Dagur - 24.06.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 24.06.1980, Blaðsíða 6
Messað verður í Akureyrar- kirkju n.k. sunnudag kl. 11,00. Ólafur Halldórsson, guðfræðinemi, prédikar. Sálmar 450, 368, 196, 343, 531. B.S. Hjálpræðisherinn. Á fimmtu- dögum kl. 17.30 eru barna- samkomur í Strandgötu 21. Allir krakkar velkomnir. Sunnudaginn n.k. kl. 20.30 er almenn samkoma. Verið velkomin. fbúar Lögmannshlfðarsóknar. Munið aðalfundinn í Glerárskóla föstudaginn 27. júní n.k. kl. 20.30. Sóknar- nefndin. Slysavamafélagskonur Akur- eyri. Kaffisamsæti fyrir Sesselju Eldjárn verður að Hótel K.E.A. miðvikudag- inn 25. júní n.k. kl. 20.30. Tilkynnið þátttöku í síma 23522 í síðasta lagi um há- degi á miðvikudag. Brúðhjón. Hinn 14. júní voru gefin saman í hjónaband í Grundarkirkju, Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir nýstú- dent, Ysta-Gerði Saurbæj- arhreppi og Einar Tryggvi Thorlacius húsasmiður Bjarmastíg 11, Akureyri. Heimili þeirra verður að Brekkutröð 2, Reyká, Hrafnagilshreppi. Frá Ferðafélagi Akureyrar. — 28. júní Vaglaskógur — kvöldferð. Farin verður skoðunarferð um skóginn og gróðrarstöðina. Að henni lokinni verður boðið upp á útigrillaðar pylsur og með- læti. Leikir og létt gaman á eftir. Brottför úr Skipagötu kl. 18.00 Áætluð heimkoma kl. 24.00. Fargjald kr. 5000 fyrir fullorðna og kr. 2500 fyrir börn. 29. júní Svarfaðardalur. Ekið fram Svarfaðardal að austan og inn að Syðra-Hvarfi, þaðan vestur yfir og inn að fremstu bæjum. Heim um Dalvík. Komið heim kl. 20.00. Brottför úr Skipagötu kl. 10.00. Komið verður við á kjörstað í upphafi ferðar. Skrifstofan er opin mánu- daga og fimmtudaga kl. 18.00-19.30, sími 22720. Sumarferð Sjálfsbjargar og íþróttafélags fatlaðra verður farin í Herðubreiðarlindir dagana 4.-6. júlí ef næg þátttaka fæst. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Sjálfsbjargar í síma 21557, fyrir 1. júlí n.k. þar sem nánari upplýsingar verða veittar. Orlofsferð verður farinn á veg- um orlofsnefndar Árskógs-, Arnarness-, Skriðu-, Öxna- dals- og Glæsibæjarhrepps 5. júlí. Auglýst nánar. AUOLÝSIÐ í DEGI Auglýsing um uppboð Áður auglýst nauðungaruppboð á fasteigninni Oddagötu 11, n.h. Akureyri, þingl. eign Guðjóns E. Jónssonar og Jóns Þ. Guðjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 27. júní 1980 kl. 11.00 aö kröfu Svölu Thorlacíus hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Auglýsing um uppboð Áður auglýst nauöungaruppboö á fasteigninni Furulundi 10s, Akureyri, þingl. eign. Brynjólfs Helgasonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 27. júní 1980 kl. 15.00 að kröfu veðdeildar Lands- banka íslands. Bæjarfógetinn á Akureyri. Auglýsing um uppboð Áður auglýst nauðungarupþboó á fasteigninni Grænugötu 4, Akureyri, þingl. eign Friðriks Bjarnasonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 27. júní 1980 kl. 14.00 að kröfu Ragnars Stein- bergssonar hrl. og Péturs Guðmundssonar hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Auglýsing um uppboð Áður auglýst nauðungaruppboð á v.s. Sólfaxa EA-75 þingl. eign Láturs h.f. fer fram á skrifstofu embættisins, Hafnarstræti 107, Akureyri, föstu- daginn 27. júní 1980 kl. 10.00 að kröfu Fiskveiða- sjóðs íslands o.fl. Bæjarfógetinn á Akureyri. 