Dagur - 11.12.1980, Blaðsíða 10
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju verður n.k. sunnudag
kl. 11 f.h. Kór Barnaskóla
Akureyrar syngir uppi í
kirkjunni. Útvarpað verður
úr sunnudagaskólanum. Öll
böm velkomin. Sóknar-
prestar.
Akureyrarkirkja: Messað verð-
ur n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Kór Lundarskóla syngur
jólalög í messunni. Sálmar:
69-111-7Q-96. Eftir messu
verður í kapellunni fundur í
Bræðrafélagi Akureyrar-
kirkju. B.S.
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 14. des. sunnudaga-
skóli kl. 11. Öll börn vel-
komin. Samkoma kl. 20.30.
Flutt verður af segulbandi
ræða Jónasar Gíslasonar
dósents frá útför Gunnars
Sigurjónssonar guðfræðings,
sem fram fór í Dómkirkj-
unni 29. nóvember s.l. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17.00.
Drengjafundur á laugardag
kl. 13.30. Sunnudagaskóli í
Glerárskóla kl. 13.15. Verið
velkomin.
Áheit á Strandakirkju kr.
30.000,- frá bóndanum i
Birkimel, kr. 10.000,- frá
N.N.ogkr. 100.000,- frá B.J.
Bestu þakkir. Birgir Snæ-
björnsson.
Áheit og gjafir: Áheit á
Munkaþverárklaustur-
kirkju: Frá aanhildiu
10.000,-. Frá Ingu R. kr.
5.000,-. Frá N.N. kr.
10.000,-. Áheit á Saurbæjar-
kirkju frá Ólínu Guð-
mundsdóttur, kr. 5.000,-. Til
hungraðra: Frá Jónu kr.
10.000,-. Frá Vilborgu kr.
5.000.-. Til Slysavarnar-
félags íslands frá Kjartani
og Finnbjörgu, Skáldsstöð-
um-Efri, kr. 10.000,- til
minningar um Halldór
Sveiobjörnsson frá Hrísum.
Hjartans þakkir. Bjartmar
Kristjánsson.
Alþýðuflokksfólk. Bæjarmála-
ráðsfundur verður mánu-
daginn 15. des. í Strandgötu
9, kl. 20.30. Stjómin.
I.O.O.F. 2 —1621212 —'/2
Sálarrannsóknarfélag Akureyr-
ar. Jólafundur verður hald-
inn mánudaginn 15. des. kl.
9 e.h. í Varðborg. Stjórnin.
ÁTHUGID------------
Minningarspjöld kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni
Huld, í símaafgreiðslu
sjúkrahússins og hjá Lauf-
eyju Sigurðardóttur Hlíðar-
götu 3, Allur ágóði rennur til
bamadeildar F.S.A.
Munið minningarspjöld Minn-
ingarsjóðs Jakobs Jakobs-
sonar, spjöldin fást í bóka-
búð Jónasar, Bókval og í
Sporthúsinu.
Mæðrastyrksnefnd þakkar öll-
um þeim er stutt hafa hana á
einn eða annan hátt. Gleði-
leg jól.
jAMkUMUk
Ffladelfía Lundargötu 12,
fimmtudagur 11. des.
Biblíulestur kl. 8.30. Allir
velkomnir. Laugardagur 13.
Safnaðarsamkoma kl. 8.30
sunnudagur 14. sunnudaga-
skóli kl. 11 f.h. Almenn
samkoma kl. 8.30 Allir vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn: Sunnudag-
inn 14. des. kl. 13.30 sunnu-
dagaskóli fyrir börn og kl. 17
almenn samkoma. Á föstu-
dögum er opið hús fyrir börn
kl. 17. Verið hjartanlega
velkomin.
-MbSSUR —
Svalbarðskirkja. Sunnudaga-
skóli n.k. sunnudag kl. 11
árdegis. Fermingarbörn
mæti 1 klst. fyrr. Sóknar-
prestur.
Kvenfélagið Framtíðin, vill
minna á minningaspjöld fé-
lagsins. Þau eru til sölu í
Skemmunni, Blómabúðinni
Lilju, Dvalarheimilinu Hlíð,
Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík og hjá Margréti Krauer
Helgamagrastræti 9. Allur
ágóði rennur í elliheimilsi-
sjóð félagsins.
Borgarbíó sýnir kl. 9 myndina
Jarðýtan með Bud Spencer í
aðalhlutverki sem að vanda
skemmtir áhorfendum með
allskonar uppátækjum og það
bregður vonandi engum þó
að hús hrynji er hann lokar
á eftir sér hurð. Kl. 11 sýnir
bíóið myndina Dagur sem
ekki rís. Jim Wilson er
óvenjulegur lögreglumaður.
Hann er flokksstjóri í vin-
sælli ferðamannaborg, þar
sem spilling er mikil, en
orðinn leiður og fullur
óbeitar á vistinni þar. Með
aðálhlutverk í myndinni
fara Oliver Reed og Susan
George.
Mannlíf í mótun
Fyrra bindi æviminninga
Sæmundar G. Jóhannesson-
ar frá Sjónarhæð, sem hann
hefur sjálfur skráð.
I leiðarorðum þessa bindis segir
Sæmundur svo: „Reynt hef ég að
rita söguna þannig, að nútíma
kynslóðin, sem þekkir ekki af eigin
reynslu, hvemig lífið til sveita var
áður, geti eitthvað fræðst um það.
Breyst höfðu lítið búskaparhættir
og heyvinnutæki frá landnámsöld,
10' DAGUfl
að minnst kosti í megindráttum.
Þessu reyni ég að lýsa, gef einhverja
hugmynd um þessi atriði, er sam-
fléttuð eru sögu vorri, sem byggjum
Island.“
Pétur Pétursson, félagsfræðingur
í Lundi í Svíþjóð, ritar inngang að
þessu fyrra bindi ævisögu
Sæmundar og segir svo í lokin:
„Viðhorf Sæmundar til eigin
lífssögu, sem ég hef reynt að gera
grein fyrir í fáum orðum, gerir það
að verkum, að óhætt er að segja, að
hún sé meistaralega skrifuð. Hún er
merkilega laus við slepju yfirhylm-
inga og óskhyggju, sem einkennir
svo margar ævisögur, sem seljast á
íslenskum bókamarkaði.“
Skelfing er heimurinn
skrýtinn
Ný bók eftir Hugrúnu
Hugrún hefur sent frá sér 28. bók-
ina er nefnist Skelfing er heimurinn
skrýtinn — saga handa börnum á
öllum aldri. „Unglinga- og barna-
bækur Hugrúnar eru með því besta
af þeim bókum sem út hafa komið
eftir íslenska höfunda. Það er ein-
hver heiðríkja yfir öllu sem hún
skrifar. Hún stælir engan en fer
sínar eigin leiðir hvað sem hver
segir“ ... „Út er komin ný og mjög
prýðileg bók fyrir börn og ungl-
inga, höfundurinn er Hugrún.
Virðist henni einkar lagið að ná til
æskulýðsins með sögum sínum,“
segir í tveimur Reykjavíkurblöðum
um bók Hugrúnar.
Eyðimerkurstríðið
eftir Richard Collier.
Jóhann S. Hannesson og
Sigurður Jóhannsson ís-
lenskuðu.
Nýlega hefur Bókaklúbbur AB sent
frá sér sjöundu bókina í ritröðinni
um þeimsstyrjöldina 1939-45 —
Eyðimerkurstríðið eftir breska
stríðsfréttaritarann og rithöfundinn
Richard Collier. Fjallar hún um
hin erfiðu stríðsátök í Nbrður-
Afríku sem hófust með innkomu
ftala í styrjöldina, og ósigrum
þeirra fyrir breskum herjum í árs-
byrjun 1941. Þá skerast Þjóðverjar í
leikinn og senda „Eyðimerkurref-
inn“ Rommell á vettvang. Hann
hrekur Breta austur til Egyptalands
og lá við að Súezskurður félli
Þjóðverjum í hendur. Þá kemur
Bernard Montgomery fram á sjón-
arsviðið og stríðsgengið snýst við
með hinni frægu orustu við E1
Alamein íoktóber 1942.
Bókin er 208 bls. að stærð með
miklum fjölda merkilegra mynda,
eins og önnur bindi þessara rita.
Útför móður okkar
ÖNNU FRIÐRIKU FRIÐRIKSDÓTTUR,
sem andaðist 5. desember síðastliðinn fer fram frá Akureyrar-
kirkju laugardaginn 13. desember kl. 13.30.
Marselía Adolfsdóttir,
Guðrún Adólfsdóttir,
María Adólfsdóttir,
Friðrik Adoifsson.
Qtidmmichir
{ýríimum
&mumur
baust
stiönmm
Draumur undir
hauststjörnum
og önnur mennsk Ijóð ýmist
frumkveðin eða þýdd.
Ný Ijóðabók eftir Guðmund
Frímann
1 eftirmála bókarinnar, sem ber yf-
irskriftina Að síðustu, segir Guð-
mundur m.a.: „f þessu kveri eru
örugglega síðustu ljóð mín, enda
þótt margt bendi til þess að ég geti
orðið allra karla elstur. í undirtitli
kversins nefni ég ljóðin mennsk.
Þau eru öll mannleg í þessa orðs
hefðbundna skilningi. í kverinu eru
engin æratobbakvæði; þar verða
engin kvæði lesin afturábak; þar
verður enga spéspeki að finna,
vona ég. Og ég vona líka, að les-
endur kversins, ef einhverjir verða,
meti kvæðin svo sem þau verð-
skulda, enda þótt engar hunda-
kúnstir séu viðhafðar við gerð
þeirra.“
„Um þýðingarnar er þetta að
segja: Öll eru ljóðin þýdd úr norð-
urlandamálunum þrem og ensku,
þó nokkur þeirra séu frumkveðin á
öðrum þjóðtungum.“
DAGUR
bókamarkaði
Víða liggja leiðir
Þriðja bók Guðbjargar
Hermannsdóttur
GUDBJÖRG
HERMANNSDÖTTIR
Vinir í varpa
eftir Jón Gísla Högnason
Gísli á Læk, eins og hann er jafnan
nefndur af samferðamönnum sín-
um, er roskinn bóndi úr Árnes-
sýslu. í þessari gagnmerku og
skemmtilega skráðu bók rekur
hann endurminningar sínar frá
æsku og uppvexti á fyrstu áratug-
um þessarar aldar. Ljóslifandi er
lýsing hans á búskaparháttum þess
tíma og samskiptum við menn og
málleysingja í blíðu og stríðu. Það
gneistar af minningaeldi hins
greinda bónda og frásögnin hefur
ótvírætt mikið menningarsögulegt
gildi. Bókina prýða margar myndir,
bæði Ijósmyndir og teikningar og í
bókarlok er nákvæm nafnaskrá.
Vinir i varpa er 420 blaðsíður,
prentuð og bundin í Prentverki
Odds Bjömssonar og útgefandi er
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Guðbjörg Hermannsdóttir hefur
nú eignast traustan og vaxandi les-
endahóp og bækur hennar njóta
sívaxandi vinsælda.
Þessi nýja bók hennar, Víða
liggja leiðir, er hörkuspennandi og
bráðskemmtileg aflestrar. Það
koma margar persónur við sögu og
örlögin spinna sinn vef frá upphafi
til enda. Niðurstaðan verður sú, að
„víða liggja leiðir" og „enginn veit
sína ævina“ fyrir fram. En allt fer
vel að lokum eins og ávallt í
skemmtilegum ástarsögum.
Gigtarsjúkdómar og
heilsufræði alþýð-
unnar
I Þessi bók er önnur bók D.C.Jarvis,
hins þekkta læknis í Vermont,
Bandaríkjunum, en hin geysi-vin-
sæla bók hans, Læknisdómar al-
þýðunnar, hefur opnað hundruð-
um þúsunda lesenda dyrnar að
hinni alþýðlegu læknislist. Sú bók
hefur komið út í tveimur útgáfum á
íslensku, fyrst 1962 og síðan var
hún endurprentuð 1970.
Gigtarsjúkdómar og heilsufræði
alþýðunnar er rituð á lifandi og
auðskildu máli og bókin opinberar
fróðleik sem er í fárra eigu og ber
fram skynsamlegar ráðleggingar
um liðagigt, sem er einn hinna
þrálátustu sjúkdóma sem lækna-
vísindin þekkja.
Mjög eru athyglisverðar athug-
anir og tilraunir höfundarins á búfé
bændanna í Vermont, fóðrun þess
og áhrif fóðursins á heilsufar þess
og áhrifaríkum en einföldum að-
ferðum til viðhalds heilbrigðis
bústofnsins og afurðagæða.