Dagur - 27.03.1980, Blaðsíða 8

Dagur - 27.03.1980, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, fimmtudagur 27. mars 1980 LlMUM BORÐA RENNUM SKÁLAR Herstöðvaandstæð- ingar, Akureyri: Kröfuganga og skemmti- fundur Hinn 30. mars nk. eru 31 ár liðin frá inngöngu Ísiands i NATO. í tilefni þess hafa samtök herstöðvaandstæð- inga á Akureyri ákveðið í samstarfi við fleiri deildir á Norðurlandi að gangast fyrir kröfugöngu og skemmtifundi laugardaginn 29. mars n.k. Kröfugangan hefst við KEA í Hrísalundi og þangað eiga þátttakendur að mæta kl. 13.30. Þar mun göngustjóri, Hjörleifur Hjartarson, nemi, flytja ávarp ogstjóma uppstillingu. Gangan leggur af stað kl. 14.00 og geng- ið verður um Hrísalund, Skóg- arlund, Mýrarveg, Hrafnagils- stræti, Eyrarlandsveg, Kaup- vangsstræti (Kaupfélagsgilið) og Hafnarstræti að Ráðhús- torgi. Þar er áætlað að vera kl. 14.45, og verður þar skotið á stuttum fundi. Arnar Björnsson frá Húsavík flytur þar ávarp. Kl. 15.00 hefst svo skemmti- og menningarfundur her- stöðvaandstæðinga í Sjálfstæð- ishúsinu. Þar verður margt á dagskrá. Sérstök barnadagskrá verður með teiknimyndum, leikjum o.fl. Á dagskrá full- orðna fólksins verður m.a. ein ræða sem Jón Hafsteinn Jóns- son, menntaskólakennari, flytur og tvö ávörp, sem Auður Odd- geirsdóttir, formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga á Akur- eyri, og Stefanía Þorgrímsdóttir frá Mývatnssveit flytja. Auk þess flytur Chilebúinn Julio Ocares stutt ávarp um ástandið í landí sínu. Þjóðþrif syngur nokkur lög og einnig nýr söng- hópur, sem til varð í undir- búningsstarfi að þessum fundi. Revían „Herstöðvasjampó“ eftir Guðmund Sæmundsson verður flutt af nokkrum félög- um Leikfélags MA undir leik- stjórn Viðars Eggertssonar, leikara. Sigríður Hafstað les nokkur ljóð. Þá verður kröftug- ur fjöldasöngur og spennandi fjáröflunarhappdrætti. EYFIRSKIR KARTÖFLUBÆNDUR STOFNA HAGSMUNAFÉLAG Þrjátíu bændur gerðust félagar í Félagi kartöflubænda við Eyja- fjörð, á stofnfundi sem haldinn var 13. mars síðast liðinn. Áætlað er að félagsmenn geti orðið allt að 60 siðar meir. Tilgangur félagsins er að vinna alhliða að vexti og viðgangi kart- öfluræktar á félagssvæðinu, en það er svæði Búnaðarsambands Eyja- fjarðar, það er Eyjafjarðarsýsla og tveir vestustu hreppar S-Þingeyjar- sýslu, Grýtubakkahreppur og Svalbarðsströnd. Samkvæmt lögum félagsins, sem samþykkt voru á stofnfundinum, geta þeir orðið félagsmenn, sem rækta kartöflur til sölu og eru ábú- endur á lögbýli og eða eru heimil- isfastir á lögbýli. Félagið hyggst beita sér fyrir stofnun Landsambands kartöflu- bænda og fleiri brýnum hags- munamálum kartöflubænda og neytenda. Núverandi ástand í framleiðslumálum landbúnaðarins almennt gerir það mjög brýnt, að vel sé hugað að þeim búgreinum, sem eiga enn eftir að geta vaxið og dafnað, eins og segir í frétt frá fé- laginu. Bændum á svæðinu er sérstak- lega bent á að hafa sem fyrst sam- band við félagið og gerast félagar. Framhaldsstofnfundur verður Passíukórinn tekur nú upp þá nýbreytni að halda páskatón- leika, og verða þeir haldnir í Akureyrarkirkju á pálma- sunnudag kl. 21. Flutt verður verkið Via Crucis eftir Liszt, sem samið var við 14 helgimyndir um píslargöngu Krists og er fyrir orgel, blandaðan kór og einsöngvara. Við flutning verksins verða sýndar litskyggnur af frægum listaverkum úr píslar- sögunni, valdar af Guðbjörgu Kristjánsdóttur listfræðingi. Einnig mun séra Bolli Gústavs- son lesa ritningarorð. Einsöng annast: Þuríður Baldursdóttir, Jón Hlöðver Áskelsson og Har- aldur Hauksson. Orgelleikari verður Gígja Kjartansdóttir og stjómandi Roar Kvam. Liszt samdi verkið Via Crucis á árunum 1876—1879. Textinn er að hluta úr biblíunni, en einnig latneskir og þýskir sálmar. Á sín- um tíma þótti verkið svo framúr- stefnulegt, að það fékkst ekki gefið út fyrr en 50 árum eftir dauða Liszts, og var það frumflutt í Budapest árið 1929. Liszt hefur lagt svo fyrir að útgáfa verksins skyldi prýdd myndum um píslar- gönguna, t.d. tréskurðarmyndum Albrechts Dúrer. Núorðið er það hefð að sýndar séu litskyggnur