópi barna, sem stóð úti með kröfuspjöld þegar fullorðna fólkið dreif að. Komu þau síðan inn á fundinn og voru hin prúðmannlegustu. Þrjú þeirra tóku til máls og gáfu í örfáum velvöldum orðum til kynna hver þeirra vilji er í þessum efnum og ber að virða það. Allmiklar umræður urðu og voru skiptar skoðanir, sem vænta mátti. Lauk fundinum án nokkurrar nið- urstöðu um staðarval. En samin var samþykkt, sem send var til bæjar- ráðs og þess óskað að ákvörðunar- töku yrði hraðað sem mest. Það, sem kom mér mest á óvart á þessum fundi voru áberandi háværar raddir fyrir hönd Sjálfs- bjargar. Það kom mér á óvart vegna þess að ég var búin að heyra skoð- anir margra fyrir fundinn (og reyndar líka nú eftir hann) og eru þær undantpkningarlítið á einn veg, þ.e. að fá heldur sundlaug á skólalóðinni en afnot út í Sjálfs- bjargarhúsi. Eru rökin þau að börnin þyrftu eftir sem áður að ferðast drjúgan spöl og ekki myndu eins góðir möguleikar að hafa sundkennsluna í beinu framhaldi annarrar kennslu. Þessar línur eru ekki jjjtaðar í þeim tilgangi að reyna að hefta för Sjálfsbjargar á neinn hátt, síður en svo, enda lagði Björg Þórðardóttir ríka áherslu á að þau myndu halda sínu striki, og boð þeirra væri á engan hátt í hagsmunaskyni af þeirra hálfu, heldur aðeins til vel- gjörðar fyrir íbúa Glerárhverfis. Að öllu athuguðu finnst mér liggja beinast við, að þakka Sjálfs- björg kærlega þeirra góða boð, en halda okkur síðan við það sem þegar var búið að samþykkaa í bæjarstjórn um staðsetningu sund- laugar 1 Glerárhverfi. Við getum t.d. byrjað á því að spyrja ráða- menn í von um skjót og góð svör: Hvenær geta framkvæmdir hafist? - Iskappreiðar (Framhald af bls. 8). 2. Stefán Friðgeirsson frá Dalvík á Þrymi, 8 v. frá Garðsauka 145 3. -4 Ragnar Ingólfsson á Hrefnu 8 v. frá Höskuldsstöðum 93 Eigandi Sigurður Snæbjömsson. 3.-4. Friðgeir Jóhannsson frá Dalvík á Hrafni 7 v. frá Hjarðarhaga 93 Eigandi Vilm. Þ. Kristinsson. AUs voru átta hross skráð til leiks. 150 M NÝLIÐASKEIÐ: sek. 1. Björn Þorsteinsson á Rebekku, 7 v. frá Kolkuósi 16,9 Eigandi Lúther Harðarson. 2. Reynir Hjartarson á Skjónu, 5 v. frá Skálpagerði 17,3 Eigandi Áskell Harðarson. 3. Örn Grant á Sporði, 6 v. úr Borgarfirði 17,4 Eigandi Magnús Halldórsson. Alls voru sex hross í þessari keppni. 150 M SKEIÐ, opinn flokkur: sek. 1. Örn Grant á Gretti, 9 v. Eyfirskur 17,8 Eigandi knapi. 2. Björn Þorsteinsson á Þór, 7 v. frá Húsey 18,5 Eigandi Valdimar Kjartansson. 3. Albert Jónsson á Blesa, 6v. Eyfirskur 19,5 Eigandi Jón Matthíasson. Alls voru sex hross skráð til leiks. 200MSKEIÐ: sek. 1. Jóhann Þorsteinsson úr Skagaf. á Nikka, 8 v. Rang. 20,4 Eigandi knapi. 2. Jón Matthíasson á Gráskegg, 10 v. Eyfirskur 20,6 Eigandi knapi. 