Dagur - 26.06.1980, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 26. júní 1980
45. tölublað
Norðurland
Tæplega 23 þús-
und kjósendur
Á kjörskrá við forsetakosning-
amar, sem fram fara á sunnu-
dag, verða um 146.900 manns á
öllu landinu. Á Norðurlandi
eystra eru kjósendur um 15.900
talsins og á Norðurlandi vestra
um 6.700. í Norðurlandskjör-
dæmi eystra verða samtals 43
kjördeildir, þar af 8 á Akureyri,
allar í Oddeyrarskólanum. í
Þurrka þorsk-
hausa í
Reykjadal
Á Laugum í Reykjadal hefur
tekið til starfa nýtt fyrirtæki
sem nefnist Stokkfiskur. Það
er Þorsteinn Ingason frá
Kárhóli sem starfrækir fyrir-
tækið og eru þarna sex menn
í vinnu. Þeir kaupa þorsk-
hausa, þurrka þá og selja til
Nígeríu. Þorskhausarnir
koma víða að, aðallega frá
Húsavík og Akureyri. Stokk-
fiskur fór af stað fyrir um
hálfum mánuði og eins og
stendur er markaðurinn í
Nígeríu mjög mikill. Þetta
fyrirtæki hefur gengið vel og
lofar mjög góðu.
Norðurlandskjördæmi vestra
verða kjördeildir alls 35, en þeim
hefur fækkað um 3 frá síðustu
alþingiskosningum, þ.e. úr fjór-
um í eina í Akrahreppi.
Á Akureyri eru kjósendur á
kjörskrá um 8.270, 1.460 á Húsavík,
780 á Dalvík, 710 á Ölafsfirði, 1.370
á Siglufirði og 1.320 á Sauðárkróki.
I Eyjafjarðarsýslu eru kjósendur
um 1.660, 1.870 í S-Þingeyjarsýslu,
1.150 í N-Þingeyjarsýshi, 1.460 í
Skagafjarðarsýslu, 1.580 í A-Hún-
vatnssýslu og 990 í V-Húnavatns-
sýslu. Á kjörskrá á Norðurlandi eru
því samtals um 22.600 kjósendur.
Kjörfundir hefjast klukkan 9 að
morgni sunnudagsins í öllum stærri
bæjum, en klukkan 10 i minni
kjördeildunum. Kjörfundur má
standa til klukkan 23 og verður svo
á öllum stærri kjörstöðum, en það
er á valdi hverrar kjörstjórnar fyrir
sig, hversu lengi kjörfundir standa
og verður það auglýst á hverjum
stað.
Talning hefst þegar að loknum
kjörfundi, þegar gögn hafa borist
frá kjördeildunum. Ákveðið hefur
verið að kosningaútvarp verði í
gangi, þar til talningu er lokið, það
er alla nóttina og eitthvað fram á
mánudag, ef að líkum lætur. Sjón-
varpið verður einnig með kosn-
ingadagskrá og ræðst það af að-
stæðum, hvenær því lýkur.
Starfsmenn við vinnu f Niðursuðu K. Jónssonar í gær. Mynd: á.þ.
Óska aðstoðar bæjarins
Hálfgert neyðarkall barst fundi
bæjarstjórnar Akureyrar á þriðju-
dag frá forráðamönnum niðursuðu-
verksmiðju K. Jónssonar & Co., en
þá um daginn voru þeir á fundi með
framkvæmdsjóði í Reykjavík. Er-
indið var á þá leið, að þar sem fyr-
irsjáanleg væri rekstrarstöðvun og
vegna þess, að eigin tilraunir til að
leysa vandann höfðu ekki borið
þann árangur, sem þeir höfðu
vænst, var þess óskað að bæjar-
stjórn tæki málefni fyrirtækisins til
umræðu á fundinum og að skipuð
yrði nefnd af hálfu bæjarins til að
vinna með forráðamönnum fyrir-
tækisins og gera tillögur um framtíð
þess.
Þar sem þessi óvenjulega beiðni
um rekstrarráðgjöf, ef svo mætti
kalla erindið, bar nokkuð brátt að,
var málið ekki rætt á fundinum, en
bæjarstjórn samþykkti að kjósa
fimm manna nefnd, sem ásamt
bæjarstjóra, skyldi ræða við full-
trúa fyrirtækisins um erfiðleika þá,
sem það á nú við að glíma. f
nefndinni eiga sæti Ingólfur Árna-
son, Páll Hlöðversson, SigurðurÓli
Brynjólfsson, Sigurður Sigurðsson
og Þorvaldur Jónsson. Fyrsti við-
ræðufundurinn var ráðgerður þeg-
ar í gær eða í dag.
