Dagur - 22.05.1980, Síða 6
H i - - TTV lii 0 - - -
SAMKOMlik s W®
Sjónarhæð Hvítasunnudagur.
Almenn samkoma kl. 17.00.
Biblíulestur á fimmtudag kl.
20.30. Komið og hlýðið á
orð Guðs. Verið velkomin.
Slysavarnafélagskonur Akur-
eyri. Vorfundurinn verður
fimmtudaginn 29. maí kl.
20,30 í félagsmiðstöðinni,
Lundaskóla (gengið inn að
norðan). Björn Mikaelsson,
sýnir kvikmynd. Veitingar
(takið með ykkur bolla).
Stjórnin.
Flóamarkaður Náttúrulækn-
ingafélags Akureyrar verður
haldinn dagana 7.-8. júní
n.k. Þeir velunnarar félags-
ins sem enn hafa ekki skilað
munum þeim, sem þeir ætla
að gefa á markaðinn eru
vinsamlega beðnir að skila
þeim í Amaro sem allra
fyrst. Nefndin.
Þórdís B. Kristjánsdóttir,
Stekkjargerði 3, Soffía Ein-
arsdóttir, Grundargerði 6 f
og Sigríður Örvarsdóttir,
Hjallalundi 3 d, hafa fært
Dvalarheimilinu Hlíð,
ágóða af hlutaveltu kr.
8.300. Með þökkum mót-
tekið. Forstöðumaður.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
BJARNA JÓNSSONAR,
úrsmiðs.
Ólöf Guðmundsdóttir Rist,
Jón Bjarnason, Sigrún Helgadóttir,
Stefán Bjarnason, Hugrún Hólmsteinsdóttir,
Gísella Bjarnason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
SVEINS FRIÐBJÖRNSSONAR,
Efstakoti, Oalvík.
Petrína Friðbjörnsdóttir
og systrabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem glöddu mig á
85 ára afmœli mínu 12. maí s.l., með heimsóknum,
blómum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Lækjargötu 11 Akureyri.
AKUREYRARBÆR
Útboð
Tilboð óskast í jarðvegsskipti fyrir fjölbýlishúsi og
bílastæðum að Keilusíðu 1-3-5.
Útboðsgögn verða afhent á teiknistofu húsameist-
ara Akureyrarbæjar, Geislagötu 5, 3. hæð. gegn kr.
50.000,- skilatryggingu frá föstudeginum 23. maí kl.
9-12 f.h.
Tilboðin verða opnuð þann 2. júní 1980 kl. 14.00 á
Bæjarskrifstofunni Geislagötu 9.
f.h. Akureyrarbæjar,
Teiknistofa húsameistara.
Útboð
Bæjarsjóður Dalvíkur óskar eftir tilboðum í fok-
helda byggingu 1. áfanga grunnskóla á Dalvík.
Útboðsgögn verða afhent hjá bæjartæknifræð-
ingnum á Dalvík í ráðhúsi Dalvíkur og á Verkfræði-
stofu Davíðs Arnljótssonar Aðalstræti 16, Akureyri
gegn 150.000 kr. skilatryggingu frá og með föstu-
deginum 23. maí.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 9. júní 1980 kl.
16.00 á skrifstofu Dalvíkurbæjar í ráðhúsi Dalvíkur.
6.DAGUR
KAUPMANNAFÉLAG AKUREYRAR:
Gera verður úrbætur í mál-
efnum smásöluverslunar
Á fundi í Kaupmannafélagi Ak-
ureyrar, sem haldinn var laugar-
daginn 10. maí að Hótel Varð-
borg, var samþykkt ályktun um
iandsbyggðaverslunina. Álykt-
unin hijóðar svo:
„Fundurinn vekur athygli á
þeim erfiðleikum sem landsbyggð-
Ungmenna-
búðir USAH
Ungmennabúðir verða starf-
ræktar á vegum Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga að
Húnavöllum frá 1. tii 14. júní
n.k. Fyrri vikuna verða búðir
fyrir unglinga 13-15 ára en fyrir
5-12 ára síðari vikuna.
