Dagur - 03.06.1980, Side 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
LXm. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 3. júní 1980
39. tölublað
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga:
Eitthundrað milljónir
enaurgreiddar
í stofnsjóðsreikninga félagsmanna.
Tekjuafgangur tæpar 152 milljónir sl. ár
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð-
inga var haldinn í Samkomu-
húsinu á Akureyri 30. og 31.
maí. Rétt til fundarsetu höfðu
235 fulltrúar frá 25 félagsdeild-
um, en mættir voru 225 fulltrúar
frá 22 deildum. Auk þess sátu
fundinn allmargir félagsmenn
aðrir og ýmsir starfsmenn kaup-
félagsins.
Fundarstjórar voru kjörnir
Haukur Halldórsson, bóndi Svein-
bjamargerði, og Jón Ingimarsson,
formaður Iðju, Akureyri, en fund-
arritarar Sigfús Þorsteinsson, bóndi
Rauðuvík, og Árni Jóhannesson,
yfirverkstjóri, Akureyri.
Eftir að formaður félagsins,
Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á
Tjörn, hafði minnst látinna starfs-
manna og félagsmanna flutti hann
skýrslu félagsstjórnar fyrir s.l. ár.
Þar kom m.a. fram, að fjárfestingar
kaupfélagsins árið 1979 höfðu
numið samtals 1.684,5 milljónum
króna, en þar af fóru kr. 1.058,4
milljónir til áframhaldandi bygg-
ingar mjólkurstöðvarinnar á Akur-
eyri.
Kaupfélagsstjórinn, Valur Arn-
þórsson, las og skýrði reikninga
kaupfélagsins og gerði grein fyrir
rekstri þess en reikningar félagsins
lágu auk þess fyrir fundinum í mjög
ítarlegri, prentaðri skýrslu. Heild-
arvelta félagsins og fyrirtækja þess
jókst um 58,6% frá fyrra ári eða úr
26,3 milljörðum króna í rúml. 41,7
milljarða. Heildarlaunagreiðslur
félagsins á s.l. ári námu tæpum 4,5
milljörðum króna, en samstarfs-
fyrirtækjanna rúmlega 1,1 millj-
arði. Fastir starfsmenn kaupfélags-
ins í árslok voru 680. Á árinu Sam-
þykkti fundurinn að endurgreiða
kr. 100 milljónir í stofnsjóðsreikn-
inga félagsmanna, kr. 10 milljónir
veitist Skógræktarfélagi Eyfirðinga
í tilefni 50 ára afmælis þess, og 11,6
milljón króna hagnaður efnagerð-
arinnar Flóru gangi til Menningar-
sjóðs KEA, en eftirstöðvar tekjuaf-
gangsins leggist í höfuðstólsreikn-
ing. — Opinber gjöld á aðalrekst-
ursreikningi námu 307,7 millj.
króna, en auk þess innheimti
kaupfélagið kr. 1.054,2 milljónir í
söluskatt fyir ríkissjóð. Fjármuna-
myndun ársins varð alls um það bil
1 milljarður króna og er þá ekki
meðtalin tekjufærsla á grundvelli
nýju skattalaganna að upphæð 686
milljónir kr. Stofnsjóðir félags-
manna hækkuðu um 149 millj. kr.
og námu samtals að upphæð tæp-
um 730 millj. kr. í árslok.
I skýrslu Menningarsjóðs kom
fram, að úthlutað hafði verið 13
styrkjum samtals að upphæð 4
milljónum kr. til ýmissa aðila, ein-
staklinga og félaga, á félagssvæði
KEA.
Sérmál aðalfundarins var sam-
vinnuhreyfingin, markmið hennar
og skipulag, en framsögu höfðu
þeir Þórir Páll Guðjónsson og Níels
Árni Lund, kennarar við Sam-
vinnuskólann. Var fundinum síðan
skipt í 6 umræðuhópa, sem störf-
uðu fyrir hádegi síðari fundardag-
inn. Eftir hádegi skiluðu hóparnir
áliti og urðu síðan mjög miklar
umræður fram eftir degi um mark-
mið samvinnuhreyfingarinnar og
skipulag. Samþykkti fundurinn
ályktun í þessu efni til Sambands-
stjórnar.
Úr stjóm kaupfélagsins átti að
ganga Kristinn Sigmundsson,
bóndi Arnarhóli. Hann gaf ekki
kost á sér til endurkjörs og var í
hans stað kosinn Arnsteinn
Stefánsson, bóndi, Stóra-Dunhaga.
Hilmar Daníelsson, Dalvík, var
endurkjörinn endurskoðandi og
Jóhann Helgason, Akureyri, vara-
endurskoðandi. Þá var Kristján
Einarsson, skáld frá Djúpalæk,
endurkjörinn í stjóm Menningar-
sjóðs KEA og þau Hólmfríður
Jónsdóttir fyrrv. menntaskóla-
kennari, og Jóhannes Sigvaldason,
ráðunautur, sem varamenn. Starfs-
menn KEA höfðu áður kjörið þá
Gunnar Hallsson, Akureyri, og
Rögnvald Skíða Friðbjömsson,
Dalvík, sem fulltrúa sína í stjóm
kaupfélagsins. Að lokum voru
kjömir 18 fulltrúar á aðalfund
Sambands ísl. samvinnufélaga.
225 kjömir fulltrúar á aðalfund Kaupfélags Eyfirðinga sóttu
fundinn, auk fjöimargra starfsmanna félagsins og annarra
félagsmanna. Myndin sýnir hluta fundarmanna i Sam-
komuhúsinu á föstudag. Mynd: h.s.
