Dagur - 27.11.1980, Qupperneq 1
itoui, papp«
FIMYIUuÝtl*
LXIII. árgangur.
Akurevri. fimmtudagur 27. nóvember 1980
■■■■■■■■■
n—
86. tölublað
■■■■■■■■■'
Skemmtun í
Arskógi
Á laugardagskvöldið kemur,
þann 29. þ.m. heldur U.M.S.E.
fjáröflunardansleik í Árskógi.
Það er íþróttanefnd sambandsins
sem stendur fyrir þessu, til
styrktar íþróttamönnum sem
munu keppa fyrir sambandið á
næsta landsmóti U.M.F.Í. sem
haldið verður hér á Akureyri.
Gamlir keppendur sambandsins
munu sjá um skemmtiatriði á
hátíðinni og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Sérstakt
jólakort
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Hólastifti (Æ.S.K.) hefur gefið út
jólakort, sem nú er að koma á
markaðinn. Myndin á kortinu er
vatnslitamynd af höfninni á
Raufarhöfn, máluð af listamann-
inum Ragnari Kjartanssyni, —
stílhrein mynd og falleg. Allur
ágóði af sölu kortsins rennur til
styrktar æskulýðsstarfi kirkjunn-
ar á Norðurlandi, og er fólk beðið
að taka vel á móti þessu sérstæða
korti.
Framtíðin gefur
út jólamerki
Að venju gefur kvenfélagið
Framtíðin á Akureyri út jóla-
merki, sem komið er á markað.
Jólamerkið tciknaði Einar
Helgason, kennari. Merkin eru til
sölu í Frímerkjamiðstöðinni og
Frímerkjahúsinu í Reykjavík og í
pósthúsinu á Akureyri. Allur
ágóði rennur í Elliheimilissjóð
félagsins.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT; 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 232071
Kostnaður við við-
gerð og endur-
bætur 47 milljónir
Viðgerð og endurbótum á
miðlunargeymi Vatnsveitu Ak-
ureyrar er nú að mestu lokið.
Hann hefur verið fylltur af vatni
tii hreinsunar og verður fylltur
Fyrstu tón-
leikarnir
á islandi
Píanóleikarinn Paula Parker
heldur sína fyrstu tónleika á ís-
landi næstkomandi laugardag
29. nóvember í Borgarbíói á Ak-
ureyri, og hefjast tónleikarnir
kl. 17.
Á efnisskránni er rondo í a
moll eftir Mozart, fantasía í f
moll eftir Chopin, 32 tilbrigði
eftir Beethoven og sónatína í Fís
dúr eftir Ravel.
Paula Parker lagði stund á
tónlistarnám við Royal
Academy of Music í London í 5
ár, og var Philip Jenkins
píanókennari hennar þar. Árið
1977 lauk hún á sama tíma ein-
leikaranámi á píanó og fiðlu, en
hafði áður lokið kennaraprófi á
bæði hljóðfærin.
I framhaldsnámi í píanóleik
hlaut hún Mirian Duncan
styrkinn, og árið 1979 vann hún
Harold Samuel keppnina fyrir
túlkun sina á tónlist eftir Bach.
Hún hlaut þetta sama ár styrk
frá frönsku stjórninni til náms
hjá hinum fræga kennara og
píanóleikara Vlado Perlemuter
í París. Paula starfar nú, sem
píanókennari við Tónlistarskól-
ann á Akureyri.
Aðgöngumiðasala fer fram
við innganginn.
aftur í sama skyni og væntan-
lega tekinn í notkun um næstu
helgi. Kostnaðurinn við að
steypa undirstööur og þétta leka
með því að klæða tankinn innan
með trefjaplasti nemur um 47
milljónum króna. Þar af var
kostnaður við plastklæðninguna
um 36 milljónir króna.
Að sögn Freys Ófeigssonar, for-
manns vatnsveitustjórnar, er erfitt
að sannreyna hvér var hin upphaf-
lega orsök þess að geymirinn tók að
Ieka og síga. Þó er Ijóst að sprungur
mynduðust í botninn og vatn rann
út og veikti þannig undirstöður
tanksins. Við það hefur tankurinn
trúlega sigið enn frekar.
Freyr sagði að það hefði verið
rætt innan stjórnar vatnsveitunnar
hvort um hugsanlega bótaábyrgð
gæti verið að ræða vegna þessa
tjóns. Athugun á slíku myndi þá
beinast að því hvort hönnuðir hefi
gert einhverja skyssu og ekki staðið
að málinu eins og gengur og gerist
miðað við þá þekkingu sem fyrir
hendi er. Hann sagði að engin
ákvörðun hefði verið tekin um
hvort slík athugun yrði gerð, enda
væru öll kurl ekki komin til grafar
enn.
