Dagur - 21.10.1980, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR.
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMiÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudaginn 21. október 1980
74. tölublað
Þriðja Kröflu
gosið á árinu
Á laugardagskvöldið fór að
gjósa í Kröflu í þriðja sinn á
þessu ári, en þetta er fjórða
gosið í landinu á árinu. Hætta er
talin á að Krafla gjósi aftur fyrir
áramót. Gosvirknin var mjög
mikil á laugardagskvöldið og
fram eftir nóttu, en þá fór að
sljákka í gígunum. í gær gaus
enn í norðurhluta eldstöðvanna.
Eining ger-
ir atvinnu-
rekendum
tilboð
Verkalýðsfélagið Eining hef-
ur ákveðið að boða til vinnu-
stöðvunar á miðvikudaginn í
næstu viku, en stjórn og
trúnaðarmannaráð sam-
þykkti jafnframt á fundi um
helgina að bjóða atvinnurek-
endum á félagssvæðinu upp á
viðræður á grundvelli sátta-
tillögu sáttanefndar.
Tilboð þessa efnis var sent
helstu atvinnurekendum á
félagssvæðinu í dag og tilboð
Einingar verður rætt á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í
dag.
Jón Illugason, fréttaritari Dags í
Mývantssveit, sagði að uppúr
klukkan 10 á laugardagskvöldið
hefði birt í lofti og það leyndi sér
ekki hvað var að gerast í Kröflu.
„Þetta var frábær skrautsýning,"
sagði Jón. Gosið kom jarðfræðing-
um ekki á óvart því fyrr um kvöldið
hafði verið órói á mælum og hratt
sig kom fram á hallamælum.
Almannavarnanefndin kom
saman og haft var samband við
íbúa svæðisins í gegnum síma.
Starfsmenn Kísiliðjunnar voru
látnir yfirgefa verksmiðjuna og
hluti þeirra fór á vakt í dælustöð-
inni Kringlu, en þaðan sér vel yfir
og í dælustöðinni eru góð mót-
tökuskilyrði fyrir talstöðvar. Vakt-
menn í Kröfluvirkjun fóru hvergi,
en starfsmenn við borinn Narfa
yfirgáfu svæðið. Á tímabili var talin
hætta á sprengigosí þvi á mæium
kom fram landris í áttina að Víti.
Jón sagði að suðumörk eldsum-
brotanna hefðu verið í Leirhnúk —
örlítið sunnar en hefur gosið syðst í
fyrri umbrotum. Frá þeim stað eru
um 2 kilómetrar að Kröfluvirkjun
og 15 kílómetrar í Reykjahlíð.
Þessi umbrot á Kröflusvæðinu
hafa að sjálfsögðu áhrif á íbúa í
Mývatnssveit, en Jón sagðist ekki
vita til þess að umbrotin hefðu haft
þau áhrif á fólk að það flytti úr
Mývatnssveit. Þvert á móti. Alls
sóttu níu um stöðu sveitarstjóra í
Skútustaðahreppi, en hana hlaut
Amaldur Bjarnason frá Fosshóli.
Hér sjást nokkur þeirra sem koma fram i kabarettinum, þar
sem þau voru á æfingu í Samkomuhúsinu. Alls koma um 20
manns fram í sýningunni. Sýningin samanstendur af um 10
stuttum atriðum og fjallað er um landsmál og bæjarmál, m.a.
KEA og Hagkaup, Brcka og Gullver og svo auðvitað Leikfélag
Akureyrar, að ógleymdum Flugleiðum. Mynd: H. Sv.
Kabarett á föstudag
Leikiö, dansað og sungið í Sjálfstæðishúsinu
„Þetta er allt að koma heim og
saman og við munum frumsýna
Kabarcttinn á föstudag, þ.e.
síðasta sumardag,“ sagði Sunna
Borg, leikkona í viðtali við Dag.
Samtals koma um 20 manns
fram í sýningunni að meðtalinni
hljómsveit. Höfundur efnisins er
Guðmundur Sæmundsson,
starfsmaður Akureyrarbæjar.
„Sýningin samanstendur af um
tíu atriðum eða stuttum þáttum.
Fjallað er um þjóðlífið og lífið á
Akureyri á gamansaman hátt og
við gerum ráð fyrir að kabarettinn
taki um klukkutíma í flutningi. Það
verður leikið, dansað og sungið og
Hættir eina skógerð landsins?
„Það er mitt mat, að miðað við
núverandi rekstrarskilyrði og
þann taprekstur sem verið hefur
á Skóverksmiðjunni Iðunni
undanfarin ár, sé ekki um annað
að ræða en að loka henni. End-
anieg ákvörðun verður væntan-
lega tekin á fundi stjórnar Sam-
bandsins 17. nóvember næst
komandi,“ sagði Hjörtur
Vcrksmiðjur SlS á Akureyri. Mynd: á.þ.
Eiríksson, framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar Sambandsins í
viðtali við Dag. Skóverksmiðjan
Iðunn er eina skógerðin í iand-
inu. Hún var stofnuð árið 1936
og er búin að framleiða rösklega
3 milljónir para af skóm frá
upphafi.
Hjörtur sagði að lokun verk-
smiðjunnar gæti tekið nokkurn
tíma. Bæði þyrfti að huga að hag
starfsmanna fyrirtækisins, sem eru
49 að tölu, auk þess sem mikil
verðmæti lægju í hráefnum, sem
þyrfti að vinna úr. Þó að ákvörðun
yrði tekin um lokun skógerðarinn-
ar nú fljótlega, kæmi varla til lok-
unar fyrr en að ári liðnu, eða svo.
Hjörtur sagði að ætlunin væri sú,
að koma sem flestum starfsmanna
skógerðarinnar í önnur störf hjá
Sambandsverksm iðj un um.
Fyrir nokkrum árum var rætt um
það, hvort ekki mætti gera skógerð
Iðunnar að vernduðum vinnustað.
Iðnaðarráðuneytið kannaði málið,
en lengra náði það ekki. Hjörtur
sagði ekki útilokað að þetta gæti
orðið lausn á málinu, en þess bæri
að geta, að út frá hreinum rekstr-
arsjónarmiðum væri nánast útilok-
að að reka þessa starfsemi. Það
væri ekkert einskorðað við Iðunni,
heldur hefðu skógerðir verið lagðar
niður í stórum stíl á Norðurlöndum
og raunar í allri Norður-Evrópu.
Ástæðuna sagði Hjörtur vera gíf-
urlega samkeppni frá löndum, þar
sem vinnuafl er ódýrt.
Eins og áður sagði hefur ekki
verið ákveðið endanlega hvort
Skóverksmiðjan Iðunn verður lögð
niður, en ákvörðunar um málið er
að vænta á fundi stjórnar Sam-
bandsins upp úr miðjum næsta
atriðin verða tengd saman með
stuttum kynningum og athuga-
semdum," sagði Sunna Borg
Kabarettsýningin verður í Sjálf-
stæðishúsinu, eins og áður hefur
verið greint frá og hún er fyrst og
fremst hugsuð sem framlag til
styrktar Leikfélagi Akureyrar, en
allir þátttakendur gefa vinnu sína.
Þá má ætla að þessi sýning verði
mikill hvalreki á fjörur annars ein-
hæfs skemmtanalífs á Akureyri.
Hvort um fleiri sýningar verður
að ræða ræðst af undirtektum
áhorfenda og áhuga.
Þórey Aðalsteinsdóttir sagði í
viðtali við Dag, að mjög margir
hefðu lagt L.A. lið í fjárhagserfið-
leikum þess, einkum þó þeir sem
ættu fjárhagskröfur á félagið. Hún
sagði að mjög margir þessara
kröfuhafa hefðu fallið frá kröfum
sínum og væri leikfélagsfólk mjög
þakklátt fyrir það.
grunaður
um ölvun við
akstur
Akureyrarlögreglan hafði það náð-
ugt um helgina. Aðeins einn öku-
maður var tekinn grunaður um
ölvun við akstur og lögreglan þurfti
að öðru leyti ekki að hafa mikil af-
skipti af fólki.
Atvinnuleysis-
skráning
I bréfi frá vinnumiðlunarskrif-
stofunni 1. okt. s.l. kemur fram að
30. september s.l. hafi 18 verið
skráðir atvinnulausir á Akureyri
— 11 konur og 7 karlar. í sept-
ember voru skráðir 430 atvinnu-
leysisdagar og gefin út 49 at-
vinnuleysisbótavottorð með sam-
tals 391 bótadegi.
Krafist úrbóta í
nágrenni Arholts
vegna slysa-
hættu
Á fundi bæjarráðs þann 9. októ-
ber var lagt fram bréf undirritað
af um 90 manns, þar sem krafist
er útbóta vegna slysahættu við
gatnamót Háhlíðar og Höfða-
hlíðar, svo og að lagfærð verði
bílastæði og athafnasvæði austan
leikskólans Árholts. Bæjarráð
vísaði erindinu til bæjarverk-
fræðings og skipulagsstjóra til
umfjöllunar.
Fresturinn renn-
ur út í kvöld
Frestur aðildarfélaga A.S.Í. til að
boða verkfall á n.k. miðvikudag
rennur út á miðnætti í kvöld. All-
mörg félög hafa sent Vinnuveit-
endasambandi íslands verkfalls-
boðun — þeirra á meðal verka-
mannafélagið Dagsbrún, Verka-
kvennafélagið Framsókn, Versl-
unarmannafélag Reykjavíkur og
Verkalýðsfélagið Vaka á Siglu-
firði. Mörg félög eiga eftir að
veita stjórn og trúnaðarmanna-
ráði heimild til verkfallsboðunar
og munu hafa haldið fundi um
málið í gærkvöldi.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn í Hafnarstræti 90,
laugardaginn 25. október n.k. kl.
14.00. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf. Kosning fulltrúa á
kjördæmisþing. Önnur mál.
Þingmenn flokksins í kjördæm- ;
inu mæta á fundinn. Stjórnin.
tlfe