Dagur - 21.10.1980, Side 6
Grenivíkurkirkja. Sunnudaga-
skóli n.k. sunnudag kl. 11.00
f.h. Fermingarbörn mæti
klukkustundu fyrr. Sóknar-
prestur.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Guðsþjónusta í Bakkakirkju
í Öxnadal n.k. sunnudag 26.
október kl. 2 e.h. Sóknar-
prestur.
Messað í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 2.00 e.h. Sr.
Bolli Gústafsson Laufási,
messar. Sálmar 484, 457,
199, 483, 485. P.S.
Messað í Glerárskóla n.k.
sunnudag kl. 5.00. Vetrar-
koman. Sr. Þórhallur Hösk-
uldsson, messar. Sálmar 484,
457, 199, 483, 485. P.S.
Munið minningarspjöld kvenfé-
lagsins Hlífar. Spjöldin fást í
bókabúðinni Huld, símaaf-
greiðslu sjúkrahússins og hjá
Laufeyju Sigurðardóttur
Hlíðargötu 3. Allur ágóði
rennur til barnadeildar
F.S.A.
Munið minningarspjöld Minn-
ingarsjóðs Jakobs Jakobs-
sonar, spjöldin fást í bóka-
búð Jónasar, Bókval og í
Sporthúsinu.
Hvað er Bahá’i trúin? Opið hús
að Hafnarstræti 20 að vestan
alla mánudaga kl. 20.30.
Kristniboðshúsið Zfon sunnu-
daginn 26. október sunnu-
dagaskóli kl. 11. Fundur í
Kristniboðsfélagi kvenna kl.
2 Samkoma kl. 20.30.
Ræðumaður Jón Viðar
Guðlaugsson. Allir vel-
komnir.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17.00.
Drengjafundir á laugardög-
um kl. 13.30. Sunnudaga-
skóli í Glerárskóla n.k.
sunnudag kl. 13.35 og í
Lundarskóla kl. 13.30. Verið
velkominn.
Hjálpræðisherinn n.k. sunnu-
dag er sunnudagaskóli fyrir
böm kl. 13.30 og almenn
samkoma kl. 17.00 Allir vel-
komnir. Mánudag kl. 16
heimilissambandið og
þriðjudag 28. okt. kl. 20.30
er hjálparflokkurinn. Allar
konur velkomnar.
Basar hefir Kristniboðsfélag
kvenna í Zíon laugardaginn
25. okt. kl. 4 e.h. Margir
góðir munir, kökur og blóm.
Komið og gerið góð kaup.
Nefndin.
í kvöld og næstu kvöld sýnir
Nýja bíó kvikmyndina Á
hverfanda hveli með Clark
Gable og Vivien Leigh í að-
alhlutverkum. Það þarf ekki
að kynna þessa kvikmynd
fyrir lesendum — svo fræg
er hún orðin. Sumir kalla
hana sígilt meistaraverk og
sjálfsagt ber hún það nafn
með rentu. Myndin er sýnd
kl. 20.30. Athugið breyttan
sýningartíma.
Kvenfélagið Baldursbrá, heldur
fund í Glerárskóla fimmtu-
daginn 23. okt. n.k. kl. 20.30.
Stjórnin.
Kvenfélagið Hlíf, heldur haust-
fund sinn í Amaró 23. okt.
kl. 20.30. Rætt um vetrar-
starfið, áríðandi að sem
flestar mæti og taki með
nýja félaga. Stjómin.
□ Huld 598010227 VI 2
l.O.O.F. Rb2 = 13010228 ‘Á =
9.0.
Spilavist heldur N.L.F.A. í Al-
þýðuhúsinu fimmtudaginn
23. okt. kl. 8.30. Góð verð-
laun. Allir velkomnir.
Nefndin.
Og þá er sláturtið lokið viðast hvar. Henni lauk í Sláturhúsi
K.E.A. í síðustu viku, en nokkru áður tók á.þ. þessa mynd af
starfsmönnuni við sláturbekkinn. Það leið ekki nema örskot
frá þvi að kindin kom inn i salinn þar til búið var að ganga frá
skrokknum og hann kominn af stað með færibandi í áttina að
frystiklefunum.
Frá Tónlistarfélaginu á Akureyri
Það er alkunna, að maðurinn lifi
ekki af brauðinu einu saman, og
þeir sem starfað hafa að menn-
— Alkóhólistar ...
