Dagur - 24.06.1980, Side 8
Milli sjö og átta hundruð manns voru viðstaddir hinn þýð-
ingarmikla atburð í sögu samvinnustarfs við Eyjafjörð,
þegar ný mjólkurstöð Mjólkursamlags KEA var vígð si.
fimmtudag. Að margra mati er bygging nýja mjólkursam-
lagsins mesta átakið, sem samvinnumenn við Eyjafjörð
hafa ráðist í til þessa. Nýja mjólkurstöðin er ákaflega
fullkomin og er stærð hússins og vinnslukerfisins miðuð
við 28 milljón lítra ársafköst. Á síðasta ári var mjólkur-
frarnleiðslan um 24 milljón lítrar, sem skiptist þannig, að
um 20% fara í neyslumjólk, en afgangurinn til vinnslu,
aðallega ostaframleiðslu. Nýja mjólkursamlagið er byggt
fyrir framtíðina, því ætlað er, að það muni anna þörfinni
fyrir mjólkuriðnað á svæðinu í 5-10 áratugi. Eftir er að
byggja skrifstofu- og starfsmannahús, en að því loknu
verður byggingin tæplega 8.300 m2 eða tæplega 39.900 m3
að stærð, og kostnaður á núvirði fast að 4 milljörðum
króna. Fastir starfsmenn eru milli 70 og 80, þar af aðeins
einn starfsmaður á skrifstofu. Tækjabúnaður er mjög af-
kastamikill og fullkominn og í nýju mjólkurstöðinni er
meiri sjálfvirkni, en áður hefur þekkst í mjólkuriðnaði hér
á landi. Á næstunni verður unnið við að endurbæta fram-
leiðsluna og gera hana fjölbreyttari.
Dr. Krístján Eldjárn vfgði nýja mjólkursamlagið með því að
draga fslenska fánann að húni. Honum til aðstoðar var
Vcmharður Svcinsson, samlagsstjóri, og með þeim á
myndinni eru Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, Hjörtur
E. Þórarinsson, formaður stjórnar KEA, og Stefán Hall-
dórsson, formaður samlagsráðs. Auk hans eiga sæti i sam-
lagsráði Haraldur Hannesson, Haukur Halldórsson, Vern-
harður Sveinsson og Valur Arnþórsson. Verkstjóri í mjólk-
ursamlaginu er Árni Jóhannesson og framleiðslustjóri Þór-
arínn Sveinsson. Myndir: h.s.
Þessi mynd eftir Ragnar Kjartansson,
myndlistarmann, verður steypt i brons
og komið fyrir við stöðina.
lagið og þáðu að því loknu veit-
ingar í móttöku- og afgreiðslusal
stöðvarinnar. Aðkomnir gestir
sátu síðan kvöldverð með for-
ráðamönnum KEA og Mjólkur-
samlagsins.
*★
í máli ræðumanna kom m.a. fram
að nú eru liðin um 20 ár síðan
farið var að ræða á mjólkursam-
lagsfundum að tímabært væri að
Gestir við vígsluathöfnina fóru
að tínast að laust fyrir klukkan 3
e.h., en þá átti vígslan að hefjast.
Lúðrasveit Akureyrar lék við
innganginn. Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri, ávarpaði gesti í
upphafi og stjórnaði síðan at-
höfninni að öðru leyti. Næstur
tók til máls Hjörtur E. Þórarins-
son, stjórnarformaður Kaupfé-
lags Eyfirðinga, og að því loknu
Stefán Halldórsson, bóndi á
Hlöðum, formaður samlagsráðs.
Síðan voru samlaginu færðar
nokkrar veglegar gjafir, m.a. frá
erlendum og innlendum gestum
og starfsmönnum. Að þessu
loknu tók forseti íslands, dr.
Kristján Eldjárn, til máls ogsíðan
var gengið norður fyrir bygging-
una, þar sem forsetinn dró fána
að húni, með aðstoð Vernharðs
Sveinssonar, samlagsstjóra og
lúðrasveitin lék þjóðsönginn. Því
næst skoðuðu gestir mjólkursam-
Samlaginu voru afhentar nokkrar gjafir, þ.á.in. frá starfsmönnum, sem Unnur
Ebenharðsdóttir afhenti, en hún er eini starfsmaðurinn á skrifstofu samlagsins.
Nýja mjólkurstöðin:
Mesta átakið
sem samvinnumenn við Eyjaf jörð hafa ráðist í til þessa
hefja byggingu nýrrar mjólkur-
vinnslustöðvar. Nefnd sem skip-
uð var í málið valdi stöðinni stað
þar sem hún var byggð og hafði
nefndin einkum að leiðarljósi þá
staðreynd að lóðin var langt fyrir
utan bæinn! En fáa grunaði fyrir
15 árum, þegar fyrsta skóflu-
stugnan var tekin, að það tæki öll
þessi ár að ljúka byggingunni.
Einn er sá maður sem leiddi
samlagið fyrstu skrefin og stýrði
því af hugsjón og hagsýni heila
starfsæfi. Það var Jónas
Kristjánsson. Hann átti þá ósk
heitasta að fá að sjá nýju stöðina
rísa og tekna i notkun, en forlögin
meinuðu honum að fá þá ósk
uppfyllta áður en hann lét af
starfi sem mjólkursamlagsstjóri.
Ekki er trútt um það að enn
megi greina samhengið milli al-
menns efnahags í einstökum
hlutum héraðsins og hve fljótt
bændur gátu, vegna samgangna
eða annars, tengst mjólkursam-
laginu.
Það var í marsmánuði 1928 að
móttaka á mjólk og mjólkur-
vinnsla hófst í Gilinu. í upphafi
kom til álita hvort mjólkursam-
lagið skyldi rekið á vegum kaup-
félagsins eða sem sjálfstætt fyrir-
tæki. Hið fyrra varð að ráði og má
fyllyrða að samlagið hefði ekki
skilað þeim arði sem raun hefur
orðið á ef það hefði staðið eitt og
óstutt. Fyrsta starfsár félagsins
tók það aðeins á móti 600 þúsund
lítrum af mjólk. Heildarútborgun
varð 135 þúsund krónur eða 221/’
eyrir að meðaltali.
Ræðumenn voru þess fullvissir
að hin nýja mjólkurstöð yrði beitt
vopn í þeirri baráttu sem fram-
undan er meðal íslenskra bænda,
en stöðin býður upp á óteljandi
möguleika í hagræðingu og fjöl-
breytni.
I kvöldverðarboði því sem áður
var minnst á sagði Stefán Val-
geirsson, alþingismaður m.a. að
hið nýja samlag bæri það með sér
að það væri byggt af stórhug og
framsýni. „Þó Eyfirðingar hafi frá
upphafi staðið feti framar öðrum
byggðum í landinu I að nota þá
möguleika sem samvinnufélögin
búa yfir til sóknar fyrir bættri
lífsaðstöðu og fegurra mannlífi,
þá sé ég ekki betur en þetta nýja
mjólkursamlag sé stærsta Grett-
istakið, sem eyfirskir samvinnu-
menn hafa lyft til þessa. Það er
andsvarið við þeim áróðri, sem
nú er rekinn gegn íslenskum
landbúnaði, og þeim iðnaði sem
byggður hefur verið upp I sam-
bandi við hann,“ sagði Stefán
Valgeirsson.
Valur. Hjörtur.
Stefán. Kristján.
Pálmi Jónsson, landbúnaóarráðherra,
og Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra, voru viðstaddir
athöfnina ásamt eiginkonum sínum,
en Halldór lagði hornstcin hússins 2.
júní 1976.
Svona lítur byggingin út fullgerð.
Töluvert á áttunda hundrað manns voru viðstaddir vigsluathöfnina, sem fór fram
f móttöku- og afgreiðslusal samlagsins og sfðan á grasflötinni norðan við húsið.
Dr. Kristján Eldjárn, forseti islands:
ER SJÁLFUR FÉLAGI
in væri nútímalegur móttöku-
staður fyrir afurðir bændafólks
umhverfis Akureyri „og er
iðjuver fjölda manna sem eiga
afkomu sína og sinna undir
velgengni þess ... mjólkurstöð-
in er tákn þess sem samtök og
samvinna fá áorkað, samtök
bændanna sjálfra og þeirra sem
vinna að félags- og framfara-
málum. Og er þá ótalið það sem
er öllu æðra: þetta er atvinnu-
ver sem reist er í trú á landið og
bjargræðisvegi þess í nútíð og
framtíð.“
„Ég er sjálfur, svo ólíklegt sem
það má virðast, félagi í Kaup-
félagi Eyfirðinga og hef verið
það í nær hálfrar aldar skeið.
Veltan á mínum reikningi er að
vísu í umfangsminna lagi, en
hún nægir til þess að ég tel mig
geta úr flokki talað.“ Þannig
komst Kristján Eldjárn forseti
Islands að orði í ávarpi sínu til
gesta í mjólkurstöðinni.
Kristján sagði ennfremur að
þetta væri sigurdagur bænda og
samvinnumanna við Eyjafjörð.
Hann minnti á að mjólkurstöð-