við flutning verksins þannig að efni þess sé bæði sýnilegt og heyrarlegt. <---------------------------- Ær láta lömbum Hreiðarsstöðum, Svarfaðardal 21. mars. Það hefur ofurlítið borið á því hér á bæ að það hafa Iátið kind- ur. Þetta er dálítið óvenjulegur tími, en sennilega er ástæðan slæmt fóður. Ég hef ekki heyrt að svipað hafi gerst á nágranna- bæjunum. Nú eru tæpir tveir mánuðir þar til sauðburður hefst fyrir alvöru. Menn fóru yfirleitt seint af stað nú — minnugir vorsins. Víða var ekki hleypt til fyrr en 10. til 15. desem- ber. S. H. Magnús Þór og Kristján frá Djúpalæk: Vinna saman að plötuútgáfu Magnús Þór Sigmundsson vinnur nú að gerð nýrrar hljómplötu í samstarfi við Kristján skáld frá Djúpalæk. Þetta verður barnaplata í nokkurs konar framhaldi af plötunni „Börn og dagar“ og hefur þessari nýju plötu verið valið nafnið „Sólskin“. Magnús Þór var hér um síðustu helgi, og ræddi þá meðal annars við Kristján, auk þess sem hann skemmti í Sjálfstæðishúsinu og á H-100. Kynnti hann þá meðal annars nýjar tónsmíðar, ai^k nokkurra laga af plötunni „Álf- ar“, sem kom á markað nýlega. Magnús sagðist hlakka til sam- starfsins við Kristján, enda væri hann mjög stór sál, sem hann bæri mikla virðingu fyrir. Þegar hann var inntur eftir því, hvers vegna hann kysi að semja barna- plötu, sagði hann, að í rauninni væru allir börn. Sumir vildu hins vegar ekki viðurkenna í sér barn- ið og það væru þeir sem þjáðust. Annars sagði hann, að það væri verkið sjálft Sem réði ferðinni, miklu fremur en hann sjálfur. Hann fengi eins konar orku- strauma, sem síðan endurspegl- uðust í verkum hans. Magnús Þór sagði, að þótt hann væri búsettur í Keflavík, þá byggi hann í sjálfum sér, — og væri alls staðar. haldinn að loknum vorönnum. í stjórn félagsins voru kjörnir Svein- berg Laxdal, Túnsbergi, formaður, Kristján Hannesson, Kaupangi, Eiríkur Sigfússon, Sílastöðum, Guðmundur Þórisson, Hléskógum og Ingi Þór Ingimarsson, Neðri- Dálksstöðum. Píslarganga í lón- um og myndum Kartöflubændur vilja helst af ölii stofna landssamtök. y v M' 4 * Magnús Þör. Ljósm.: Þ. L. ro lö • Aðfleyta rjómann Það hefur víst ekkí farið framhjá netnum að sunn- lensk fyrirtæki hafa í æ ríkari mæli leitað norður og stofn- að útibú á Akureyri. Það þykir sjálfsagt bera vott um þröng- sýni að amast við þessum útibúum, en við skulum at- huga málið ögn nánar. Þessi fyrirtæki sækja ágóðann í hendur Eyfirðinga og fara með hann suður — a.m.k. er það tilfellið með þau tlest. Þau róa einungis á þau mið sem gefa góðan afla, en iáta í friði allt sem hugsanlega getur leitt til tapreksturs. £ Heimamenn og tapið Eyfirðingar hafa löngum ver- fð þekktir fyrir að vera hoilir samvinnumenn. Byggð hér við fjörðinn væri varla það sem hún er ef ekki kæmi til elja samvinnumanna. Hvaða einkaframtaksmaður ræki t.d. verslun á stað þar sem hún er dæmd til að tapa? Ef fram heldur sem horfir má al- veg eins gera ráð fyrir að reykvísk stórfyrirtæki sjúgi alla þá spena sem eitthvað lekur úr, en fyrirtækjum í eigu almennings verði ætlað að sitja uppi með þær greinar atvinnuiífsins sem eru óarð- bærar. Hverníg væri annars að skylda aðkomufyrrtækin að taka að sér óaröbæra þjónustu við almenning eða reka fyrirtæki sem aidrel mun skiia hagnaði? Hvorutveggja verða samvinnufyrirtæki að gera og telja það raunar skyldu sína í mörgum tilfell- um. 0 Þegarilla árar En tímarnir eru ekki alltaf jafn bjartir. Þegar illa árar til sjós og lands vilja fyrirtæki tapa og draga saman seglin í framhaldf af því. Það er gömul saga og ný að undir þeim kringumstæðum hætta oft stórfyrirtæki í einkaeign rekstri óarðbærra útibúa og einbeita sér að heimaslóð- um. Þetta getur gerst við Eyjafjörðinn — þetta geta sunnlensku fyrirtækin gert — eftir að hafa fleytt rjómann ofan af atvinnurekstri í hér- aðinu. Þá er ekki víst að heimamenn eigi gilda sjóði. Til þess að tryggja framtíðina eins vel og kostur er ættu Eyfirðingar að styðja við bak- ið á samvinnufélögunum — þau munu ekki hopa af hólmi þótt eitthvað bjáti á — það er ekki þeirra eðli.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.