3. Björn Þorsteinsson á Snarfara, 6v. fráHúsey 21,6 Alls voru 13 hestar skráðir til leiks. í 200 m skeiði var m. a. keppt um ískeppnisstyttuna, sem gefin var í fyrra af Matthíasi Gestssyni, og hlýtur hana besti knapi Léttis. Að þessu sinni hlaut Jón Matthíasson styttuna. Einnig voru veittir eignarbikarar í hverri grein og verðlaunapeningar. Góður árangurJúdó-manna: Þorsteinn varði is- landsmeistaratitilinn íslandsmeistaramótið í Júdó, seinni hluti, var haldið í Reykjavík 16. mars s.l. Keppt var í opnum flokki karla og þyngdarflokkum kvenna og unglinga. Sex júdómenn frá Akureyri tóku þátt i þessu móti og kepptu allir í ungl- ingaflokki. Þorsteinn Hjaltason varði ís- landsmeistaratitil sinn frá því í fyrra, en mátti heygja harða viðureign við Kristján Valdi- marsson úr Ármanni. f sama þyngdarflokki glímdi einnig Kristján Friðriksson (JRA) við Kristján Valdimars- son og var glíma þeirra hörð og tvísýn framan af, en undir lokin náði Ármenningurinn loks fastataki sem Kristján Friðriks- son réði ekki við, og varð hann því að sætta sig við þriðja sætið í þeim flokki. f léttari flokki keppti Broddi Magnússon og hafnaði hann í þriðja sæti. f sama þyngdarflokki kepptu einnig Hörður Erlendsson, Helgi Erlendsson og Hólmar Svansson og veittu þeir sunnanmönnum oft harða keppni. marki. Tæpara gat það ekki verið. Fyrri leikinn léku þeir við Tý og unnu hann 18—17 og þann síðari við Þór 25—24. KA er nú efst í deildinni ogá aðeins eftir að leika við Fylki hér á Akureyri. Fylkir hefur tapað einu stigi meira en KA þannig að KA mönnum nægir jafntefli í þeim leik til að tryggja sér að leika í fyrstu deild á næsta keppnistímabili. Þróttur hefur tapað tveimur stigum meira en KA og á eftir að leika einn leik, við Aftureldingu. Það lið sem hafnar í öðru sæti deildarinnar fær aukaleik við næstneðsta lið fyrstu deildar um sæti í fyrstu deild næsta keppnistímabil. Að sögn Þorleifs Ananías- sonar fyrirliða KA voru leikir þessir mjög erfiðir, sérstaklega sá síðari. f þeim fyrri kvað hann KA hafa haft fjögurra marka forustu í leikhléi, og fljótlega aukið forskotið í sex mörk. Hins vegar hafi Týsmönnum tekist á síðustu mín. leiksins að saxa. á forskotið og komið því niður í eitt mark í leikslok. f síðari leiknum kvað hann KA hafa haft tveggja marka forustu í hálfleik, og haldið öruggri for- ustu fram í miðjan síðari hálf- leik, en þá fóru Þórsarar að Þ orsteinn (lengst til vinstri) I hópi góðra félaga. Mynd: Ó.Á. Tveir sigrar hjá KA Annarrardeildar lið KA í handknattleik gerði góða ferð til Vestmannaeyja um helgina. Þeir léku þar tvo leiki við heimalBin Þór og Týr. KA sigraði í báðum þessum leikjum, mjög naumt eða báða leikina með einu vakna og náðu að jafna og komust einu sinni yfir. Þegar leiktími var liðinn, var staðan 24—24 og KA fékk fríkast. Þórsarar sem voru aðeins fjórir úti, þar er tveimur þeirra hafði verið vikið af leikvelli, mynd- uðu varnarvegg. Alfreð, Friðjón og Jóhann földu síðan boltann, og gerðu síðan allir skottilraun og Þórsarar bjuggust allir við að Alfreð myndi skjóta og reyndu allir að blokkera hann, en Jó- hann hafði boltann og skoraði örugglega, og tryggði bæði stig- in í leiknum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.