SÝSLUMANNSEMBÆTTIÐ:
Mývargur veldur
hálku á vegum
Hclluvaðis Mývatnssveit 2. júní
Óvenjumikið mý hefur verið
við Mývatn í vor og er það mun
meira en mörg undanfarin ár.
Silungurinn í Mývatni nýtur
góðs af. Hann er nú svo út-
troðinn að mýi að með ein-
dæmum má teijast.
í gær var mýið svo mikið að
ökumenn urðu stundum að
stöðva bifreiðar sínar og allt var
grátt yfir að líta. Vegir geta orðið
hættulegir undir þessum kring-
umstæðum, því þar sem mekk-
irnir eru þykkastir getur myndast
hálka.
Það er mjög algengt að bif-
reiðar stöðvist vegna mývargsins.
Mýið fer i iofthreinsarana og eins
i kælana. Ég þurfti t.d. að þvo
kælinn með vatni í gær, en hann
hafði stíflast og mótorinn hitnaði.
IJ.
Akvörðun í vikunni
Ofvitinn norður
Leikfélag Reykjavíkur mun sýna
leikritið Ofvitann i Samkomu-
húsinu á Akureyri n.k. mánu-
dagskvöld. Fleiri sýningar eru
fyrirhugaðar, en þær verða nánar
auglýstar síðar. Þegar er búið að
sýna Ofvitann 95 sinnum í
Reykjavík og yfir 20 þúsund
manns hafa séð leikritið. Ofvitinn
er saminn eftir samnefndri bók
Þórbergs Þórðarsonar, en er í
leikgerð Kjartans Ragnarssonar.
„Ráðherra tekur ákvörðun í
þessari viku hver hlýtur embætti
sýslumanns í Eyjafjarðarsýslu.
Það verður ríkisráðsfundur n.k.
föstudag og ég held að það sé
ætlunin að ákvörðun ráðherra
verði þar lögð fram. Ríkisráðs-
ritari mun síðan tilkynna
ákvörðunina,“ sagði Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri í
Dómsmálaráðuneytinu í samtali
við Dag.
Tveir Akureyringar sóttu um
embættið. Sýslumaður Eyjafjarð-
arsýslu er jafnframt bæjarfógeti á
Akureyri og Dalvík. Eftirfarandi
sóttu um embættið: Andrés Valdi-
marsson, sýslumaður i Stykkis-
hólmi, Elías í. Elíasson, bæjarfógeti
Söngmót
Kirkjukórasamband Eyjafjarðar-
prófastdæmis efnir til söngmóts
sunnudaginn 8. júní, þ.e. næst-
komandi sunnudag.
Sungið verður í Dalvíkurkirkju
kl. 13.30 og Siglufjarðarkirkju
sama dag kl. 20.30. Söngmót
þetta er hið sjöunda í röðinni. Sjö
kórar taka þátt í mótinu, samtals
milli 170og 180manns. Kórarnir
eru: Kirkjukór Siglufjarðar-
kirkjn. Kirkjukór Dalvikurkirkju,
á Siglufirði, Freyr Ófeigsson, hér- firði, Sigurberg Guðjónsson, full-
aðsdómari á Ákureyri, Gunnar trúi í Kópavogi og Sigurður Giss-
Sólnes, hrl. á Akureyri, Jóhannes urarson, bæjarfógetiogsýslumaður
Árnason, sýslumaður á Patreks- á Húsavík.
Uppgangurí
refastofninum?
„í fyrra voru unnin 20 til 30 dýr
og er það svipað því sem fékkst
árin á undan. Svo virðist sem
refastofninn sé í uppgangi hér
um slóðir,“ sagði Jóhann
Ólafsson, Ytra-Hvarfi í Svarf-
aðardal í samtali við blaðið.
I þessari viku munu fyrstu
Háls-, nef- og
eyrnalæknar á
ferö
Starfsmenn Heymar- og tal-
meinastöðvar íslands verða á ferð
um norðvesturland eftirtalda
daga: Húsavík 2. júní, Dalvík 3.
júní, Ólafsfirði 4. júní, Siglufirði
5. júní, Sauðárkróki 6. júní,
Blönduósi 7. júní og Hvamms-
tanga 8. júní.
Kirkjukórar Svarfaðardals,
Kirkjukór Stærra-Árskógskirkju,
Kirkjukór Lögmannshlíðar-
kirkju, Kirkjukór Akureyrar og
Kirkjukórar Grundarþinga.
Kórarnir syngja hver fyrir sig
og einnig sameiginlega. Á söng-
skrá eru 26 lög.
Sör.gstjórar eru: Áskell Jóns-
son, Gestur Hjörleifsson, Guð-
mundur Þorsteinsson, Guðjón
Pálsson, Jakob Tryggvason og
Ólafur Tryggvason.
grenjaskytturnar halda til fjalla
og kanna gömul greni og leita
að nýjum. Það eru þeir Harald-
ur Guðmundsson frá Karlsá,
Guðsteinn Þorgilsson frá Sökku
og Þorsteinn Kristjánsson frá
Uppsölum sem annast refa-
veiðamar ásamt viðkomandi
landeigendum.
Sóttu um
æfinga-
svæði
Bifreiðaíþróttaklúbbur Húsavík-
ur hefur sótt um æfinga- og akst-
ursvæði í Skjólbrekku, norðan og
vestan Skarnhauganna. Erindið
kom til kasta byggingarnefndar
Húsavíkur, sem vísaði því til
Náttúruverndarráðs Húsavíkur
til umsagnar.