Dagur - 06.01.1981, Blaðsíða 8
Akureyri, þriðjudaginn 6. janúar 1981.
Bílapernr
6-12 09 24 volta ™?2ííi2
SAMLOKUR
fyrir og án
peru
—MMKTMn ^TBrminwrjrTwrtí
mmmmmmmmmmmm
í fréttatilkynningu frá Iðnaðar-
deild Sambandsins segir að nauð-
synlegt hefði þótt að fækka sjálf-
stæðum rekstrareiningum, en
byggja í þess stað upp færri en
stærri einingar. Iðnaðardeild Sam-
bandsins verður framvegis skipt í
fjórar einingar, eins og áður sagði,
sem koma í stað 13 sjálfstæðra
deilda áður og verður hver eining
um sig undir stjórn sérstaks að-
stoðarframkvæmdastjóra. Þessar
einingar eru fjármál og stjórnun,
ullariðnaður, skinnaiðnaður og
fataiðnaður. Hvert iðnaðarsvið
verður ábyrgt fyrir framleiðslu,
sölu, dreifingu, innkaupum og
vöruþróun. Fjármála- og stjórnun-
arsvið mun bera ábyrgð á fjármál-
um áætlanagerð til lengri og
skemmri tíma, tölvudeild, starfs-
mannamálum og samskiptum við
sameignarfyrirtæki Iðnaðardeild-
ar.
0 82 banaslys
Á síðasta ári létust 82 íslend-
ingar af slysförum, en árið
1979 urðu banaslysin 86
talsins. Flest urðu banaslysin
í febrúarmánuði, en þá létust
15 íslendingar af völdum
slysa. I þeim mánuði fórust 6
rækjusjómenn með 2 bátum í
(safjarðardjúpi og einum í
Arnarfirði.
0 Gagnrýni
í blöðum
Eins og venjulega helltist yfir
landsmenn firnin öil af bók-
um og um margar þeirra var
skrifað í blöðin af gagnrýn-
endum. Það vakti furðu
ýmsra hve afkastamiklir
sumir gagnrýnendurnir eru. Á
tiltölulega fáum dögum virt-
ust þeir lesa hestburð af nýj-
um bókum og skrifuðu um
þær lærða langhunda. Það
ber að segjast hér og nú að
oft var vel ritað og Ijóst að
viðkomandi gagnrýnandi
hafði lesið bókina spjald-
anna á milli, en alltof oft var
um innihaldslítið blaður að
ræða og næsta öruggt að
gagnrýnandinn hafði varla
haft fyrir því að taka plastið
utan af bókinni, hvað þá flett
henni. Nú er það svo að æði
margir lesendur dagblaða
landsins taka mark á um-
sögnum af þessu tagi, gagn-
rýni, og því ætti það að vera
kappsmál þeim blöðum sem
Bíl stolið
Á gamlárskvöld var fólksbíl
stolið í Brekkugötu. Hann
fannst óskemmdur næsta
rnorgun. Að sögn lögreglunnar
var gamlárskvöld óvenju rólegt.
Tveir voru settir í fangelsi á
gamlárskvöld. Svo virðist vera
að Akureyringar, og raunar
landsmenn allir, séu farnir að
haga sér mun betur á gamlárs-
kvöld en hér á árum áður.
• Nýju
peningarnir
Og þá erum við loks búin að
fá nýja peninga. Að sögn
gengu skiptin vel fyrir sig og
að fólk sætti sig ágætlega við
breytinguna. Vissulega kem-
ur það fólki spánskt fyrir
sjónir að þurfa ekki að greiða
nema nokkra tugi króna fyrir
bensínpottlnn og e.t.v. geta
lág verð á vínveitingahúsum
ruglað suma viðskiptavini
þeirra í ríminu. Hið eina sem
t.d. eldra fólk virðist hafa að
athuga við smápeningana, —
þ.e. 5 aura, 10 aura og 50
aura, er það hve líkir þessir
peningar eru hver öðrum.
