Dagur - 26.06.1980, Blaðsíða 3

Dagur - 26.06.1980, Blaðsíða 3
VELOUR- PEYSUR Stærðir: S - M - L 5 litir bporthu^id Postsendum samdægurs HAFNARSTRÆTI 94 SÍMI 24350 Sérverslun með tómstundavörur Fyrr á þessu ári var opnuð ný verslun að Strandgötu 23. Hér er um að ræða verslunina Handverk sem er sérverslun með tómstundavörur. Býður verslunin vörur og áhöld til tré- skurðar, leðurvinnu, muni og liti til málunar á gler. Einnig hefur verslunin tágar og bast til körfugerðar auk ýmiss konar trésmíðaverkfæra og aukahluta á borvélar og önnur rafmagns- handverkfæri. Handverk er nú að hefja sölu á Link innréttingaefni frá Noregi, en það gefur ótal möguleika til inn- réttinga í herbergi. Þess má geta að Link plöturnar eru mjög auðveldar í uppsetningu og í versluninni eru bæklingar með ýmsum hugmynd- um. Link-plöturnar eru afgreiddar í 17 mismunandi stærðum. Þá selur Handverk gróðurhús og vermireiti og ýmsa fylgihluti til gróðurhúsaræktunar. Einnig verða smærri byggingavörur hom og lamir svo eitthvað sé nefnt. Eigandi verslunarinnar er Ragn- ar Bjarnason. Umsjón með dagleg- um rekstri og afgreiðslu annast Kári Ellertsson. 29. júní KOSNINGASKRIFSTOFA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR Á AKUREYRI er að HAFNARSTRÆT1101 (Amarohúsinu). SÍMAR SKRIFSTOFUNNAR Á KJÖRDAG ERU 25300 — 25301 — 25302 — 25303. BÍLASÍMI Á KJÖDAG ER 25304. KOSNINGAKAFFI VERÐUR SELT AÐ HÓTEL K.E.A. KL. 14.00 TIL KL. 21.00 KJÖRDAG. SJÁLFBOÐALIÐAR ÓSKAST TIL STARFA Á KJÖRDAG, EINNIG BIFREIÐAR TIL AKSTURS. FRAMLÖGUM í KOSNINGASJÓÐ VEITT MÓTTAKA Á SKRIFSTOFUNNI. NÚ FYLKIR FÓLKIÐ SÉR UM PÉTUR J. THORSTEINSSON, REYNSLU HANS OG ÞEKKINGU. Goðakvartettinn: „Bak við tjöldin“ Út er komin ný hljómplata með „GOÐAKVARTETTINUM“ í Suður-Þingeyjarsýslu. Kvartettinn gefur nú í fyrsta sinn út sjálfstæða hljómplötu en hefir áður átt lög á plötum karlakórsins Goða. Á plötunni sem ber heitið „BAK VIÐ TJÖLDIN“ eru 12 lög öll erlend við íslenska texta Viktors A. Guðlaugssonar. Stjórnandi kvartettsins er Robert Bezdek, sem er tékkneskur tónlistarmaður, sem um nokkurt skeið hefir starfað sem tónlistarkennari við tónlistardeild Stórutjarnaskóla, S.-Þing., en hann hefir jafnframt útsett öll lögin. Kvartettinn skipa Viktor A. Guðlaugsson 1. tenór, Pétur Þórar- insson 2. tenór, Helgi R. Einarsson 1. bassi og Robert Bezdek 2. bassi. Með Goðakvartettinum leika nokkrir kunnir hljóðfæraleikarar. Fálkinn h.f. sér um dreifingu plöt- unnar, en útgefandi er Goðakvart- ettinn. Eigum fyrirliggjandi mjög fjölbreytt úrval af bifreiðaviðtækjum með og án kassettu. Einnig stök segulbandstæki, loftnet, hátalara og ann- að efni tilheyrandi. fsetning samdægurs. Mvjmmm \J Slmi (96)23626 Glerárgötu 32 Akureyri fj Alltaf eitthvað nýtt! Dömukjólar, blússur og pils. Æfingagallar. Gallabuxur. Flauelsbuxur. Vesti, peysur, stutt- ermabolir. Dömujakkar. Stakkar á börn og fullorðna. Dömubikini. Handklæði. Klæðaverslun Sig. Guðmunds- sonar Afram verður unnið við grjótvarnargarðinn Kópaskeri 16. júnl. Hreppsfélaginu hefur tekist að útvega 35 miiljónir króna að láni vegna byggingar grjótvarnar- garðsins. Því verður ekki hætt vinnu við hann, enda hefði það þýtt mikið óhagræði og tví- verknað. Garðurinn hefði orðið að ástæðulausu mikið dýrari en nauðsyn bar til. Þetta fé gerir okkur vonandi kleift að komast langleiðina með garðinn. Áætlað var að hann yrði 20 þúsund rúmmetrar fullbúinn og þegar verkinu lýkur í ár, sem verð- ur um mánaðamótin, ætti garður- inn að vera kominn hátt í 300 metra. Ef umrætt fjármagn hefði ekki fengist nú hefði næsta sumar þurft að rífa framan af garðinum og aka því hluta af honum á iand á ný! Þetta ásamt þeirra staðreynd að það er mjög dýrt að flytja tækin á milli, varð til þess að íbúarnir fóru þess á leit við yfirvöld að þau sæju að sér og reyndu að spara. Ó. F. Gerist áskrifendur . sími: 24167 sterku oíaoi noroan lands DAGUR > DAGUR.3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.