Dagur - 24.06.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudagur 24. júní 1980
44. tölublað
Ólafsfjörður:
Rúmlega nfu hundruö manns sáu leik Þórs og KA á íþróttavellinum f gærkveldi. Á íþróttasiðu er fjallað um
leikinn og myndir úr honum.
Gífurlegt
kal í túnum
ræktirnar upp og sá aftur. Ef ég
á að nefna bæi sem hafa orðið
sérstaklega illa úti þá er það
Víðiker og Svartárkot, en á
báðum þessum bæjum hefur
landið skemmst afar mikið.“
„Þett-a býr allt að sumrinu í
fyrra,“ sagði Þórólfur ennfremur
og það bætti ekki úr skák að í vor
kom frostnótt á versta tíma. Hjá
bændum í Bárðardal er langt í slátt,
mun lengra en hjá bændum í
niðursveitunum.
„Þrátt fyrir þennan barlóm er
fjarri því að við förum allir á sveit-
ina í Bárðardalnum. Menn eru
blóðþráir á þessum slóðum," sagði
Þórólfur í Stórutungu að lokum.
„Gróður kom seint og spretta er
nánast engin. Kalskemmdir í
túnum eru stórkostlega miklar,“
sagði Þórólfur Jónsson í Stóru-
tungu í Bárðardal í samtali við
Dag. „Þess eru dæmi að lönd
sem sáð var í síðastliðið ár og
grænkuðu eru algjör auðn í dag.
Bændur hafa reynt að ýfa ný-
Sólarlags-
ferðir
Skógræktarfélagið
Bárðardalur
MÓTMÆLIR VEGI
YFIR LEIRURNAR
Drangs
eru hafnar
Á föstudaginn fer flóabátur-
inn Drangur í fyrstu sólar-
lagsferðina til Grímseyjar í
sumar. Farþegar dvelja í
eynni um nóttina og koma
aftur til Akureyrar um hádegi
á laugardag. Næstkomandi
þriðjudag fer skipið til
Grímseyjar á ný með ferða-
menn, en þá er komið til
Akureyrar sama dag.
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Drangs munu þessar
ferðir verða út júlí. Þeir farþeg-
ar, sem fara í sólarlagsferðina
geta fengið inni með svefnpoka
í eynni og mat er hægt að kaupa
um borð. Nánari upplýsingar
um ferðir flóabátsins Drangs
eru gefnar á Ferðaskrifstofu
Akureyrar og á afgreiðslu
Drangs, Skipagötu 13. Þess má
geta að Drangur er til leigu fyrir
þá sem vilja sigla um fjörðinn.
Aðalfundur Skógræktarfélags
Eyfirðinga sem haldinn var á
Akureyri fyrir skömmu lýsti yfir
eindreginni andstöðu við þá fyr-
irætlan Vegagerðar ríkisins að
leggja þjóðveg (hraðbraut) um
endilangan Vaðlaskógarreit.
Á bæjarfógetaskrifstofunni á
Akureyri er nú í fullum gangi
utankjörfundarkosning vegna
I fundarsamþykkt segir m.a. að
sú framkvæmd myndi valda mikilli
skerðingu á vöxtulegu skóglendi,
sem félagið hefur grætt upp með
æmum kostnaði og fyrirhöfn,
sumpart með sjálfboðavinnu fé-
laganna. Einnig myndi hún stór-
spilla fögru og fjölbreyttu landslagi
forsetakosninganna n.k. sunnu-
dag. Fyrir hádegi í gær, mánu-
dag, höfðu kosið um 330 manns
og rýra möguleika til frekari skóg-
græðslu og útivistar í reitnum.
Fundurinn skoraði á Vegagerðina
að hefja nú þegar athugun á öðru
vegarstæði er liggi um Hólmana út
fyrirofan Vaðalreitinn, á svipuðum
slóðum og núverandi vegur.
og er reiknað með að álíka
margir kjósi nú og í alþingis-
kosningunum í vetur en þá kusu
alls 647 utan kjörstaðar í Norð-
urlandskjördæmi eystra.
Svipuð þátttaka og í
alþingiskosningunum
Rúmlega 300 hafa kosið utankjörstaðar
Ein trjáplanta á mann
G unnarsstöðum, Þistilfirði 23. júni
Það sem kemur í hugann merk-
ast má segja að sé gróðursetning
á trjáplöntum sem sveitarfélagið
stóð fyrir. Að undirlagi þess var
girtur ofurlítill reitur við Sand-
árós, sem er í miðri sveit. Þetta
varð rúmlega tré á mann og var
gert í tilefni af ári trésins.
Skógrækt hefur gengið mjög illa
á þessum slóðum, enda er loft rakt.
Nú er hér kalsarigning og 2ja
stiga hiti. Ég sá aðeins til fjalla í
morgun og sýndist vera grátt niður í
200 metra hæð. Þetta er einna líkast
haustrigningum og ég man ekki
eftir svona rigningum hér í júní.
Búið er að rigna samfleytt í fjóra
daga og nú er það vika sem hefur
rignt meira eða minna.
Landið var orðið ákaflega þurrt
og þörf á vætu, en nú er svo kalt að
það grær ekkert. Við erum ekkert
yfirmáta áhyggjufullir ennþá, því
bændur á þessum slóðum hafa séð
það svartara.
Sauðburður gekk vel í vor.
Kindur voru með minna móti tví-
lembdar víðast hvar. Ó. H.
„Menn eiga rétt á því að kjósa
allan kjördaginn, það er bara
spurning um hvort þeir komi at-
kvæðinu fyrir lokun kjörfundar á
kjörstað í sinni heimabyggð," sagði
Erlingur Óskarsson fulltrúi hjá
bæjarfógeta á Akureyri. Það er því
öruggara að kjósa tímanlega ef at-
kvæðið á að komast til skila á rétt-
um tíma og annað hvort sér bæjar-
fógetaskrifstofan um það ef þess er
óskað sérstaklega eða kjósandinn
sér um það sjálfur.
Ekkert
fyrirtæki
hef ur gengið
endanlega
frá lóð!
„Því miður virðast forsvars-
menn fyrirtækja og stofnana oft
ekki vakandi fyrir mikilvægi
þess að snyrtilegt sé á lóðum.
Það er raunar athyglisvert að
ekkert fyrirtæki eða stofnun á
Óiafsfirði hcfur gengið endan-
lega frá lóð umhverfis fasteignir
sínar, og mjög víða hefur ekki
einu sinni verið gengið endan-
lega frá húsunum að utan,“ segir
í fréttabréfi sem gefið er út að
tilhlutan bæjaryfirvalda í Ólafs-
firði.
Það kemur einnig fram að
umgengni og frágangur lóða við
íbúðarhús á Ólafsfirði er víðast
til fyrirmyndar. I vor var fyrir-
tækjum, stofnunum og einstak-
lingum, þar sem umgengni er
ekki nógu góð, skrifað og við-
komandi hvattir til að taka til á
lóðum sinum. Árangur hefur oft
verið góður, en í ár virðist þetta
ekki hafa borið tilætlaðan ár-
angur.
Fundur um
byggðaþróun
við Eyjafjörð
Á morgun kl. 14 hefst fundur á
Varðborg á vegum Fjórðungs-
sambands Norðlendinga um
byggðaþróun við Eyjafjörð. Á
fundinn koma oddvitar og bæj-
arstjórar við Eyjafjörð, atvinnu-
málanefndarmenn frá Akureyri
og Sigurður Guðmundsson frá
byggðadeild Framkvæmdastofn-
unar ríkisins, sem mun gefa yfirlit
yfir byggðaþróun við Eyjafjörð.
Meðal annars verða ræddar hug-
myndir um iðnþróunarfélög og
einnig verður væntanlega rætt
um svæðaskipulag. Engar
ákvarðanir verða teknar á fund-
inum, sem er fyrst og fremst
upplýsingafundur.
Róleg helgi hjá
lögreglunni
Aðeins fjórir gistu fangageymslur
lögreglunnar á Akureyri um síð-
ustu helgi, en það er með minna
móti. Frá föstudegi til sunnudags
urðu 9 árekstrar í bænum. Enginn
meiddist í þeim, en eignatjón
varð töluvert. Þess má geta að
enginn var tekinn grunaður um
ölvun við akstur um helgina.
Hitaveitustjóri
segir upp
Stjórn Hitaveitu Akureyrar hefur
borist bréf frá Gunnari A.
Sverrissyni, hitaveitustjóra, þar
sem hann segir upp starfi sinu
sem framkvæmdastjóri Hitaveitu
Akureyrar frá 1. júní að telja.
Stjórnin samþykkti að augíýsa
starf hitaveitustjóra laust til um-
sóknar frá 1. ágúst að telja.
Kosningar
í bæjarstjórn
Freyr Ófeigsson var fyrir
skömmu kjörinn forseti bæjar-
stjórnar, Soffía Guðmundsdóttir
1. varaforseti og Ingólfur Árna-
son 2. varaforseti. Nýir ritarar í
bæjarstjórn eru Sigurður Jó-
hannesson og Ingólfur Árnason.
Einnig var kosið i ýmsar nefndir á
vegum bæjarins.