Af einstökum breytingum má
m.a. nefna að markaðsdeild og
skrifstofa Iðnaðardeildar í Reykja-
vík verða lagðar niður. Verkefni
markaðsdeildar skiptast framvegis
milli fyrrgreindra iðnaðarsviða en
verkefni skirfstofu Iðnaðardeildar
verða leyst af aðalskrifstofu Sam-
bandsins í Reykjavík og skrifstofu
Iðnaðardeildar á Akureyri.
Aðstoðarframkvæmdastjóri fjár-
mála- og stjórnunarsviðs verður
Bergþór Konráðsson sem jafnframt
er staðgengill framkvæmdastjóra
Iðnarardeildar en aðrir aðstoðar-
framkvæmdastjórar verða Sigurð-
ur Arnórsson, sem fer með ullar-
iðnað, Jón Sigurðarson, sem fer
með skinnaiðnað og Gunnar
Kjartansson, sem stýrir fataiðnaði.
Allir þessir starfsmenn hafa
unnið hjá Sambandinu um árabil
nema Gunnar Kjartansson sem er
nýr starfsmaður sambandsins og
hefur hann störf l. febrúar n.k.
Framkvæmdastjóri Iðnaðardeildar
er Hjörtur Eiríksson.
Námskeið í stillingu
vatnshitakerfa á Ak.
Að tilhlutan Iðnaðarráðuneytis-
ins hefur Byggingaþjónustan
haldið námskeið í stillingu
vatnshitakerfa fyrir pípulagn-
ingamenn og aðra sem við hita-
kerfi fást, eins og vélgæslumenn,
starfsmenn hitaveitna og hús-
verði. Mjög mikil aðsókn hefur
verið á þessi námskeið. Haldin
hafa verið þrjú í Reykjavík, eitt
á ísafirði, eitt á Egilsstöðum og
nú er ákveðið að halda nám-
skeið á Akureyri laugardag og
sunnudag 10. og 11. janúar n.k. í
Iðnskólanum og hefst á iaugar-
dagsmorgun kl. 08.30.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir
6. janúar til Byggingaþjónust-
unnar, Hallveigarstíg 1,
Reykjavík, í síma 91-29266 eða
til Meistarasambands bygging-
armanna á Norðurlandi í síma
96-21022. Þátttökugjald er
nýkr. 150,00.
Það fer ekki á milii mála að í
síhækkandi orkuverði er þýð-
ingarmikið fyrir alla að spara í
húshitun.
eru vönd að virðingu sinni að
sjá til þess að greinar um
bækur séu gerðar af kunn-
áttu. E.t.v. væri ráð að hlýða
gagnrýnandanum yfir efni
bókarinnar áður en grein
hans um bókina er birt?
0 Samningar
Eins og komið hefur fram í
fréttum er m.a. verið að semja
við bensínafgreiðslumenn í
Reykjavík og fyrirhugaðar eru
viðræður eða hafnar, við
ýmsa aðfla. Þegar fréttist af
samningaviðræðum og verk-
föllum er ekki nema von þótt
fólk spyrji hvort ekki hafi ver-
ið samið í fyrra?
Gisli Ólafsson lét af starfi yfirlögrcgluþjóns um áramótin, en við tók Erlingur
Pálmason og Ólafur Ásgeirsson var skipaður aðstoðaryfirlögregluþjónn. Gísli er
fyrir miðri mynd, enÓlafur t.v. og Erlingur t.h. Mynd: áþ.
Mikil ös var f bönkum bæjarins s.l. föstudag, fólk beið i
röðum með gömlu góða seðlana, en þennan dag og einnig
á laugardag gat almenningur komið með gamla seðla og
fengið nýja í staðinn. Myndin var tckin í Búnaðarbank-
anum, en þess má geta að útibúið á Akureyri átti 50 ára
afmæli skömmu fyrir áramótin. Mynd:áþ.
