Dagur - 22.04.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 22.04.1980, Blaðsíða 6
Akureyrarkirkja. Messað verður n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Sálmar: 476-55-48-45-213. B.S. Fermingarguðsþjónustur í Laufásprestakalli: Sval- barðskirkja á sumardaginn fyrsta, 24. apríl n.k., klukkan 1.30 e.h. Fermingarbörn: Ásgerður Jónasdóttir, Með- alheimi; Bjarney Vala Steingrímsdóttir, Heiðar- holti; Hildur Petra Friðriks- dóttir, Höfn; Hlynur Guðmundsson, Hallandi; Líney Laxdal, Túnsbergi og Sólveig Sigfúsdóttir, Geld- ingsá. Laufáskirkja n.k. sunnudag 27. apríl kl. 2. e.h. Fermdir: Gústaf Geir Bollason, Laufási; Snæbjörn Kristjánsson, Grýtubakka. Sóknarprestur. Fermingarbörn á Grund, sunnudaginn 27. apríl, kl. 12.00; Aðalheiður Ásrún Ásgeirsdóttir, Hlíðarhaga; Björk Sigurðardóttir, Hrafnagilsskóla; Hólmfríð- ur Sigurðardóttir, Torfu- felli; Kamilla Þorsteinsdótt- ir, Kristneshæli 11; Ragn- heiður Sigurðardóttir, Ár- bakka; Sigrún Rósa Har- aldsdóttir, Svertingsstöðum; Jón Bernharð Þorsteinsson, Samkomugerði; Sigurður Eiríksson, Grísará 1; Vilhjálmur Geir Kristjáns- son, Leyningi og Ævar Hreinsson, Hríshóli. Akureyrarkirkja skátamessa kl. ■ 11 f.h. á sumardaginn fyrsta. Allir velkomnir. P.S. Hlffarkonur. Munið kirkju- göngudaginn sunnudaginn 27. apríl. Fjölmennið og takið þátt í guðsþjónustunni. Nefndin. Kökubasar verður í sal Hjálp- ræðishersins sumardaginn fyrsta 24. apríl kl. 20. Komið og gerið góð kaup. Sjónarhæð Almenn samkoma n.k. sunnudag ki. 17.00. Sunnudagaskóli í Glerár- skóla kl. 13.15 og í Lundar- skóla kl. 13.30. Verið vel- komin. Bækur á Esperanto í Bókasafninu Fram að næstu helgi stendur yfir í Amtsbókasafninu á Akureyri sýning á bókum og tímaritum á Esperanto, og standa að henni Amtsbókasafnið og félag esperantista á Norðurlandi, Norda Stelo. Á sýningunni eru 250 eintök, flest í eigu einstak- linga á Akureyri, en nokkur í eigu safnsins og félagsins. Hér á landi er nú boðið upp á Esperanto sem valfrjálsa náms- grein í a.m.k. þrem framhaldsskól- um á Íslandi þ.e. í Menntaskólan- um við Hamrahlíð, Menntaskólan- um á Akureyri og Fjölbrautarskól- anum á Akranesi, en auk þess er hægt að stunda Esperanto í Bréfa- skóla SÍS og ASÍ svo og sumstaðar í Námsflokkum. Á nýliðnum áratug hefir Esperanto styrkt stöðu sína víða um heim, og er nú mikið unnið að því, að gera esperantomælandi ferðamönnum kleift að komast um heiminn með því sem einasta hjálparmáli, t.d. með því að gefa út skrá yfir einstaklinga, sem fúsir eru að veita aðstoð. 6.DAGUR Irv/jS - > Kiwanisklúbburinn Kaldbakur. Almennur fundur á Hótel K.E.A. fimmtudaginn 24. apríl kl. 19.15. Áríðandi að allir mæti. I.O.O.F. Rb 2 = 1294238'/2 = Lionsklúbburinn Hængur. Fundur fimmtudaginn 24. apríl kl. 6.45 í H-100. Ath. breyttan tíma. □ HULD 59804237 — IV/V Lokaf. I.O.O.F. 2 — 1614258VÍ I.O.G.T. Vorþing umdæmis- stúkunnar nr. 5 verður hald- ið fimmtudaginn 24. þessa mánaðar klukkan 8.30 e.h. í félagsheimili templara, Varðborg. Venjuleg þings- störf, kosnir fulltrúar á stór- stúkuþing, embættismanna- kosning, stórtemplar segir frá ferð sinni í 100 ára af- mæli dönsku reglunnar. Kaffi eftir þing. U.t. Lionsklúbbur Akureyrar. Fund- ur í Sjálfstæðishúsinu mið- vikudaginn 23. apríl klukk- an 12. Hjálpræðisherinn fundur fyrir börn á fimmtudögum kl. 16.30 og sunnudagaskóli á sunnudögum kl. 13.30. Al- menn samkoma sunnudag kl. 17. Á mánudag er heim- ilissamband fyrir konur kl. 16. Verið velkomin. Ffladelfía Lundargötu 12, fimmtudaginn 24. apríl lof- gjörðarstund kl. 8.30. Laug- ardaginn 26. apríl Drottning brauðsins kl. 8.30. Sunnu- daginn 27. apríl sunnudaga- skóli kl. 20.30. Öll börn vel- komin. Almenn samkoma kl. 8.30. Vitnisburður og söngur. Allir velkomnir. Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu- daginn 27. apríl fundur í kristniboðsfélagi kvenna kl. 4. Allar konur velkomnar. Samkoma kl. 20.30 Allir velkomnir. Sumarfagnaður verður haldinn í Alþýðuhúsinu föstudaginn 25. apríl og hefst kl. 20.30. Veitingar, skemmtiatriði og dans. Allir velkomnir. Sjálfsbjörg Akureyri. Frá Ferðafélagi Akureyrar. Kvöldvaka í Hrafnagils- skóla laugardaginn 26. apríl kl. 20.30. Ferðaáætlun sum- arsins kynnt. Jón Gauti Jónsson sýnir myndina og segir frá Biskupaleið. Ferð úr Skipagötu kl. 20.30. Þann 1. er gönguferð á Súlur. Brottförkl. 19.00. BINGÓ. KA bingó á Hótel Varðborg föstudaginn 25. þessa mánaðar klukkan 8.30 e.h. Margir og stórglæsilegir vinningar. K.A. Raðhúsaíbúðir á einni hæð til sölu. Höfum til sölu tvær íbúðir á einum besta stað í Síðuhverfi. Skóli og verslun væntanlegt í næsta nágrenni. íbúðirnar verða fokheldar um mitt sumar 1980. Upplýsingar í síma 25221 á daginn og 24547 á kvöldin. Byggingarverktakinn Hamar s.f. A fluqfélaq noróurlands hf. NORLANDAIR Lld. Flugfélag Norðurland hf. auglýsir eftir lítilli íbúð fyrir starfsmann félagsins frá og meó 1. maí. Upplýsingar fást á skrifstofu félagsins í síma 21824 frá kl. 9 til 16 virka daga. Flugfélag Norðurlands hf. Akureyrarflugvelli. Arshátíð Þýsk-íslenska félagsins verður haldin í golfskálan- um Jaðri laugardaginn 26. apríl og hefst kl. 19.30. 1. Glas sekt 2. Sameiginlegt borðhald súpa Toscka Marineraðar nautalundir Mokkaís 3. Vönduð skemmtiatriði 4. Dans Aðgangseyrir kr. 7.500 Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 23369 eða 24896 fyrir fimmtudagskvöld. Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, BALDVINS JÓHANNSSONAR, Dæli í Sæmundarhlíð. Jón Baldvinsson, Stefanía Guðmundsdóttir, Ingibjörg Baldvinsdóttir, Valtýr Guðmundsson, Ásta Baldvinsdóttir, Þorsteinn Halifreðsson, Emil Ólafsson, Hanna Pálsdóttir, Guðný Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kvenfétag Alþýðu- flokksins á Akureyri heldur aðalfund laugardaginn 26. apríl í Strand- götu 9, kl. 2.30 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. Áríðandi að konur mæti. Stjórnin A Félagsmálastofnun Akureyrar verður lokuð vegna flutninga dagana 22., 23. og 25. apríl n.k. Mánudaginn 28. apríl hefst starfsemin að nýju í Strandgötu 19b. Sími 25880. Viðtalstími er kl. 10-12. Félagsmálastjóri Útboð Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í að steypa upp dagvistarheimili íSíðuhverfi. Útboðsgögn verða afhent á teiknistofu Húsameist- ara Akureyrarbæjar, Geislagötu 5, 3. hæð, gegn skilatryggingu að upphæð kr. 100.000,-. Tilboðin verða opnuð þann 5. maí 1980 kl. 14.00 á bæjarskrifstofunni Geislagötu 9. F.h. Akureyrarbæjar, Teiknistofa Húsameistara. Frá grunnskólum Akureyrar Innritun 6 ára barna (fædd 1974), sem ætlað er að sækja forskólanám á næsta skólaári, fer fram í barnaskólum bæjarins miðvikudginn 23. apríl n.k., kl. 9-12 f.h. og 1-3 e.h. Innrita má með símtali við viðkomandi skóla. Oddeyrarskóla...............í síma 22886 Barnaskóla Akureyrar........ ísíma24172 Glerárskóla ................ísíma 22253 Lundarskóla.................í síma 24560 í stórum dráttum er gert ráð fyrir, að á komandi skólaári verði skólasvæðin óbreytt miðað við nú- verandi skólaár, en í undantekningartilfellum munu skólarnir hafa samband við viðkomandi foreldra. Liggi fyrir vitneskja um flutning eldri nemenda milli skólasvæða er nauðsynlegt að skólarnir fái um það vitneskju og fer innritun þessara nemenda fram á sama tíma og í sama síma og forskólanemendanna. Skólastjórarnir

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.