Heyrst hefur að fyrirtækið vanti
allt að hálfum milljarði til að geta
haldið rekstrinum áfram og í við-
ræðum við fulltrúa framkvæmda-
sjóðs og fleiri aðila mun hafa kom-
ið fram, að ekki yrði um frekari
fyrirgreiðslur að ræða, nema fleiri
aðilar kæmu inn í fyrirtækið. Mun
hugmyndin um, að bærinn komi
inn í myndina, hafa komið frá for-
ráðamönnum sjóðsins.
Fyrir eigi alls löngu var fyrir-
tækið auglýst til sölu, en ekkert
mun hafa komið bitastætt út úr því.
Hjá fyrirtækinu hafa starfað um
100 manns.
Sjá baksíðu.
11 aiiiujuuviiuui ui ivji ^iaivjui ^
ALBERT GUÐMUNDSSON er
fæddur í Reykjavík 5. október 1923. Hann
brautskráðist frá Samvinnuskólanum
1944, lauk prófi í verslunarfræðum í
Glasgow 1946 og stundaði framhaldsnám
í London. Eftir meira en áratug í at-
vinnumennsku í knattspyrnu, (varð fyrsti j
atvinnumaður Norðurlanda í Bretlandi, I
Frakklandi og Ítalíu) sneri hattn heim árið
1956 og stofnaði hcildvcrslun. Hatin hefur
verið formaður og í stjóm ýmissa íþrótta-
félaga og verið formaður Alliance Franc-
aise í fjölda ára. Hann er umboðsræðis-
maður Frakklands í Hafnarfirði og ræð-
ismaður í Reykjavík. Hann var formaður
K.S.I. frá 1968 til 1974, hefur átt sæti í
borgarstjórn Reykjavíkur frá 1970 og tók
sæti á Alþingi sem þingmaður Reykvík-
inga árið 1974. Albert er kvæntur Bryn-
hildi Jóhannsdóttur og eiga þau þrjú börn.
GUÐLAUGUR ÞORVALDS-
SON fæddist á Járngerðarstöðum í
Grindavík árið 1924. Hann lauk
stúdentsprófi frá M.A. 1944, prófi í við-
skiptafræðum fra H.í. 1950og hefur síðan
gengt mörgum trúnaðarslörfum. Meðal
starfa hans má nefnu að hann vann á
Hagstofu Islands i 15 ár. var ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu frá 1963. þar
til hann var kosinn rektor Háskóla Islands
1973. Því embættí gégndi hann til sl.
haústs, er hann var skipaður ríkissátta-
semjari. Guðlaugur hefur einnig tekið að
sér fjölþætt aukastörf, m.a. við blaða-
mennsku, kennslu, nefndastörf og fleira.
Hefur átt sæti í flestum stærri sáttanefnd-
um frá 1971. Hann er kvæntur Kristínu H.
Kristinsdóttur. Þau eignuðust fjóra syni,
en einn þeirra er látinn.
PÉTUR THORSTEINSSON er
fæddur í Reykjavík 7. nóvember 1917.
Hann lauk stúdentsprófi frá M.A. 1937,
prófi í viðskiptafræði frá H.f. 1941 og í
lögfræði 1944. Pétui var skipaður sendi-
herra i Son étrikjunuai 1953 og þar starl'a.ti
hann þar til hann varðsendiherra íslands 1
Bonn 1961. Ári síðar varð hann sendiherra
i Paris og jafnframt fastafulltrúi Islands i
ráði Atlantshafsbandaiagsins, Efnahags-
og framfarastofnunarinnar, Menningar*
málastofnunar S.Þ. og árin 1963-1965 var
hann jafnframt sendiherra hjá Efnahags-
bandalagi Evrópu. Sendiherra í
Washington 1965-1969 er hann varð
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu
næstu sjö árin og jafnframt ritari utanrík-
ismálanefndar Alþingis. Eiginkona hans
er Oddný Thorsteinsson og eiga þau þrjá
syni.
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR er
fædd í Reykjavík 15. apríl 1930. Hún lauk
stúdentsprófi frá M.R. 1949, stundaði
nám í frönsku og frönskum bókmenntum
(ieikbókmenntum) í Grenoble og Sor-
, bonne í París, starfaði í 5 ár sem bóka-
vörður og ritstjðri leikskrár í Þjóðleikhús-
inu og annaðist blaðakynningar fyrir
leikhúsið. Stundaði nám við H.í. í ensku
og enskum bókmenntum og uppeldis- og
kennslufræðum, tiam við háskóla í Kaup-
mannahöfn og Svíþjóð, tók lokapróf í
háskólagreinum við H.I. Hóf aftur störf
við Þjóðleikhúsið og stundaði kennslu við
M.R. og M.H. Starfaði á sumrin í mörg ár
hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Síðan 1972
hefur hún verið leikhússtjóri í Iðnó. Tekið
virkan þátt í félags- og menningarstarfi.
Vigdís á sjö ára gamla kjördóttur.