Allvíðtækar skipulagsbreytingar
komu til framkvæmda hjá Iðn-
aðardeild SÍS á Akureyri nú um
og eftir áramótin. Meginbreyt-
ingin er fólgin í því að deildinni
verður skipt niður í fjórar
rekstrareiningar, sem koma í
stað þrettán sjálfstæðra deilda
og verksmiðja áður. Ekki er að
fullu búið að ganga frá þessu
nýja skipulagi, en þó hefur verið
ákveðið að skiptingin verður
eftir rekstrargreinum, þ.e. ullar-
iðnaður sér, skinnaiðnaður sér,
og fataiðnaður sér. Sömuleiðis
verða fjármál og stjórnun sér-
stök eining.
Verndaður
vinnustaður
Næstu kvöld munu félagar í
Styrktarfélagi vangefinna á
Norðurlandi ganga í hús á Ak-
ureyri og selja almanaks-
happdrætti Landssamtakanna
Þroskahjálpar.
Verðinu er mjög stillt í hóf en
hvert almanak kostar aðeins 35 ný-
krónur. í hverjum mánuði erdregið
í happdrættinu og er vinningur ferð
til Mallorca fyrir einn að upphæð
6000 nýkrónur.
Söluhagnaður hér á Akureyri fer
allur í byggingu verndaðs vinnu-
staðar, sem nú er að rísa í Hrísa-
lundi og vonast er til að tekinn
verði í notkun á þessu ári.
Færri bruna
útköll sl. ár
Á sl. ári voru 73 brunaútköll
hjá Slökkviliði Akureyrar, en
þau voru 80 árið áður.
Stærsti eldsvoðinn var 6.
mars í Skipasmíðastöðinni
Vör h/f á Óseyri. Þar eyði-
lagðist m.a. bandrcistur eik-
arbátu hús og dýrmæt tæki.
í samantekt slökkviliðsstjóra,
Tómasar B. Böðvarssonar fyrir
síðasta ár, kemur fram a3
sjúkraflutningar voru 1.068 á
síðasta ári, þar af 241 utanbæj-
ar, en voru 978, þar af 167 ut-
anbæjar, árið áður. Af þessum
1.068 sjúkraflutningum voru
146 neyðartilfelli.
Slökkviliðið var oftast kallað
út vegna elds í rusli, sinu eða
mosa (alls 26 sinnum) og því-
næst koma brunar í ökutækjum
sem voru 9 talsins. Oftast var
slökkviliðið kallað út milli
klukkan 12 og 15. Það vekur at-
hygli í skýrslu Tómasar B. Böð-
varssonar að slökkviliðið hefur
aldrei verið kallað út milli
klukkan 06 og 09 á síðasta ári og
aðeins einu sinni milli klukkan
12 á miðnætti til klukkan 03
e.m. Þá er athyglisvert að í 18
skipti af 57 voru upptök eids-
voða af völdum leiks barna með
eld.
Tveir piltar létust
Tveir skátar frá Akureyri, 15 og
16 ára gamlir, urðu úti sunnu-
dagsmorguninn 28. desember. At-
burðurinn átti sér stað á Finna-
staðadal um 25 kílómetra sunnan
við Akureyri. Þrír aðrir skátar
lifðu hrakningarnar af, en voru
mjög þrekaðir.
Piltarnir fóru frá Akureyri að
morgni annars í jólum og tjöld-
uðu í norðurhlíð Finnastaðadals
um kvöldið. Veður var mjög vont
á þessum slóðum og eftir marg-
víslegar hrakningar tókst einum
piltanna að komast að bænum
Holtsseli um klukkan sjö á
sunnudagsmorguninn.
Þeir sem fórust voru: Frey-
steinn Guðmundsson, 16 ára,
sonur hjónanna Áslaugar
Freysteinsdóttur og Guðmundar
Þórhallssonar, Dalsgerði lc. Þor-
geir Rúnar Finnsson, 15 ára, son-
ur hjónanna Guðrúnar J. Gunn-
arsdóttur og Finns Marinóssonar,
Dalsgerði li.
Þeir sem lifðu af hrakningana
voru Hreinn Skagfjörð Pálsson 20
ára,Ármann Ingólfsson lóáraog
Jón Vídalín Ólafsson 15 ára.
SKIPULAGIIÐNAÐAR-
DEILDAR S.Í.S. BREYTT