6.DAGUR Kawasaki Z650 til sölu. Árg. 78, ekið 13 þús. km. Gott hjól og vel með farið. Uppl. ísíma 24119. VELOUR dömugallar Tvískiptir. Margir litir. Verslunin ÁSBYRGI Flugnafælur 3 gerðir. Hafnarbúðin, Skipagötu 4, útibú Grænumýri 20. AÐALFUNDUR hestamannafé- lagsins FUNA verður haldinn í Sólgarði fimmtudaginn 26. júní kl. 9 e.h. Venjuleg aðalfundar- störf. Sýndar tillögur er þorist hafa í samkeppni um fé- lagsmerki. Mætum öll vel og stund- víslega. STJÓRNIN. Gísli Ólafsson sjötugur Gísli Ólafsson, yfirlögreglu- þjónn, varð 70 ára í gær, þann 23. júní. Gísli er Eyfirðingur fæddur að Sandhólum í Saurbæjarhreppi þann 23. júní 1919. Gísli starfaði nokkur ár hjá Kr. Kristjánssyni h.f. hér á Akureyri við bifreiðaakstur o.fl., en gerðist lögreglumaður 1. desember 1940, eða fyrir tæpum 40 árum. Hann varð varðstjóri í lög- reglunni 1950, ogyfirlögregluþjónn 1959, en þá tók hann við þeirri stöðu af Jóni Benediktssyni. Á af- mælisdaginn færðu lögreglumenn á Akureyri Gísla mynd af honum sem Ragnar Lár málaði. Blaðið óskar Gísla til hamingju með dag- inn, og þakkar ánægjuleg samskipti liðin ár. Sæmilega sprottið „Veðríð að undanförnu hefur bæði haft góð og slæm áhríf. Það kom illa við þá sem voru búnir að slá, en þeir voru til- töiuiega fáir. Þrátt fyrir kuldann hefur bleytan haft þau áhríf að spretta er góð — þar sem var orðið dálítið loðið hefur kuldinn ekki haft mikil áhrif“ sagði Ólafur Vagnsson ráðunautur í sarntali við blaðið í gær. Ólafur sagði að víða væri hægt að fara að slá af krafti ef útlit væri fyrir þurrka. Til eru spildur sem fara að skemmast hvað úr hverju ef þær verða ekki slegnar hið fyrsta. Framangreint á sérstaklega við um svæðið innan Akureyrar, en utar er minna sprottið og töluvert um skemmdir í túnum af völdum kals. „Sérstaklega á þetta við um bæi í Ólafsfirði og á fremstu bæjum í dölunum, en þó er þetta til miklu víðar. Til dæmis eru mjög ljót tún niður undir Dalvík,“ sagði Ólafur. Skepnuhöld voru yfirleitt mjög góð í vor. Ólafur sagðist hafa heyrt um að flosnýmaveiki hefði lagst á lömb í Höfðahverfi og drepið tölu- vert af lömbum. SÆUNN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Naustum, sem lést 18. júní veröur jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 27. júní kl. 13.30. Magni Friðjónsson, Óla Þorsteinsdóttir. Við þökkum öllum þeim mörgu sem með hjálpsemi og góðvild létu í Ijósi samúð sína við andlát og jarðarför föður okkar, sonar, bróður og unnusta, SIGURÐAR ANTONS FRIÐÞJÓFSSONAR. Friðþjófur Antonsson, Aðalsteinn Antonsson, Steinunn Konráðsson, Friðþjófur Gunnlaugsson, Steinunn Friðþjófsdóttir, Vignir Friðþjófsson, Hallveig Friðþjófsdóttir, Vilhjálmur Friðþjófsson, Hafþóra Bergþórsdóttir, og aðrir vandamenn. ANNA GUNNLAUGSDÓTTIR andaðist að Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 20. júní. Jarðarförin fer fram að Dalvíkurkirkju laugardaginn 28. júní kl. 2 e.h. Fyrir hönd vandamanna. Brjánn Guðjónsson. Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, sem glöddu migmeð heimsóknum, skeytum og gjöfum á áttatíu ára afmœli mínu þann 13. júní sl. Guð blessi ykkur öll. AGNEA TRYGGVADÓTTIR. Húsbyggjendur athugið Höfum til leigu: steypuhrærivélar — borvélar — vélsagir — pússivélar — snittvél — rafmagnsmúr- brjót — brettaskífur — hjólbörur. Geymið auglýsinguna. Áhalda- og vélaleigan, Hafnarstræti 19, sími 24838. Rússneskar samvinnuvörur Rúsínur í lausu Hunang í glösum Sultur í glösum KJORBUÐIR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.