Dagur - 24.06.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 24.06.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Forsetakjör Kosningabaráttan vegna kjörs forseta íslands er nú á lokastigi. í upphafi var hún fremur róleg, en nú síðustu dagana hefur hlaupið mikill fjörkippur í stuðningsmenn frambjóðendanna fjögurra. Fjöl- margir hafa tjáð sig um ágæti sinna frambjóðenda á opinberum vettvangi og sýnist sitt hverjum, eins og að líkum lætur. Nokkuð hefur verið um það, að menn hafi reynt að upphefja sína menn með því að benda á einhverja meinta veikleika í fari hinna frambjóð- endanna. Slíkt er ekki vænlegt til árangurs og frambjóðendunum lítill greiði gerður með slíku at- hæfi. Það bendir ekki til þess, að stuðningsmenn forsetaframbjóð- enda hafi mikla trú á sínum manni, ef þeir telja vænlegast til árang- urs, að benda á að sitthvað megi betur fara hjá hinum frambjóð- endunum. Allir eru frambjóðendur til for- setakjörs mjög frambærilegir, en samt og ef til vill þess vegna virð- ist svo, sem kjósendur eigi erfitt með að gera upp hug sinn. Einnig kann að blandast inn í þetta mál sú staðreynd, að dr. Kristján Eld- járn hefur verið mjög farsæll for- seti og vinsæll með þjóð sinni, þannig að fólk er e.t.v. ekki ennþá undir það búið að hann láti af störfum sem forseti íslands. Líklegt er að kosningabaráttan verði hörð þessa síðustu daga fyrir kjördag, en vonandi tekst stuðningsmönnum allra fram- bjóðendanna fjögurra að sneiða hjá rógburði og illmæigi í garð andstæðinganna, því hvernig svo sem allt fer, þá er höfuðnauðsyn, að þjóðin geti sameinast um og staðið við bakið á þeim frambjóð- anda til forsetakjörs, sem valinn verður á sunnudaginn kemur. Stjórnun fiskveiða Gífurlegir erfiðleikar eru nú í fisk- sölumálum okkar íslendinga, bæði vegna aðstæðna á mörkuð- um erlendis, en einnig vegna of- veiði. Fiskgengd hefur verið mikil og afli góður. Skipin eru mörg og stórvirk og miðað við allar að- stæður veiða þessi skip of mikinn afla. Frystur fiskur hrannast upp í frystigeymslum og meðferð hrá- efnis verður lakari, þegar varla er hægt að hafa undan að vinna það í landi. Við verðum að vinda bráðan bug að því að koma stjórnun fisk- veiða í viðunandi horf. Að því er unnið, en því starfi þarf að flýta sem mögulegt er. Fækkun skipa er einn þáttur þessa máls, en hún má ekki koma niður á eðlilegri og hagkvæmri endurnýjun úreltra veiðiskipa, sem eru mjög dýr í rekstri. Albert Guðmundsson Pétu 1. þegar strúturinn verður hræddur stingur hann höfðinu í sandinn og er sannfærður um að hann sjáist ekki. Indverjar deyja hópum saman úr hungri en vernda heilagar kýr í stórum hjörðum. íslenska furðu- sagan er, að 3 frambjóðendur til forsetakjörs telja sér það helst til framdráttar að hafa hvergi skipað sér í flokk, sem er þó viðurkennd aðferð til þess að efla þann mál- stað sem hver og einn berst fyrir hverju sinni. Fjórði frambjóð- andinn, Albert Guðmundsson hefir sýnt það og sannað að til þess að leysa vandamál hvers tíma þarf að efla hópstarf fjölda manna svo að árangur náist. Hér er ekki aðeins átt við stjórnmál heldur við hreyfiafl allra góðra baráttumála, sem er fylking fjöldans. Það er í slíkum breiðfylkingum fólksins sem Albert Guðmunds- son hefir haslað sér völl og valist til forystu, á íþróttasviðinu, í við- skiptalífinu, og nú síðustu árin kosinn með einna flestum at- kvæðum Sjálfstæðismanna til borgarstjórnar og Alþingis fyrir Reykvíkinga. En þá er leiðtoginn stærstur þegar hinn smæsti meðal okkar á til hans greiða leið með margvísleg vandamál sín. Líkn- arsamtök af ýmsum toga hafa átt óeigingjarna aðstoð Alberts vísa, en í starfi forseta getur hann sinnt þeim af enn meiri þrótti í krafti embættis síns. Síðasti en ekki sísti kostur Al- berts Guðmundssonar sem for- seta íslands er að eiga að lífs- förunaut sína stórbrotnu eigin- konu Brynhildi Jóhannsdóttur. Forsetaembættið verður í góðum höndum hjá þeim hjónum. 