(Framhald af bls. 8).
hvers konar ógöngur fjölskyidulífið
kann að vera komið. Einnig hvaða
leiðir er hægt að fara til að bæta
samskiptin innan fjölskyldunnar og
út á við.
Síðar í þessum mánuði mun
birtast auglýsing í Degi frá Félags-
málastofnun Akureyrar, þar sem
auglýst verður eftir þátttöku í
námskeiðinu.
6.DAGUR
ingar- og listamálum í gegnum
tímana hafa beint eða óbeint
haft þá skoðun að leiðarljósi.
Tónlistarfélag Akureyrar, hefur
á 37 ára starfsferli sínum aukið
fjölbreytni bæjarlífsins með 152
tónleikum, fjölmörgum tónlistar-
kynningum fyrir skóla og almenn-
ing, og stóð í upphafi myndarlega
að stofnun Tónlistarskólans á Ak-
ureyri.
Þátttaka og áhugi fyrir starfi
þessu hefur laðað marga heims-
þekkta tónlistarmenn, sinfóníu-
hljómsveitir, kóra og ýmsa sam-
leiksflokka að staðnum.
Stjórn félagsins vill beina þeim
tilmælum til allra, sem áhuga hafa
fyrir tónlist í allri sinni fjölbreytni,
að sækja aðalfund félagsins í sal
Tónlistarskólans — Hafnarstræti
81—n.k. laugardag kl. 17.
Þar verða tillögur stjórnar um
tónleika og starf vetrarins kynntar,
Paula Parker píanóleikari flytur
þar verk eftir Chopin og Ravel.
Fólki gefst þar kostur á að láta í
ljósi skoðanir sínar og hygmyndir
til úrbóta í starfi félagsins. Sérstök
athygli skal vakin á tónleikaáskrift.
er veitir félagsmönnum verulegan
afslátt.
Skólafólki er einnig boðin þátt-
taka í störfum félagsins og það fær
einnig áskriftarmiða á sérstökum
vildarkjörum. Án virkrar þátttöku
áhugafólks í störfum félagsins, er
hætt við að erfitt reynist að halda
uppi blómlegu tónleikahaldi.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður,
EVU HJÁLMARSDÓTTUR,
hjúkrunarfræðings, Ásvegi 20,
er lést hinn 15. þ.m. fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
23. okt. n.k. kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Gísli Ólafsson,
Slgríður Gísladóttir.
Móðir okkar
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Skarðshlíð 11 e, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 22. októ-
berkl. 13.30.
F.h. vandamanna.
Haukur Einarsson,
Ingvi Jón Einarsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hjálp
viö andlát og jarðarför,
HARALDAR ÞÓRARINSSONAR,
fyrrum skólastjóra, frá Skeggjastöðum í Fellum,
og heiðruðu minningu hans á ýmsan hátt. Guð blessi ykkur öll.
Gunnhildur Þórarinsdóttir,
Hallgrímur Þórarinsson,
Jón Þórarinsson.
Hjartanlegar þakkir sendi ég börnum mínum,
tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörn-
um fyrir góðar gjafir og alla fyrirhöfnina vegna 75
ára afmœlis míns, svo og öðrum sem minntust mín
með blómum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR.
/ tilefni af áttatíu ára afmcelum okkar þann 1. og
11. okt. s.l. sendum við hjartans þakkir til barna
okkar, barnabarna og barnabarnabarna, svo og til
annara ættingja, vina og kunningja fyrir rausnar-
legargjafir, blómasendingarogheillaskeyti. Einnig
fyrir ánœgjulegar samvistir eina kvöldstund.
Guð gefiykkur bjarta og gœfurika framtíð.
HÓLMFRÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
KETILL S. GUÐJÓNSSON.
Þessi barnahópur heimsótti
Elliheimilið á Akureyri fyrir
skömmu og færði vistmönnum af-
rakstur tombólu, sem þau héldu í
lok ágúst. Þau fengu 20 þúsund
krónur og keyptu fyrir það kassettu
með Örvari Kristjánssyni og
sælgæti til að færa vistfólkinu,
ásamt afganginum af peningunum.
Bömin sem eru hér á mynd ásamt
yfirhjúkrunarkonunni búa öll í
Furulundi og heita Auðjón Guð-
mundsson, Hanna og Hrönn
Bjömsdætur og Guðrún og Sigrún
Ingadætur. Myndina tók Fjóla ís-
feld.