Dagur - 11.09.1980, Qupperneq 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 11. september
Bílaperur
6-12 »9 24 volta -H5ÍSIÍÍ5
SAMLOKUR
fyrir og án
peru
Blönduvirkjun
Leitað að lausn
Fjársöfnun að,
hefjast hjá RKÍ
— til hjálpar sveltandi fólki í Austur-Afríku
Rauða Kross deildir allra Norð-
urlanda hafa sameinast um að-
gerðir til hjálpar nauðstöddum
íbúum nokkurra ríkja í Austur-
Afríku. Þetta verkefni er hið
viðamcsta og þýðingarmesta á
þessu sviði, sem Rauði Krossinn
á Norðurlöndum hefur tekið að
sér í samvinnu við deildir sínar
um öll Norðurlönd. Verkefnið
miðast við það eitt að safna fé
handa sveltandi fólki, einkum
börnum.
í samvinnu við Alþjóða Rauða
Innfiutningur
húsgagna og inn-
réttinga eykst
innflutningur húsgagna og inn-
réttinga fyrstu 6 mánuði 1980
hefur aukist mjög mikið sam-
anborið við sama tima 1979 eða
um tæp 80% reiknað á sama
gengi. A þessum sex mánuðum
hafa verið flutt inn húsgögn og
innréttingar fyrir tæpar 3.000
millj. kr. Mest var flutt inn af
stólum úr tré (sófasett o.fl.) eða
fyrir unt 793 millj. kr., en það er
um 115% aukning frá sama tíma
í fyrra, miðað við sama gengi.
Einnig vekur athygli ntikil
aukning innflutnings á eldhús-
innréttingum eða um 67% milli
fyrstu sex mánaða 1979 og 1980,
en á síðustu árum hefur inn-
flutningur eldhúsinnréttinga
aukist minna en innflutningur
húsgagna.
manna nefnd til að kanna
samningaleiðir við landeigendur,
sem verða fyrir skaða vegna
virkjunarinnar. Því fannst mér
óþarft að fjórðungsþingið hvetti til
að flýta þessu máli. Samningagerð
er komin af stað með könnun
nefndarinnar.
*
— Torfi, telur þú að Norðlend-
ingar séu að missa af einhverju
stórvægilegu ef þeir sameinast ekki
um Blönduvirkjun eins og hún er
fyrirhuguð nú?
— Já, svo tel ég vera. Virkjun
Blöndu mun veita mjög miklu
fjárstreymi í héraðið og samgöngur
ntunu stórbatna, bæði til sveita og
afrétta. Möguleikarnir til að setja
upp iðnað sem þarfnast raforku
verða mun betri. Þó ekki sé enn
farið að verða atvinnuleysi í kjör-
dæminu, þá mun það stutt undan,
ef ekkert er að gert.
— Verða Norðlendingar af stór-
virkjun um langa framtíð, ef ekki
næst samstaða um fyrirhugaða
Blönduvirkjun mjög fljótlega?
— Þó að Blanda verði ekki
virkjuð nú, tel ég að hún verði
virkjuð öðru hvoru megin við
aldamótin. Nú getum við hins veg-
ar fengið bætur fyrir þau lands-
spjöll, sem af virkjuninni leiða, en
segja mætti mér, að þeir möguleik-
ar minnkuðu eftir því sem virkjun-
in dregst á langinn.
Krossinn verður tryggt, að hjálpin
berist svo fljótt sem auðið er, og
eins verður gengið örugglega frá
þvi, að hjálpin berist þeim, sem
mest eru hjálpar þurfi. Fulltrúar
Rauða Kross félaganna á Norður-
löndum munu sjá til þess, að fé það,
sem safnast nýtist sem allra best, og
það munu þeir gera á staðnum, þ.e.
í Austur-Afríku. Þau ríki sem eink-
um er um að ræða í þessu sambandi
eru Somalia, Uganda, Ethiopia og
Djibouti, og eru þegar farnir
nokkrir fulltrúar þangað austur, frá
Noregi, Svíðþjóð, Danmörku og
Finnlandi. Hafinn er undir-
búningur að för fulltrúa frá Rauða
Krossi Islands.
Talið er að um átta milljónir
ntanna svelta nú heilu hungri
fyrrgreindum stöðum. Gífurlegir
þurrkar hafa verið þar í marga
mánuði, og eins og komið hefur
frarn í almennum fréttum fara
menn með ófriði í þessum ríkjum,
en það hefur í för með sér gífurleg
flóttamannavandamál.
Rauða Kross félögin á öllum
Norðurlöndum hafa tekið að sér í
sameiningu að veita bráða hjálp
sveltandi fólki í Austur-Afríku.
Fjársöfnun er hafin alls staðar
nema á Islandi, en hér er undir-
búningur í þann mund að byrja.
Norðurlöndin sameinast þannig
um mesta átak Rauða Krossins til
þessa við hjálparstarf í Austur-
Afríku, þar sem 8 milljónir svelta
og tugir barna deyja daglega úr
hungri.
Halldór Benediktsson.
Torfi Jónsson.
Lítill hluti gesta í Lundaseli sl. laugardag. Á litlu innfelldu myndinni sést austurhlið barnaheimilisins. Mynd: á.þ.
VEISLA í LUNDASELI
Á laugardag hélt starfsfólk
barnaheimilisins Lundasels,
foreldrar og börn, heilmikla
hátíð í Lundaseli í tilefni þess að
lóð heimilisins er nú fullfrá-
gengin og liðið er eitt ár síðan
Lundasel var tekið í notkun.