Á dagskrá búðanna verður m.a.
sundkennsla, frjálsar íþróttir,
knattleikir, trampolínustökk,
áhaldaleikfimi, glíma, leiksund,
fjallganga, leikir, frjálsir tímar við
Svínavatn (prammasmíði og busl),
helgistundir, kvöldvökur, dans og
fleira.
Stjórnandi búðanna verður Karl
Lúðvíksson íþróttakennari en auk
hans verða leiðbeindendur sr.
Hjálmar Jónsson og Lára Guð-
mundsdóttir fóstra.
Ungmennasamband Austur-
Húnvegninga hefur staðið fyrir
ungmennabúðum að Húnavöllum
nokkur undanfarin sumur. Karl
Lúðvíksson hefur ætíð veitt þeim
forstöðu. Aðsókn hefur alltaf verið
góð og farið vaxandi.
Ertu meö sykursýki?
Þvagsykursathugunin, sem Samtök
sykursjúkra á Akureyri hrundi af
stað, hefur gengið vel, en henni lýkur
um næstu mánaðamót. Mikið hefur
borist af bréfum frá fóiki, sem hefur
kannað sykur i þvaginu, með þar til
gcrðum strimli, en þeir sem ekki
hafa komið því f verk, eru hvattir til
að gera það hið fyrsta, og senda
niðurstöðurnar til Læknamið-
stöðvarinnar eða apótekanna f bæn-
um. Ekki þarf að fara orðum um það,
hversu mikilvæg og cinstök þessi
könnun er.
Kaldbakur
afhendir fé
í byggingar-
sjóð Sjálfs-
bjargar
Fimmtudaginn 24. apríl afhenti
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
Akureyri kr. 2.000.000,- í Bygg-
ingarsjóð Sjálfsbjargar. Pen-
ingana aflaði klúbburinn meðai
annars með sölu páskaeggja nú
fyrir páskana.
Peningarnir vour afhentir á
fundi hjá klúbbnum og tók Heið-
rún Steingrímsdóttir formaður
Sjálfsbjargar við framlaginu úr
hendi Sævars Vigfússonar forseta
Kaldbaks. Þess má geta að
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
hefur áður styrkt starfssemi Sjálfs-
bjargar og þegar endurhæfingar-
stöðin á Bjargi var stofnuð gaf
Kiwanisklúbburinn öll tæki sem
stöðin byrjaði sína starfsemi með.
Einnig má geta þess að Kiwanis-
klúbburinn Kaldbakur gaf öll
verðlaun til Andrésar Andar leik-
anna sem haldnir voru nýlega í
Hlíðarfjalli.
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur
þakkar bæjarbúum fyrir góðar
móttökur og þeirra framlag til að
gera þetta mögulegt.
arverslunin á við að glíma og telur
það skyldu stjórnvalda að hlutast
nú þegar til um úrbætur, þannig að
smásöluverslunin geti gegnt því
hlutverki sem til er ætlast í nútíma
þjóðfélagi.
Fundurinn bendir sérstaklega á
það mikilvæga hlutverk sem versl-
unin gegnir til byggðarjafnvægis í
landinu. Verslunin sem atvinnu-
grein, nýtur engra opinberra
styrkja eða ívilana, þvert á móti má
segja að hún hlaupi undir bagga
með öðrum atvinnugreinum lands-
manna, svo sem landbúnaði
sjávarútvegi og iðnaði, með því að
taka að sér nauðsynlega þjónustu
fyrir gjald, sem er ákveðið af hinu
opinbera og í mörgum tilfellum
undir kostnaðarverði.
Á hverju ári gera þingmenn og
ríkisstjórn sérstakar ráðstafanir til
Undirritaður hefur árlega síðustu
5-6 ár orðið fyrir tjóni á garða-
Kindur geta skemmt ótrúiega mikið á
stuttum tfmaJVIynd: h.s.
Lionsklúhhurinn Vitaðsgjafi
starfar í sveitinni innan Akur-
eyrar og á Svalbarðsströnd.
Hann hefur jafnan lcitast við að
hlaupa undir bagga tneð þeim
sem hafa orðið fyrir skyndileg-
um fjárhagslegum óhöppum á
fyrrnefndu svæði, og þá einkum,
ef að snöggiega hefur þurft að
flytja sjúklinga burt til lækninga
m.a. til annarra landa. Jafn-
framt þessu hefur klúbburinn
styrkt Sólborg og Sjáifsbjörg á
Akureyri við sína uppbyggingu,
eftir því sem hann hefur getað
afiað tekna tii. Þá má og geta
þess að bæta hag annarra atvinnu-
greina landsmanna, en litið er
framhjá þeim vanda sem verslunin
í landinu á við að etja.
Við þetta verður ekki lengur un-
að af hálfu verslunarinnar og
áskilur hún sér allan rétt þar að
lútandi."
Þá var samþykkt ályktun, þar
sem harðlega er mótmælt þeirri
fyrirætlan ríkisstjórnarinnar, sem
fram kemur í frumvarpi til láns-
fjáráætlunar fyrir árið 1980, um að
skerða ráðstöfunarrétt lífeyrissjóða
landsmanna með því að skylda þá
til þess að láta af hendi 40% af ráð-
stöfunarfé þeirra til hins opinbera.
í ályktuninni segir, að lífeyrissjóð-
imar séu stofnaðir í frjálsum
kjarasamningum milli launþega og
atvinnurekenda og eigi því þessir
aðilar fullan rétt til ráðstöfunar á
því fé, sem renni til þeirra.
gróðri af völdum búfjár og sættir
sig ekki við að svo verði áfram.
Garðaeigendur sem verða fyrir
ágangi búfjár verða að sameinast
um að hrinda þessum vanda af
höndum sér og handsama það
búfé, sem ágangi veldur, komast að
því hjá umsjónarmanni (Þórhalli í
síma 22963) hver sé eigandi þess og
kæra hann fyrir bæjarfógeta. Því að
í reglugerð um búfjárhald á Akur-
eyri stendur:
„Einnig skal eigandi slíks búfjár
bæta það tjón, er búféð hefur vald-
ið. Ef um ítrekað brot verður að
ræða á lausagöngu fjár, varðar það
sektum og leyfissviptingu.“
Slík brot á reglugerð um búfjár-
hald munu sumir „sportbændur"
látasér í léttu rúmi liggja, nema við
kærum þau fyrir fógeta.
Halldór Halldórsson,
læknir, Klettagerði 1, Akureyri.
þess að klúbbféiagar lögðu fram
vinnu sína á síðastliðnu sumri
við að þekja og laga til í kringum
hina nýbyggðu sundlaug við
Hrafnagilsskóla, en klúbburinn
hefur haft aðstöðu til funda-
halda i skólanum.
Síðast en ekki síst hefur Vitaðs-
gjafi reynt að hlynna að gömlu og
lasburða fólki á Kristneshæli með
því að útvega hluti í setustofu þess.
Sunnudaginn 4. maí færðu félagar
úr Vitaðsgjafa Kristneshæli fjóra
þægilega stóla að gjöf, sem for-
ráðamenn staðarins tóku við með
miklum þökkum, Meðfylgjandi
mynd var tekin við það tækifæri.
Á myndinni eru frá vinstri: Bjarni Arthúrsson, forstöóumaður hælisins, Brynjar
Valdimarsson, iæknir, Anna Guðrún Jónsdóttir, forstöðukona hælisins, Ólafur
Tryggvason, bóndi Ytrahóli, Hallgrimur Aðalsteinsson, bóndi Garði og Sævaldur
Valdimarsson, bóndi Sigluvfk, formaður klúbbsins.
Handsamið búfé, sem
veldur usla í görðum
Gaf stóla til
Kristneshælis