2. Við höfum reynt að stilla öllum kostnaði í hóf og treystum á sjálfboðastarf stuðningsmanna sem er þegar orðið mikið og vex að sjálfsögðu með hverjum degi sem nær dregur kosningum. Ýmis útgjöld eru þó óhjákvæmileg, en þau eru áætluð þessi: Launakostnaður 248 þúsund. Húsaleiga, ljós og hiti 153 þús- und. Simakostnaður 180 þúsund. Auglýsingar 250 þúsund, Funda- höld 220 þúsund. Bílakostnaður 50 þúsund. Blaðadreifing og burðargjöld 75 þúsund og annar kostnaður 24 þúsund. Samtals 1200 þúsund krónur. Upp í þennan kostnað höfum við fengið með frjálsum framlögum stuðningsmanna tæpar 400 þús- und krónur. Engin framlög eru frá fyrir- tækjum enda ekki til þeirra leitað af augljósum ástæðum. 3. Framboð Alberts Guð- mundssonar gengur blessunar- lega þvert á allar flokkspólitískar línur. Stuðningsmenn hans eru sann- arlega þverskurður af íslenskri þjóð sem vill velja sér leiðtoga á viðsjárverðri tíð í mannlífinu til lands og sjávar. 4. Kosningabarátta okkar hefir einkennst af áhugasömu starfi fjölda karla og kvenna úr öllum aldurshópum og starfs- stéttum, sem eru að efla fram- bjóðanda sinn, frambjóðanda at- vinnuveganna til sigurs. 1. Kostir Guðlaugs Þorvalds- sonar sem forseta Islands eru þeir helstir, að hann hefur til að bera haldgóða og sérstaka þekkingu á íslensku þjóðlífi, bæði atvinnulífi öllu og menningu. Hann hefur tekið þátt í fjölbreytilegu starfi meðal þjóðarinnar, bæði sem verkamaður, kennari, ráðuneyt- isstjóri, rektor Háskóla Islands og ríkissáttasemjari. Þeir tímar virð- ast fara í hönd, að meiri þörf sé á þjóðarleiðtoga, sem getur borið sáttarorð á milli stríðandi stétta, borið klæði á vopnin í þjóðmála- og stjórnmálabaráttunni og sýnt hógværð og skilning á erfiðum stundum. Guðlaugur Þorvalds- son er mannasættir, hógvær og orðvar og sanngjarn. Þetta yrði til þess, að hann yrði sá maður, sem gæti sameinað þjóðina eftir kosningar og sætt hana og þjóðin sættir sig við sem forseta íslenska lýðveldisins, þegar upp er staðið að lokum. Kostir Guðlaugs Þor- valdssonar sem forseta eru því að dómi stuðningsmanna hans þekking, reynsla, víðsýni, sann- girni og góðvilji. 2. Nei,þaðerekkierfittaðná endum saman. Kostnaði hefur mjög verið stillt í hóf og framlög hafa borist frá einstaklingum, sem nægja. Allur kostnaður við kosningaundirbúning á Akureyri verður innan við eina milljón, og segja má, að þetta fé hafi þegar innheimst. 3. Nei, flokkspólitískar línur er ekki unnt að greina með stuðningsmönnum Guðlaugs Þorvaldssonar á Akureyri. Meðal stuðningsmanna hans hér er fólk úr öllum þeim stjórnmálaflokk- um, sem fulltrúa eiga í bæjar- stjórn Akureyrar. Að auki má nefna, að ekki er spurt um flokkspólitíska afstöðu stuðn- ingsmanna hans, eins og raunar gefur að skilja, af því að forseta- kosningar eru og eiga að vera hafnar yfir allt flokkspólitískt karp. Embætti forseta íslands er heldur ekki flokkspólitískt, held- ur verður forseti Islands að vera fulltrúi allrar þjóðarinnar, hafinn yfir væringar þjóðmálabarátt- unnar og með öllu laus við viðjar flokkspólitískra banda. 4. Kosningabarátta stuðn- ingsmanna Guðlaugs Þorvalds- sonar til forseta íslands þykir okkur hafa einkennst af heiðar- leika og drengskap. Það hefur verið létt að vinna fyrir framboði Guðlaugs og kosningu, af því að engin rök hafa verið færð fram gegn framboði hans, heldur hafa allir lokið upp einum munni um ágæti hans, enda þótt þeir styðji aðra frambjóðendur. Þetta er mikilsvert að hafa fundið, þegar verðandi forseti tekur við og á að sameina íslenska þjóð eftir átök kosningabaráttunnar. Úlfar Hauksson, Knútur Ottestedt og Gunnar Ragnars. Dagur lagði eftirfarandi spurningar fyrir starfsmenn á kosningaskrifstofum frambjóðenda til forsetakjörs, en kc verður n.k. sunnudag. 1. Hvaða kosti hefur..........til að bera sem forseti íslands? 2. Er erfitt að láta enda ná saman í kosningabaráttunni Er vitað hve kostnaðurinn er orðinn mikill? 3. Má greina flokkspólitiskar línur í þes: kosninga baráttu? Guðlaugur Þorvaldsson. Kosninga- stjórar: Kosningastjóri Haraldur M. Sigurðsson. Kosningastjóri Jón Amþórsson. Albert Guðmundsson. Kosningastjóri Kristján Skarphéðinsson Pétur Thorsteinsson. Guðlaugur Þorvaldsson Vigd 4.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.