Talið er að hátt á annað
hundrað manns hafi komið í
Lundasel á laugardaginn og
gætt sér á pylsum, djús og kaffi.
Börn í Lundaseli eru 2ja til 6 ára.
Fyrir hádegi eru börn á aldrinum
2ja til 6 ára, en eftir hádegi frá 3ja
til 6 ára. Að sögn starfsfólks hefur
fremur lítið verið um skipulegt
samstarf við foreldra, en veislan á
laugardaginn er hugsuð öðrum
þræði sent upphafið á öðru og
nteira.
Lóðin unthverfis Lundasel var
opnuð um miðjan ágúst, og síðan
hafa einhverjir lagt það í vana sinn
að koma þangað seint á kvöldin, í
þeim tilgangi að skentma leiktæki
barnanna. Ein starfsstúlkan sagði
að ástandið væri óþolandi því að á
hverjum morgni væri búið að velta
um litlum skúrum, sem börnin
leika sér í, og rífa upp tré og runna
með rótum. Hvatti stúlkan foreldra
og umráðamenn barna og ung-
linga, sem hugsanlega gætu átt hlut
að máli, til þess að sjá svo um að
þessu linni nú þegar.
Eins og áður hefur komið fram urðu allmiklar umræður um
Blönduvirkjun á fjórðungsþingi Norðlendinga. M..a var rætt um
það, að nauðsynlegt væri að leysa þær deilur sem uppi eru varðandi
land sem færi undir vatn miðlunarlóns fyrirhugaðrar virkjunar á
svæðinu. Dagur ræddi við tvo menn á öndverðum meiði um þessi
mál. Það eru þeir Torfi Jónsson í Torfulækjarhreppi í A-Húna-
vatnssýslu og Halldór Benediktsson í Seyluhreppi í Skagafirði.
— Halldór, hver eru að þínu
mati megin rökin gegn virkjun
Blöndu í þeirri mynd, sem fyrirhug-
uð cr?
— Meginrökin eru hin gifurlegu
landsspjöll á Eyvindarstaðaheiði
vegna virkjunarlónsins. Flestir
bændur í minni sveit, sem eru um
20 talsins, missa þarna verðmætt
beitiland, ásamt vegi fram á heið-
ina, gangnamannakofa o.fl.
— Óttist þið ekki að ef málið
dregst mikið úr þessu þá vcrði ekki
af virkjun Blöndu um næstu fram-
tíð, þar sem aðrir kostir eru þá
nærtækari?
— Jú, það má búast við að
virkjun Blöndu dragist eitthvað, en
það má ekki flana að þessu máli.
Það þarf að fá lausn á því hvaða
bætur verða greiddar og bændur
verða t.d. aldrei til tals um að fá
aðeins eina greiðslu.
Ríkjsstjórnin hefur nú skipað 4ra
— ~2
_ L. J±
0 Vaðlaskógur
opinn
almenningi
Uppi eru deilur hvort leggja
beri veg yfir Leirurnar, en bú-
ið er að taka ákvörðun þar að
lútandi þótt ekki séu allir
sammála henni eins og
gengur. M.a. er rætt um að
vegurinn fyrirhugaði skemmi
Vaðlaskóg. Ekki skal lagður
á það neinn dómur, en væri
ekki rétt að Skógræktin opn-
aði skóginn almenningi t.d.
næsta vor og gerði sitt til
þess að bæjarbúar og tbúar í
næsta nágrenni við skóginn
geti notið hans? Eins og
málin standa í dag er ekki á
hvers manns færi að komast
um skóginn t.d. á gamalt fólk
og hreyfihamlað ekki auðvelt
með að skoða Vaðlaskóg.
0 Skákmenn og
forystumenn
þeirra
Um aldir hafa (slendingar
borið virðingu fyrir skák-
íþróttinni. Hinir mestu and-
ans snillingar hafa setið að
tafli tímunum saman og
vandlega er fylgst með þeim
mönnum sem ná árangri í
íþróttinni. Svo sýnist sem
virðing manna fyrir skák fari
þverrandi. Ástæðan? Jú, sí-
feltdar deilur og smábarna-
legur skætingur milli forystu-
manna í Skáksambandi fs-
lands — núverandi og fyrr-
verandi forystumanna —
hefur haft þau áhrif að fólk
horfir ekki lengur sömu aug-
um á skákmenn og þá, sem
eru og hafa verið, í forsvari
hjá Skáksambandi íslands.
0 Akureyrar-
lögreglan
fari suður
þegar mikið
liggur við
Samkvæmt sunnlenskum
fjölmiðlum, blöðum útvarpi
og sjónvarpi, hefur verið
fremur róstursamt í miðborg
Reykjavíkur að undanförnu.
Lögreglan hefur legið undir
því ámæli að vera fautaieg og
lítt til viðræðu — stungið
mönnum í steininn án tilefn-
is. Einhvern veginn hefur ak-
ureyrskum lögregiumönnum
tekist að sigla milli skers og
báru í þessum efnum. E.t.v.
væri rétt að þeir færu suður
og kenndu starfsbræðrum
sínum rétt vinnubrögð, en
áður hafa lögreglumenn farið
suður þegar mikið hefur legið
við. Þeir fóru 1968 á Nato
fundinn og eins þegar Nixon
og Pompídú ræddu saman.
Góða ferð.