Freyr gat þess ennfremur, að
segja mætti að kostnaðurinn við
raunverulega viðgerð tanksins
næmi mismuninum á heildar-
kostnaðinum og kostnaðinum við
plastklæðninguna, þ.e. ellefu
milljónum. Klæðningin væri í raun
endurbót, sem ráðist var í úr því að
gera þurfti við lekann.
Síðdegis í gær var trimmbrautin í Kjarnaskógi formlega
tckin í notkun. Hallgrímur Indriðason lýsti framkvæmdum
og Tómas Ingi Olrich fjallaði um útivist og skíðagöngu.
Það var svo Helgi Bergs, bæjarstjóri, sem opnaði brautina
formlega með því að klippa á borða. Fjöldi manns var
viðstaddur athöfnina, þrátt fyrir kalsaveður. Gengu við-
staddir einn hring en þáðu síðan veitingar hjá Skógrækt-
arfélaginu. Mynd: H. Sv.
RAUFARHÖFN:
Ekki útilokað að
finna heitt vatn
Fyrr í þessuni mánuði yfirgáfu
starfsmenn Orkustofnunar
Raufarhöfn, en þá höfðu þeir
borað niður á 330 metra dýpi
með bornum Ými og var ljóst að
holan gæfi ekkert heitt vatn.
Hins vegar hafa jarðfræðingar
áhuga á að bora áfram síðar til
að kynnast betur jarðlögum á
þessu svæði.
Sveinn Eiðsson, sveitarstjóri var í
þessari viku á fundi með Kristjáni
Sæmundssyni hjá Orkustofnun og
sagði Sveinn eftir Kristjáni að enn
væri ekki útilokað að finna heitt
vatn sem nota mætti til upphitunar
á Raufarhöfn. Nauðsynlegt getur
reynst að bora nokkrar grunnar
holur vestur af þeirri sem síðast var
boruð, en jarðfræðingar telja ólík-
legt að finna nokkuð bitastætt
austan við holuna.
Holan sem boruð var telst til-
raunahola og því verður kostnaður
greiddur af ríkinu. Ef sveitar-
stjórnin hefur í hyggju að láta halda
áfram leit að heitu vatni verður hún
fyrir verulegum fjárútlátum, en
talið er að ein rannsóknarhola kosti
á núverði 2 til 3 milljónir.
Ný verslun
opnuð á
Hvammstanga
Á miðvikudag í næstu viku verð-
ur opnaður markaður í nýju
húsi. Þarna verður allt milli
himins og jarðar á boðstólum
svo vel má kalla þetta stór-
markað.
Verslun þessi er í eigu Versl-
unar Sigurðar Pálmasonar og er
á neðsu hæð í þrílyftu húsi sem
byrjað var á s.l. vor og er full
uppsteypt. Hver hæð er 600
fermetrar. Verslun Sigurðar
Pálmasonar hefur til þessa verið
í fremur óhentugu húsnæði svo
breytingin verður mikil fyrir
starfsfólk og viðskiptavini fyrir-
tækisins.
VARABfLL SLÓKKVILIÐSINS ER ONOTHÆFUR
Enn einu sinni er varabill
slökkviliðsins ónothæfur vegna
þess að ekki er hægt að hýsa
hann. í fyrrahaust var hið sama
uppi á teningnum, en þá tókst að
fá húsnæði.
Tómas Búi Böðvarsson, slökkvi-
liðsstjóri sagði að ef nota ætti bílinn
yrði að þýða hann upp áður —
m.ö.o. yrðu slökkviliðsmennirnir
að vita um eldinn með góðum fyr-
irvara.
Varabíllinn er kominn á fertugs-
aldur, en stendur þó fyrir sínu af
því er að skipta. Aðrir bílar í flota
slökkviliðsins eru ekki nein ung-
börn sem sést best á því að meðal-
aldurinn er 26.8 ár. Tómas sagði að
erfitt væri að fá varahluti í suma
bílana — raunar væri það oft á tíð-
um ómögulegt að fá varahluti frá
umboðunum. Það hefur því oft
komið sér vel að Gísli í Árnesi er
nýtinn maður og héndir ekki
gömlum bílum og varahlutum að
óathuguðu máli. Vel á minnst — ef
einhver getur hýst varabíl slökkvi-
liðsins er sá hinn sami beðinn um
að láta Tómas Búa vita af því. Best
væri að húsnæðið væri sem næst
slökkviliðsstöðinni.
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
i SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
Miðlunargeymir Vatnsveitunnar: