Dagur - 06.01.1981, Blaðsíða 7
„Ljóstollur",
Ný skáldsaga eftlr Ólaf
Gunnarsson
Út er komin skáldsagan Ljóstollur
eftir Ólaf Gunnarsson. Iðunn gefur
út. Þetta er fjórða bók höfundar,
hin fyrsta, Ljóð, kom út fyrir tíu
árum, en hið síðasta, skáldsagan
Milljón prósent menn, árið 1978.
Ljóstollur er samtíðasaga úr
Reykjavík. Sögumaður er ungur
piltur, Stefán að nafni, og lýsir
sagan reynslu hans í fjölskyldulífi
og á vinnustað. Um efni sögunnar
segir svo meðal annars í forlags-
kynningu á kápubaki: „Ef því er
haldið fram að Ljóstollur sé
óvenjulegt verk, þá má segja að það
sé hálfur sannleikur. Sagan er sem
sé ofur venjuleg að því leyti að hún
lýsir kunnuglegum aðstæðum og
umhverfi, segir frá fólki sem les-
andinn á auðvelt með að þekkja.
Við fylgjumst með upptöku ungs
manns í samfélag karlmennskunn-
ar þar sem öllu skiptir að vera töff
— eða sýnast það ef maður vill lífi
halda ... Samt er það svo að ýmsir
munu hrökkva við og vafalaust
snúast gegn þessari sögu, vísa henni
á bug. Hvers vegna? Það er af því
að hér er ef til vill gengið nær
reynslu sögupersóna en við höfum
áður átt að venjast í skáldsög-
um...“
Ljóstollur er í þrjátíu köflum, 148
blaðsíður að stærð. Á kápu er
myndin Leikir furstans eftir Álfreð
Flóka. Steinholt h.f. prentaði.
„Grösin í
glugghúsinu,“
Ný saga eftir Hreiðar
Stefánsson
IÐUNN hefur gefið út Grösin í
glugghúsinu, sögu eftir Hreiðar
Stefánsson. Hann er löngu kunnur
höfundur barna- og unglingabóka.
Hefur hann samið fjölmargar
bækur, nokkrar einn en flestar
ásamt konu sinni, Jennu Jensdótt-
ur.
Um þessa nýju sögu Hreiðars
segir svo í kynningu forlagsins:
„Grösin í glugghúsinu er saga sem
hentar jafnt börnum sem fullorðn-
um. Sagan gerist fyrir hálfri öld og
ersögð í annarri persónu sem fátítt
er um sögur. Hún segir frá tíu ára
gömlum dreng, Garðari, sem
heima á í kaupstað en dvelst um
sumar á sveitabæ. Þetta eru erfiðir
tímar og á herðar drengnum leggst
þungbær reynsla þetta sumar. Við
kynnumst ýmsum manngerðum
sem eru dregnar skýrum dráttum
og fáum innsýn í hugsunarhátt og
samskipti fólks sem geta verið
býsna undarleg og öfugsnúin. En
þetta er líka saga um hamingju-
stundir bernskunnar þegar stund-
um þarf lítið til að gleðja eins og
græta.“
Grösin í glugghúsinu er 90 blað-
síðna bók. Pétur Halldórsson
teiknaði kápu. Prenttækni prent-
aði.
„Margeir og
spaugarinn,“
Ný lögreglusaga Gunnars
Gunnarssonar
Ut er komin á vegum IÐUNNAR
bókin Margeir og spaugarinn, lög-
reglusaga eftir Gunnar Gunnarsson.
Þetta er önnur bók Gunnars um
rannsóknarlögreglumanninn Mar-
geir, hin fyrsta kom út í fyrra og
nefnist Gátan leyst. Ennfremur
hefur hann samið ásamt öðrum
sakamálaleikritið Svartur markað-
ursem flutt var í útvarp fyrir tæp-
um tveimur árum.
Efni sögunnar Margeir og
spaugarinn er kynnt svo á kápu-
baki: Kona finnst látin í fjörunni
framan við Fiskifélagshúsið á
Skúlagötu. Allar líkur benda til að
þetta sé útlend kona og hafi ráðið
sér bana. Varla annað að gera fyrir
rannsóknarlögregluna en afla sér
upplýsinga um hver hún var. Þá
kemur maður sunnan úr Keflavík
og kveðst vera eiginmaður hinnar
látnu.
Margeir og spaugarinn er liðlega
140 blaðsíðna bók. Oddi prentaði.
Athugasemd
Greinin „Dagur í lífi fanga" sem
birtist í jólablaðinu var þýdd upp
úr norsku blaði af Ólafi Ásgeirs-
syni.
Óskum eftir starfskrafti til
skrifstofustarfa.
Vélritunarkunnátta æskileg.
Upplýsingar ekki í síma.
Heildverslunin Eyfjörð,
Hjalteyrargötu 4.
Dalvíkingar
Umboðsmaður óskast á Dalvík frá áramótum. Til
greina kemur að ráða tvo unglinga er bæru út í sinn
hvorn helminginn af bænum. Nánari upplýsingar á
skrifstofu blaðsins.
Dagur
Tryggvabraut 12, sími 24167.
& SAMBANO ÍSLENZKRA SAMVINNUfELAGA
Idnaðardeild ■ Akureyri
Skrifstofustörf
Óskum að ráða starfsfólk til að sjá um út-
fluttningsappíra, innfluttningspappíra og til
starfa í tölvudeild.
Góð enskukunnátta nauósynleg. Umsóknir
sendist fyrir 20. janúar n.k. til starfsmanna-
stjóra sem gefur allar nánari upplýsingar, sími
21900 (23)
Starfsfólk
vant saumaskap óskast í fyrripartsvakt, frá kl.
7.30-12.00.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra, sími
21900 (23).
Glerárgata 28 • Pósthólf 606 ■ Simi (96)21900
0
DAGUR.7
argus